Pressan - 17.11.1988, Side 29

Pressan - 17.11.1988, Side 29
Fimmtudagur 17. nóvember 1988 29 Sverrir Stormsker situr ekki auðum höndum þessa dagana. Hann er að ijúka við og gefur frá sér um næstu mánaða- mót tvær hljómplötur. Önnur þeirra er barnaplata en hin er klassísk. Efni beggja er frumsamið og sýnir þetta aö Sverrir er ekki allur þar sem hann er séður. Rokk- pressan leit inn í hljóðverið þar sem Sverrir vinnur tónlist sína, dvelur einn um nætur innan um tækin og skapar tónlist fyrir alla aldurshópa. ég ekki barnaplötur, mér hefur alltaf þótt þær hund- ieiðinlegar, leiðinlegustu plötur sem ég gat hugsað mér. Einu barnaplöturnar sem ég hef hlustað á eru plöt- urnar hans Bjartmars.“ — Verður hann ekkert spældur ef hann les þessi ummæli þín? „Það held ég ekki. Ég tal- aði við hann um þetta í síma og hann var alveg á því að þetta væru barnaplötur og ekkert annað. Mín plata verður á svipuðum nótum en samt er ég ekkert að herma eftir honum svo að platan mín seljist í 14.000 eintök- um. Mitt „stöff“ er einfald- lega barnapopp." — Má þá segja að þú verðir mjög barnalegur á plötunni, ertu kannski með bleiu á bossanum á umslag- inu? Sverrir hlær en segir: „Nei, nei, en mér finnst um- slagið vera voðalega sjóara- legt.“ — Plata fyrir sjómanna- börn? Stormskerið hlær enn: „Eftir umslaginu að dæma má segja að þetta sé plata fyrir sjómannabörn en nú erum við kannski búnir að þrengja hringinn fullmikið. Þetta er plata fyrir alla krakka.“ — Að öllu gríni slepptu langar mig að vita hvað raunverulega fékk þig til að gera barnaplötu? „Einfaldlega það að ég vildi ekki hjakka í sama far- inu, mig langaði að gera eitt- hvað nýtt, og þegar ég var að gramsa í lagabunkanum mínum sá ég að þar voru um það bil 20 lög sem voru í þessum barnastíl, einhver barnakeimur af þeim. Því lá beinast við að gera við þau texta og koma þeim á plast. En mín plata á að vera skemmtileg, ekki pínlega leiðinleg eins og meirihluti íslenskra barnaplatna, sem gera því skóna að krakkar séu hálfgerð fífl. Ég held að krakkar geti ekki hlustað á áður útgefnar íslenskar barnaplötur, ekki ógrát- andi.“ — En miðað við þjóðfé- lagið í dag, eru krakkar þá nokkuð spenntir fyrir barna- plötum? Væri ekki nær að gera 45 mínútna langt mynd- band, kryddað hóflegu of- beldi? „Jú, það er alveg rétt, en málið er að ég geri ekki út með því augnamiði að — Barnaplatan þín á að heita Nú er ég klæddur og kominn á rokk og ról. Er nafn plötunnar dæmigert fyrir húmorinn á henni? „Það felst nú svo sem eng- inn gríðarlegur húmor í nafninu. Þetta er gömul tugga frá Megasi og með þessari nafngift er ég ein- faldlega að skírskota til þess að þetta sé barnaskífa.“ — Þú ert ekkert hræddur um að fólk misskilji titilinn og haldi að þetta sé argasta rokkplata? „Nei, nei, ekki ef þú birtir víðtalið. “ Blaðamanni lék forvitni á að vita hvað það væri sem gerði þessa plötu að barna- plötu. „Það eru fyrst og fremst textarnir, sem eru voðalega barnalegir. Að vísu fer ég ekkert í skóna hans Bessa Bjarnasonar, en textarnir eru mjög einfaldir. Einfald- lega barnatextar. Samt hitti ég nú um daginn gamla skúr- ingakonu sem hafði verið að lesa textana yfir uppi í prent- smiðju. Hún spurði mig hvort þetta væru virkilega barnatextar. Það er alltaf til fólk sem misskilur alla hluti og hún hefur eflaust séð ein- tóma svertu þegar hún vissi að textarnir voru eftir mig. En þeir eru mjög saklausir, hvað sem öllum skúringa- kerlingum líður.