Pressan - 14.06.1990, Síða 25

Pressan - 14.06.1990, Síða 25
Fimmtudagur 14. júní 1990 sjúkdómar og fólk Konur í læknastétt 25 Aukinn fjöldi kvenna sækir nú inn í læknadeild og í sumum yngri ár- göngunum eru konur í meirihluta. Það er af sem áður var þegar karlar voru 85—90% þeirra sem útskrifuð- ust úr læknisfræði ár hvert. Þetta vakti talsverða athygli í fjölmiðlum, enda eru íslenskir blaðamenn því vanastir að læknirinn þeirra sé karl- maður. Rætt var við konur í lækna- stétt um þessi málog menn veltu því fyrir sér, hvort þessi kvennafjöldi kæmi til með að breyta læknisfræð- inni í landinu. í umræðunni komu fram þau sjónarmið, að viðhorf kvenna til sjúkdóma og orsaka þeirra væru öðruvisi en karla; kon- ur hefðu betri heildarsýn á málin og víðtækari skilning á orsökum sjúk- dóma. Karlar hefðu meiri tilhneig- ingu til að skoða einstaka sjúkdóma og líffærakerfi en konur ættu auð- veldara með að líta til líkama og sál- ar samtímis og sjá þannig fleiri en eina skýringu á vandanum. Aukinn fjöldi kvenna gæti því haft þau áhrif, að læknisfræðin yrði yfirgripsmeiri og í ríkara mæli reynt að sjá sam- hengið milli sjúkdóma og þjóðfé- lags, en ekki einblínt á einstök líf- færakerfi. Konur eru líka menn Þessi sjónarmið fundust mér sér- lega spennandi og Jýsa ákveðinni viðhorfsbreytingu. Eg fylgdist vel með kvennabaráttu 8da áratugar- ins, þegar konur börðust fyrir jafn- rétti á sem flestum sviðum. Þá var sagt, að konur gætu sinnt öllum störfum til jafns við karla, því mun- urinn á kynjunum væri ákaflega lít- ill. Konur væru eitthvað síðri til mik- illa líkamlegra átaka af líffræðileg- um ástæðum, en þær gengu þó í öll möguleg ,,karlmanna“-störf eins og ekkert væri, stjórnuðu vegheflum og loftpressum, fóru að fljúga þot- um og syngja messur. Konur eru líka menn, var sagt, og karlar, sem efuðust um jafnan rétt kynjanna til allra starfa, voru kallaðir karlpung- ar eða karlrembur sem þóttu mikil smánarheiti. Barátta kvenna síð- ustu áratugi hefur borið ríkulegan ávöxt, konur flykkjast í hefðbundin karlmannastörf, eru með eigið framboð til alþingis og sveitar- stjórna og hlutur þeirra hefur aukist í stjórn lands og fyrirtækja, þó jafn- rétti sé hvergi nærri komið á. I öðr- um löndum hefurþessi þróun geng- ið í sömu átt en þjóðirnar mislangt komnar. Sumar Norðurlandaþjóðir eru á undan okkur, en íslendingar eru mun fremri ýmsum þjóðum sunnar í álfunni. Konur hafa náð lengra í jafnréttisátt í Norður- Evrópu en annars staðar í heimin- um. Norrœna godafrœdin Áhugamenn um norræna sögu hafa talið jafnrétti karla og kvenna eðlislægara Norðurlandabúum en öðrum. Sköpunarsaga norrænnar goðafræði er allt öðru vísi en kristn- innar hvað snertir sköpun kynj- anna. í Vafþrúðnismálum er lýst þeim skilningi, að heimurinn sé skapaður úr líkama jötuns. Vaf- þrúðnir jötunn segir frá tilurð kynj- anna, sem var með þeim hætti, að kona og karl uxu samtímis undan öðrum handlegg jötunsins. í Völu- spá er uppruni mannkyns eignaður goðunum með Óðin í fararbroddi. Tveimur trjám, Aski og Emblu, er breytt í karl og konu. (Er þaðan komið nýlegt slagorð í fjársöfnun; skógrækt/mannrækl.) I Snorra- Eddu er enn ein frásögnin af sköp- un mannkyns; Óðinn og bræður hans voru á göngu dag einn í fjör- unni og finna þá fyrir tvo trjáboli mismunandi tegundar. Goðin gáfu þeim líf og varð annar að karlmanni og hinn að kvenmanni. Verður því aldrei fullbrýnt fyrir þjóðinni að ganga sem best um skóga landsins, því trén eru forfeður okkar. í þess- um goðsögnum eru karlinn og kon- an sköpuð samtímis. í biblíunni er