Lesbók Morgunblaðsins - 25.05.2002, Page 8
8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 25. MAÍ 2002
S
TÖÐVARFJÖRÐUR hefur sér-
stöðu meðal austfirskra
byggða. Upp frá stuttum firði
gengur nær óbyggður dalur
girtur háfjöllum en mannlíf að
mestu einskorðað við fiskiþorp
sem byggst hefur upp sólar-
megin fjarðar. Gegnt þorpinu
eru einhver formfegurstu fjöll á landinu með
einkennistinda í Súlum og fyrir dalstafni mæt-
ast fjallgarðarnir sunnan og austan fjarðar í
Jökultindi hæstum fjalla. Austurhlíðarnar eru
grænar upp undir eggjar en sunnanmegin leik-
ur mosinn sína litasinfóníu í samspili ljóss og
skugga. Úti fyrir er blátt hafið með ósýnileg-
um röstum eins og böndum undan ystu nesjum
og fjölda miða, þeirra á meðal Glöggvur. Um
miðja 20. öld stóð hvert hús í Kirkjubólsþorpi í
grænu túni upp frá höfn og fiskiðjuveri en
byggðin hefur síðan orðið þéttari og kallast nú
Stöðvarfjörður.
Frá upphafi byggðar er greint í Landnámu
svofelldum orðum: „Þórhaddur hinn gamli var
hofgoði í Þrándheimi á Mæri. Hann fýstist til
Íslands og tók áður ofan hofið og hafði með sér
hofsmoldina og súlurnar; en hann kom í Stöðv-
arfjörð og lagði Mærina-helgi á allan fjörðinn
og lét engu tortíma þar nema kvikfé heimilu.
Hann bjó þar alla ævi og eru frá honum Stöð-
firðingar komnir.“ (Landnáma, s. 307–308.)
Minna ummæli þessi á náttúruvernd á okkar
dögum.
Jarðir í Stöðvarfirði voru fram eftir öldum
þrjár að talið er, Hvalnes sunnan fjarðar, Stöð
andherjinn austan Stöðvarár og Kirkjuból út
með að austan að mörkum við Gvendarnes,
sem átti kirkjusókn að Stöð þótt skráð væri í
Fáskrúðsfjarðarhreppi. Síðan fjölgaði býlum
hér sem annars staðar og fyrir einni öld voru
þau orðin nokkuð á annan tug með hjáleigum.
Við stiklum á stóru sólarsinnis um fjörðinn og
byrjum þar sem frá var horfið í Hvalnesskrið-
um.
Frá Kambanesi inn á Jökultind
Litlu utan við Merkikamb er gróin brekka
milli gilja undir Súlum og heitir Ragnhildar-
jaðar eftir konu sem þar skilaði barni í heim-
inn. Utar taka við Hvammar, gamalt engja-
pláss undir Mosfelli (547 m), áður komið er út í
Kambaskriður. Arnarkambur er mjór berg-
gangur sem liggur út í sjó utan við Ytrihvamm
og Arnartindar heita ystu tindar á fjallsran-
anum upp af Hvalneshálsi. Utan við Kamba-
skriður taka við Staðarbrekkur sem þjóðvegur
liggur nú eftir áður en sveigt er inn til Stöðv-
arfjarðar. Kambaskriður voru áður fyrr nefnd-
ar Staðarbrekkuskriður svo sem sjá má af
Sóknalýsingunum (s. 451 og 474). Staðar-nafn-
ið vísar líklega til ítaka Þingmúlakirkju forðum
og voru brekkurnar fyrrum skógivaxnar.
Líklegt er að nesið milli Stöðvarfjarðar og
Breiðdalsvíkur hafi í öndverðu heitið Hvalnes
eins og aðaljörðin sunnan fjarðar og Kamba-
nesnafnið fyrst komið til um og eftir 1800. Svo
mikið er víst að Olavius talar um Hvalnes í
ferðabók sinni 1774 og á uppdráttum frá þess-
um tíma ber nesið heitið Hvalnes og skriður
sunnanvert við það heita enn Hvalnesskriður.
Ekki er ljóst hvenær kotin Kambar og Heyklif
fyrst byggðust út úr Hvalnesi, það síðarnefnda
þó til komið 1703. Þegar Magnús Bergsson í
Stöð skráði lýsingu Stöðvarsóknar 1839 heyrði
Heyklif undir Þingmúlabrauð í Skriðdal og svo
var einnig háttað um meginhluta Hvalnesjarð-
ar. Hann nefnir sagnir þess efnis að Kambar
hafi fyrrum verið stekkur frá Heyklifi (s. 451).
Kambanes sker sig frá fjallgarðinum milli
Breiðdals og Stöðvarfjarðar utan við Staðar-
brekkur með lágu og um 600 m breiðu Eiði.
