Pressan - 17.11.1988, Síða 18

Pressan - 17.11.1988, Síða 18
18 Fimmtudagur 17. nóvember 1988 ibróttir BYLTING FRAMUNDAN ■■ FJOLGUN GERVIGRASVALLA Flestir íþróttaunnendur vita að mikill munur er á ís- lenskum handknattleik og íslenskri knattspyrnu, hand- boltalandslið okkar er á heimsmælikvarða en staða ís- lands í knattspyrnuheiminum er enn nokkuð undir meðallagi. Engu að síður eru þeir margir sem gera gælur við þá framtíðarsýn að íslendingar muni eignast knatt- spyrnulandslið í sama gæðaflokki og þau lið sem riðla vinnudegi og heimilislífi margra landsmanna þegar beinar útsendingar standa yfir á sjónvarpsskjánum. Og þetta eru ekki helberir dagdraumar heldur rökstudd von margra. Ástæðurnar fyrir þessari bjart- sýni eru þessar: Annars vegar líta menn tii kraftaverksins í handbolt- anum, sem birtist i sínu skærasta Ijósi á heimsmeistaramólinu I986, og segja sem svo að það hljóti að vera möguleiki að gera sömu hlut- ina í knattspyrnunni. Hins vegar leiða menn hugann að nokkuð stöðugri framför íslenskrar knatt- spyrnu síðustu árin, þróun sem hófst um miðjan síðasta áratug og felur í sér tvennt; íslendingar hafa á þessu tímabili eignast fjölda at- vinnumanna í knattspyrnu með er- lendum liðum, nokkuð sem heyrði til undantekninga fyrir þennan tíma; islenska landsliðið hefur breyst úr fallbyssufóðri í erfiðan andstæðing, lið sem hvað eftir annað kemur á óvart með sigrum og jafnteflum og tapar sjaldan með miklum mun. Engu að síður eigum við íslend- ingar langt í land með að eignast það landslið sem okkur dreymir um: Þrátt fyrir óvænt úrslit af og til er heildarárangur liðsins aldrei góð- ur og þó að atvinnumennirnir okkar séu dýrmætir og þjóðinni til sóma munu fæstir þeirra teljast á heimsmælikvarða, hugsanlega aðeins tveir þeirra, Arnór Guð- johnsen og Ásgeir Sigurvinsson. En hvað þarf þá að gerast til að draumurinn verði að veruleika? Að dómi margra sem til þekkja (t.d. Siegfried Held landsliðsþjálf- ara) er það ekki fámennið sem stendur íslenskri knattspyrnu fyrir þrifum heldur keppnisfyrirkomu- lag, m.ö.o. þá leika íslenskir knatt- spyrnumenn of fáa leiki, keppnis- tímabilið er of stutt. Næstum allar þjóðir heims utan við hafa lengra keppnistímabil og fleiri lið í deild- um. Þá eru það óyggjandi sannindi í flestum málum að æfingin skapar meistarann. Ef keppnistímabilið yrði lengt verulega á íslandi og verkefnum leikmanna fjölgað stór- lega leiddi það óhjákvæmilega til ÁGÚST BORGÞÓR ÁíWtti .ík SVERRISSON þess aö við eignuðumst fleiri og sterkari atvinnumenn og gæðastað- all knattspyrnunnar hér heima myndi hækka verulega. Það þarf ekki að velta því lengi fyrir sér hvaða áhrif slíkt hefði á islenska landsliðið en tilhugsunin er óneit- anlega spennandi. Til þessa hefur stutt keppnis- tímabil verið álitið óumbreytanleg- ur veruleiki vegna veðráttu hér á landi og gróðurástands. Margt bendir til að þessi viðhorf séu að breytast; menn eru farnir að gera sér grein fyrir því að það er knatt- spyrnuveður hér á landi lengur en 4 mánuði á ári og að gervigras er lausnin á vallarmálunum. En ef marka ntá viðmælendur greinar- höfundar virðist lenging keppnis- tímabilsins ætla að verða fyrr að raunveruleika en menn hefur órað fyrir, hugsanlega þegar á næsta ári. BÆÐI ÞARFT OG MÖGULEGT Fyrsti