Pressan - 11.01.1990, Side 20
20
Fimmtudagur 11. jan. 1990
Þetta er þitt líf, en:
ÞETTA ER EKKI KONAN ÞÍN!
Mike Aspel og framleidandi þáttanna ,,This is your
life“ leysa frá skjóðunni
Stöð 2 sýndi til skamms
tíma viðtalsþætti undir
stjórn Mikes Aspel sem báru
nafnið This is your life. í þátt-
unum var til dæmis farið inn
á þætti í lífi gestanna, sem
voru jafnvel þeim sjálfum
gleymdir, og í lokin birtist
einhver óvæntur meðlimur
fjölskyldunnar, vinur eða
ættingi, sem viðkomandi átti
ekki von á.
Slíkar uppákomur voru oítast
gestinum til mikillar gleði og undr-
unarefni þegar náinn ættingi var
mættur inn á sviðið, kannski úr fleiri
þúsund kílómetra fjarlægð. Það tek-
ur Mike Aspel tímana tvo að koma
þáttum sínum saman — og ekki
tekst alltaf eins og til var ætlast.
Nú eru þættirnir This is your life
að hefja sitt 21. sýningarár og af því
tilefni hefur framleiðandi þáttanna,
Malcolm Morris, ákveðið að dusta
rykið af leyndarmálum sem komið
hafa upp og þeir aldrei fyrr sagt frá.
Eitt leyndarmálanna er á þá leið
að fyrir nokkrum árum mætti
þekktur kvikmyndaleikari í þáttinn.
Eins og oft er gert í þáttunum hafði
fjölskylda leikarans, eiginkona og
börn, verið boðuð frá Bandaríkjun-
Allir þeir, sem greitthafa iaun
w
á árinu 1989, skulu skila
launamiðum vegna greiddra
launa á þar tilgerðum eyðu-
blöðum til skattstjóra.
Frestur til að skila launamiðum
rennur út 22. janúar.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
um og var „falin" á hótelherbergi
rétt við upptökuverið. Þau átti að
sækja skömmu eftir að byrjað var
að senda þáttinn út, þannig að þau
birtust á sviðinu um það leyti sem
kveðja skyldi leikarann. Nema
hvað. Þegar leikarinn gekk í sjón-
varpshúsið var ung Ijóska í fylgd
með honum. Þau gengu að bar sem
þarna var og stóðu upp við hann í
innilegum faðmlögum og kossa-
flensi. Malcolm Morris vissi ekki sitt
rjúkandi ráð og í örvæntingu laug
hann einhverju að fjölskyldunni, lét
færa hana af hótelinu og koma
henni fyrir á öðru hóteli, langt frá
sjónvarpsstöðinni. Þessi frægi leik-
ari fékk því ekki óvænta heimsókn
í lok þáttarins!
Mörgum árum síðar sagði Malc-
olm Morris leikaranum frá þessu at-
viki. Leikarinn eldroðnaði og sagði:
„Þetta kvöld var síðasta kvöldið
okkar saman. Við vorum að kveðj-
ast þarna . . .“
Þeir Malcolm Morris og Mike As-
pel ganga úr skugga um það hjá fjöl-
skyldum verðandi gesta sinna, að
ekki leynist einhverjar vofur í lífi
þeirra, sem illa getur komið sér fyrir
þá að draga fram í þáttunum. I sam-
tölum af þessum toga kemur oft hið
gagnstæða upp; eitthvað verulega
gott sem ástæða væri til að láta um-
heiminn vita af. En einnig slíkar
upplýsingar geta skemmt fyrir:
„Við höfðum fregnað hjá ættingja
manns sem ræða átti við, að hann
hefði drýgt mikla hetjudáð í stríðinu
og bjargað lífi fjölda fólks í litlu
þorpi í Skotlandi. En tveimur vikum
áður en þátturinn skyldi sendur út
kom babb í bátinn. Fyrra nafn
mannsins stemmdi ekki við nafn
hetjunnar . . . Hetjan hafði nefni-
lega verið tvíburabróðir gestsins;
maður sem lést skömmu eftir stríð-
ið. Gesturinn hafði tekið sér það
bessaleyfi að skrá hetjudáðina á
sjálfan sig, því látnir tala jú ekki! í
fjörutíu ár hafði því gestur okkar
verið gangandi lygi — og við hætt-
um við þáttinn."
DÝR ERII
ALLRA MEINA
BÓT
Stundum „uppgötva" vís-
indamenn nútímans eitthvað
með rannsóknum sínum,
sem allir vissu í gamla daga.
Einhver hópur þeirra komst
t.d. nýverið að því, að það
gerði fólki gott að umgangast
dýr.
Þessi merki boðskapur var kynnt-
ur á alþjóðlegri ráðstefnu í Mónakó
síðla á nýliðnu ári, studdur tilvitnun-
um í hávísindalegar rannsóknir. Vís-
indamenn höfðu m.a. kannað það
að sjúklingum á sjúkrahúsum batn-
aði mun fyrr, ef dýr voru á staðnum,
en ferfætlingarnir höfðu til dæmis
jákvæð áhrif á eftirfarandi: of háan
blóðþrýsting, flensu, kvef og bak-
verk. Þar að auki stuðla dýr að bætt-
um mannlegum samskiptum, því
návist þeirra verður til þess að fólk
talar meira saman en ella. Og þetta
á ekki bara við um hunda og ketti,
heldur einnig skjaldbökur, kanínur
og jafnvel gullfiska.