Utan við það er hraunaklasi, fornar hjallabrún-
ir, sem rísa hæst í Hnútu (81 m) utanvert fyrir
miðju nesi. Kollur hennar hefur sennilega ver-
ið sker í sjávarborði við ísaldarlokin. Nesið er
vogskorið að sunnan og norðan, þar sem
hraunbríkur leggja til efni í tanga en malar-
fjörur eru víða á milli. Bæjarstæðin á Kömbum
og Heyklifi eru austan undir hraunbríkum og
skilur Heyklifshraun milli túna. Bærinn
Kambar, í eyði síðan 1944, var upp af Kamba-
fjöru sunnan á nesinu. Nafnið er sótt í Kamb,
tvo örmjóa, samsíða gatkletta í fjöruborði við
Hólagjögur (Hólgjögur) inn af Kambafjöru.
Uppsátur var í Heyklifsbót neðan túns en utar
er Illibás, Stekkur og viti reistur 1920. Haf-
megin á nesinu eru klungur með Syðri- og
Eystri-Rastarhæl sem útverði og Iðusker og
Fjarðarboða hvort til sinnar handar úti fyrir.
Jónsbás er smávik milli kletta á nesinu norð-
anverðu, notaður sem lending í sunnanáttum. Í
Pálskvos við Skútuklöpp litlu innar var um
tíma afbýli kallað Klöpp og bjó þar um 1900
Páll Sveinsson með ómegð. Pútnahraun er upp
af Skútuklöpp en innar tekur við Selavík all-
breið inn að Borgarnesi í landi Hvalness. Mýr-
lent er inn með hlíðum og smáhraun en grunn-
ir vogar með ströndinni uns komið er í
Hvalnesfjöru þar sem var uppsátur. „Hval-
nesshöfn … er mjög ósjáleg lending“ segir í
sóknarlýsingu. Á Hagakletta innan bæjar eða
á Carlsklett neðan túns breiddu menn hvítan
dúk ef óskað var flutnings yfir fjörðinn og kom
þá bátur frá þorpinu handan við. Tvíbýli var
lengst af á Hvalnesi, kallað Útpartur og Inn-
partur. Síðast bjuggu á Hvalnesi Bjarni
Methúsalem Jónsson og Elísabet Sigurðar-
dóttir. Jörðin fór í eyði 1960 er þau fluttu að
Óseyri við fjarðarbotn, þar sem synir þeirra
bjuggu enn um aldamótin 2000 og hafa haft
nytjar af Hvalnesi.
Vegurinn yfir Hvalnesháls
Um Hvalnesháls lá reiðgata fyrrum ofan við
Kambaskriður og þá farið úr Ytri-Hvammi upp
á Steinahjalla. Völvuleiði er austan gamla veg-
arins um 2 m norðan við vörðu yst á hálsinum.
Magnús Bergsson lýsir 1839 veginum um
Hvalnesháls þessum orðum í framhaldi af frá-
sögn um leiðina yfir Víkurheiði: „Hinn alfara-
vegurinn er sunnan megin fjarðarins og liggur
fram [út] og upp eftir Hvalnesshálsi og þaðan
STÖÐVARFJÖRÐUR
Mosfell, Súlur, Sú
E F T I R H J Ö R L E I F G U T T O R M S S O N
()(**
***
*
(
+
,
((,(
-*(
--.
-+(
(*/(
(*/(
-(0
(*+1
/2(
/1(
.--
/00
/,0
!
/0,
"
#
.+1
$%
!
.2-
&'
/2(
3
!
"
4
$
4
$
$
456$#7
68!
4569 #:3
; $
8!
<:
6
#
.++
!
()
&
*
'
&
/1-
+
*!
.2/
.*-
./2
-0,
(
*,
&
.0,
$
2(0-.
.,1
, *
'
#
$
"
2+//.+
/*-/
* ,
%
% &
'
,
((*(
*,%
'
* '
!
/(
*
(
#
&
$
))
#&
*
((
#
0
" $
+
*,
!&(
,-
1+
,
,
#
# $ "
-
"-
.&
#
=
#
&
/
01&
!
0 1
."
$
(
+
-
&
*
&
"
#
#
* -
!
!
"
#
# 2(&)
#
3
!
#
6
#
#
$
4
#
7$#
!)
$
%
!
1
'
(
+ #5
*
&!
00.
2
2
*,
%
%
#
#(
#
$ #
(
,
# *
3
'
-
.
-.
#$
'
(*,1
(*0.
#
1
+
0
40!
./+
#"
" #
220
10.#
!
#
5
!
*
&!
6
3
#
6
*
6
>#:
3; ?
'
#
"
(
(
#
!
6
7$#
&
" $
!
'
(
))
*
Stöð, prestssetur um aldir. Nóngil í hlíðinni á móti og
Jökultindur inn af Stöðvardal. Suður af er Breiðdalur og fjallageimur allt til Álftafjarðar.