viðmælandi greinarhöf- undar, Ellert B. Schram, formaður KSl, taldi lengingu keppnistíma- bilsins bæði þarfa og mögulega: „Ég hef oftar en einu sinni flutt til- lögur um þessi efni á ársþingum KSÍ en þær hafa strandað á félags- liðunum. Á þeim bæjum hafa menn í grundvallaratriðum ekki verið á móti lengra keppnistímabili en hins vegar ekki talið lengingu gerlega, enn sem komið er. Félögin hafa bor- ið fyrir sig veðráttu, ástand valla, aukinn kostnað sem breytingarnar myndu hafa í för með sér, auk þess sé álag á leikmönnum nógu mikið fyrir og ekki á það bætandi." Þessar tillögur sem Ellert nefndi fela í sér nýja keppni, svokallaðan deildarbikar, sem hæfist í mars. Þar yrði liðum raðað í styrkleikaflokka (líkt og landsliðum í riðlakeppni), eftir það yrði dregið í tvo riðla og leikið heima og heiman. Hápunkt- ur knattspyrnuvertíðarinnar yrði eftir sem áður í hinu eiginlega ís- landsmóti um sumarið. Ellert sagði ennfremur: „Menn hafa sett fyrir sig ástand valla en forsendan fyrir lengingu keppnistímabilsins er lagning gervigrasvalla, sem mjög er í deiglunni núna, því mörg félög íhuga alvarlega að koma sér upp gervigrasi og þá ekki síður félög á landsbyggðinni. Ég tel gervigras- velli mjög þarft mál fyrir íslenska knattspyrnu. Þess má geta að nokkur lið hafa staðið fyrir æfingamóti núna í haust en mjög hljótt hefur verið um það í fjölmiðlum. Við þessar hugleiðingar má einn- ig bæta að ég tel þörf á að efla mjög innanhússknattspyrnu hér á landi.“ Jinas: FLEIRI LIÐ í DEILDIRNAR Jónas Kristinsson, forstöðumað- ur og knattspyrnuþjálfari, var sam- mála því að lengja þyrfti keppnis- tímabilið á íslandi en taldi enn brýnna að þétta leikjafyrirkomulag yfir sumartímann: „Mér finnst sjálfsagt að sama liðið leiki tvo deildarleiki á viku rétt eins og í handboltanum. Síðasta surnar var fyrstudeildarkeppnin alltof grisjótt, jafnvel svo að margar vik- ur liðu á milli heimaleikja sumra liða. Þetta dregur úr spennu móts- ins, hefur slæm áhrif á frammi- stöðu leikmanna og minnkar áhuga almennings fyrir mótinu. Þeir áhorfendur sem eru vanir að niæta aðeins á heimaleiki síns liðs gleyma því jafnvel að yfir stendur íslands- mót þegar liðið þeirra hefur ekki átt leik í hverfinu svo vikum skiptir. Næsta sumar verða óvenjumörg Reykjavíkurlið eða lið í nágrenni Reykjavíkur í l. deildinni og tel ég því sjálfsagt að fleiri en tvö af þeim geti leikið innbyrðis á sama tíma, en það hefur ekki mátt hingað til af ótta við minni aðsókn. Ég tel þann ótta ástæðulausan, menn fylgja fyrst og fremst sínu liði. í seinni tíð hefur borið á þeirri tilhneigingu að teygja úr íslandsmótinu án þess að fjölga verkefnum. Þannig fer of mikill tími í æfingar en of lítill í leiki. Ég sé fyrir mér að meðfram því sem íslandsmótið yrði þéttara myndi leikjum fjölga á þann hátt að liðin í fyrstu og annarri deild yrðu 12 eða 14 i stað 10 núna og auk þess háð úrslitakeppni efri og neðri hluta deildarinnar að hausti, um titil annars vegar og fall hins vegar. Ég vil auk þess bæta hverfa- stemmningu fyrir leiki og þar með aðsókn með öflugri kynningu og jafnvel dreifingu boðsmiða, hún myndi smita út frá sér og stórauka aðsókn.