Lesbók Morgunblaðsins - 25.05.2002, Side 11

Lesbók Morgunblaðsins - 25.05.2002, Side 11
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 25. MAÍ 2002 11 Jónas Kristjánsson ritar fróðlega grein íLesbók Morgunblaðsins 27. apríl síðast-liðinn og færir rök fyrir því að kvæðiðHrafnagaldur sé eldra en áður var talið. (Sophus Bugge taldi að kvæðið væri frá 17. öld, ekki miklu eldra en uppskriftirnar sem það hefur varðveist á.) Þar sem ég hef heyrt sagt, á grundvelli athugana Jónasar, að „í ljós hafi komið“ að kvæðið sé frá 14. öld, get ég ekki orða bundist og langar að koma á framfæri þeirri skoðun minni að harla ólíklegt, ef ekki óhugsandi sé að kvæðið sé svo gamalt, a. m. k. í þeirri mynd sem það hefur varðveist. Megin- ástæða þess að ég tel að kvæðið sé ungt er sú, að bragur þess fylgir ekki skýrum takmörk- unum sem giltu í fornum kveðskap. Þessar tak- markanir byggðu á fornri hljóðdvöl sem svo er kölluð. Til að reyna að skýra þetta má taka orð eins og gleður og kveður . Þessi orð (með grönnum sérhljóðum) höfðu í fornu máli létt áhersluatkvæði, en hins vegar höfðu orð eins og hálar og tálar, sem við nú tölum um að hafi breið sérhljóð, þung áhersluatkvæði að fornu. Þessi hljóðdvalarmunur skipti máli í fornum kveðskap: Einungis þungu atkvæðin gátu bor- ið fullt ris. Þess vegna er t. d. óhugsandi að eft- irfarandi dróttkvæð vísa Jónasar Hallgríms- sonar sé ort fyrir hljóðdvalarbreytingu: Gimbill gúla þembir gleður sig og kveður : „Veit ég, þegar vetur vakir, inn af klaka hnýfill heim úr drífu harður kemst að garða góðir verða gróðar gefnir sauðar efni.“ (Sláttuvísa.) Skáletruðu orðin í vísunni höfðu í fornu máli létt áhersluatkvæði sem gátu ekki borið ris eins og þau eru látin gera hér; fer það auðvitað vel í máli Jónasar Hallgrímssonar, en gengur ekki fyrir hljóðdvalarbreytingu. Talið er að hin nýju hljóðdvalarlögmál taki gildi á 16. öld, þótt nokkur merki megi sjá um þau í kveðskap frá 15. öld, og eins eimir ögn eftir af gömlum tak- mörkunum í kveðskap frá 17. öld. Höfundur Hrafnagaldurs fellur í svipaða „gryfju“ og Jónas Hallgrímsson, hafi hann vilj- að láta líta svo út sem kvæðið væri fornt. Brag- arhátturinn minnir á fornyrðislag, en hrynj- andin er í átt við það sem kallað hefur verið kviðuháttur og er (í vissum skilningi) taktfast- ara afbrigði fornyrðislags. Kvæði sem ort voru undir þessum háttum fyrir hljóðdvalarbreyt- ingu notuðu ekki orð eins og gleður og kveður til að fylla tvíliði. Þetta kemur hins vegar fyrir í Hrafnagaldri. Í textanum sem birtur er í Les- bókinni þann 27. apríl hef ég fundið eftirfar- andi 7 dæmi um línur þar sem tvö létt orð að fornri hljóðdvöl eru látin mynda tvíliði í sömu línu: vanir vitu (1. vísa); grunar guma (3. vísa); dáins dulu (3. vísa); dvelur í dölum (6. vísa); of- an komu (7. vísa); mat af miði (19. vísa); mön af glóar (24. vísa). Hins vegar er þess að geta að dæmin eru flest í fyrri hluta kvæðisins, og margar vísurnar virðast ekki brjóta gegn forn- um bragvenjum. Það er því hugsanlegt að vísur kvæðisins séu misgamlar, og sá sem setti Hrafnagaldur sam- an (ekki seinna en á 17. öld) hafi haft einhverj- ar gamlar vísur, en bætt nokkrum við frá eigin brjósti. HLJÓÐDVÖL Í HRAFNAGALDRI ÓÐINS E F T I R K R I S T J Á N Á R N A S O N Höfundur er prófessor við Háskóla Íslands. Teikning/Andrés