Lesbók Morgunblaðsins - 25.05.2002, Qupperneq 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 25. MAÍ 2002 3
A
F HVERJU fær maður
aldrei almennileg epli nú
til dags? segi ég um leið
og ég teygi mig í marmel-
aðikrukkuna.
– Veistu hvað? segir
konan mín og er risin á
fætur, búin að þurrka sér
um munninn og smella kossi á ennið á mér.
Ég er að hugsa um að fara að versla.
Og áður en ég hef ráðrúm til að laga mig
að þessum snöggu umskiptum í miðju morg-
unverðarborðhaldinu er hún komin í kápuna
og horfin út um dyrnar með innkaupa-
töskuna í hendinni. Það er ekki fyrr en ég
heyri bílhurðinni skellt að það rennur upp
fyrir mér. Henni hefur enn einu sinni tekist
að snúa á mig. Ég styn þreytulega og smyr
marmelaðinu gætilega á léttristaða heil-
hveitibrauðsneiðina.
En þetta með eplin. Ég get varla ímyndað
mér neitt skemmtilegra en taka þennan
merkilega ávöxt til umræðu. Maður skyldi
halda að það væri ekki ofverkið sumra að
taka þátt í smá skoðanaskiptum um þetta
mál í nokkrar mínútur á meðan verið er að
ljúka borðhaldinu. Nei, nei, ekki til að tala
um, bara rokið burt á svipstundu. Ég hristi
höfuðið um leið og ég smjatta á brauðinu og
fæ mér sopa af eðalkakóinu frá Kaaber.
Ég var reyndar einu sinni búinn að króa
hana af og ákveða að taka rækilega fyrir
þetta taktleysi hennar, leiða henni fyrir sjón-
ir að það gæti varla gert henni mikið mein að
taka örlítinn þátt í þessu áhugamáli mínu, já
sýna bara ofboð lítinn lit. Við hefðum jú viss-
ar skyldur gagnvart hvort öðru. Tók ég til
dæmis ekki þátt í að...? Ja, það var sama.
En ég var ekki nema rétt byrjaður að
flytja mál mitt þegar þessi líka sárs-
aukasvipur framkallaðist í andliti hennar og
svei mér þá ef hún var ekki við það að bresta
í grát. Mér féll allur ketill í eld. Þetta var
kannski slæmi dagurinn hennar. Eitthvað
hafði komið fyrir í vinnunni, sem hún var
ekki enn tilbúin að ræða. Eða þá að hún hafði
einfaldlega bráðaofnæmi fyrir hljóðsamsetn-
ingunni e-p-l. Það er óneitanlega dálítið kind-
ug samsetning þegar maður tengir saman
þessi þrjú hljóð. Ég snarhætti við allt saman.
Sló þessu upp í grín, kjaftaði mig út úr því
með einhverri sögu um mann sem varð fyrir
ávaxtabíl og á endanum var hún farin að
skellihlæja.
Svo ég sneri mér bara til vina og kunn-
ingja í staðinn. En það er svo skrýtið að mér
finnst aldrei neitt fútt í þeirri umræðu. Ég
fæ hreint ekki nein viðbrögð að gagni. Fólk
kinkar kolli, jánkar, geispar, lítur á klukk-
una, kemur sér í yfirhafnir og er farið að ná í
barnið sitt á leikskólann.
Það er annars ótrúlegt hve fólk er upp til
hópa sljótt fyrir umhverfi sínu og því sem
það lætur ofan í sig. Maður skyldi halda að
því stæði nákvæmlega á sama hvort það gef-
ur barninu sínu eitur eða holl næringarefni.
Ég segi eitur! Því það er hrein og bein sví-
virða hvernig búið er að fara með eplin,
þennan dásamlega ávöxt sem skaparinn ætl-
aði mönnum og skepnum til yndisauka og
allra bestrar næringar. Að pína þau upp á
methraða með alls konar kemískum aðferð-
um, úða og sprauta með skordýraeitri og
gerviefnum og geisla svo allt heila klabbið í
lokin. Og öllum stendur á sama. Menn troða
þessu bara í sig umhugsunarlaust, þótt
hvorki finnist vottur af bragði né ilmi.
Ég veit satt að segja ekki hvað ég hefði
tekið til bragðs hefði ég ekki hitt konuna.
Ég stend sem oftar við ávaxtaborðið og
virði fyrir mér með flökurleika óhugnan-
legan gerviglampann á þessum rauðleitu, út-
tútnuðu boltum sem vel hefðu getað verið úr
plasti. Ætluðu menn virkilega að láta þetta
viðgangast? Fyrirfannst engin manneskja
með óbrenglaða samvisku sem stæði loks
upp og mótmælti þessum helgispjöllum?
– Það er synd með blessuð eplin.