“ Pétur: FASTA LEIKDAGA Pétur Pétursson knattspyrnu maður, sem eins og flestir vita hefur áralanga reynslu af atvinnu- mennsku, tók að mörgu leyti í sama streng og Jónas. Hann taldi leng- ingu keppnistímabilsins þarft mál en enn brýnna og auðveldara í framkvæmd væri breytt fyrirkomu- lag yfir sumarið með þéttari leikja- dagskrá og fjölgun liða í 1. og 2. deild um tvö eða fjögur: „Mér finnst fríin milli Ieikja oft óþörf og of löng. Sé landsliðið að æfa eða keppa mætti bjóða þeim liðum upp á leiki sem ekki eiga landsliðs- menn.“ í þessu sambandi gátu bæði Pétur og Jónas hugsað sér annað mót sem bæði myndi hefjast á undan íslandsmótinu en einnig fléttast inn í það um sumarið. Pét- ur: „Mér finnst leikdagar einnig of óreglulegir, ég held að tveir fastir leikdagar í viku, segjum Iaugardag- ur og miðvikudagur, myndu skapa miklu meiri stemmningu fyrir mót- inu og auka aðsókn. Og eitt enn: Með fleiri liðum í deildunum og þar með fleiri leikjum þá minnkaði hættan á því að eitt lið gæti stungið hin af í byrjun eins og gerðist með Fram síðasta sumar. Varðandi það að hefja tímabilið í febrúar eða mars með öðru og veigaminna móti þá spilar vitanlega óvissa með veðráttuna inn í það dæmi. Eitt ráð er að byggja yfir velli eða loka þeim af með einhverjum hætti. Ég minnist þess frá þeim tíma er ég lék með Feyenoord í Hollandi, að á æfingum yfir hávet- urinn tíðkaðist að loka vellinum með einhvers konar lofttjaldi. Vit- anlega yrðu svona framkvæmdir dýrar og sérstaklega þungur baggi fyrir lið úti á landi, en hins vegar kæmi til greina fjárhagsleg sam- vinna margra félagsliða, t.d. allra liðanna í 1. og 2. deild.“ Pétur staðfesti ummæli Ellerts B. Schram um að nú stæði yfir lokað haustmót í knattspyrnu á gervigras- inu í Laugardal. Hann sagði að öll Reykjavíkurliðin utan Valur tækju þátt í mótinu. Sigurður: GERVIGRAS Á AKUREYRI Sigurður Arnórsson, formaður knattspyrnudeildar Þórs, sagði að veðráttan hefði meiri áhrif á knatt- spyrnuna úti á landi en í Reykjavík, sérstaklega snjóþyngsli: „Síðasta sumar þurfti að fresta fyrstu leikj- um Akureyrarliðanna. Hér voru engir vellir tilbúnir fyrr en í júní, ekki einu sinni malarvöl!ur.“ Sig- urður tók hins vegar vel í hugmynd- ina um lengra keppnistímabil, en gervigrasvellir væru forsendan fyrir því. Sagði hann menn vera farna að ræða það í alvöru að leggja gervi- grasvöll á Akureyri: „Það er engin spurning að góð nýting yrði á þess- um velli hjá liðunum frá nágranna- byggðarlögunum, Ólafsfirði, Húsavík, Sauðárkróki og Siglu- firði. Því er hins vegar ekki að neita að mun lakari aðsókn yrði á leiki snemma árs en um hásumar.“ Sigurður sagðist vera hlynntur föstum leikdögum, sagði að ákvörðun um slíkt væri í deiglunni. Einnig stæði til að gefa út getrauna- seðla fyrir íslensku knattspyrnuna og nauðsynleg forsenda þess væri einmitt fastir leikdagar. Sigurður sagði ennfremur að framundan væru fundir hjá formönnum knatt- spyrnudeilda allra fyrstudeildarlið- anna, þar sem alvarlega yrðu rædd- ar mögulegar breytingar á móts- haldi, hugsanlega nýjungar fyrir næsta keppnistimabil. Sagði hann bæði vera á döfinni lengingu keppnistimabilsins og breytt fyrir- komulag yfir sumarið. Það er ljóst að breytingar eru framundan í islenskri knatt- spyrnu og meiri einhugur virðist ríkja um hugmyndir þar að lútandi en oft áður.

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.