Lesbók Morgunblaðsins - 08.06.2002, Page 16
16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 8. JÚNÍ 2002
STRANDAÐUR HVALUR Í LÍKI KLETTS*– Á LEIÐINNI AÐ HUGSANLEGU HVERGI,
REYKJANES, ÍSAFJÖRÐUR, 1988**: Er hvergi horfið? Við nálgun á þessu viðfangsefni
kem ég að spurningunni „Hvað er hvergi?“ Orðabókin skilgreinir það sem „afskekktan eða
óþekktan stað“. Þvílík gæfa í slíkum fundi. Samkvæmt þessari skilgreiningu er Ísland sá
staður sem hefur fleiri hvergi miðað við höfðatölu en nokkurt annað land. Jafnvel þó Timb-
úktú sé feykt út í buskann, þá getur Ísland, þar sem jarðfræði þess er töluvert varanlegri,
tekið forystuna sem helsti birgir heimsins hvað hvergi varðar. En burtséð frá því hversu
hvergi er algengt á Íslandi, þá er hvergi auðlind sem ekki er hægt að endurnýja, sér-
staklega viðkvæm fyrir ofnýtingu og óviðeigandi notkun. Ef því er breytt eða það er notað
með röngum hætti þá hverfur þetta hvergi. Í mínum huga og jafnvel í skilgreiningum, þá
felst í hvergi ein sjaldgæfasta, viðkvæmasta og unaðslegasta reynsla sem hægt er að hugsa
sér. Að vera hvergi. Getur þú sagt að þú hafir reynslu af því?
*Strandaður klettur í líki hvals?
**Sjá hluta síðustu viku.
Þetta er níundi hluti flokks sem í heild ber heitið: Iceland’s Difference (Sérkenni Íslands). © fyrir ljós-
mynd, 2002, hönnun og texta, 2002, Roni Horn. Fríða Björk Ingvarsdóttir þýddi.