Lesbók Morgunblaðsins - 25.05.2002, Blaðsíða 6
6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 25. MAÍ 2002
Þ
AÐ er sagt að á Mílanósýning-
unni sé ekki aðeins kynnt það
helsta sem er á döfinni í hönn-
unarheiminum líkt og á öðrum
alþjóðlegum húsgagnasýningum
heldur gegni hún forystuhlut-
verki, þar skapist nýjar línur,
form og tilhneigingar. Hvað sem
því líður er hún tvímælalaust ómissandi við-
burður öllum þeim sem láta sig nútímahönnun
varða. Skal hér rakið í stórum dráttum það
helsta sem kom fram á vorsýningunni í Mílanó.
Í aprílmánuði á ári hverju breytist Mílanó,
hin alvörugefna og eilítið þunglamalega við-
skiptamiðstöð Ítalíu, í eina stóra „fiera“ (sýn-
ingarhöll). því auk hinna fjölmörgu bása á sýn-
ingarsvæðinu (um 2.000 sýnendur) er
aðalsýningunum og viðburðunum gjarnan
dreift vítt og breitt um borgina. Stór ítölsk fyr-
irtæki sem og minni erlendir framleiðendur
keppa um athygli sýningargesta og blaða-
manna með sem frumlegustum uppsetningum,
oft á undarlegustu stöðum. Opnunarkvöld
Moroso-fyrirtækisins var til að mynda haldið á
aðaljárnbrautarstöðinni og þar sem kynning-
arkvöld Tecno, nýs samvinnuverkefnis hönn-
unardeildar Tækniháskóla Mílanó og iðnaðar-
ins, var haldið á byggingarsvæði báru
boðsgestir gula vinnuhjálma við að borða sam-
lokur í grenjandi rigningu við hljómfall teknó-
tónlistar. Ítalska pressan lét vel af uppátækinu
og þótti kvöldið mjög vel heppnað. Talsvert er í
húfi á sýningunni fyrir ítalska húsgagnaiðnað-
inn enda Ítalir fremstir í þeim útflutningi í
heiminum í dag. Markaðurinn er blómlegur og
njóta ungir hönnuðir góðs af vegna þess að
mikið er lagt upp úr þróun nýjunga, bæði í efni
og formum.
Brjóstsykurslitt plast
Helstu tækninýjungarnar í ár birtast í fram-
leiðsluaðferðum plasthúsgagna. Á síðustu ár-
um hefur framleiðsla þeirra aukist til muna og
voru plasthúsgögn sérlega áberandi á sýning-
unni í Mílanó. Það var helst sláandi hversu
skærir og brjóstsykurslegir litir þeirra voru
enda fóru þau ekki framhjá neinum. En undir
þessu glaðværa, allt að því barnalega yfirborði,
dyljast langvinnar vísindalegar tilraunir með
framleiðslu og samsetningu.
Meðal þess sem ítalska fyrirtækið Kartell
sýndi var stóllinn Eva eftir Marc Sadler þar
sem mjúkt, eftirgefanlegt plast er notað í
fyrsta skipti í húsgagnaiðnaðinum. Franski
stjörnuhönnuðurinn Philippe Starck, sem hef-
ur þróað marga stóla fyrir Kartell, sýndi nú
m.a. Zbork, eins konar kúlustól úr hörðu, lit-
ríku plasti, og Louis Ghost, útfærslu á litlum
hægindastól í Lúðvíks XV stíl sem er steyptur í
eitt mót úr pastellitu, hálfgegnsæju, polycarb-
onat-plasti.
Annað ítalskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í
notkun plastefna er Magis. Fyrir tveimur árum
hannaði Jasper Morrison fyrir Magis hinn
fræga Air Chair þar sem polyprophylen-plasti
með glerþráðum er þrýst út á við með tölvu-
stýrðri innspýtingu lofts. Hann sýndi nú annan
stól, Folding Air Chair eða klappstól, fram-
leiddan með sömu tækni sem gerir hann lauf-
léttan en um leið afar sterkan. Hjá
Magis var enn einn athyglis-
verður stóll, Butt-
erfly, eftir hinn
skrautlega,
egypsk-kanad-
íska hönnuð
Karim Rashid.
