Lesbók Morgunblaðsins - 25.05.2002, Side 4

Lesbók Morgunblaðsins - 25.05.2002, Side 4
4 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 25. MAÍ 2002 B RAZILÍA er ævintýraland á mörkum auðlegðar og fátækt- ar, fjölbreytts lífríkis og meng- unar. Flestar fréttir sem berast þaðan eru mjög athyglisverðar fyrir margra hluta sakir. Land- ið býr yfir stærsta frumskógi jarðar og jafnframt stærsta vatnasviðinu. Amazon-svæðið hefur verið kall- að heimsins stærsta kolanáma á yfirborði jarð- ar, en sú lýsing felur í sér mótsagnir. Ann- arsvegar er um að ræða eina mestu gullkistu jarðar, sem hefur ótrúlegt verndargildi, bæði sem „lungu“ jarðar vegna kolefnisjafnvægis í andrúmsloftinu og sem vistkerfi lífs, dýra og plantna. Hinsvegar líta einnig margir til svæð- isins sem uppsprettu auðlegðar fyrir íbúa landsins með nýtingu trjánna til orkuvinnslu eða málmbræðslu svo og til virkjunar vatns- falla; hvort tveggja virðist rýra auðlegð lands- ins varanlega og helstu náttúruverndarsamtök um heim allan berjast ákaft með innlendum þolendum gegn frekari röskun og fyrir tjóna- bótum. Þeir sem lifa í fátækt og við skort þekk- ingar hljóta að gefa lítið fyrir torskiljanleg rök einhverra útlendinga, sem ferðast á milli ráð- stefna um umhverfismál og loftslagsbreyting- ar. Tucurui-virkjunin Suðurhluti Brazilíu er fjöllótt land sem og útjaðrar landsins við landamæri flestra hinna 10 nágrannaríkja. Árið 1984 var Tucurui-virkj- unin, fimmta stærsta vatnsaflsstöð í heimi, vígð en hún er í fljótinu Tocantins, sem er mið- lægt í landinu á Amazon-svæðinu og rennur í norðaustur til sjávar ásamt þveránni Araguaia skammt fyrir sunnan mynni Amazon-árinnar. Nafnið Tucurui er dregið af bæ sem var þar sem virkjunin reis. Myndað var uppistöðulón sem er á stærð við Sikiley. Virkjunin er nú 4.200 MW, en stækkun lónsins er í undirbún- ingi svo og aukin stjórnun vatnsrennslis sem tvöfalda aflið. Segja má að stöðin verði þá um tíu sinnum öflugri en allt afl Þjórsár með sex virkjunum, vegalengdir árrennslis eru einnig tíu sinnum meiri en í Þjórsá, lengsta fljóti Ís- lands. Áform eru auk þess um að byggja 15 nýjar virkjanir í viðbót í þessu vatnakerfi, sem verður þá miklu stærra en Frakkland eða um 10% af Brazilíu allri. Hér er um svimandi stærðir að ræða og lítil furða að margan reki í rogastans. Nú sem stendur fara 2⁄3 hlutar raf- magnsins frá Tucurui til álbræðslu og er þá ljóst, að þessi mál snerta Íslendinga vegna framboðs og verðs á áli svo og virkjunarfor- sendna í landinu. Ekki er vitað hversu mikið afl verður í öllum áformuðum virkjunum þar, ef og þegar þær verða að veruleika, en þar væri um að ræða margföldun á núverandi afli. Umræddar virkjanir og áætlanir um frekari byggingar uppistöðulóna eru að því leyti merkilegar, að rannsóknir eru nú gerðar á öll- um afleiðingum umhverfisbreytinga sem fram- takinu fylgja, en þær eru hrikalegar á hvaða mælikvarða sem er; það er langt í það að öll kurl séu komin til grafar í þessum efnum og ljóst að fórnarkostnaðurinn, bæði sýnilegur og dulinn, er gífurlegur. Nú eru vatnsaflsstöðvar í landinu um 56.000 MW eða u.þ.b. 70 sinnum öflugri en allt Þjórsársvæðið með sex virkj- unum. Þeirra stærst er Itaipu-virkjunarkerfið með risavöxnu uppistöðulóninu Represa de Itaipu í Parana-héraði á landamærum við Paragvæ. Ennfremur er Itaparica-virkjunar- kerfið engin smásmíði á Brazilíu-hálendinu norður af Rio. Vegna allra þessara mála er nú talið, að um 100 þúsund manns séu á vergangi að mestu leyti án bóta eða annarrar atvinnu. Engin orkunýting er án afleiðinga Tucurui-lónið hefur myndað 1.600 eyjar sem standa upp úr því, en 40.000 manns urðu að yf- irgefa svæðið og býr nú lítill hluti þeirra á eyj- unum og stunda annaðhvort fiskveiðar eða landbúnað, en fiskveiðarnar hafa rýrnað um 90% frá því sem áður var. Aðallega er um að ræða indíánaættflokka, sem lifðu áður á veið- um og smábúskap í landbúnaði með nýtingu þess lands og skóga, sem nú eru komin undir vatn. Flestir hafa einfaldlega orðið að hypja sig og hafa fengið litlar bætur og mun minni en þeim var lofað af ríkisfyrirtækinu Eletronorte, sem byggði virkjunina. Aðeins tuttugasti hluti