Pressan


Pressan - 17.11.1988, Qupperneq 26

Pressan - 17.11.1988, Qupperneq 26
.26 Fimmtudagur 17. nóvember 1988 Fréttaskýring ASÍ-þingiö ÞUNGAVIGTARMENN Í LIÐ MEÐ ÁSMUNDI Karl Steinar talinn styðja forsetann en stefna sjálfur í varaforsetastól. Karvel yfirlýstur stuðningsmaður beggja. Varaformaður Dagsbrúnar sér engan vœnlegri en Ásmund. Vilborg, formaður Snótar íEyjum, sterklega orðuð við embœtti annars varaforseta. Þóra Hjaltadóttir segir að hinn almenni þingfulltrúi láti ekki stjórnast af pólitískum flokkadráttum eða kvennakvóta. Sveit foringja innan verkalýðshreyfingarinnar vinnur að því að tryggja Ásmundi Stefánssyni, forseta ASÍ, góða kosningu á þingi sambandsins sem hefst nk. mánudag. Stuðningsmenn Ásmundar eru sagðir áfram um að jábræður hans og -systur nái kjöri i mið- stjórnina. í plottinu gera þeir auðvitað ráð fyrir að tryggja eigin stöðu í leiðinni. Meðal þungavigtarmanna sem beita sér fyrir góðri kosningu Ás- ntundar eru, samkvæmt heimild- um PRESSUNNAR, Benedikt Davíðsson, formaður Santbands byggingarmanna, Guðmundur I>. Jónsson, formaður Landssam- bands iðnverkafólks, Halldór Björnsson, varaformaður Dags- brúnar, Magniis Geirsson, for- maður Rafiðnaðarsambands ls- lands, Karl Steinar Guðnason, formaður Verkalýðs- og sjó- mannafélags Keflavíkur, og Karvel Pálmason, varaforntaður Verkamannasambáhds íslands. AFDRÁTTARLAUS STUÐNINGUR „Ég hef vonast til að Ásmundur verði áfram, en hvað hann ákveð- ursjálfur þori égekki að segja. Ég tel ákaflega erfitt að fjalla um málið á nreðan liann hefur ekki sagt neitt sjálfur. En það eru hreinar línur, að ég er fylgjandi Ásmundi el' hann gefur kost á sér,“ sagði Magnús Geirsson þeg- ar PRESSAN spurði hvort hann tilheyrði stuðningshópi Ásmund- ar. Halldór Björnsson, varafor- maður Dagsbrúnar og varamaður í miðstjórn ASÍ, kannast við að þrír af þeim sex sem nafngreindir eru hér að ofan hafi ræðst við um þessi mál. Það er hann sjálfur, Benedikt Davíðsson og Guð- mundur Þ. Jónsson. „Við höfunr spjallað saman um þá óvissu sem verið hefur í kringum þetta. Ég geri ráð fyrir að ef Ásnrundur gefur kost á sér verði hann sjálf- kjörinn. Ég sé ekki nokkurn ann- an vænlegri frambjóðanda,“ sagði Halldór. STUDNINGSMENN DREGNIR Á SVARI Karvel Pálmason segir ekkert óeðlilegt að nrenn beri saman bækur sínar fyrir þingið, þó það virðist hafa verið minna nú en oft áður. Hann kannast þó ekki við að þungavigtarmennirnir sex hafi ræðst við sérstaklega. „Eg veit ekki livort hægt er að tala um skipulagðar viðræður, þótt ein- hverjir sem telja sér málið skylt beri saman bækur sínar. Enn sem komið er veit ég ekki til þess að neinn viti fyrirfram um þróun nrála,“ sagði Karvel. Hann dregur enga dul á stuðn- ing sinn við Ásmund, verði hann í franrboði. „Ég er Itins vegar óhress með, að liann skuli ekki fyrir löngu hafa sagt unr afstöðu sína til framboðs. Það væri mjög óheppilegt að standa frammi fyrir því á fundinum, að hann gæfi ekki kost á sér.