Pressan - 14.06.1990, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 14. júní 1990
5
Verðmætar lóðir við Aðalstræti 16 og Túngötu 2 og 4 eru í eigu Ólafs Laufdal.
SKULDAR BÚNAÐARBANKA
700 MILUÖNIR
Tíðir fundir í bankaráðinu. Herluf Clausen jr. kemur til bjargar
__ Konungur íslensks skemmtanaiðnaðar,
Ólafur Laufdal, rærnú lífróður til að forða
sér frá gjaldþroti. Sjallinn á Akureyri,
Hollywood, Aðalstöðin og hálfkarað hótel
hans, HótelIsland, eru tilsölu en kaupend-
urhafa ekki fundist Skuldirhans viðBún-
aðarbanka íslands nema nú um 700 millj-
ónum króna og bankaráð hans hélt sér-
stakan fund um málin í síðustu viku.
EFTIR: INGIBJÖRGU SÓLRÚNU GÍSLADÓTTUR OG
FRIÐRIK ÞÓR GUÐMUNDSSON
I Alþýðublaðinu sl. þriðju-
dag var því haldið fram að
Ólafur væri búinn að selja
einbýlishús sitt í Haukanesi
10 á Arnarnesi og Búnað-
arbankinn væri búinn að
loka ávíscinahefti hans í
bankanum. Þessu vísar Olaf-
ur staðfastlerja á bug ogsegir
ekkert hæft i fréttinni. I sam-
tali við PRESSUNA lagði
hann áherslu á að hann væri
hvergi í vanskilum, en að
ýmsir aðilar sæju drauga í
hverju horni. Ólafur vildi að
öðru leyti alls ekki tjá sig um
málefni sín og fyrirtækja
sinna, þau væru einkamál.
Herluf Clausen
leggur fram
14,5 m.kr.
PRESSAN hefur engu að
síður eftir áreiðanlegum
heimildum að á bankaráðs-
fundi í Búnaðarbankanum í
síðustu viku hafi verið ákveð-
ið að loka á allar fyrirgreiðsl-
ur við Ólaf umfram þær sem
þegar eru til staðar og
ábyrgðir eru fyrir. Þá hafi
staðið til að loka ávísana-
reikningnum þegar ljóst var
að Ólafur átti að greiða 14,5
milljónir í virðisaukaskatt um
sl. mánaðamót en ekki var til
innstæða fyrir því á heftinu.
Það mál hafi þó bjargast fyrir
horn þar sem Herluf Clau-
sen jr. hafi lagt fram það fé
sem til þurfti. I samtali við
PRESSUNA sagði Herluf að
þetta væri alger tilbúningur
og hann vissi ekki hvernig á
því stæði að slíkar sögur
væru komnar á kreik. „Eg
skil bara alls ekki samhengið
í málinu," sagði hann.
700 milljóna króna skuld
Ólafs í Búnaðarbankanum er
tryggð með veðum í ýmsum
Ólafur vísar sffelldum fréttum um fjárhagserfiöleika á
bug.
eignum hans, s.& hótelinu,
einbýlishúsinu og húseign
hans og lóðum við Aðal-
stræti 16 og Túngötu 2 og
4. Mun bankinn hafa auga-
stað á þessum lóðum undir
bílastæði þar sem þær eru í
næsta nágrenni bankans.
Enn sem komið er hefur þó
ekkert orðið úr því að bank-
inn yfirtæki þær.
Leitað til Flugleiða
Ólafur hefur verið mjög
umsvifamikill í veitingahúsa-
rekstri á undanförnum árum
og af mörgum talinn mjög
hæfur veitingamaður. Þannig
leggur fólk sem til þekkir
áherslu á að hann hafi til að
bera þá þjónustulund sem til
þurfi og haldi ákveðin
grundvallárviðhorf í heiðri,
s.s. þau að taka tillit til um-
kvartana og ábendinga gesta
sinna. Reksturinn virðist líka
hafa gengið nokkuð vel allt
þar til hann réðst í byggingu
Hótels íslands. Því fylgdu
miklar lántökur og þ.a.l. mik-
ill fjármagnskostnaður.
Stöðvun allra framkvæmda
við hótelið fyrir u.þ.b. ári
varð honum dýrari en í upp-
hafi var ætlað og J>ó veitinga-
staðurinn á Hótel íslandi hafi
gengið ágætlega dugir það
ekki til. Með tilkomu bjórsins
breyttist skemmtanamunstr-
ið og fólk sækir í auknum
mæli á matsölustaði og krár
þar sem ekki þarf að greiða
aðgangseyri. Til að mæta
þessu hafa hefðbundnir veit-
ingastaðir þurft að leggja út í
dýr skemmtiatriði til að laða
til sín gesti. Og rétt eins og
það sem sett er upp í leikhús-
unum getaslík skemmtiatriði
gengið lengi þegar vel tekst
til, en þau geta líka fallið.
Að undanförnu hefur Ólaf-
ur reynt að útvega nýtt fjár-
magn í hótelið, m.a. með því
að leita til fyrirtækja um að
þau gerðust hluthafar. Þann-
ig er ljóst að hann leitaði til
Flugleiða, rétt eins og marg-
ir aðrir sem þurfa að selja eða
útvega fjármagn í hótel, en
það mun ekki hafa borið
árangur.
Salan á Broadway
Eitt af fyrirtækjum Ólafs
Laufdal er Veitingahúsið
Pósthússtræti 11 hf. en það
hefur m.a. haft Hótel Borg á
leigu. Eftir því sem komist
verður næst hefur tapið á
þeim rekstri verið að meðal-
tali um 1,5 milljónir króna á
mánuði undanfama mánuði.
Veitingastaðurinn Broad-
way mun hafa gengið illa
þegar Ólafur seldi Reykja-
víkurborg hann á síðasta ári
fyrir 114 milljónir. Fyrir þá
sölu hafði hann aflétt áhvíl-
andi veðskuldum af eigninni
og greiddi borgin honum
með 100 milljóna króna
skuldabréfi, lóðunum Tún-
götu 2 og 4, auk þess sem
gerð var upp skuld Ólafs við
borgina vegna fasteigna-
gjalda. Svo virðistsem sú sala
hafi ekkí skilað sér til Búnað-
arbankans því skuldir hans
við bankann hafa síst minnk-
að frá þeim tíma. Útleiga
Reykjavíkurborgar á Broad-
way fyrir árshátíðir hefur líka
hitt Olaf fyrir enda um beina
samkeppni við Hótel ísland
að ræða.
Það er haft til marks um
slæma stöðu Ólafs að fjár-
málastjóri hans, Jóhann
Frímannsson, er hættur
störfum.