Lesbók Morgunblaðsins - 25.05.2002, Síða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 25.05.2002, Síða 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 25. MAÍ 2002 5 eru tré felld og þarmeð tekin úr umferð sem af- kastamiklar kolefnisbindandi lífverur. Þróunin er beinlínis skelfileg Lögð hefur verið járnbraut frá hafnarbæn- um Sao Luis skammt frá mynni Tocantins- fljótsins í gegn um Maraba um þúsund kíló- metra inn í Para-hérað til Carajas- námusvæðisins. Með tilkomu lestarinnar er fylgt svokallaðri þróunaráætlun, sem byggist mest á trjávinnslu til áðurnefndra nota, en nú hafa myndast stór skóglaus svæði beggja vegna brautarinnar og fara þau stöðugt stækk- andi; það verður því sífellt dýrara að sækja við í frumskógana. Mörg fyrirtæki hafa risið með- fram eða í nágrenni járnbrautarinnar og þeirra á meðal er Cosipar, sem framleiðir hrájárn með áðurnefndum hætti úr járngrýti, sem er flutt með lestinni frá Carajas. Á vegum fyr- irtækisins er einnig stunduð skógrækt í til- raunaskyni með útplöntun á nýjum trjám, að- allega eucalyptus. Sérfræðingar fyrirtækisins hafa reiknað út, að unnt sé að byggja alla járn- vinnsluna á kolefni, sem er fengið með nýrækt- uðum trjám í stað þess að ganga stöðugt á hina dýrmætu frumskóga; fyrirtækið segir að það geti ræktað upp 3.500 hektara af skógi á ári eft- ir fáein ár. Dæmið gengur upp ef verð hrájárns hækkar um helming eða ef til þess kemur, að heimsbyggðin sé reiðubúin til að borga um 2 til 3 ísl. krónur fyrir hvert kíló af kolefni, sem er bundið í nýræktuðum trjám. Í þessu sambandi er talað um „carbon-credit“ eða kolefnisinni- stæðu, sem unnt yrði að versla með. Einnig er rætt um að greitt sé „lausnarfé“ frumskóga, þá væri beinlínis verið að greiða vanþróuðum þjóðum eða einstökum landsvæðum fyrir að hlífa frumskógum við eyðingu. Þessi mál eru þó ekki án ágreinings í landinu sjálfu og kemur margt til. Mengunarmál á heimsvísu Eyðing skóga í stórum stíl er ekki bara í Brazilíu heldur mjög víða á öðrum svæðum í Suður-Ameríku svo og í Asíu. Í Malasíu, Indónesíu og Filippseyjum á sér stað stjórn- laus skógareyðing. Ástandið á Borneo er alveg skelfilegt en rætt er um svokallaða timbur- baróna, eins konar lénsherra, sem stjórna ræn- ingjaflokkum sem fella tré ólöglega en þau eru síðan seld til einhverra nota. Þegar þessi mál eru skoðuð í heild, birtist mynd af ástandinu sem er í senn ógnvænleg og þverstæðukennd. Mesta losun gróðurhúsalofts á heimsvísu er nú vegna skógareyðingar og er þá um að ræða athafnir vanþróaðra þjóða eða á tilteknum landsvæðum til þess að íbúar hafi í sig eða á. Ef unnt yrði að stöðva þetta væri það virkasta leiðin til að minnka losun gróðurhúsa- lofts, en augljóst er að það kostar mikla pen- inga. Auk þess er mjög erfitt að fylgja því eftir, að peningarnir fari til þess að stöðva þessa þró- un og væru ekki bara mótteknir án þess að hætta sóuninni. Auðugu þjóðirnar nota stóran hluta jarð- efnaeldsneytisins og verða nú augljóslega að taka á sig mestu ábyrgðina varðandi verndun andrúmsloftsins. Þegar sú notkun er skoðuð ofan í kjölinn kemur ýmislegt í ljós, sem flest fólk áttar sig ekki á. Losun GHL er ekki bara í samgöngum eða til hitunar húsnæðis og eld- unar. Iðnaðurinn notar gífurlega orku til fram- leiðslu málma t.d. eins og járns eða áls, sem fjallað hefur verið um að framan. Efnaiðnaður- inn notar einnig mikla orku til framleiðslu á óteljandi