Lesbók Morgunblaðsins - 22.06.2002, Blaðsíða 5
lega drottnarar norðursins, hinir herskáu vík-
ingar frá Skandinavíu.
Á leið sinni um skóglendi þessa viðsjár-
verða landsvæðis á risavaxið bjarndýr að hafa
orðið á vegi elskendanna sem ógnandi lokaði
leið, en hinn hugdjarfi Balduin sýndi þá að
hann bar viðurnafnið stálhöndin með réttu og
vann á dýrinu með lensu sinni. Við mynni
fljótsins Zwin reisti hann sér óvinnandi há-
borg sem seinna fékk bjarndýr að skjald-
armerki, eins og til að skjalfesta þessa hetju-
dáð. Mun hér vera kominn fyrsti hertoginn af
Flæmingjalandi og hann þurfti ekki aðeins að
berjast við víkinga heldur einnig Normanna
sem á tímabili ógnuðu ríki tengdaföðursins
Karls sköllótta. Nafnið Brügge finnst í
frönskum skjölum svo snemma sem 892. Eftir
að víkingarnir hægðu á árásum sínum og
hættu þeim svo að lokum óx borginni fljótlega
fiskur um hrygg og varð að einum mikilvæg-
asta markaði og verslunarmiðstöð miðalda.
Íbúatala Brügge er ekki nema 120.000, á
móti 230.000 í Gent sem einnig telst ein
áhugaverðasta borg Belgíu fyrir miðalda-
menningu, fagrar byggingar og söfn, en
Brügge er þó mun markverðari í skoðun eink-
um fyrir hina tilbrigðaríku gotnesku húsa-
gerðarlist.
Sýningin á verkum van Eycks er hápunktur
menningarborgarinnar á myndlistarsviði, en
að sjálfsögðu er mikið um að vera á tónlist-
arsviðinu og séð fyrir aðskiljanlegustu þörfum
fólks í flestum ef ekki öllum greinum lista og
mun lágmenningin ei heldur útundan. Bygg-
ingarlistin er þó djásnið í kórónunni, því í
hverfinu þar sem áður stóð virki Balduins I
greifa af Flæmingjalandi, má virða fyrir sér
húsagerðarlist sem nær níu aldir aftur í tím-
ann og að auki allar aldirnar sýnilegar á ein-
hvern hátt.
Landslag með kletti og tveim stúlk-
um (hluti af málverkinu Heilagi ein-
setumaðurinn) býr yfir óskil-
greindum töfrum þar sem fléttast
saman einfaldleiki og ótal smá-
atriði. Málarinn leitast við að fanga
náttúrusköpin hrein og bein.
Bakgrunnurinn á málverkinu af brúðkaupi Arnolfinis er ekki síður merkilegur. Sér í bakhluta
brúðhjónanna í speglinum og á milli hans og ljósakrónunnar listilega áritun meistarans.
Málverkið Brúðkaup Arnolfinis, hins virta bankamanns og hinnar bljúgu Giovanna Cenninni,
81,8x59,7 sm (1434), er víðþekkt fyrir margra hluta sakir. – Þjóðlistasafnið í London.
Upprétt bjarndýr
er skjaldarmerki
Brügge.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 22. JÚNÍ 2002 5