Pressan


Pressan - 17.11.1988, Qupperneq 23

Pressan - 17.11.1988, Qupperneq 23
Fimmtudagur 17. nóvember 1988 23 s|úkdómar og fólk Magaverkir Jóhanns J. Helvítis kvótakerfið Jóliann J. var kraftalegur sjó- maður á fimmtugsáldri og hafði ekki komið oft til læknis um dag- ana. Hann hal'ði lent í smáslysi úti á sjó eða við löndun og verið saum- aður á handlegg, en annars hafði liann verið heilsuhraustur. Ég hafði kynnst Jóhanni lítilsháttar á ein- hverjum pólitískum fundi sem ég hafði álpast á og síðan heilsuðumst við alltaf nreð virktum. Hann átti pantaðan tíma þennan morgun og sat hinn þolinmóðasti á biðstof- unni og las þriggja vikna gamlan Þjóðvilja þegar ég kallaði á hann. Við komum okkur þægilega fyrir í stólunum á stofunni minni og fór- um að ræða um pólitík. Jóhann bölvaði ríkisstjórninni og stjórnar- andstöðunni og þeim stjórnmála- mönnum öllum, sem hvorki væru í stjórn eða stjórnarandstöðu. Hann talaði illa um þá í sjávarútvegsráðu- neytinu, bölvaði kvótunum og verð- tryggðu lánunum, umferðinni og Kvennalistanum. Belgurinn er að drepa mig Síðan spurði ég eins og alltaf: Hvað er að? — Það er belgurinn á mér sem er að drepa mig, sagði Jóhann. — Hvernig þá? spurði ég. Hann lýsti þá verk í kviðnum undir bringubeininu sem hann hefði haft undanfarnar vikur. Verkurinn væri mjög slæmur „brunaverkur“, kæmi og færi, en þess á milli væri hann einkennalaus. — Hefurðu haft brjóstsviða? spurði ég. — Já, hann hef ég haft um árabil, svaraði Jó- hann. Ég hef þolað illa ákveðinn mat, steiktan og brasaðan, en þetta helvíti núna er miklu verra en allt sem ég hef upplifað áður. Ég fór að spyrja Jóhann út í hagi og lifnaðar- háttu og hann sagðist vera ferlega stressaður. Fiskeríið hefði ekki verið eins og hann hefði kosið, skuldirnar væru að drepa hann, enda nýskilinn við konuna eftir margra ára hjónaband, og hann Líklega er nœrtœkt að gera sér í hugarlund að heildverslun sem lieitir því ofurvenjulega íslenska nafni Edda sé skírð í höfuðið á Eddu Snorra Sturlusonar, Eddu Sœmundar fróða, eða þá einhverri íslenskri kvenpersónu sem hefur borið þetta ágœta nafn, Edda. En hlutirnir eru ekki alltaf jafn- gráupplagðir og þeir virðast við fyrstu sýn. Staðreyndin ku nefni- lega vera sú að heildverslunin Edda hf. heitir eftir allt annarri og síst ófrœgari Eddu; nefnilega Eddu dóttur Mussolinis, einræðisherra á Ítalíu. Heildverslunin Edda var stofnuð árið 1931 og stundaði í upphafi bœði inn- og útflutning, þar á meðal á saltfiski til Ítalíu. Ekki mun alltaf hafa verið vel gott að eiga við ítalina á þessum árum og því álitu menn að það myndi liðka fyrir viðskiptunum ef fyrirtœkið ÓTTAR GUÐMUNDSSON LÆKNIR væri enn að gera upp við hana. Hún hefði fengið að halda húsinu sem þau áttu en hann væri fluttur í litla blokkaríbúð og þetta væri erfiður róður, eins og hann sagði. Hann sagðist reykja þetta 1—2 pakka af sígarettum á dag, drykki mikið kaffi og talsvert brennivín um helgar og í landlegum. — Hefurðu verið að taka einhver lyf? spurði ég. — Nei, ég tek engin lyf, svaraði Jó- hann, nema út af giktarfjanda sem er að drepa mig. — Hvaða lyf tek- urðu út af giktinni? spurði ég. — Það veit ég ekki, svaraði hann, þetta eru einhverjir belgándskotar, sem ég fann um borð. Úr að ofan og upp á bekkinn — Farðu úr að ofan, sagði ég, og leggstu upp á bekkinn. Hann gerði það og var lengi að klæða sig úr, enda vel búinn í 2—3 nærbolum auk skyrtu. Ég skoðaði hann gaum- gæfilega. Jóhann var talsvert aumur við þreifingu á kviðnum fyrir neðan bringubeinið, en annars var skoðunin eðlileg. Lifrin hafði ekkert stækkað, endaþarmsþreif- ing var eðlileg og engin merki um blæðingu frá meltingarvegi að sjá. Þegar skoðuninni var lokið klæddi Jóhann sig á nýjan leik og við sett- umst niður til að ræða málin. — Þú ert sennilegast með magabólgur eða maga- eða skeifugarnarsár. Þú hefur með alveg dæmigerð einkenni fyrir það. — Nú, sagði Jóhann, magasár, hver djöfullinn er það, eitthvað sem grær með tímanum, er það ekki? Magasýrur og magasár — Magabólgur og -sár stafa sennilegast af of miklum magasýr- um, sagði ég, surnir virðast l'ram- leiða of miklar