sköpuninni lýst á allt annan hátt. Guð skapaði heiminn og öll dýrin og síðast Adam í sinni mynd. Á meðan Adam fékk sér smáblund í aldin- garðinum tók Drottinn eitt rifbein úr síðu hans og skapaði konuna úr því. Hann skapar fyrst manninn en gerir konuna síðan úr líkama hans. Þessi forgangsröðun sköpunarinnar hefur orðið margri karlrembunni til- efni djúpviturra athugasemda. Konurá söguöld Á söguöld höfðu íslenskar konur mikið til málanna að leggja. Þær gátu slitið hjónabandi, ef þær voru óánægðar með karlinn sem rekkju- naut, eins og fram kemur í Njálu, þegar Unnur skilur við Hrút. í Grá- gás er að finna margs konar ákvæði sem eiga að vernda konuna. Ef karl- maður reyndi að kyssa konu gegn vilja hennar gat legið við útlegð, sama var upp á teningnum ef karl- maður reyndi að sænga hjá konu án samþykkis hennar og skóggangur lá við að yrkja mansöng til konu. Sambærileg lagaákvæði eru ekki til á okkar tímum. Á hinn bóginn skorti mjög á þátttöku kvenna í stjórnunarstörfum og pólitískar ákvarðanir voru teknar i karlveldi sögualdar án þess að til kvenna væri leitað opinberlega. Hins vegar virtust konur taka þátt í mannlífinu af lífi og sál, þær elskuðu menn sína, ólu upp börnin, stjórnuðu stórbú- um, studdu mennina sína eða sviku þá í tryggðum á ögurstundinni. Kon- ur voru miklir örlagavaldar í íslend- ingasögum, öttu mönnum út í harð- vítug átök og gengu með þeim út í dauðann. Höfundur sagnanna eru stundum lítt hrifnir af konum og áhrifamætti þeirra. Breyttar adstœdur Gjörbreyttir þjóðhættir og skipu- lag samfélagsins hafa breytt stöðu konunnar. Nýjar getnaðarvarnir hafa gefið konum kynferðislegt frelsi, sem þær hafa aldrei notið áður. Kona á 20tu öld nýtur meira jafnréttis en nokkrar aðrar stallsyst- ur hennar frá upphafi vega á Islandi. Eg hef fagnað þessari þróun og fjölgun kvenna í læknastétt er mér því mikið gleðiefni. Á læknisferli mínum hef ég kynnst mörgum kon- um, sem eru frábærlega góðir lækn- ar og sinna sjúklingum sínum af mikilli natni. Eg hef þó ekki orðið var við mismunandi viðhorf kynj- anna til starfsins sem fram kom í umræðunni. Hlutur kvenna eykst í öllum starfsstéttumog sömu lögmál hlytu að gilda þar, ef sönn væru. Konur í arkitektastétt ættu þá að hafa betri heildarsýn og væntanlega eiga betra með að teikna heil borg- arhverfi en sérstök hús. Konur í flug- mannastétt ættu væntanlega að hafa meiri tilfinningu fyrir allri flug- vélinni og líðan þeirra sem þar eru en einstökum mælitækjum eða hreyflum. Konur í hjúkrunarstétt ættu að hafa betra auga með orsök- um sjúkdóma en lækningu þeirra. Mér fannst þessi umræða stórt skref aftur á bak. Margar konur sem fyrst- ar börðust fyrir jafnrétti kvenna máttu þola alls konar spekinga, sem vopnaðir helgum bókum sögðu að það væri mikill munur á eðli kynj- anna sem gerði konuna öðruvísi en karla. Við erum komin á þennan stað í umræðunni aftur. Sjálfum finnst mér gott að fá sem flestar konur í læknastétt. Margar konur eru skemmtilegar og gáfaðar en þær eru misjafnar eins og karlarnir, enda eru þær líka menn. Ég held, að konurnar eigi ekki eftir að breyta læknisfræðinni að neinu marki, en spurningin er hvort læknisfræðin á eftir að breyta þeim eins og okkur öllum hinum. lófalestur I þessari viku: Subaru (kona, fædd 20.02. 