Pressan


Pressan - 14.06.1990, Qupperneq 9

Pressan - 14.06.1990, Qupperneq 9
Fimmtudagur 14. júní 1990 9 VÉLSTJÓRAFÉLAGIÐ RITAR SIGLINGAMÁLASTOFNUN BRÉF: Meðal Japanstogararma sex sem vélstjórafélagið spyr um er Páll Pálsson, skip Miðfells í Hnífsdal. JAPANSTOGARAR SAGÐIR MED RANGLEGA SKRÁDAR VÉLAR Vélstjórafélag íslands hefur ritað bréf og síðan ítrekunarbréf til Sighngamálastofnunar ríkisins um reglur og mælingar er varða skráningu á hest- aflafjölda véla í sex hinna svo kölluðu Japanstog- ara. Skuttogarar þessir hafa allir farið til endur- byggingar og breytinga í Póliandi síðustu 2—3 ár- in, þar sem þeir hafa meðal annars verið lengdir um nær tíu metra ogskipt umaðalvél. Tilefni bréfs- ins er að grunur leikur á að vélarnar séu í raun mun aflmeiri en skráningin segir til um — sem þýð- ir að útgerðarfélög þessara togara geta haft færri og réttindaminni vélstjóra um borð. EFTIR: FRIÐRIK ÞÚR GUÐMUNDSSON MYND: HRAFN SNÆVARSSON / FISKIFRÉTTIR Útgerðaraðilar sex skuttog- ara grunaðir um að skrá stærð aðalvélanna rang- lega undir ákveðnum mörk- um til að spara sér launa- greiðsiur. Þessu er harðlega mótmælt af umboðsaðila vélanna og einum útgerðar- stjóranna, sem segja snún- ingshraðann miðaðan við bestu orkunýtingu• Umrædd skip eru Páll Pálsson í Hnífsdal (Miðfell hf.), Vestmannaey í Vest- mannaeyjum (Huginn-Berg- ur sf.}, Ljósafell og Hoffell á Fáskrúðsfirði (Hraðfrystihús Fáskrúðsfjarðar hf.), Brett- ingur á Vopnafirði (Tangi hf.) og Ólafur Bekkur á Qlafs- firði (Utgerðarfélag Olafs- fjarðar hf.). Helgi Laxdal, formaður vélstjórafélagsins, sagði að- spurður að ítrekað hefði ver- ið leitað til hans vegna ofan- greindra grunsemda. Hann sagði að hægt væri að niður- færa hestöfl skipsvéla sam- kvæmt ákveðnum reglum og að hann hefði ritað siglinga- málastofnun bréf 22. janúar síðastliðinn. Óskaði hann eft- ir upplýsingum um í hvaða skipum skráðu vélarafli hefði verið breytt og, hvað jap- önsku togarana varðar, um gerð vélanna, smíðaár og uppgefið stöðugt álag sam- kvæmt staðli. Munur á réttindum og fjölda vélstjóra ,,Sé skráð afl ekki í sam- ræmi við uppgefið afl frá framleiðanda, miðað við áð- urnefndan staðal, óskast upp- lýst hvaða breytingar voru gerðar á búnaði vélanna," segir í bréfinu. Þar sem ekk- ert svar hafði borist, þrátt fyr- ir munnlega eftirgrennslan, sendi Helgi ítrekunarbréf 4. maí, en enn barst ekkert svar. í bréfinu vísar Helgi meðal annars til munnlegra upplýs- inga frá Magnúsi Jóhannes- syni siglingamálastjóra, um að til greina geti komið að skipa nefnd í málið, og óskar Helgi sérstaklega eftir því að „leitað verði til aðila sem ætla má að hafi grunnþekk- ingu á efninu, til að tryggja skilvirk störf nefndarinnar". „Það hefur verið haft sam- band við mig af mönnum sem telja að vélarnar séu ekki rétt skráðar. Þeir eru þá vit- anlega með hagsmuni vél- stjóra í huga, því gildandi ákvæði hljóða svo, að ef vélin er undir 2.040 hestöflum og 1.500 kílówöttum þá þarf að- eins tvo vélstjóra um borð og þá þurfa þeir aðeins að hafa 3. stig vélstjóranámsins. Ef vélin