sýrur og auk þess virðist maginn í sumu fólki ekki nægilega duglegur að minnka sýru- stigið nteð meltingarvökvum. Auk þess er ýmislegt sem veldur því að sýruframleiðslan eykst, eins og streita svo og reykingar. Ákveðin fæða virðist auka framleiðsluna á magasýrum, t.d. kaffi, áfengi, ntjólk og rjómi. Ákveðin lyf, eins og magnvl og alls konar giktarlyf, auka hættuna á magasári. Þannig að þú hefur ýmislegt sem stuðlar að sármyndun. Þú reykir, þú ert yfir- máta stressaður, þú hefur óreglu- legan vinnutíma og síðast en ekki síst ertu farinn að taka giktarlyf, sem verka illa á magaslimhimnuna. Hvað er til ráða? — Hvað á ég þá að gera? spurði Jóhann. — Það er ýmislegt sem þú getur gert, svaraði ég. Þú verður t.d. að reyna að minnka streituna í lífi þínu, minnka reykingar, sofa reglu- lega og reyna einhvers konar slök- un. — Ja, mér þykir þú stórtækur í ráðleggingunum, sagði Jóhann. — Þú verður að fara að borða reglu- lega og reyna að halda þér að trefja- ríkri fæðu og halda þér frá áfengi og kaffi. Svo verðurðu að hætta að táka þessa giktarbelgi, enda eru þeir sennilegast gagnslausir fyrir þig. En þetta er nú langtímaáætlun, við verðum að grípa til annarra aðgerða til að byrja með. Ég ætla að senda þig i blóðrannsókn og í magamynd og sennilegast í magaspeglun líka til að vera alveg öruggur um sjúk- dómsgreininguna. Svo verð ég að gefa þér einhver lyf. Hérna áður fyrr voru alltaf gefin fljótandi lyf til að minnka sýruna í maganum, hin svokallaða hvíta mixtúra, sem inni- hélt sóda eða basa sem einangraði sýruna. Nú orðið gefum við í tilfell- um eins og og þessu lyf í töfluformi, hina svokölluðu H-2-hemjara, sem koma í veg fyrir að frumur í melt- ingarveginum framleiði magasýrur. Þessi lyf ntinnka sýrumyndunina um75—95%. Éggef þérlyf úrþess- um flokki sem heitir Zantac og þú tekur það tvisvar á dag. Það eru til ýmis önnur Iyf af þessum l'lokki lyfja, eins og Tagamet eða Cime- tidin og fleiri, en við skulum nota þetta. Jóhann fór við svo búið og við kvöddumst. Niðurstöður rannsókna Jóhann fór í magamyndatökuna, sem staðfesti sár í skeifugörninni, og síðan sendi ég hann í maga- speglun sem staðfesti enn l'rekar þessa sjúkdómsgreiningu. Blóð- rannsóknin var eðlileg. Hann tók Zantac-töflurnar reglulega og varð fljótlega einkennalaus. Skömmu síðar hitti ég hann inni á skyndi- bitastað þar sem liann sat og raðaði i sig frönskum kratöflum með bleikri andstyggilegri sósu. Hann lét vel af sér en kvartaði sáran undan magaspegluninni sem honum fannst leiðinleg. — Hvernig gengur með streituna, spurði ég, eru hættur að reykja? Þetta mataræði er nú kannski ekki það hollasta sem völ er á. — Nei, alls ekki, sagði Jó- hann, en þessar pillur sem þú gafst mér eru svo góðar, að ég áleit mig ekki þurl'a að gera neitt annað. Svo ég reyki ennþá og vinn jafnmikið og lifi bara eins og venjulega og ét þessar pillur með. Hann stakk upp í sig feitri kartöflu löðrandi í sósu og brosti. Ég hristi höfuðið og síð- an kvöddumst við Jóhann. — Betri er. pilla í maga en ábyrgð á eigin liag, sagði ég spekingslega við sjálf- an mig og flýtti mér siðan út úr steikarbrælunni á skyndibitastaðn- um, áður en mér yrði meira illt. ■ Einræðisherrann Mussolini og fjöl- skylda meðan allt lék i Ivndi. Okkur reilcnast svo til að Edda sé unga stúlkan sem stendur við hlið föður sins. bæri nafn sem Italirnir þekktu og teldu jafnvel viringarvott viðsig. Á þessum árum var Mussolini alvalda á Ítaííu og Edda, dótlir hans, náttúrlega í miklum metum. Og nafnið var auðvitað ekki síður kunnuglegt hér á Fróni. En ailt er í veröldinni valt: Heild- verslunin Edda hefur fyrir löngu aflagt útflutningsverslun og Thors- bræður, sem seldu saltfisk til Ítalíu í nafni hennar, eru horfnir á \ feðra sinna. Sjálf átti Edda ek miklu veraldarláni að fagna þeg. tók að halla undan fœtifyrir föð, hennar. Þegar endalokin nálguðu taldi Mussolini að Ciano grel eiginmaður Eddu, hefði setið svikráðum við sig. Og greip til þe ráðs sem einrœðisherrar hafa lön um haft dálæti á; lét skjóta Cian en eftir sat Edda í ekkjustandi...

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.