Stóllinn er úr
steyptu, glans-
andi ABS-plasti
og býður upp á
samsetningu
tveggja lita, eins
og bleiks og grás, svo
hann verður eins og
sannkallaður perubrjóstsyk-
ur. Michael Young hefur teiknað ýmsa hluti
fyrir Magis, þ. á m. hið vinsæla hundahús.
Hann var nú m.a. með Yogi Family, fjölskyldu-
væn garðhúsgögn úr grænu, hringsteyptu
polyethylen-plasti. Hundavinamarkaðurinn er
greinilega í sókn því Michael Young hannaði
einnig hundakörfuteppi og hundaleikrör úr
rauðu og grænu plasti fyrir Danese. Hjá Capp-
ellini sýndi Ron Arad stólinn Nino Rota,
steyptan í einu lagi úr tvílitu plasti. Hann
skar sig nú sem oftar úr hópi starfs-
bræðra sinna með óvenjulegri lögun
og dempuðum, dökkum litum.
Afturhvarf til 7. og 8. ára-
tugarins
Fyrra blómaskeið plasthúsgagna var á
7. áratugnum en líkt og undanfarin ár voru
fleiri tilvísanir í það tímabil í Mílanó. Mest
áberandi var hinn svokallaði „lounge“-stíll sem
einkennist af hreinum, geómetrískum, lárétt-
um línum, harðviði, stálfótum og fremur hörð-
um, efnisklæddum sætum. Einfaldleiki og stíll í
berum og naumhyggjulegum innréttingum eru
sem sagt tekin fram yfir þægindi og notaleg-
heit.
Alþjóðlegt hönnuðalið Cappellini með Piero
Lissoni, Jean-Marie Massaud og Aziz Sariyer í
fararbroddi útfærði þetta konsept út í ystu æs-
ar, svo lengra verður vart komist. Moroso
kynnti tvær seríur stofuhúsgagna eftir Patriciu
Urquiola: Malmö og Fjord. Eins og nöfnin gefa
til kynna sótti þessi unga, spænskættaða kona
(ein af athyglisverðustu hönnuðum sýningar-
innar) innblástur sinn til Norðurlanda, í
„hreina og kalda sýn þessara landa þar sem
steinarnir eru mjúkir og slípaðir af hafinu“.
Sænsku hönnuðirnir Mårten Claesson, Eero
Koivisto og Ola Rune hafa einmitt getið sér
gott orð undanfarin ár með einföldum en form-
fallegum húsgögnum. Í Mílanó sýndu þeir hjá
sænsku fyrirtækjunum Offecct, Swedese og
David Design en einnig hjá Cappellini, ýmist
saman eða upp á eigin spýtur.
Önnur bein skírskotun til 7. áratugarins var
endurgerð munstraðra áklæðisefna. Cappellini
sótti m.a. í smiðju geómetrískra forma Arne
Jacobsens og í atómmynstur Ray og Charles
Eames. Efnin voru ofin í ýmsum litum, til að
mynda fjólubláu, grænu og svörtu og yfir-
dekktu sæti Jasper Morrisons, Tom Dixons,
Werner Aisslingers o.fl. Danska fyrirtækið
Fritz Hansen notaði tækifærið á aldarafmæli
Jacobsens og hreinlega endurframleiddi sófa
hans úr 3300-seríunni með áklæði Cappellini.
Þó mest hafi borið á einlitum húsgögnum og
áklæðum mátti þó merkja vissa tilhneigingu til
munstursköpunar og fjöllitunar (pólíkrómíu).
BRJÓSTSYKUR, SL
AF HÚSGAGNASÝN-
INGUNNI Í MÍLANÓ
Louis Ghost er útfærsla Philip Starck á litlum hægindastól í stíl Lúðvíks XV.
Rolling Stones er hönnun Tinnu Gunnarsdóttur og Karenu Cherkadijian.
Boa-sæti Campana-bræðra er gert
úr 90 metra langri slöngu fylltri
teygjanlegu plastefni klætt
flaueli.
E F T I R Á S D Í S I Ó L A F S D Ó T T U R