Lesbók Morgunblaðsins - 25.05.2002, Blaðsíða 16
16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 25. MAÍ 2002
SUNDHÖLL, REYKJAVÍK, 2001: Ég er enn við búningsherbergi nr. 124,* og nota gægjugat-
ið eins og sjónauka, súma að henni, jafnvel þó hún sé að ganga í burtu. Í burtu frá myndmáli
„Þess sem baðar sig“,* í burtu frá mér, og nú, í burtu frá þér – mýkist er hún fer, leysist upp
og rennur saman við fjarlægan hvítleika flísanna. Frá óræðri, flókinni tilvist sinni að óhjá-
kvæmilegri rökvísi rúðunetsins, færist hún í burtu. Brátt verður hún alveg horfin. Rýmið sem
hún skilur eftir sig, tóm þess og gljáfægður hreinleiki, gefur minningu um viðveru hennar
ekkert færi. Í New York værum við „Peeping Toms“ en erum við „Gægju-Þórar“ hér í
Reykjavík?
*Sjá síðasta hluta Iceland’s Difference (Sérkenna Íslands), 18. maí 2001
Þetta er sjöundi hluti flokks sem í heild ber heitið: Iceland’s Difference (Sérkenni Íslands). © fyrir ljós-
mynd, 2001, og fyrir hönnun og texta, 2002, Roni Horn. Fríða Björk Ingvarsdóttir þýddi.