Pressan - 14.06.1990, Page 12

Pressan - 14.06.1990, Page 12
12 t.r 11 i r, i-l PRESSU MOLAR Hfilönnum þótti misjafnlega mikil list felast í nokkrum atriðum sem boðið var uppá á Listahátíð. Gjörningarnir fóru fyrir brjóstið á mörgum og götuleikhúsið Auð- humla vakti lítinn fögnuð á Lækj- artorgi á sunnudaginn. Þangað hafði safnast hópur fólks til að horfa á börn úr dansskólum í borginni sýna dans, hlusta á Harmonikku- félag Reykjavíkur og fleira. Aður en dansatriðin hófust birtist leik- hópurinn Auðhumla og skemmtu leikararnir sjálfumsér drjúga stund. Meðai þeirrar Jistar" sem þau frömdu var að einn leikaranna, ung- ur maður, vafraði um með brenni- vínsfiösku og söng Kátir voru karlar drafandi röddu. Af og til gerði hann sig líklegan til að detta á áhorfendur, sem að stórum hluta voru börn. Umræddur ,,róni“ spurði hvað eftir annað hvort það væri ekki sjómannadagurinn og hvar sjómennirnir væru. Lítil við- brögð fékk leikhópurinn og þegar Benóný Ægisson kynnti hverjir þarna hefðu verið á ferð klappaði ekki einn einasti áhorfandi. .. L ■ Hljómsveitin Stuðmenn mun hefja fimm vikna hljómleikaferð sína á morgun ogleika vítt og breitt um landið í sumar. Reykvíkingar sem vilja ekki missa af nýjustu lög- um Stuðmanna, þeim hinum sömu og verður að finna á hljómplötunni Hve glöð er vor æska, ættu að fjöl- menna í miðbæinn á 17. júní. Þar ætla Stuðmenn nefnilega að spila fyrir borgarbúa og aðra góða gesti, en um kvöldið færir hljómsveitin sig til Hafnarfjarðar. Nýja platan mun einkennast af hinum eina sanna ungmennafélagsanda, enda héldu Stuðmenn blaðamannafund í tilefni þessa í Templarahöllinni. . . Fimmtudagur 14. júní 1990 A ^ÉPins og þeir sem fylgjast með fréttum Stöðvar 2 hafa vafalaust tekið eftir hefur Helga Guðrún Johnson fréttamaður ekki látið af störfum þar eins og til stóð. Helga Guðrún hugðist hefja störf 1. júní í fyrirtækinu Athyj^i hf., sem hún er einn stofnenda að, ásamt þeim Ómari Valdimarssyni og Guðjóni Arngrímssyni. HelgaGuðrún mun hafa tekið ákvörðun um að fresta brottför sinni af Stöð 2 um einhvern tíma, enda yfirmönnum mikið í mun að halda henni þar sem lengst.. . FYRIR VERÐ SEM HITTIRIMARK! LAND SEM HITTIR í MARK! Ítalía er sumarlandið 1990! - Ofan á stórkostlega náttúrufegurð, fjörugt næturlíf, nýjustu tísku, tónlist, stórbrotna sögu, einstæðar fomminjar og matargerðarlist, bætist íþróttaviðburður ársins: Heimsmeistaramótið í knattspyrnu! Samvinnuferðir-Landsýn er eina ferðaskrifstofan sem býður upp á ferðir til að nálgast þessar lystisemdir og það sem meira er - þessar ferðir eru á hreint ótrúlega hagstæðu verði. Dýrðin stendur í 3 vikur og þá er snúið heim með brúnan skrokk og höfuðið fullt af minningum um hið sögulega ítalska sumar það herrans ár 1990. A ir iéiíi' ifh A dk dk A át áki <>>i ák iáh 1T íTt A ^ RIMINIFERÐIN18. JUNITIL 8. JULI STÓRKOSTIEG FÓTBOLTAHÁTÍÐ! Ferð okkar til Rimini 18. júní til 8. júlí verður einn óslitinn knattspyrnufagnað- ur. Við fylgjumst saman með leikjum heimsmeistarakeppninnar af stórum sjónvarpsskermum eða skellum okkur á sjálfan völlinn(!) því Samvinnuferðir- Landsýn býður þeim sem taka þátt í þessari ferð upp á ódýrar fótboltaferðir. Og að sjálfsögðu munum við horfa á úrslitaleikinn áður en lagt verður af stað heim þann 8. júlí svo við getum sameiginlega skálað fyrir nýjum heims- meisturum! MISSIÐ EKKIAF TÆKIFÆRINU! Næsta mánudag er lokaútkall í fótboltaferðina! P..Rp ••qprqy.np yqp rn^pi .np„|qp FLUG OG PASTA - Ítalíuævintýri á spaghettiverði! Nú er að hrökkva eða stökkva því enn er hægt að komast á heimsmeistarakeppnina í knattspyrnu þar sem fjörið er taumlaust um þessar mundir! Flug og pasta ætti að smellpassa fyrir þá sem vilja elta HM-stemmninguna út um allar trissur og Flug og pasta er líka frábær möguleiki fyrir þá sem vilja kannski gera eitthvað allt annað! Fyrir Flug og pasta eru greiddar litlar 27.500 kr. en í því verði felst flug til og frá Rimini, pastamálsverður á hinum margrómaða stað La Traviata fyrsta kvöidið og gisting eina nótt. Síðan hafa „pastafararnir'1 það í hendi sér í hvaða ævintýrum þeir lenda næstu 3 vikurnar. Þeir geta brunað út um allar trissur í lest eða bíl eða hvernig sem er - og notið lífsins til hins ýtrasta! S-L getur að sjálfsögðu séð um að panta bílaleigubíla. W ^W WW ÓDÝRASTA LEIÐIN TIL SUÐUR-EVRÓPU: • FLUGOGPASTA á aðeins 27.500 kr. 18. júní: 9 sæti laus 29. júlí: 4 sæti laus 8. júlí: Nokkursæti laus 20. ágúst: Uppselt VERÐ SEM HITTIR í MARK! RICCIONE 47.965 kr. á mann. PORTOVERDE 43.295 kr. á mann. í báðum þessum dæmum er miðað við hjón með 2 börn, 10 og 4 ára og brottför8. júlí. PORTOVERDE 38.597kr. á mann. í þessu dæmi er miðað við 3 fullorðna með 3 börn, 4,9 og 13 ára og brottför 8. júlí. Verð miðast við staðgreiðslu og gengi 3.5/90 og er án flugvallarskatts. Samvinnuferðir - Landsýn Reykjavík: Austurstræti 12, s. 91 -691010, Innanlandsferðir, s. 91 -691070, póstfax 91 -27796, telex 2241, Hótel Sögu við Hagatorg, s. 91 -622277, póstfax 91 -623980. Akureyri: Skipagötu 14, s. 96-27200, póstfax 96-27588, telex 2195. Adriatic Riviera of Emilia-Romagna(ltaly) Rimini GatteoaMare Savignano a Mare Riccione San Mauro a Mare Bellaria - Igea Manna Cattoiica Misano Adriatico Qen/ia-MilanoMarittima Cesenatico Lidi di Comacchio Ravenna e le Sue Marine

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.