1974) Þessi kona er trygglynd að eðl- isfari, skyldurækin og með sterka réttlætiskennd. Hún hefur átt fremur rólega æsku, þó hún hafi kannski verið svolítið viðkvæm til heilsunnar. Hún ágott með að ein- beita sér, er stefnuföst og mjög minnug. Trúrækt á eftir að aukast mjög hjá henni með aldrinum. Þegar konan er 24 til 27 ára gömul verða einhverjar breytingar í lífi hennar, að öllum líkindum tengdar starfi eða námi. í tilfinn- ingalífinu er hún afar varkár, en á því sviði verður líka mikil breyting hjá henni um 24 til 28 ára aldur. Það verða sem sagt þáttaskil fijá henni á þessu tímabili, bæði í einkalífinu og á starfsvettvangi. Það eru líkur á tveimur föstum samböndum hjá þessari konu, en. þau verða með mjög löngu milli- bili. Það fyrra verður snemma á ævinni, en hitt ekki fyrr en líða tek- ur á seinni hlutann. Áhrifaríkasta tímabilið í ævi þessarar konu verð- ur á árunum 2016 til 2036. Hún hefur tilhneigingu til liðagigtar, sem þó þarf ekki að koma fram fyrr en seint á lífsleiðinni. AM Y ENGILBERTS á heimavelli Um blettahreinsun Aldrei er hægt að komast hjá því að ýmiss konar blettir komi í fatnað, en svo vel vill til að yfirleitt er hægt að hreinsa þá úr með ýmsum góð- um ráðum. Flest óhreinindi losna úr fatnaði við þvott í góðu sápuvatni eða þvottavél. Sumir blettir eru þó þess eðlis að þá verður að taka til sérstakrar meðferðar, áður en fatn- aðurinn er látinn í þvott eða sendur í efnalaug til hreinsunar, svo að öruggt sé að þeir náist burt. Oft er öruggast að hreinsa blettina undir eins úr, svo að þeir gleymist ekki og festist til frambúðar í flíkinni. Það er því mikilvægt að kunna dálítil skil á því hvernig hreinsa má ýmsa al- genga bletti á fljótlegan og auðveld- an hátt. Auk þess er það stundum dýrt spaug að þurfa að senda flíkur í hreinsun einungis vegna smábletta sem auðvelt er að ná úr sjálfur heima. Mörg af þeim hreinsiefnum sem hingað til hafa verið notuð til blettahreinsunar eru því miður hættuleg heilsu manna, ef ekki er rétt með þau farið og einnig eldfim. Það er því mikilvægt að kunna að nota þau og að geta geymt þau á öruggum stað. helst undir lás þar sem óvitar ná ekki til þeirra. I sum- um nágrannalöndum okkar hafa þessi efni verið tekin út af frjálsum sölumarkaði og Mst ekki lengur í apótekum, nema gegn tilvísun. Danir hafa t.d. nýlega gert athug- anir á því hvemig hægt er að hreinsa ýmsa algenga bletti með handhægum og hættulausum efn- um sem til eru á hverju heimili, svo nú þarf ekki lengur að eiga birgðir í heimahúsum af þeim eitruðu hreinsiefnum sem áður voru mest notuð við blettahreinsun. Efni i fatnaði hafa líka tekið mikl- um breytingum áundanförnum ára- tugum, svo nú er hægt að hreinsa ýmsa algenga bletti með vatni og t.d. venjulegum uppþvottalegi, sem áður var notað bensín eða terpentína til að fjarlægja. Þá er hægt að fjarlægja suma bletti með nýmjólk sem áður voru hreinsaðir með spritti. Þeir blettir sem taka þarf til sér- stakrar meðferðaráður en fatnaður er þveginn eru t.d: bik, alls konar fita (majonnes) og olíumálning, (en um þessa tegund bletta verður fjallað í næsta þætti), blek, blóð- blettir, kertavax, lakk, myglu- blettir, ryð og tyggigúmmí. Um alla þessa bletti munum við fjalla nánar síðar. Oft þarf einnig að taka tillit til hvaða efni eru í flíkun- um, áður en blettir eru meðhöndl- aðir. Best er að flíkur séu nokkurn veginn hreinar þegar hreinsaðir eru blettir úr þeim, annars er hætta á að flekkir komi framundan hreinsiefn- inu. Fjarlægið allt laust skart, spennur, nælur og blóm úr flíkun- um, áður en þær eru hreinsaðar, og burstið vel í burtu ryk eða önnur laus óhreinindi. Gætið að því að ekki séu einverjir hlutir í vösum sem skemmt gætu út frá sér þegar farið er að nudda með hreinsiefninu. SIGRÍÐUR KRISTJÁNSDÓTTIR HUSSTJÓRNARKENNARI

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.