“ — Er munur á því að gera plötu fyrir börn samanborið við „fullorðinsplötur"? „Hjá mér er aðalmunur- inn sá að á barnaplötunni beiti ég röddinni öðruvísi, reyni að vera barnalegri. Það hefur komið í ljós eftir því sem líður á vinnsluna að platan verður ekki eins barnaleg og ég átti von á. Hún nær reyndar í skottið á unglingunum." — Er þá kannski vafa- samt að kalla plötuna barna- plötu? „Já, ég sá það reyndar eftir á því ég ætlaði að kalla hana BARNAPLÖTU með stórum stöfum, en svo sá ég bara að það var ekki hægt.“ — Þegar maður gerir barnaplötur svona upp úr þurru, þarf maður þá ekki að hlusta á aðrar barnaplöt- ur til að átta sig á hlutunum? „Nei. Ég vildi bara gera barnaplötu eins og mér finnst að barnaplötur eigi að vera, innan gæsalappa að vísu. En ég hlustaði ekkert á barnaplötur áður en ég réðst í að gera þessa. Reyndar þoli græða, er ekki í þessu út af „bissness". Ef ég gerði það væri þessi plata steingeld og hundleiðinleg." Nú tók umræðan dálítinn hliðarsveig og við ræddum um svívirt börn og þess hátt- ar miður skemmtilega hluti. Ég spurði m.a. að því hvernig honum fyndist þjóðfélagið fara með börnin sín. „Miðað við þennan þátt þarna í imbakassanum um daginn fer þjóðfélagið nú ekkert of vel með börnin sín. Samt sem áður held ég að yfir höfuð hafi fólk það svona skítsæmilegt, alls stað- ar nema hér og í Eþíópíu!!“ — Fyndist þér þá ekki nær að íslenskir tónlistar- menn styddu við bakið á þessum svívirtu þjóðfélags- þegnum í stað þess að syngja fyrir einhvern blökku- mannaleiðtoga í Afríku? „Auðvitað. Fólk á að líta sér nær. Það er mér óskiljan- legt hvers vegna fólk hérna, sem hefur það frekar skítt, er að raka saman þessum ann- ars fáu aurum sínum til að styðja einhvern blökku- mannaleiðtoga eða sveltandi fólk víðsvegar um heiminn. Það væri t.d. miklu nær að stofna sjóð til styrktar fórn- arlömbum kynferðisglæpa- manna eða fólki sem býr við þröngan kost i kvisther- bergjum og kjöllurum og hefur varla efni á að verá á lífi. Það sem okkur kemur við er fyrst og fremst það sem gerist hér á klakanum." — Segjum sem svo að einhver ónefndur aðili skipulegði tónleika til styrkt- ar svívirtum börnum, mynd- ir þú taka þátt í slíkum tón- leikum? „Ég myndi gera það, en annars er maður orðinn svakalega hundleiður á öllu þessu styrktarveseni. Á tímabili var hringt í mig dag- lega og ég beðinn að styrkja liitt og þetta með því að koma fram. Þetta var orðið nánast endalaust og ég var á góðri leið með að verða svip- að andlegt og líkamlegt brak og þetta blessaða fólk, sem ég átti að styrkja. En ég er núna að gefa þrjú lög á plötu til styrktar lömuðum og fötl- uðum. Annars væri mjög sniðugt hjá mér að gefa út plötu til styrktar geðsjúkum, því þá væri ég að styrkja sjálfan mig í leiðinni,“ segir Sverrir og hlær. En hann hefur ekki alveg talað út um þessi mál og heldur því áfram: „Mér finnst þessi styrktarmál æði skrýtin. Fólk virðist ekki hafa efni á því að styrkja eitt eða neitt en samt hefur það alltaf efni á brennivíni, stútfullt um all- ar helgar. Það virðist vera þannig að því minna sem fólk á því meira drekkur það. Þetta er alveg ótrúlegt.