“ ANDSTÆÐINGARNIR VIDURKENNA ÓSIGURINN Það þykir næsta víst að Ás- mundur verði sjálfkjörinn. And- stæðingar hans, senr flestir konra úr röðum verkamannasambands- ins, telja möguleika á hallarbylt- ingu nánast enga. Til þess vantar styrk á þinginu, svo og frambjóð- anda sem gæti laðað til sín fylgi úr hlutlausa arminum. Þeir hafa því í rauninni viðurkennt ósigur sinn fyrir þinginu. Einn þeirra orðaði það svo, að nú væri aðalverkefniö að standa vörð unt Verkanranna- sambandið. ASÍ væri fyrir bí. KARL STEINAR LÍKLEGUR VARAFORSETI „Trúnaðarmenn" Ásmundar virðast m.a. áfram um að ná fólki inn í miðstjórnina sem komi til með að verða sammála forsetan- um. Andstæðingar hans segja hann ósamvinnuþýðan og gjarn- an á að taka persónulega til sín ef menn eru ósammála honum. Enn er þó ófrágengið hverjir verða varaforsetar. Bæði Guðríður Eliasdóttir og Björn Þórhallsson hafa lýst yfir að þau gefi ekki kost á sér til endurkjörs. Karl Stein- ar Guðnason hefur oft verið nefndur upp á síðkastið í embætti 1. varaforseta og miðað við þróun mála síðustu vikur er talið líklegt að hann hafi tryggan stuðning. Með stuðningi við Ásntund telja menn hann gulltryggja sig í embætti 1. varaforseta. Karvel Pálmason, sem jafnframt hefur verið nefndur líklegur frambjóð- andi, segist styðja Karl Steinar gefi hann kost á sér. Hitt varafor- mannssætið keniur þá í hlut konu, en mest óvissa virðist ríkja um þann frambjóðanda. LEIT AD KONU Þóra Hjaltadóttir, formaður Alþýðusambands Norðurlands, hefur stundum verið orðuð við varaforsetaenrbættið, en hún er ekki talin vera i náðinni hjá Ás- mundi. í samtali við PRESSUNA staðfesti hún að nröguleiki á framboði hefði verið ræddur við hana. Miðað við þá blokk sem nrynduð hefur verið fyrir þingið virðist hins vegar Vilborg Þor- stcinsdóttir, formaður Snótar í Eyjum, sá kvennraður sem helst kemur til greina. Kagna Berg- inann, formaður Verkakvennafé- lagsins Framsóknar, og Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður Sóknar, hafa einnig verið nefnd- ar. Kosning formanns og varafor- nranns fer fram á ntiðvikudag, en kosning í miðstjórn daginn eftir. Það er kjörnefnd sem kýs nefndir þingsins, þar á meðal uppstilling- arnefnd. Þar verður væntanlega fyrst Ijóst hverjir bjóða sig fram til ýmissa embætta. En tilnefning frambjóðenda utan úr sal er leyfi- leg og þar kynnu helst að verða óvæntar uppákonrur. ÓHÁÐIR KVENNAKVÓTA OG FLOKKADRÁTTUM Þóra Hjaltadóttir segir útilok- að að s!á einhverju föstu fyrir- fram unr kosningar á þinginu. „Fólk lætur ekki lengur segja sér fyrir verkum. Hinn almenni þing- fulltrúi lætur ekki stjórnast af pólitískum flokkadráttum eða kvennakvóta. “ Sömu skoðunar er Karvel Pálmason: „Það er nánast liðin tíð, að menn geti eyrnamerkt sér þetta eða hitt. Flvort sem menn telja það gott eða vont hefur pólitíkin mun minni áhrif en áður.“ Engu að síður virðist ljóst, að Ásmundur Stefánsson hefur mjög styrkt stöðu sína með stuðningi ýmissa þungavigtarmanna í hreyf- ingunni. Hvort allt gengur eftir sem sem þeir kunna að hafa ákveðið er önnur saga. Hinn almenni þingfulltrúi hlýtur að la einhverju ráðið. Annað verður að teljast óeðlilegt innan heildarsam- taka launafólks. Magnús Geirsson vonast til að Ásmundur verði áfram. Halldór Björnsson sér ekki væn- legri frambjóðanda. styðja sitjandi forseta. Guðmundur Þ. Jónsson i stuðn- ingshópnum. Karl Steinar talinn njóta stuðn- ings i embætti 1. varaforseta. Karvel Pálmason segist styðja bæði Ásmund og Karl Steinar bjóði þeir sig fram.

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.