Ég hrekk við og lít í kringum mig. Þetta er
lágvaxin kona á miðjum aldri með fínlega
andlitsdrætti og milt augnaráð. Hún horfir
ýmist á mig eða plasteplin.
– Ha, hvað áttu við? spyr ég andstuttur.
– Ég á bara við að maður fær aldrei nein
epli lengur sem hægt er að leggja sér til
munns.
Það er ljúfsár angurværð í svipnum og ég
heyri nú að hún er með svolítinn hreim.
– Ekki eins og í gamla daga, heldur hún
áfram. Þegar maður kom út á morgnana og
tók þau upp úr grasinu, ilmandi og fag-
urrauð. Þau bráðnuðu á tungunni, safinn
rann um allan líkamann og út í hverja taug
og það var fuglasöngur, sólskin og flugnasuð.
Náttúran tók sér bólfestu innra með manni
og lífið bar í sér undursamleg fyrirheit.
Ég stend eins og bergnuminn og stari op-
inmynntur á þessa nettu konu sem tekur upp
appelsínu og vegur í lófa sér.
– Já, ég er fædd og alin upp í Þýskalandi,
segir hún svolítið afsakandi. Mér finnst vera
heil öld síðan ég hef smakkað epli. Svipur
hennar harðnar skyndilega þegar hún
bandar hendinni í átt að plastkúlunum. Þetta
eru ekki epli, segir hún. Þessir hnullungar
hafa verið geymdir árum saman í risastórum
vöruskemmum á meginlandinu áður en þeir
koma til okkar. Þau geta víst haldið þessu út-
liti marga áratugi við rétt hitastig. Það gerir
geislunin.
Harkan hverfur úr svipnum og dapurleiki
kemur í staðinn.
– Mig dreymir oft að ég gangi berfætt út í
grasið að morgunlagi þegar sólin er að byrja
að verma laufin, beygi mig niður og taki upp
eitt af gömlu eplunum. En um leið og ég ber
það að munninum sé ég að það er skemmt.
Ég sé ekki betur en að tár glitri á hvörmum
hennar. Ég stíg eitt skref í áttina til hennar
og lyfti handleggjunum. Áreynslulaust föll-
umst við í faðma.
Í LEIT AÐ
LIÐINNI TÍÐ
E Y S T E I N N B J Ö R N S S O N
e y s t b @ i s m e n n t . i s
RABB
GEIRLAUGUR
MAGNÚSSON
KATTLEIKUR
þegar villikettirnir og borgarkettirnir hafa
gert með sér bandalag um að elska og svíkja
með atlotum atlæti og aðförum
þegar draumar þínir koma blíðmálgir
sléttgreiddir og kattþvegnir
þegar rottuholan er orðin þitt eina athvarf
þá dugar ekki að taka til að brýna klærnar
fyrir margtlöngu orðinn flæktur í snöru veiðiháranna
og leikurinn er að hefjast
þeir prúðbúnu hafa strokið feldinn
snyrt kampana
og gefið í samskotabaukinn
rétt fyrir herkostnaði
brotabrot af herkostnaði
og nú skaltu fram á leikvanginn
nú verður þér fagnað
í fyrsta og hinsta sinn
Úr ljóðabókinni Nýund (útg. 2000), sem er 14. bók höfundar af frumortum og
þýddum ljóðum.FORSÍÐUMYNDIN
er hluti ljósmyndarinnar Grátandi tvíburar, Middlesboro, Kentucky, 1988,
eftir Mary Ellen Mark. Þetta er ein myndanna á sýningu hennar American
Odyssey á Kjarvalsstöðum, en hún er hluti af Listahátíð í Reykjavík.
Andrew Vachss
hefur vakið sívaxandi athygli fyrir óvægn-
ar skáldsögur sínar um kynferðislegt of-
beldi og misnotkun. Björn Þór Vilhjálmsson
segir frá þessum umdeilda höfundi.
Hönnun húsgagna
var í öndvegi á alþjóðlegu húsgagna-
hönnunarsýningunni í Mílanó. Ásdís
Ólafsdóttir gekk um sýninguna og skoð-
aði hvað ber hæst.
Árbók Ferðafélags
Íslands 2002
er væntanleg á næstu vikum. Hjörleifur
Guttormsson er höfundur bókarinnar og
birtur er hluti úr kafla um Stöðvarfjörð.
Tucurui-virkjunin
í Brasilíu hefur verið áhyggjuefni umhverf-
issinna. Jónas Bjarnason fjallar um stækk-
unaráform Brasilíumanna og umhverfis-
áhrifin sem slíkt myndi valda.
LESBOK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING LISTIR
2 1 . T Ö L U B L A Ð - 7 7 . Á R G A N G U R
EFNI