“ — Aftur til plötumála. Sverrir er líka að vinna að klassískri plötu. Hvenær kemur hún út? „Hún kemur út nánast samtímis Nú er ég klæddur Textarnir eru saklaus- ir, hvað sem ölium skúringakerlingum lið- ur. Pressumynd GHÁ Það er mér óskiljan- legt hvers vegna iólk hérna, sem hefur það frekar skítt, er að raka saman þessum annars fóu aurum sinum til að styðja einhvern blökku- manna- leiðtoga eða sveltandi fólk viðs- vegar um heiminn. GUNNAR H. ÁRSÆLSSONi og kominn á rokk og ról, þ.e.a.s. um mánaðamótin nóvember-desember. “ — Hvernig er að vinna svona plötur samtímis? „Mér fannst miklu skemmtilegraað vinna klass- ísku plötuna en eitt er víst; krakkar kaupa hana aldrei. Þetta er svona gamaldags klassík eins og Beethoven, Mozart og (tó)Bach voru að fást við. Þetta er í fyrsta skipti sem íslendingur gefur út klassíska plötu eingöngu nreð frumsömdu efni og ég veit ekki unr marga senr hafa áhuga á þessari tónlist. Ég gef þessa plötu út í algerri blindni, veit ekkert hvernig viðtökurnar verða.“ — Nú er þetta að ég held í fyrsta skipti sém íslending- ur gefur út tvær stórar hljómplötur samtímis. Er þetta ekki óðs manns æði, getur þetta ekki haft skugga- legar afleiðingar í för með sér? „Eins og ég sagði áðan hef ég aldrei gefið út plötu með einhvern markað eða „bissness“ í huga. Markaðs- lega er þetta ekkert sniðugt, ég veit það. Kannski er þetta algerlega út í hött. En ég er ekkert bundinn á klafa markaðarins eins og Steinar Berg eða Jón Ólafsson hjá Skífunni. Þeir vildu heldur ekki gefa út klassísku plöt- una þrátt fyrir að mér finnist hún það albesta sem ég hef gert. En ef maður hugsar þetta eins og markaðsfræð- ingur — það er alltaf»verið að ráðleggja mér það — er það alveg sitthvor hópur áheyrenda sem þessar plötur höfða til. Ef barnaplatan selst í einhverjum eintökum þá eru þetta kannski þeir láu sem hafa keypt plöturnar mínar í gegnum árin og svo kannski einhverjir foreldrar sem slysast til að kaupa plöt- una handa krakkanum sín- um. Hinn hópurinn saman- stendur svo kannski af fólki sem er orðið fullorðið, eldra en 25 ára. Yngra fólk en það hefur að ég held ekki gaman af klassískri tónlist. Þannig að það er greinilega langt bil á milli þessara platna.“ — Það er kannski eina leiðin til að gefa svona út, að hafa hlutina hvorn úr sinni áttinni? „Já, en málið er að maður verður að geta setið við þetta og haft gaman af, ekki að slíta sér út eins og einhver tónlistarmella. En ég veit að Axel Einarsson útgefandi er alveg á nálum og ef þetta ler allt saman fjandans til þá lendir það á honum. Én hann má alveg við því að ntissa nokkur hundruð þús- und,“ segir Sverrir og hlær illkvittnislega. — Viltu segja eitthvað að lokunr? „Ég mana krakkana til að kaupa klassísku plötuna en „gamla Iiðið“ til að kaupa barnaplötuna. Það væri mikið vit í því.