Lesbók Morgunblaðsins - 22.06.2002, Blaðsíða 13
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 22. JÚNÍ 2002 13
DOCUMENTA-listsýningin, sem
stendur nú yfir, hefur verið hald-
in í bænum Kassel í Þýskalandi á
fjögurra ára fresti allt frá því
1955. Á sýningunni, sem er sú ell-
efta í röðinni, eru yfirleitt dregn-
ir fram þeir straumar og stefnur
í myndlistarheiminum sem hvað
mest hefur borið á sl. fjögur ár.
Documenta sýningin nýtur jafn-
an mikillar virðingar og þykir
því ekki síður
hafa áhrif á
hvaða lista-
straumum
mest ber á ár-
in á eftir. En
að mati breska
dagblaðsins
Daily Tele-
graph er gott
sem ómögu-
legt að ofmeta
mikilvægi sýn-
ingarinnar fyrir listamenn, list-
fræðinga og gagnrýnendur.
Listrænn stjórnandi Docu-
menta er að þessu sinni hinn níg-
eríski Okwui Enwezor, en sýn-
ingin er að venju mjög vel
skipulögð og beinist athyglin að
þessu sinni nokkuð að mynd-
bandsverkum, auk þess sem stór
hópur listamannanna er ungur
að árum. Hinir eldri eiga þó einn-
ig sína fulltrúa og bendir blaðið
m.a. á þýsku ljósmyndarana
Bernd og Hillu Becher og húsa-
myndir þeirra frá fyrri hluta átt-
unda áratugarins. Japanski
konseptlistamaðurinn On Kaw-
ara er einnig á meðal sýnenda,
sem og Bandaríkjamaðurinn
Leon Golub sem sýnir óstrekktar
strigamyndir sem þaktar hafa
verið orðapári og grimmilegum
myndum af ofbeldi sem er í bein-
um tengslum við stjórnmál. Er
stór hópur listamannanna sem
sýna á Documenta að þessu sinni
upptekinn af heiminum í kring-
um sig. Listin listarinnar vegna
sé hér víðs fjarri og að mati Daily
Telegraph hefði ekkert annað
þema getað átt betur við þetta
árið.
Gauguin í
Metropolitan-
safninu
METROPOLITAN safnið í New
York hýsir þessa dagana sýningu
á verkum franska 19. aldar lista-
mannsins
Paul
Gauguins.
En Gaug-
uin, sem
efalítið er
hvað
þekktastur
fyrir litrík-
ar myndir
sínar af íbúum eyja Suður-
Kyrrahafsins, lést úr sárasótt er
hann var 54 ára gamall.
Um 120 verk eru á sýningunni,
sem telst þó ekki yfirlitssýning á
verkum listamannsins í hefð-
bundnum skilningi þess orðs –
heldur er öllu frekar um að ræða
yfirlit á persónu Gauguin sjálfs.
Safnað hefur verið saman teikn-
ingum, grafíkverkum, mál-
verkum, keramikverkum, tré-
skúlptúrum og bréfum
listamannsins til að veita innsýn
bæði í líf hans og persónu.
Gauguin þótti sérlega sjálfs-
elskur og eigingjarn í lifanda lífi
og þykir þess sjá merki í verkum
hans og samskiptum við aðra og
virðist sem fátt hafi skipt hann
meira máli en að öðlast almenna
viðurkenningu og frægð. Sú
frægð barst listamanninum þó
ekki að fullu fyrr en eftir lát hans
er verk hans tóku að seljast vel
og söfnuðu ýmsir listunnendur
þeim af ákafa.
Documenta
í Kassel
Í Vanillulundinum,
maður og hestur
(1891) eftir Paul
Gauguin.
Klefi XXII
og Klefi XII eftir
Louise Bourgeois.
