Vísir - 08.10.1981, Side 27

Vísir - 08.10.1981, Side 27
Fimmtudagur 8. október 1981 vísnt 27 ItAAi Fasteignamarkaður Vísis á fimmtudegi // r Hagstætt tækifæri Sambyggt ibúðar- og iðnaðarhúsnæöi i einni aðal verstöð Suðuriands. tbúðin er ca 120 fm. á einni hæð (stofa, rúmgott eldhús, 3 svefnher- bergi, vinnuherbergi, þvottahús, búr m.m.) öll innréttuö með nýtisku- innréttingum. Viðbyggt er ca. 120 fm. iðnaðarhúsnæði sem bentar vel til hvers konar minni háttar atvinnureksturs. Bflskúr fylgir einnig. Húseignin er tii sölu af sérstökum ástæðum. Einstakt tækifæri fyrir aðiia sem vilja skapa sér sjálfstæöa atvinnu. Eignaskipti möguieg. Verð aðeins um 600 þús. kr. Nánari upplýsingar á skrifstofunni. Eignasalan s 19540 19191 Hafnarfjörður, Hellisgata 16 Götuhæð þessa húss er tilsöiu. Húsnæðið, sem er um 160 fm. er allt ný- lega standsett, t.d. nýir gluggar og gler, hita- og rafmagnslögn. Tveir inngangar og þvi hægt að skipta húsnæðinu og nota þaö sem ibúö, tvær ibúðir, skrifstofur eða verslunarhúsnæöi. Teikningar af ibúðum fyrir- liggjandi. Verð 500-550 þús. kr. Fasteignaþjónustan s. 26600 Hveragerði einbýlishús Þetta einbýlishús miðsvæðis i Hveragerði er til sölu. Húsiö er 110 fm i góðu ástandi. Skiptist i saml. stofur, 3 svefnherbergi m.m. Bilskúr 40 fm fylgir. Stór ræktuð lóð meö miklum trjá- gróðri. Bein sala eða skipti á 3ja herb. ibúð I Rvik. Eignasalan s. 19540 19191 Klapparstigur 28 Húsið er kjallari (220 fm) tvær hæöir (hvor 180 fm) og ris (ca 120 fm). Húsið þarfnast viðgeröar. Getur hentað hvort sem er sem ibúðar- eða skrifstofuhúsnæöi. Tilboð óskast. Fasteignaþjónustan s. 26600 Hesthús i Viðidal Nýlegt 6 hesta hús i Viðidal tií sölu. Sjálfbrynning. Gott hús. Til afhendingar nú þegar. Tilboð óskast. Eignasalan s. 19540 19191 Kópavogur 450 fin jarðhæð i þessu húsi er til sölu. Úúsiö er vel staðsett i austurbæ Kópavogs. Lofthæð er 3 metrar. Hægt að setja inn- keyrsluhurðir. Sny rtilegt, gott húsnæði. Verö 1.100 þús kr. Fasteignaþjónustan s. 26600 Hafnarfjörður 772 fm. húsnæði I húsi er til söiu. Húsið er á tveimur hæðum meö innkeyrsiumöguleika á báðar hæðir. Byggingaréttur fyrir eina hæö ofan á húsið fylgir, auk bygg- ingaréttar fyrir tvilyft hús sem á að samtengjast þessu. Yrði gafl þess húss ca. 500 fm. Verð um 3.0 millj. kr. Fasteignaþjónustan s. 26600 Verksmiðjuhús — miklir möguleikar Hús i hjarta borgarinnar, — 800 fermetrar með mjög mikiili loft- hæð. Möguiegt að setja milliloft i húsið. Góð bilastæöi. Ýmsir möguleikar svo sem stór verslun, samkomusalur vörugeymslur o.fl. Undir húsinu er 800 fermetra kjallari sem er bilageynsla. Verö 3.5 millj. kr. Fasteignaþjónustan s. 26600 Lúxus-ibúð glæsi- skrif- stofa Ca. 240ferm. húsnæði á mjög góð- um staö I Austurborginni I Reykjavik. 1 dag er þetta glæsileg og vönduð lúxus-Ibúð. Litil fyrir- höfn að breyta húsnæðinu i glæsi- skrifstofur. Mætti einnig nota sem blandað Ibúðar- og skrif- stofuhúsnæði. Mikiö útsýni. Til afhendingar nú þegar. Unnt að taka góða ibúð upp i. Eignasalan s. 19540 19191 Fasteignamarkaður Vísis á fimmtudögum Auglýsingadeild Visis hefur ákveðið að efna á fimmtudögum til sérstaks fasteignamarkaðar i blaðinu, þar sem auglýsendum, jafnt ein- staklingum sem fasteignasölum gefst kostur á þvi að augiýsa ódýrt einstakar fasteignir. Það er von blaðsins, að auglýsendur og les- endur blaðsins kunni að meta þessa nýbreytni og færi sér hana i nyt. — Athygli er vakin á þvl að þessar auglýsingar kosta aðeins það sama og aðrar smáauglýsingar. Myndbirtingarnar eru þvi ókeypis. JAFNRÉTTISKRAFAN ALDREI RRÝNNI Konur hafa veriö afskiptar i