“ ■ dagbókin hennar dúllu í •/. I M-. I ÁVO Kœra dagbók. Ég er í rosa krísu út af ensku- kennaranum. Það var nefnilega árs- hátíð í MR um daginn og þá byrjaði soldið að gerast. Ja, ég held það að minnsta kosti... Við buðum sko Árna „english" í bekkjarpartýið á undan og ég gat möndlað það aö sitja við hliðina á honum, sem var algjör unaður. Hann talaði helling við mig og allt, en ég var svo stressuð af að sitja svona hjá honum að ég man varla orð af því sem fram fór. Svo fórurn við náttúrulega á ballið og mér tókst að troða ntér í sama leigubíl og Árni. Við vorum bæði í aftur- sætinu og það var voða þröngt — æði, æði, æði... Og næst kom aðal- bomban, maður. Hann bauð mér upp! Þetta hlýiur að þýða eitthvað. Hann hefði örugglega ekki farið að dansa við mig l'yrir framan alla, ef honum fyndist ég barnaleg og von- laus. Að vísu dansaði hann við fleiri og fór ógeðslega snemma heim af ballinu, án þess að kveðja mig, en það þarf ekkert endilega að vera neikvætt. Kannski er hann svo ofboðslega ástfanginn af ntér að hann barasta getur ekki ráðið við sig, en kennarar mega ekki vera með nemendum sinum (Bella vin- kona segir að það sé bannað með lögum frá Alþingi!) og þess vegna varð hann að hendast heim til að gera ekkert ólöglegt. Ég er viss um að honurn líður alveg jafnilla út af þéssu og mér, svona innst inni. Það er ekki einu sinni vist að hann viti hvað ég er hrifin af honum og þá heldur hann að þetta sé alveg von- laus og óendurgoldin ást í meinum. Svakalega er þetta rnikið „drama“, eins og amma á Einimelnum myndi segja. En hún hefur heldur aldrei lesið bækurnar eftir Theresu Charles og Rauðu ástarsögurnar, svo hún veit ansi lítið um það hvernig veröldin er. Ég er stíft að hugsa um að hringja í Árna og segja honum að ég sé líka skotin í honum — bara svo hann róist. Og þó... Það gæti verið betra að biðja hann að hitta mig á einhverjum rómantískum stað og segja honum þetta andliti til andlitis. Éða ætti ég að skrifa honum bréf? Ég verð a.m.k. að gera einlivað. Það er alveg ljóst að mað- urinn má ekki þjást svona og það verður að kippa þessu í lag. Ég giska á að hann heimti að segja upp vinnunni, svo við brjótum ekki lögin, en ég ætla sko ekki að taka það í mál. Ég flyt mig bara i MH og þá verður allt í lagi. Guð, hvað ég hlakka til. Dúllu í sœluvímu. ROKKPRESSA N TOPP FIMMTÁN 1. (3) COCKTAIL..................................ÚR KVIKMYND 2. ( 4 ) SUNSHINE ON LEITH............THE PROCLAIMERS 3. (1 ) RATTLE AND HUM ............."...........U2 4. (2) YUMMI YUMMI .......................KIM LARSEN 5. (7) BUSTER....................................ÚR KVIKMYND 6. ( 5 ) UB 40................................UB 40 7. (-) THE FLAG..............................YLLLO 8- (—) TRACEY........................TRACEY CHAPMAN 9.(6) MONEY FOR NOTHING..................DIRE STRAITS 10. (—) SERBIAN FLOWER.......................BUBBI 11. (9) l’M YOUR MAN...................LEONARD COHEN 12. (-) TENDER PREY........................ N|CK CAVE 13. (13) SIMPLE PLEASURES....................BOBBY McFERRIN 14. (8) EFTIR PÓLSKIPTIN.....................STRAX 15. (—) MIDT OM NATTEN....................KIM LARSEN Listinn er byggöur á smásölu úr verslunum Steina hf., Skifunnar og Grammsins.

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.