Pressan - 14.12.1989, Side 20
20
Fimmtudagur 14. des. 1989
2,rtburuekjum gamían en góban §ib d jóíaföðtu
STAURBITIÁ AÐVENTU
EFTIR STEINUNNI EYJÓLFSDÓTTUR
Þá er nú jólafastan komin, aðvent-
an sem sumir kalla. Og margir eru
nú svoleiðis gerðir, einkum krakk-
arnir, að þá iangar að fá sér smáveg-
is forskot á alla jólasæluna. Allskon-
ar jólaföndur kemst á kreik og fyrir
nokkrum árum kom mikill hvalreki
á jólafjörur Islendinga. Það var
glöggið svonefnda. Með ólíkindum
er hversu fljótt þessi siður hefur fest
hér rætur. Jafnvel þó haft sé í huga
að allt er best sem erlent er — að
margra dómi. En ekki hafa nú allir
áhuga og heilsu í glöggið og krakk-
arnir sitja uppi með að verða snuð-
aðir um einn tyllidag.
En bíðum nú við — ef við flettum
upp í þjóðsögum og annálum þá
kemur í Ijós að áður fyrr var siður á
íslenskum heimilum að gefa glaðn-
ing einhverntíma á jólaföstu, víst
oftast í vikunni fyrir jólin, en sú vika
var kölluð staurvika og glaðningur-
inn staurbiti, vegna þess að fólkið
var orðið svo syfjað í jólaannríkinu
að það átti að hafa haldið augnalok-
unum uppi með litlúm spýtum sem
kallaðar voru vökustaurar. Þá voru
víða mannmörg heimili og öll föt
varð að búa til heima. Allir urðu að
fá nýja flík svo enginn færi í jólakött-
inn. Það er því augljóst að fólkinu
veitti ekki af að fá dálítinn staurbita.
Hvers vegna endurvekjum við ekki
þennan sið? Það ætti ekki að vera
meira mál heldur en endurlífgun
þorrablótanna, sem voru þó búin að
liggja enn lengur í gleymsku, eða
nokkur hundruð ár. Hver mundi
vilja vera án þeirra nú?
Oftast er meira og minna komið
upp af skrauti á þeim tíma sem
staurvikan er, en mér hefur dottið í
hug að ef maður skreytti borðið sér-
staklega væri gaman að koma sér
upp jólaköttum til skreytinga. Þeir
eru svo nátengdir fatastússinu og
jólaönnunum. Líklega kynnu þeir
best við að hanga í Ijósum og
gluggatjöldum — þið vitið, þessir
kringlóttu með, gormaskottin sem
allir krakkar kunna að búa til. Spyrj-
ið fóstrur eða föndurkennara ef þeir
skyldu hafa farið fram hjá ykkur. í
a.m.k. sumum prentsmiðjum er
hægt að kaupa ódýrt allavega litar
arkir, alveg mátulega þykkar í jóla-
ketti. Svo geta þeir hangið uppi yfir
jólin ef maður vill.
En hvað á þá að hafa í sjálfan
staurbitann? Möguleikarnir eru
óteljandi og hverjum og einum
verður sjálfsagt hugsað til sinna
uppáhaldsrétta. Þeir sem þykir góð-
ur súrmatur fá hér prýðisgóða
átyllu til að hafa hann á borðum.
Hér eru nokkrar uppástungur að
einföldum og góðum staurbitum.
Heit eða köld svið með kart-
öflu- og rófustöppu.
Lundi með brúnuðum kartöfl-
um, sósu og sultuhlaupi eða
öðru sem ykkur þykir gott.
Niðursneitt kalt kindakjöt (læri)
með soðnum sveskjum og
ávaxtasalati (ávextir skornir í
bita eða teknir úr dós og hrært
í sýrðan rjóma).