er umfram þetta þarf þrjá vélstjóra um borð og þá þurfa þeir allir að hafa klarað 4. stigið, þ.e. allan skólann. Þarna á milli er geysilegur munur í námi,“ sagði Helgi. Álagið á aðalvélunum eykst til muna Helgi vildi sem minnst tjá sig frekar um mál þetta þar sem honum hefðu ekki borist svör við fyrirspurnum sínum. Aðrir viðmælendur PRESS- UNNAR fullyrtu hins vegar að vélarnar hlytu að vera afl- meiri en skráningin gæfi til kynna. Var meðal annars bent á að einn Japanstogar- anna, Aðalvík (áður Drang- ey), hefði fyrr farið í endur- byggingu og eigendur þess talið sig þurfa vél sem væri vel yfir áðurnefndum mörk- um. Bent er í þessu sambandi á, að frá því Japaastogararnir komu til landsins, tíu alls á ár- unum 1973—1974, hafi veru- lega bæst við veiðarfæri um borð, þynging þeirra sé jafn- vel allt að fimmföld og skipin hafi um leið þyngst töluvert. Þá hafa skipin stækkað við þessar breytingar, lengst um tæpa tíu metra. Loks er á það bent að álag hefur aukist á vélunum með því að raforka um borð er nú knúin með að- alvél, en ekki meðsérstökum hjálparvélum eins og áður. Hjálparvélar eru að vísu um borð en Helgi hefur fengið staðfest að aðalvélarnar séu notaðar til raforkuframleiðsl- unnar. Áður þóttu vélarnar rétt svo passlegar fyrir skipin, en í ljósi þessara breytinga væri út í hött að panta sams konar vélar að aflsmunum. Erfitt að trúa því að logið sé að okkur Magnús Jóhannesson sigl- ingamálastjóri staðfesti að hann hefði fengiðbréf frá vél- stjórafélaginu um fram- kvæmd á ákveðnum reglum um vélastærð, en kannaðist ekki við efasemdir um stærð vélanna og sagði að þær hefðu ekki verið kannaðar sérstaklega í ljósi bréfsins. Aðspurðurum áðurnefnd rök fyrir því að stærri vélar en áð- ur hlytu að vera óhjákvæmi- legar sagði Magnús: „Aukin veiðarfæri og stækkun skip- anna tel ég vera fremur létt- væg atriði, en ef menn hafa verið með mikla orkufram- leiðslu á hjálparvélum, sem þeir eru nú komnir með inn á aðalvél, myndi ég telja að slíkt gæti gefið einhverja vís- bendingu um það. En þetta mál hefur ekki verið skoðað sérstaklega." Hann vísaði málinu að öðru leyti til Páls Hjartarson- ar innan stofnunarinnar, sem gæti svaraðtil um tæknilegar hliðar málsins. Páll sagði að á sínum tíma hefði maður frá stofnuninni farið um borð í eitt þessara skipa og skoðað aðalvélina meðal annarra hluta og ekki komið auga á neitt athuga- vert. Efni bréfsins hafi hins vegar ekki verið tekið upp við útgerðaraðilana. „Við höfum tekið upplýs- ingarnar frá vélarframleið- andanum sem góðar og gild- ar og eigum erfitt með að trúa að það sé beinlínis verið að ljúga að okkur. En ef ákveðnar grunsemdir koma upp um að skráningin sé röng þarfnast málið nánari skoð- unar.