Pressan - 14.12.1989, Qupperneq 13
Fimmtudagur 14. des. 1989
13
> AF KAUPENDUM
yfjendum
einar Berg
tgefanda
1987—1988 voru tollar af erlendum
hljómplötum felldir niður. Innflutn-
ingur á þeim var því í algjöru lág-
marki fyrir jól því menn kærðu sig
ekki um að greiða háa tolla af plöt-
um í desember sem urðu tollfrjálsar
í janúar. íslenska útgáfan varð því
enn meira áberandi en ella.
í fyrra datt salan að nokkru leyti
niður en það sem af er þessari vertíð
lofar svo sannarlega góðu. íslenskar
plötur seljast mjög vel og það sem
meira er, margar erlendar plötur
eru að seljast í 2—3000 eintökum
sem er mjög gott.
Annars er ómögulegt að segja til
um hvernig þetta kemur út fyrr en
upp er staðið að lokinni Þorláks-
messu, því þann dag seljast jafn-
margar hljómplötur í verslunum á
Islandi og í öllum júlímánuði, sem
þó er ágætismánuður hvað sölu
varðar! Nú, um miðjan desember
má því segja að enn séu nokkrir
mánuðir til jóla hjá okkur útgefend-
um.“
Bylgjan á
hættulegri braut
— Eins og kemur fram hér í
byrjun fer mikil spilun þeirrar
tegundar tónlistar sem við erum
að ræða um fram í útvarpi á degi
hverjum. Skiptir sú spilun miklu
máli fyrir útgefendur?
,,Það er alveg ljóst að leggist dag-
skrárgerðarmenn einhverrar stöðv-
arinnar á eitt um að spila ákveðið
lag — ákveðna plötu mikið, þá getur
sú spilun þýtt meiri sölu en annars
hefði orðið. í útvarpi gefst fólki kost-
ur á að heyra það sem verið er að
gefa út hverju sinni, auk annars efn-
is. Það er hins vegar misskilningur
að dagskrárgerðarmenn séu á jöt-
unni hjá okkur. Við komum vissu-
lega ákveðnum upplýsingum til
þeirra um okkar listamenn og kynn-
um þeim efni þeirra.
Það er aftur á móti mitt mat að
Bylgjan sé í dag á ákaflega hættu-
legri braut hvað þetta varðar. Við
hlustun á hana fæ ég það óneitan-
lega nokkuð sterklega á tilfinning-
una að hún sé nokkurs konar útibú
frá Skífunni en eigandi hennar er
einn aðaleigandi Bylgjunnar. Mér
hefur reyndar oft fundist þetta, en
aldrei eins og nú og ég trúi því ekki
að allar þær símhringingar sem ég
hef fengið með ábendingar um
þetta séu út í bláinn!
Ég held að það sé nauðsynlegt að
fólk sem vinnur við að spila tónlist
í útvarpi hafi persónulegt álit á tón-
listinni og spili þá músík sem því lík-
Framhald á
næstu síðu.
w/u/s
og sala íbúðar
Lög um húsbréfaviðskipti gilda um kaup og sölu notaðra íbúða,
sem eiga sér stað eftir 15. nóvember 1989.
Hvað eru húsbréf?
Húsbréf eru skuldabréf sem seljandi íbúðar getur fengið
hjá húsbréfadeild Húsnæðisstofnunar ríkisins, í skiptum fyrir
fasteignaveðbréf, sem kaupandi íbúðarinnar gefur út.
Húsbréf eru verðtryggð og gefin út með föstum vöxtum til 25 ára.
Gengi þeirra er opinberlega skráð daglega.
Húsbréf eru með ríkisábyrgð og undanþegin skatti.
j&x a. XUmsögn ráðgjafastöðvar er
\ skilyrði fyrir tilboði.
Allir kaupendur í húsbréfakerfinu verða að hafa i
höndum skriflega umsögn ráðgjafastöðvar
Húsnæðisstofnunar um greiðslugetu sína og
kaupverð íbúðar, áður en þeir geta gert seljanda
kauptilboð.
Hvemig fer sala íbúðar fram?
Seljandi fær kauptilboð.
Tilvonandi kaupandi sýnir seljanda
umsögn ráðgjafastöðvar og gerir honum kauptilboð
með tilliti til greiðslugetu sinnar skv. umsögninni.
i^~ír\Tilboði tekið með fyrirvara um
skuldabréfaskipti.
Þegar samkomulag hefur náðst um kaupverð,
samþykkir seljandi kauptilboðið með fyrirvara um
skuldabréfaskipti við húsbréfadeild Húsnæðisstofn-
unar. Allt að 65% af kaupverði íbúðarinnar getur
verið fasteignaveðbréf sem kaupandinn gefur út og
seljandinn fær skipt fyrir húsbréf. Fasteignaveðbréfin
geta verið tvö, ef seljandi þarf að aflétta skuldum
sem kaupandi tekur ekki við, frumbréf og viðauka-
bréf.
Undirbúningur að skuldabréfa-
\.......\ Skiptum. Þegar seljandi hefur
gengið að tilboði, fer tilvonandi kaupandi fram á
skuldabréfaskipti við húsbréfadeildina.
Æ5
Afgreiðsla húsbréfadeildar.
Húsbréfadeild metur veðhæfni
íbúðar og matsverð og athugar greiðslugetu
væntanlegs kaupanda. Samþykki hún kaupin,
sendir hún væntanlegum kaupanda fasteignaveð-
bréfið, útgefið á nafni seljanda.
Kaupsamningur undirritaður -
fasteignaveðbréf afhent
seljanda. íbúðarkaupandi og íbúðarseljandi gera
með sér kaupsamning og kaupandi afhendir
seljanda fasteignaveðbréfið.
-» \ Kaupandi lætur þinglýsa
■ * \ kaupsamningnum.
r\ Seljandi lætur þinglýsa
* \ fasteignaveðbréfinu.
Fram að 15. maí 1990 eiga þeir einir aðgang að
húsbréfakerfinu sem sóttu um húsnæðislán hjá
Húsnæðisstofnun ríkisins fyrir 15. mars sl.
og hafa lánsrétt.
HÚSNÆÐISSTOFNUN
RIKISINS
SUÐURLANDSBRAUT 24 108 REYKJAVÍK SÍMI 696900
\ Seljandi skiptir á fasteigna-
^\_?_\ veðbréfi fyrir húsbréf.
Óski seljandi eftir því að fá húsbréf, fær hann
þau afhent hjá húsbréfadeildinni í skiptum fyrir
fasteignaveðbréfið.
ACi\ Húsnæðisstofnun annast inn-
heimtu fasteignaveðbréfsins
af kaupanda, enda orðinn eigandi þess, þegar hér er
komið.
Seljandi rí
að vild.
ráðstafar húsbréfunum
Seljandi getur átt bréfin,
notað þau við íbúðarkaup eða leyst þau út.