efnum eins og áburði eða gerviefnum, pláguvarnarefnum og málningu, pappírs- og glervinnslu, lyfja og matvæla og svo má lengi telja. Hluti af GHL er beinlínis tilkominn vegna framleiðslu á afurðum, sem eru notaðar í öðrum löndum. Þar á meðal er megnið af þeim matvælum, sem send eru til hungursvæða heims; landbúnaður í ríku löndunum er alls staðar mjög orkufrekur. Vanþróaðar þjóðir nota ýmsar afurðir sem kosta losun GHL í iðn- aðarlöndunum. Fátækur bóndi í Kambódíu notar margskonar málmtæki, pláguvarnarlyf og áburð, sem er framleiddur í öðrum löndum. Oftast gleymist að stórþjóðirnar Indverjar og Kínverjar losa gífurlegt magn GHL. Áhugamaður um umhverfismál á Íslandi, sem ekur til Austfjarða til að flytja erindi um vistvænt atferli manna, ekur á bíl sínum frá Reykjavík og til baka. Hann sendir 600 kg af GHL út í loftið með eldsneytisbrennslu sinni og notfærir sér sennilega að lágmarki um 300 kg losun hins sama í iðnaðarlöndum sem smíða bílinn, en hann slitnar og afskrifast á 10 árum. Þetta er sama losun á GHL og verður vegna út- öndunar hans sjálfs á tveimur árum. Ef sá hinn sami notar reiðhjól til að komast leiðar sinnar sömu vegalengd, losar hann eingöngu um 25 kg af GHL eða 3% af losuninni að ofan með akstri. Ef hann ferðast með flugvélum er losunin snöggtum meiri. Ef forsendur Cosipar hér að framan eru réttar, gæti áhugamaðurinn bundið jafnmikið kolefni í skógrækt í Brazilíu með því að borga 4 kr. í losunargjald eða mengunarskatt af hverj- um bensínlítra í ferðinni. Með góðri samvisku gæti hann haldið því fram, að hann væri vist- vænn og losaði ekkert umfram það sem hann andar frá sér. Öll umræða um sjálfbæra þróun hérlendis er á nokkrum villigötum. Vísindamenn Rannsóknastofnunar Amazon- svæðisins og fleiri fulltrúar landsins urðu fyrir miklum vonbrigðum á loftslagsráðstefnunni í den Haag fyrr á þessu ári vegna þess, að þessi hugmynd hefði ekki fengið mikinn stuðning. Þeir töldu að fundurinn hefði orðið árangurslít- ill vegna deilna á milli þróunarlanda og vest- urlanda um það, hvort ríkar þjóðir gætu keypt sig frá vandanum með því að borga fyrir kol- efnisbindingu með nýræktun í skógum. Stjórn- un á þessari leið yrði vafalaust mjög erfið í framkvæmd. Hér er þó um að ræða eina stór- kostlegustu hugmynd, sem komið hefur fram og líklegust er til þess að ná samstöðu iðnaðar- þjóðanna um fyrstu skref í umhverfismálum. Ekki er allt sem sýnist Umhverfismál eru bæði huglæg og hlutlæg. Hvort sem fólki líkar betur eða verr, þá koma þau upp í sambandi við flest atferli manna og efnahagslíf einstakra landa þar sem andrúms- loftið er sameiginlegt öllu mannkyni. Í því sam- bandi er nauðsynlegt að öll losun á GHL verði skoðuð hnattrænt af áðurgreindum ástæðum, ekki síst framleiðsla matvæla, málma og annar orkufrekur efnaiðnaður. Mikil áform eru nú uppi um margar stórar virkjanir og uppistöðu- lón í Eufrat og Tígris vatnakerfunum í Tyrk- landi. Verði þær að veruleika, raskar það lífi tuga þúsunda Kúrda og spillir auk þess óbæt- anlegum fornminjum á þessu svæði; framtakið getur valdið alþjóðaátökum vegna þess að árn- ar renna einnig um Sýrland og Írak á leið til sjávar. Í Kína er verið að byggja risavaxið orkuver í ánni Yangtse. Þúsundir þorpa munu þá fara í kaf og um tvær milljónir manna verða að hypja sig. Sumir þeirra eru nú að reyna að hefja ræktun á hæðarbrúnum ofan við fyrirsjáanleg miðlunarlón. Frjósama gróðurmold dalbotns- ins