“ Snúningshraði fest- ur — mun betri nýting en áður Umboðsaðili vélanna, Nie- gata, er Isgata, sem er í eigu FJAS — Félags japanskra skuttogaraeigenda. Fram- kvæmdastjóri ísgata, Helgi Þórarinsson, sagði í samtali við PRESSUNA að hann hefði ekki heyrt um bréfin eða efa- semdirnar og væri í raun hissa. „Vélarnar eru vissulega þannig gerðar að hægt er að ná út úr þeim 2.300 orku mið- að við 310 snúninga, en stað- reyndin er sú að vegna raf- orkuframleiðslunnar eru þær keyrðar á aðeins 279 snún- ingum og snúningshraðinn festur þannig. Og þá eru hest- öflin nokkuð innan við 2.000 eða undir þessum umræddu mörkum. Það eru ýmsir sam- verkandi þættir sem valda því að skipin geta verið með sama hestaflafjölda og áður, nefna má slaglengri og þung- byggðri vél, breyttskrokklag, þ.e. perustefni, mun betri skrúfur og fleira. Snúnings- hraðanum er haldið stöðug- um einmitt vegna raforku- framleiðslunnar, því ef hon- um er breytt getur riðafjöld- inn breyst með alvarlegum afleiðingurn," sagði Helgi. Eiríkur Ólafsson, útgerð- arstjóri Hraðfrystihúss Fá- skrúðsfjarðar, tók fyllilega undir orð Helga og sagði að vélstjórafélagið ætti að skammast sín fyrir bréfin til siglingamálastofnunar. Hagkvæmar vélar — minna álag á vélstjórum „Við leituðum að vél sem myndi spara sem mest og staðreyndin er sú, að á með- an skipin eyddu um 5.300 lítr- um af olíu áður á sólarhring eyða þau um 4.000 lítrum í dag og munar þar ófáum milljónum. Vélarnar eyða minnu, skrúfurnar gefa 25—30% betri nýtingu en þær gerðu, minni eyðsla er vegna perustefnisins og áfram mætti telja. Vélstjórafé- lagið verður að átta sig á því að snúningshraðinn er festur við 279 snúninga og þar með í 1.935 hestöflum. Og ef spurt er um fjölda vélstjóra um borð liggur beint fyrir að þessar vélar eru mun auð- veldari í þrifum og viðgerð- um og hafa vélstjórarnir ekki mikið að gera þótt þeir séu bara tveir." Helgi og Eiríkur sögðu það rétt að hægt væri að tengja raforkuframleiðsluna við hjálparvélarnar og taka þá út meiri orku á aðalvél, en það væri hreinlega ekki gert, því umfram allt væru menn að hugsa um orkusparnaðinn — þ.e. að olíunotkun væri sem minnst. Undir orð þei/ra tók síðan Guðmundur Óli Lyngmó, yfirvélstjóri á Páli Pálssyni á Isafirði. „Vélin er það sem hún er skráð, en ég vildi að hún væri stærri, því ég sé fyr- ir mér að eftir 5—10 ar verði hún of lítil. Krafa okkar á sín- um tíma var 3.300—3.400 hestöfl, en það var ekki farið eftir því. Eg vil hins vegar taka það skýrt fram að engin vandkvæði hafa komið upp hjá okkur og vélarnar reynst vel.“ Stærri vél „í Iágmarki“ í Aðalvíkinni Japanstogarinn Aðalvík (áður Drangey) frá Keflavík hefur einnig farið í endur- byggingu og fengið nýja aðal- vél af Crepelle-gerð. Sú vél er skráð með 2.200 hestöfl og 1619 kílówött og því velyfir umræddum mörkum. PRESS- AN spurði Stefán Ásmunds- son, yfirvélstjóra Aðalvíkur- innar, að því hvort hann teldi að skipið gæti komist af með aflminni vél. „Eg myndi segja að vélin hjá okkur væri alveg í lágmarki og teflt á tæpasta vað í toppum, t.d. þegar við erum að veiða með þessi troll í vondu veðri á djúpsævi. Það er eins hjá okkur að snún- ingshraðinn er festur vegna raforkuframleiðslunnar og ég get varla skilið að mepn komist af með minna afl. Eg hefði viljað hafa að minnsta kosti 2.600 hestöfl og þá rúm- lega 1900 kílówött," sagði Stefán.

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.