fólksins hefur fengið atvinnu í því álveri sem notar mestan hluta orkunnar; þó var málið há- stemmt lofað sem stórkostlegur þróunaráfangi í upphafi. Í raun vissi enginn fyrirfram hvað gerast myndi áður en farið var af stað. Vísindamenn við hinu opinberu Rannsókna- stofnun Amazon-svæðisins telja nú að milli 7– 10 milljón tonn af kolefni í formi koltvíoxíðs og metans gufi árlega upp úr lóninu vegna rotn- unar trjánna og annars lífræns efnis sem nú er undir vatni. Það er a.m.k. 15%, og sennilega mun meira, af heildarlosun Brazilíu af gróð- urhúsalofti (GHL), reyndar fyrir utan aðrar skógareyðingar. Metan er mörgum sinnum virkara GHL en koltvísýringur, en það mynd- ast við loftfirrða rotnun (eutrophication) trjánna sem og annars lífræns efnis, á sama hátt og gerist í urðuðu sorpi Reykjavíkur. Það er því ljóst að virkjunin er mjög óvistvæn, svo ekki sé meira sagt, þótt virkjað sé vatnsfall, en gróðurhúsaáhrif framtaksins er mörgum sinn- um meira en í sambærilegri brennslu jarðefna- eldsneytis til rafmagnsframleiðslu sem fer til álbræðslu; á heimsvísu er þetta því mjög vond aðferð sem ætti að verða víti til varnaðar. Þessi framleiðslukostur er því sá versti, sem unnt er að hugsa sér út frá hnattrænum sjónarmiðum varðandi andrúmsloft og vistkerfi heimsins alls. Einstakir vísindamenn tala um stóráfall í umhverfismálum. Það virðist nú einsætt, að fyrsti áfangi virkj- unar í Tocantins-ánni er í raun miklu dýrari en áætlað var vegna gífurlegs fórnarkostnaðar og að rafmagn til álframleiðslu hafi líklegast verið selt á of lágu verði. Næstu áfangar virkjana á svæðinu munu fyrirsjáanlega flæma til viðbót- ar tugi þúsunda íbúa á brott og verða einnig mun dýrari en gengið hefur verið út frá til þessa. Fjöldamörg samtök um umhverfismál og vistkerfi jarðar hafa beitt sér í þessu máli og stórátök geta átt sér stað þegar ráðist verður í næstu áfanga. Þetta ástand er umhugsunarefni ekki síst vegna þess að heyrst hefur hérlendis, að virkja eigi fallvötn í Suður-Ameríku en ekki á Íslandi til álframleiðslu. Járnvinnsla Í brazilískri járnbræðslu er að finna ennþá meiri þverstæður en í raforkuvinnslunni. Járn- framleiðsla er í sjálfu sér ekkert merkileg og hefur hún verið stunduð í tæp 3.000 ár með litlum breytingum í aðalatriðum. Hún hefur t.d. verið stunduð á Íslandi frá upphafi byggðar með því að „svæla“ (brennsla með takmörkuðu lofti) saman viðarkol og mýrarrauða. Á Car- ajas-svæðinu á suðurhluta Amazon-svæðisins eru mestu þekktar birgðir járngrýtis í heim- inum og munu þær fyrirsjáanlega endast í 400 ár að óbreyttu. Nú eru þar unnar um 50 millj- ónir tonna á ári af járngrýti sem gefa af sér um 25 milljónir tonna af hrájárni. Sú vinnsla þarfn- ast ekki rafmagns því viðarkol fela í sér meg- inorkuna sem þarf til framleiðslu járnsins. Útblástur GHL í landinu vegna trjábrennslu og járnvinnslu er talinn nema um helmingi af öllum öðrum útblæstri GHL í heiminum, hvorki meira né minna. Þar er um að ræða um- breytingu frumskóga í ræktunar- eða beitar- land fyrir nautgripi og framleiðslu ýmissa plöntuafurða svo sem soyabauna eða sykur- reyrs, sem gerjaður er til framleiðslu vínanda, en hann er notaður sem eldsneyti fyrir far- artæki. Járnvinnslan notar um 200 milljónir tonna af kolefni í trjám á ári og veldur losun á 700 milljónum tonna af GHL sem er ekkert smáræði. Hér er um að ræða eina mestu, ef ekki þá mestu, sólundun í heiminum. Í fyrsta lagi er sóunarmikil framleiðsla viðarkola úr mismunandi blautum trjábútum með loftlítilli svælingu óhagkvæm miðað við beina notkun á koksi, eins og gert er á esturlöndum; þó eru margir sem telja þá aðferð vonda. Í öðru lagi AP Eftirlitsmenn Umhverfisverndarstofnunar Brazílíu, IBAMA, skoða mahónítrjáboli sem felldir voru ólöglega í Amazon-regnskóginum. VATNSVIRKJANIR Í BRAZILÍU OG UMHVERFISMÁL Fyrirhugaðar eru stórfelldar framkvæmdir við vatns- aflsvirkjanir í Brazilíu á komandi árum og áratugum. Allir eru sammála um gríðarlegan fórnarkostnað sem þessu er samfara og sumir ganga svo langt að tala um stóráfall í umhverfismálum heimsins. E F T I R J Ó N A S B J A R N A S O N

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.