stjórnmálum á söm u forsendum og þeim, sem beitt var i'rökræð- um gegn þviað þær fengju kosn- ingarétt á sínum tima. Þetta er i rauniimi-óskiljanlegt og virðist eiga rætur að rekja til stjórnar- hátta, þar sem kraftar og grhnmd réðu mestu um afburöi við stjórnsýslu. Samkynja er sú gamla venja, að aðeins elstu synir erfi góss og lendur, en konur erfi yf irleitt ekki neitt, og eigi helst að hugsa um að giftast rikum. Hún hefursem sagt eng- an frumburöarrétt haft alveg fram á síðustu tima. Mál er að margvislegri ósvinnu f garð kveuna liimi, og upp verði teknir hættir siðaðra manna i þeim stofuunum, sem i raun geta ráð- ið miklu um áhrif og jafnrétti konunnar. Þar má geta ríkis og stjórnmálaflokka. Mikið skortir á, að þar riki jafnrétti milli kynja, eins og kom raunar giöggt fram i sjönvarpsþætti i fyrrakvöld, þar sem konur ræddu sérframboð kvenna og annaö álika gáfulegt, sem þeim hefur verið lagt I munn af karla- veldinu. Að visu væri sérfram- boð kvenna þarft ef konur kjörnar á þing og i bæjar- og sveitarstjórnir héldu hópinn eins og laustengdur flokkur og ynnu að þvi fyrsta kastiö að efla rétta kvenna, en léti annað dæg- urþras lönd og leið. Slfkur kven- réttiudaflokkur væri þarfur, en hann veikti jafnframt stöðu kvenna, vegna þess aö þær hefðu ekki unnið til sameigin- legs réttar við karlmenn meö sérframboðum sinurn. Þær mmidu hins vegar viöurkenna I verki að þær væru sér á parti, og það gæti hugsanlega seinkað sjálfsagðri og eðlilegri þróun i jafnréttisátt. Kröfuuni um raunverulegt jafnrétti á stjórnmálasviöi verður ekki að sinni svarað nema með uokkuð öfgakennd- um aðgerðum, sem seinna yrði að taka til endurskoöunar. Það er nefnilega ekki hægt aö láta hið pólitiska jafnrétti þróast með eðlilegum hætti, enda yrði þá aldrei um raunverulegt jafn- rétti að ræða. Ráðið er aö flokk- arnir taki upp þá reglu að hafa konu i öðru hverju sæti á fram- boðslistum og láta prófkjör ráða hverjir skipa efstu sætin, eins og gert er nú, að þvf breyttu, að efsta kona i prófkjöri, þótt hún fáikannski ekki nema þrjátiu af hundraði atkvæöa, skipi annað sæti listans, og síðan áfram þannig lúður listann þangað til hann er fullskipaður. Þetta mun áreiðanlega ekki þykja góð regla, enda mundi hún með vissum hætti svipta karlsigur- vegarana i prófkjörum rétt- mætum sætum. Samt sem áöur virðist engin önnur ieið fær i bili sé fólk i alvöru að tala um jafn- rétti á pólitiska sviðinu, og flokkslega séð er þetta ólikt heppilegri aöferð en fá yfir sig kvennalista viðsvegar um land, sem mundu endaniega ganga frá flokkaskipulagiuu dauðu, yrðu kveunaframboðin sótt af einhverjum krafti. Sú pólitfska yfirlýsing, að konur séu vanhæfari til að sinna stjórnmálum en karlar, og birt- ist okkur viö 1 istaski panir flokka viö hverjar kosningar, er orðin óþolandi fyrir löngu. Til- raunir til að standa með ein- stöku konuni, sem háfa haft af- skipti af pólitik, hafa ekki borið árangur, enda virðist karlaregl- an næstum ósigrandi. Nú eru enn einar kosningar framund- an. Kvenforseti situr á Bessa- stöðum og hefur bæöi völd og áhrif. Forsetinn var studdur af konum og körlum. Það eru þvf engin óskráð lög til, sem segja að karlar skuli einkum skipta séraf stjórnmálum. Hins vegar veltur það mjög á konunum sjálfum, hvort þær láta enn einu sinni bjóða sér aö vera hálfgerð- ir svertingjar í pólitfsku Klu- Kluks-Klan samfélagi karla, eða hvort þær knýja á um ákveðna reglu iiuian flokkanna og þess skipulags sem gildir, er veiti þeim jafnrétti og sjálfsögö mannréttindi á sviöi stjórn- mála. Svarthöfði

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.