Harðfiskur og smjör er sjálfsagður
fyrir- og eftirréttur. Ef einhver lumar
á frystum berjum frá Austfjörðum er
þetta rétti dagurinn til að neyta
þeirra og vonast eftir betra berja-
sumri næst. Og svo skal ég að end-
ingu segja ykkur hvernig ég held að
ég sleppi ódýrast frá staurbitanum,
en þetta er annað árið sem ég efni
til hans.
Ég ætla að baka himinháan stafla
af ósætum lummum, setja hann á
mitt borðið og þar hjá skálar með
salötum — ég hef ekki enn ákveðið
hverskonar, nema áreiðanlega hef
ég heitt hangikjötssalat — þ.e.
hangikjöt og grænmeti saxað í jafn-
ingi. Þessu hafði ég hugsað mér að
fólk skolaði niður annaðhvort með
góðri súpu eða kúmenkaffi eins og
gömlu konurnar í minni sveit
bjuggu til. (Þá lætur maður svo sem
matskeið af kúmeni með í könnu-
pokann og fær öndvegiskaffi.) Svo
er auðvitað líka hægt að fá sér suitu
og rjóma með lummum. Og að end-
ingu — staurbitann skal snæða um
miðnættið, þá smakkast hann al-
best. Samtaka nú!
A
^^ins og kunnugt er voru í vetur
stofnuð hér á landi Landssamtök
heimavinnandi fólks. í mesta sak-
leysi gæti maður því ætlað að þetta
væri þar af leiðandi hópur heima-
vinnandi fólks, sem bundist hefði
samtökum til að geta barist í sam-
einingu fyrir réttindamálum sínum.
En þegar skoðaður er listi yfir þá,
sem eiga sæti í fulltrúaráði þessa fé-
lagsskapar, er greinilegt að svo er
ekki. I ráðinu eru t.d. tveir alþingis-
menn, þeir Kristinn Pétursson og
Guðmundur Agústsson, og hefur
þingmennska ekki hingað til talist
heimavinna. Einnig er í fulltrúaráð-
inu Olafur Helgi Kjartansson.
skattstjóri á Vestfjörðum, sem þar af
leiðandi vinnur meira en lítið utan
heimilis. Þess má þó geta til gamans
að Ólafur Helgi dundar við það í frí-
stundum að skrifa smásögur, sem
sumar hverjar hafa verið birtar á
prenti, og sú „vinna" er væntanlega
innt af hendi á heimilinu en ekki á
skattstofunni. . .
u
þessar mundir er verið að
skipa nýtt jafnréttisráð og hefur
formaður þess þegar verið tilnefnd-
ur af Hæstarétti. Það er Ásdís
Rafnar lögfræðingur, sem nú lætur
af formennsku í ráðinu, en við tekur
önnur lögmenntuð kona, Ragn-
hildur Benediktsdóttir, skrif-
stofustjóri á Biskupsstofu. . .
u
sunnudaginn kemur verður
haldin jazzballettsýning í Súlnasal
Hótels Sögu. Þar munu nemendur
úr jazzballettskóla Ástu Ólafs-
dóttur sýna þá dansa sem þeir hafa
lært í vetur og eru yngstu dansar-
arnir aðeins 4ra ára áð aldri. . .
Jólatilboð
Húsasmöunnar
Peugeot borvél
kr. 5.653,-
Expressó kaffívél
kr. 5.963,
I verslun Húsasmiðjunnar fást nytsamar
jólagjafir við allra hæfí og á jólamarkaði
á 2. hæð er mikið úrval skrauts og
gjafavara. í Húsasmiðjunni fæst
einnig allur húsbúnaður og
heimilistæki, öll áhöld og efni
sem þarf til að fegra og prýða
heimilið fyrir jólin.
i
’sk
%
KryddhiIIa.
kr. 2.804,-
Útvarp/kassettutæki
kr. 5.800,-
Piparkökuhús
kr. 717,-
Makita slípirokkur
kr. 12.950.
bf/i,
u
SKÚTUVOG116 SÍMI 687700