ERLENT
Þ
EGAR blaðamaður og ljósmyndari
renna í hlað í Klettahlíð í Hvera-
gerði, tekur á móti þeim mynd-
listarkonan Jóhanna Bogadóttir,
þar sem hún heldur sýningu á
verkum sínum um þessar mundir
í Studio-Gallery, sem er vinnu-
stofa hennar og heimili. Jóhanna
hefur gert hús sitt að innan sem utan að einu
verki, ef svo má segja. Þar hanga stórir strigar
og krítarteikningar upp um alla veggi, alla leið
frá vinnustofunni inn í sólstofuna, en auk þess
hefur Jóhanna notað ýmsa veggi hússins sem
vettvang fyrir myndsköpun, utanhúss sem inn-
an. Veggir og innréttingar eldhússins eru mál-
uð svipuðum verkum og strigarnir á vinnustof-
unni, veggir lítils baðherbergis bera nú titilinn
Að vera í vatni og útveggir hússins eru málaðir
stóru málverki sem nefnist Heit jörð, auk þess
sem Jóhanna hefur gert þar steypu- og mósaík-
verk.
Veggir hússins
vettvangur myndsköpunar
„Sýningin hefur verið í undirbúningi á þess-
um þremur árum síðan ég flutti hingað,“ segir
Jóhanna aðspurð um tilkomu sýningarinnar.
„Þegar ég flutti hingað inn var ýmislegt sem ég
vildi gjarnan breyta, en mig langaði ekki að
gera það á hefðbundinn hátt. Ég hreinlega
kveið því að mála skápahurðirnar í eldhúsinu!
Áður en ég vissi af var ég komin með penslana
mína og krítarnar og ætlaði að mála bara eina
hurð, en svo gat ég ekki hætt. Nú eru verkin
mín komin upp um alla veggi í húsinu.“
Verkið í eldhúsinu kallar Jóhanna Frum-
skógarferð í eldhúsi og segist hafa verið inn-
blásin af afrískum áhrifum þegar hún hóf
vinnslu þess, ásamt íslenskum. „Fyrstu áhrifin
komu beint inn um gluggann og upp á fyrstu
skáphurðirnar. Þar er meira unnið í blátt, því
hér blómstrar lúpínan allt í kring á sumrin og
birtan mjög blá á veturna. En þegar ég hélt
áfram af skápunum yfir á veggina voru það
hughrifin frá Afríku sem höfðu áhrif á mig, þar
sem ég dvaldi í fyrrasumar. Það var geysilega
áhrifaríkt,“ segir hún.
Þetta er ekki eina verk Jóhönnu þar sem
telft er saman ólíkum menningaráhrifum. Hún
notar yfirskriftina Frá Skeiðará til Sahara yfir
verk sín, sem lýsir glögglega þeim ólíku áhrif-
um sem liggja að baki verkum hennar. „Ég er
enn að vinna úr upplifuninni af Afríku,“ segir
Jóhanna. „Ferðir til framandi heimshorna hafa
haft mikla þýðingu fyrir mig og ég hef notað þá
reynslu í verkum mínum. Þegar ég hef farið til
dæmis til Mexíkó, Afríku og Indlands hef ég
fundið að það er minn heimur líka, þó að hann
sé mér framandi. Ég hef reynt að koma þeirri
tilfinningu áleiðis í verkum mínum. Einnig hafa
náttúruöflin og höfuðskepnurnar verið áber-
andi kveikja, eins og vatn, eldur og einnig vind-
urinn, eða stormurinn. Mér finnst dramatíkin í
náttúrunni oft vera eins konar myndlíking fyrir
það sem er að gerast í þessari veröld okkar.“
Margbreytileg sýning
Jóhanna segir sýninguna á heimili sínu vera
stöðugt í vinnslu. „Ég dreg fram nýjar myndir
og skipti út á sýningunni, eftir því hvað sá dag-
ur segir mér,“ segir hún. „Á hefðbundinni sýn-
ingu verður maður alltaf að vega og meta hvað
á að sýna og hvað ekki, svo það felst í því
ákveðið frelsi að geta skipt út verkum og end-
urhugsað sýninguna stöðugt upp á nýtt, eins og
ég get núna.“
Hún leggur áherslu á að sýningin sé vinnu-
stofusýning, og að hún sé opin öllum. „Ástæðan
fyrir því að ég geri þetta svona, er að ég er
ekki alveg sátt við þetta hefðbundna sýning-
arform, þar sem sýning stendur opin í afmark-
aðan tíma. Leiðirnar eru svo ótalmargar aðrar
og þær hafa margir myndlistarmenn reynt,“
segir Jóhanna.
