Lesbók Morgunblaðsins - 22.06.2002, Blaðsíða 16
16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 22. JÚNÍ 2002
ER ÞETTA EKKERT? – HVAÐA HNÚSKAR OG HNÚÐAR ERU ÞETTA?* Hér höfum
við völl hnúska og hnubba í réttum hlutföllum við sjóndeildarhringinn. Hnúða og hnotta á
afskekktum og óþekkjanlegum stað. Mosavaxnir hólar, hver og einn umlukinn mosavöxn-
um dal á breidd við fótinn á manni. Þessir dalir mynda vef og völundarhús. Þeir rugla mann
ekki, en þeir hægja á manni. Þeir ráða ferðinni, gefa ferðalagi manns hrynjandi. Þeir krefj-
ast eins konar nándar, annars konar athygli sem fer saman við ógnvænleg hlutföll þessa
víða, víða vallar. Því mann langar til að ganga, til að fara út á meðal þessara nautnalegu
hnúða. Mann langar til að liggja á þeim og finna líkama sinn sem miðju þess sem er óend-
anlega opið og umsvifalaust náið. Maður verður að skurðpunkti, þeim stað þar sem þetta
ekkert er að lokum nefnt.
*Melrakkaslétta, 1994.
Þetta er ellefti hluti flokks sem í heild ber heitið: Iceland’s Difference (Sérkenni Íslands). © fyrir ljós-
mynd, 2002, hönnun og texta, 2002, Roni Horn. Fríða Björk Ingvarsdóttir þýddi.