er þar ekki að finna auk þess sem næðings- samt verður þar og mun kaldara en í dalbotn- inum sem fer á kaf. Í þessum tilvikum er ekki um mikla GHL-losun að ræða heldur spillingu annarra verðmæta. Um það verður fjallað við annað tækifæri. Heimildir BBC World, Earth Report, A Ransom for the Forest, UNEP/WWS 2001. BBC World, Earth Report, The Fate of the Dammed, UNEP/WWS 2001. Dr. Philip Fearnside. The Tucurui Project, National Amazonian Research Institute, 2001. Alfredo C. Gurmendi, 1997. The Mineral Industry of Braz- il. Margvíslegar upplýsingar eru fengnar frá WCD, World Rivers Review, NGO o.fl. Opinberar brazilískar skýrslur með tölfræði í efnahagslífi landsins.                                   !"  #  $ $ %   & '                                     Höfundur er efnaverkfræðingur. Þ ETTA veitir mér sælukennd. Ég veit ekki hvers vegna, en ég get séð það í smæstu atriðum. Ég stend mig að því að minnast þess aftur og aftur, í hvert skipti dreg ég fram fleiri smáatriði úr djúpum hugans, og endurminn- ingin færir mér undarlega og hlýja ánægju. Þetta var mjög snemma morguns. Aust- urfjöllin voru svarblá, en að baki þeim kom birtan fölrauð á fjallabrúnirnar, og varð kald- ari, grárri og dekkri eftir því sem ofar dró, þar til hún í vesturátt rann saman við óblandna nótt. Og það var kalt, ekki nístingskalt, en nógu kalt til þess að ég neri saman höndunum og þrýsti þeim djúpt ofan í vasana, og ég setti í herðarnar og dró fæturna. Niðri í dalnum þar sem ég var staddur, bar jörðin þennan bláleita gráma dögunarinnar. Ég gekk eftir sveitavegi og framundan mér sá ég tjald sem var aðeins örlítið ljósgrárra en jörðin. Við hlið tjaldsins flöktu rauðgulir logar út um rifur á gamalli og ryðgaðri eldavél úr járni. Grár reykur hnykl- aðist upp um rörið, hnyklaðist hátt upp áður en hann breiddi úr sér og leystist sundur. Ég sá unga konu við eldavélina, eiginlega var hún bara stúlka. Hún var klædd upplituðu bómullarpilsi og blússu. Þegar ég kom nær sá ég að hún hélt á barni og barnið var að sjúga brjóst, höfuð þess undir blússu hennar til að skýla því gegn kuldanum. Móðirin var á stjákli, skaraði í eldinn, dró til ryðgaðar lok- urnar á eldavélinni til að fá meiri dragsúg, opnaði ofndyrnar; og allan tímann saug barn- ið, en það truflaði ekki störf móðurinnar og hefti ekki kvikar og þokkafullar hreyfingar hennar. Rauðgular logatungur smugu út um rifur á eldavélinni og vörpuðu dansandi skugg- um á tjaldið. Nú var ég kominn mjög nærri og fann lykt af steiktu fleski og bökuðu brauði, og unaðs- legri ilm þekki ég ekki. Í austrinu jókst birtan jafnt og þétt. Ég gekk alveg að eldavélinni og rétti fram hendur í átt að henni og skalf allur þegar ylurinn hríslaðist um mig. Síðan var tjaldskörinni lyft og ungur maður kom út og annar eldri á eftir honum. Þeir voru klæddir nýjum bláum buxum og í nýjum bómull- arjökkum með glampandi koparhnöppum. Þeir voru holdskarpir í andliti, og voru mjög líkir ásýndum. Sá yngri var með dökkt stutt skegg, og sá eldri með grátt stutt skegg. Höfuð þeirra og andlit voru vot, vatn draup úr hárinu, og drop- ar hnöppuðust í stinnu skegginu og kinnar þeirra gljáðu af vætu. Hlið við hlið stóðu þeir og horfðu hljóðir á austrið lýsast; þeir geisp- uðu saman og horfðu á birtuna við hæð- arbrúnir. þeir sneru sér við og sáu mig. „Daginn,“ sagði eldri maðurinn. Svipur hans var hvorki hlýlegur né óvinsamlegur. „Daginn, herra,“ sagði ég. „Daginn,“ sagði ungi maðurinn. Vatnið þornaði hægt á andlitum þeirra. Þeir komu að eldavélinni og yljuðu hendur sínar við hana. Stúlkan hélt sig að verki, andlit hennar upp- lyft og hún hafði augun á því sem hún var að gera. Hár hennar var bundið frá andlitinu með borða og það féll niður á bakið og flaksaðist meðan hún starfaði. Hún lagði tinbolla á stór- an kassa, lagði líka tindiska og hnífa og gaffla á hann. Síðan dró hún steikt fleskið upp úr þykkri feitinni og lagði það á stórt tinfat, og fleskið engdist og snarkaði þar til það varð stökkt. Hún lauk upp ryðgaðri ofnlúgunni og tók út ferkantaða pönnu fulla af rúnn- stykkjum. Þegar mennirnir fundu ilminn af heitu brauðinu, drógu þeir báðir djúpt andann. Ungi maðurinn sagði mildum rómi: „Jesús minn!“ Eldri maðurinn sneri sér að mér. „Hefurðu fengið morgunmat?“ „Nei.“ „Jæja, tylltu þér þá með okkur.“ Þetta var merkið. Við fórum að kassanum og settumst á hækjur okkar kringum hann. Ungi maðurinn spurði: „Bómullartínsla?“ „Nei.“ „Við höfum haft vinnu í tólf daga núna,“ sagði ungi maðurinn. Stúlkan stóð við eldavélina og sagði: „Þeir eru meira að segja búnir að fá ný föt.“ Mennirnir tveir litu niður á nýju fötin sín og brostu lítið eitt. Stúlkan bar fram fatið með fleskinu, brún rúnnstykkin, skál með fleskfeiti og kaffiketil, og síðan settist hún líka á hækjur sér við kass- ann. Barnið var enn að drekka, höfuð þess undir blússu hennar til skjóls gegn kuldanum. Ég heyrði soghljóðin sem það gaf frá sér. Við fengum okkur á diskana, helltum flesk- feiti yfir rúnnstykkin og sykruðum kaffið okk- ar. Eldri maðurinn fékk sér munnfylli og hann tuggði og tuggði og kyngdi. Síðan sagði hann: „Guð minn almáttugur, hvað þetta er gott,“ og hann skóflaði aftur upp í sig. Ungi maðurinn sagði: „ Við höfum haft nóg að borða í tólf daga.“ Við borðuðum öll hratt og af ákefð, og feng- um okkur aftur á diskana og borðuðum áfram hratt þar til við vorum södd og ylur færðist um okkur. Heitt og bragðsterkt kaffið brenndi kverkarnar. Við skvettum dreggjunum með korginum á jörðina og fylltum könnur okkar á ný. Nú var kominn litur á birtuna, rauður bjarmi sem gerði það að verkum að manni fannst kaldara í lofti. Mennirnir tveir litu til austurs og andlit þeirra voru uppljómuð af döguninni, og ég leit upp augnablik og sá útlín- ur fjallsins og birtuna sem streymdi yfir það speglast í augum eldra mannsins. Síðan skvettu mennirnir korginum úr könn- unum sínum og stóðu samtímis upp. „Verðum að fara að koma okkur,“ sagði eldri maðurinn. Ungi maðurinn sneri sér að mér. „Ef þú hef- ur hug á að tína bómull, gætum við kannski komið þér að.“ „Nei. Ég verð að halda áfram. Þakka fyrir morgunmatinn.“ Eldri maðurinn bandaði frá sér með hend- inni. „Ekkert að þakka. Okkar var ánægjan.“ Þeir gengu burt hlið við hlið. Loftið sindraði af ljósi við himinjaðarinn í austri. Og ég gekk burtu eftir sveitaveginum. Þetta er allt og sumt. Mér eru að sjálfsögðu ljósar sumar af ástæðunum fyrir því að þetta var notalegt. En í þessu var einhver mikil feg- urð sem yljar um hjartarætur þegar ég hugsa um það. MORGUN- VERÐUR Hinn 27. febrúar sl. voru liðin 100 ár frá fæðingu bandaríska nóbelsverðlaunahöfundarins John Stein- beck. Gyrðir Elíasson hefur þýtt eina af smásögum skáldsins af því tilefni. APJohn Steinbeck (1902–1968). Úr smásagnasafninu The Long Valley.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.