Eru einhver sníkjudýr í eða á lík- amanum, önnur en rykmaurar? Samkvæmt skilgreiningu eru sníkjudýr háð hýsli sínum, í þessu tilviki mönnum, um fæðu á einhverju æviskeiði sínu og lifa, að minnsta kosti tímabundið, annaðhvort á honum eða inni í líkamanum. Rykmaurar teljast ekki til sníkjudýra því þeir lifa ekki á mönnum beint heldur á húð- flögum sem sífellt losna af hörundinu og finn- ast oft í miklum mæli, til dæmis í rúmum eða í teppum. Talið er að allt að eitt gramm af húð- flögum geti losnað af meðalmanni á hverjum degi. Við kjöraðstæður (hátt raka- og hitastig) getur rykmaurum fjölgað mjög. Maurarnir sem slíkir eru taldir hættulausir en leifar af dauðum maurum, og ekki síst skíturinn úr þeim, geta valdið svæsnu ofnæmi hjá mönnum. Fjölmargar tegundir sníkjudýra hrjá menn um allan heim. Hér á landi er aðeins að finna lítið brot af þeim sníkjudýrum sem þekkt eru að því að sníkja á eða í mönnum. Mannasníkjudýrum má í grófum dráttum skipta í tvo hópa: Sníkjudýr sem lifa utan á mönnum, útsníkla, og dýr sem lifa innan í mönnum, innsníkla. Hér á landi verður enn þann dag í dag reglulega vart við þrjár tegundir útsníkla, mannakláðamaur, höfuðlús og flatlús. Allir teljast þeir enn vera landlægir þótt sumir virð- ist halda að menn nái í þessa óværu erlendis. Auðvitað gerist það af og til en allar þessar tegundir hafa lifað góðu lífi á Íslendingum um aldaraðir. Sumum finnst örugglega for- vitnilegt að frétta að flatlýs hafi til dæmis fundist í Reykholti við rannsóknir á fornleifum frá síðari hluta miðalda! Þremur óværutegundum til viðbótar hefur nú verið útrýmt á Íslandi. Þær eru fatalús (einnig nefnd búklús og er náskyld höfuðlús- inni), mannafló og veggjalús. Það var ekki hvað síst með tilkomu sérvirkra skordýralyfja um miðbik 20. aldarinnar sem aldalöng bar- átta Íslendinga gegn óværu fór loks að skila eftirtektarverðum árangri. Ekki má þó gleyma ýmsum öðrum hrygg- leysingjum sem stundum erta, bíta eða stinga fólk hér á landi. Í þessum hópi eru til dæmis lirfur fuglablóðagða. Þær þroskast í vatna- bobbum en yfirgefa svo sniglana og taka strax til við að synda um í vatni í leit að löppum loka- hýslanna sem geta til dæmis verið andfuglar. Beri leitin árangur melta lirfurnar sér leið í gegn um húðina og komast þannig inn í líkama fuglsins þar sem hver lirfa þroskast í kyn- þroska orm á nokkrum vikum. Lirfurnar rugl- ast iðulega á fuglshúð og mannshörundi og valda þá kláðabólum á fólki. Oftast eru lirf- urnar taldar drepast í spendýrum en þó eru þekkt dæmi um að þær geti náð einhverjum þroska. Erlendis kallast þetta fyrirbæri sund- mannakláði. Fólk er hvatt til að forðast að- stæður sem geta leitt til sundmannakláða þar sem ekki er hægt að útiloka að lirfurnar valdi sjúkdómi. Ýmsar maurategundir tilheyra einnig þeim hópi hryggleysingja sem stundum erta, bíta eða stinga fólk. Hér má nefna maura sem venjulega lifa annaðhvort á fuglum (til dæmis lundalús) eða spendýrum (bæði stórir nag- dýramaurar og litlir maurar sem stundum hafa fundist á hundum eða köttum), tvær teg- undir fuglaflóa, rottu- og músaflær og síðast en ekki hvað síst bitmý, sem algengt er á sumrin í námunda við rennandi vatn. Eins og þessi upptalning sýnir eru þær hreint ekki svo fáar tegundirnar sem geta angrað fólk á Ís- landi! Í hinum hópnum eru sníkjudýr sem