Lesbók Morgunblaðsins - 08.06.2002, Page 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 8. JÚNÍ 2002 9
brátt öðluðust menn líka þekkingu á flotjafn-
vægi jarðskorpunnar. Skorpan fjaðrar og sígur
undan auknu fargi en rís ef farginu léttir.
þannig t.d. rís hálendi Íslands heldur hærra úr
sjó en væri ef möttulstrókur dældi ekki heitu
og léttu efni upp undir landið.
Íslensku fjöllin eru ekki fellingafjöll heldur
eingöngu úr gosefnum eða djúpbergi (kviku-
innskotum sem storknað hafa neðanjarðar); m.
ö. o. ýmist eldfjöll eða rofleifar. Há fjöll innan
eldvirku svæðanna (á fjórðungi landsins) eru
öll mynduð við eldvirkni. Á Snæfellsnesi ber
mikið á Snæfellsjökli en á svæðinu frá Reykja-
nesskaga og norðaustur um til Öxarfjarðar eru
mörg há fjöll á breiðu belti. Sum eru móbergs-
stapar úr gosum undan ísaldarjökli, t.d. Hlöðu-
fell og Herðubreið, en annað eldkeilur eða leif-
ar stórra eldfjalla, t.d. Hekla, Eyjafjallajökull,
Kverkfjöll, Öræfajökull. Tindfjöll og Snæfell.
Á Vesturlandi, Vestfjörðum, Norðurlandi
vestra og Austurlandi eru fjöllin flest búin til
úr gömlum, sundurgröfnum hraunlagabunka,
eldri en 3 milljóna ára. Þetta eru jökulsorfnir,
hvassir tindar á borð við Kaldabak fyrir vest-
an, Þverártindsegg við Kálfafellsdal og Bú-
landstind við Berufjörð eða kistulaga fjöll á
borð við Esjuna, Kerlingu við Eyjafjörð, Dyr-
fjöll eða Bjólfinn við Seyðisfjörð. Nokkuð er
um djúpbergsinnskot sem sjást vegna þess að
rof og veðrun hafa fjarlægt bergið umhverfis
þau og land risið við fargléttinn, t.d. Vestra-
horn.
Öll eru þessi fjöll ólík en þó með þeim hætti
að við horfum til þeirra aftur og aftur, viljandi
eða ósjálfrátt. Á ári fjallanna er rétt að minna á
að það þarf að hyggja að fjöllunum með ýmsum
öðrum hætti; m.a. vernda þau og nýta af skyn-
semi eins og aðra hluta náttúrunnar.
Næst: Fólk og fjöll.Eldfjöllin Parinacota (6.330 m), virkt og keilulaga, og Pomerape (6.240 m), eldra og meira rofið, eru í Chile. Saman nefnast þau Systurnar tvær.
Jugal Himal-fjallgarðurinn á landamærum Nepal og Tíbet. Hæst ber Lonpo Gang (7.038 m). Huyana Potosi (6.088 m) er dæmigerður Andestindur í Bólívíu, myndaður við fellingahreyfingar.
GU HRUKKUR...