Hún segist ekki sjá kaflaskil á ferli sínum
með þessari sýningu þegar hún lítur til baka.
„Ég er í miðju ferli sem ég hef verið að vinna
í um tíma. Hér tek ég líka fram nokkuð af þeim
myndum og skissum sem ég á eftir að vinna
meira með, eins og til dæmis áhrifin frá Afríku.
En mér finnst ekkert síður ástæða til að sýna
þær myndir hér, þó að ég eigi eftir að vinna
ennþá meira úr þeim.“
Sýning Jóhönnu í Klettahlíð 7 í Hveragerði
stendur opin til 30. júní. Hún er opin daglega
frá kl. 15-18.
Á VEGGJUM INN-
AN HÚSS SEM UTAN
Sérstæð myndlistarsýning stendur nú yfir í Hveragerði, en þar hefur
myndlistarkonan Jóhanna Bogadóttir breytt næstum heilu húsi í sýningarrými
fyrir verk sín. INGA MARÍA LEIFSDÓTTIR heimsótti hana þar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Jóhanna Bogadóttir sýnir í Studio-Gallery Jóhönnu Boga í Hveragerði um þessar mundir.
ingamaria@mbl.is
HÁTT í átta hundruð manns frá 35 löndum
taka að þessu sinni þátt í árlegri bókamessu
sem efnt verður til í Gautaborg dagana 19.–22.
september nk. Þátttakendur koma víða að úr
heiminum, en að venju eru það þó norrænu
bókmenntirnar og norrænir rithöfundar sem
hvað stærstan sess skipa.
Þeir íslensku rithöfundar sem tekið verður á
á málþingum bókamessunnar eru Einar Már
Guðmundsson og nóbelsskáldið Halldór Lax-
ness. Einar Már mun sjálfur taka þátt í einum
þremur málþingum á bókamessunni, m.a.
þingi sem nefnist „Lär i dialog – om mötet
mellan kultur og arbetsliv.“ En hvað gerist
þegar sænskur verkfræðingur leitar til rithöf-
undarins til að fræðast um vinnubrögð hans og
sköpunargáfu? Úr því fæðast nýjar hugmyndir
um það hvernig tengsl menningar, vísinda,
tungumáls og verkkunnáttu geta þróast. Þá
tekur Einar Már einnig þátt í málþinginu
Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs í 40
ár, sem og í Draumar á jörðu, sem tekur á
rómantík í íslenskum skáldskap.
Í tilefni af aldarafmæli Halldórs Laxness
verður enn fremur efnt til sérstaks málþings
sem tileinkað er nóbelsskáldinu, en á því
málþingi verður m.a. tekið á mikilvægi Lax-
ness fyrir þróun íslenskra bókmennta og þá
séríslensku lífssýn sem einkennir verk
skáldsins. Meðal þátttakenda í þinginu verða
Halldór Guðmundsson og sænski prófess-
orinn Lars Lönnroth.
Þá mun Jón Yngvi Jóhannsson taka þátt í
málþinginu „Nordisk litteratur här och nu,
vilsegången eller visionär?“ sem haldið er í
samvinnu við Norrænu ráðherranefndina.
Einar Már og Laxness á
bókamessu í Gautaborg
Halldór
Laxness
Einar Már
Guðmundsson