lifa inn- an í fólki. Innsníklarnir halda oftast til í melt- ingarvegi en geta einnig verið í ýmsum vefjum eða líffærum líkamans eða þá í blóðrás. Eini ormurinn sem nú er algengur í melting- arfærum manna hérlendis er njálgur. Rann- sóknir hafa raunar sýnt að sýkingartíðnin get- ur stundum orðið allhá í leikskóla- og grunnskólabörnum. Þess má einnig geta að um aldamótin 1900 fundu íslenskir læknar alloft spóluorma í mönnum. Bendir það til þess að mannaspólu- ormur kunni þá að hafa verið landlægur sums staðar. Náskyld tegund, svínaspóluormur, get- ur einnig stundum lifað í mönnum. Er sá enn í dag landlægur í svínum hérlendis. Sullaveiki var mjög algeng í mönnum og dýrum (einkum í sauðfé) á Íslandi allt fram á fyrri hluta tuttugustu aldar. Eftir að bandorm- inum sem olli sullaveiki hafði verið útrýmt í hundum hvarf nýsmitun, bæði í mönnum og dýrum. Sjúkdómurinn fjaraði hratt út uns hann hvarf algjörlega. Rétt er að nefna hér einnig lirfur hunda- og kattaspóluorma. Svonefndar annars stigs lirf- ur þessara orma geta farið á flakk í mannslík- amanum lendi þroskuð egg ormanna niður í meltingarvegi manna. Þessi sníkjudýr eru al- lalgeng í mönnum erlendis, einkum þar sem mikið ormasmit er í hundum og köttum. Eggin eru sérlega lífseig og geta verið smithæf mán- uðum og jafnvel árum saman. Ekkert er enn sem komið er vitað um lirfuf- lakk hunda- og kattaspóluorma í mönnum hér á landi. Trúlega er þó mest hætta á því að börn fái ofan í sig egg kattaspóluorms í óvörðum sandkössum. Kettir grafa nefnilega úr sér skítinn og sækja í að urða hægðir sínar í þurr- um, lausum sandi eins og á leiksvæðum barna. Að endingu skal nefnt að þekktar eru sex tegundir einfrumu sníkjudýra sem geta lifað í meltingarfærum manna hér á landi. Ekki hafa þó nema þrjár þeirra fundist í mönnum enn sem komið er en hinar hafa fundist hér í dýr- um. Karl Skírnisson, dýrafræðingur. Hvers vegna fær maður hiksta? Hiksti er krampi í þindinni sem veldur snöggri innöndun sem stöðvast síðan jafn- snögglega við það að bilið á milli raddband- anna lokast, en það veldur einmitt hljóðinu sem fylgir þessum kvilla. Algengasta orsök hiksta er sú að fólk kann sér ekki magamál, hvort heldur í mat eða drykk. Þegar fólk borð- ar eða drekkur of mikið þenst maginn út og þrýstir á þindina. Ekki er vitað hvort hiksti gegnir einhverju lífeðlisfræðilegu hlutverki. Sumir hafa getið sér þess til að hiksti hafi eitt- hvað með líf fóstursins í vatni að gera en haldi svo áfram sem hvimleiður kvilli hjá full- orðnum. Ástæðan fyrir þessu er sú að hiksti er mjög algengur hjá fóstrum og nýfæddum börnum. Börn sem fæðast fyrir tímann hiksta að jafnaði í 36 mínútur á sólarhring. Ein skýr- ing á þessu gæti verið sú að með því að hiksta sé fóstrið að stunda einskonar öndunar- æfingar, en það getur náttúrlega ekki æft sig með því að anda að sér lofti þar sem það er á kafi í vatni í móðurkviði. Ólafur Páll Jónsson. SNÍKJUDÝR OG HIKSTI Á meðal þeirra spurninga sem hefur verið svar- að á Vísindavefnum að undanförnu má nefna: hvað var vistarbandið, eru fordómar á Íslandi, hvort er hagkvæmara að byggja borg þétt eða dreift og hvað eru margar stjörnur í sólkerfinu? VÍSINDI Höfuðlús, Pediculus humanus capitis. Mynd tekin úr bókinni Líffræði eftir Colin Clegg.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.