Pressan - 02.08.1990, Qupperneq 9
Fimmtudagur 2. ágúst 1990
9
SKULDIR ALMENNA BÓKAFÉLAGSINS GÍFURLEGAR:
EIMSKIP OG SJÖVÁJALMENNAR
TIL BJARGAR?
Almenna bókafélagið er nú í miklum fjárhags-
kröggum. Fram hefur komið að tap félagsins var
um 40 milljónir á síðasta ári en skuldir þess eru
hátt á þriðja hundruð milljónir. Talið er að fjár-
magnskostnaður á síðasta ári hafi verið um 20% af
heildarveltunni sem sýnir að skuldir AB eru gífur-
legar. Miðað við að fyrirtækið skuldi þessar 300
milljónir eru skuldirnar orðnar álíka og ársveltan.
Pó bókaútgáfa standi sig vel eitt árið nær hún aldr-
ei mjög miklum hagnaði. Efekkert annað kemur til
getur það því tekið fyrirtæki með þessar skuldir á
bakinu allt að 30 ár að borga þær niður.
EFTIR GUÐRÚNU KRISTJÁNSDÓTTUR
— Margir undrast að
helstu peningamaskínur
landsins skufi hafa rekið
AB jafn illa og raun ber
uitni.
Endurskoðandi sem kynnt
hefur sér ársreikninga Al-
menna bókafélagsins segir
að þegar talað sé um að tapið
hafi verið upp á 40 milljónir á
síðasta ári þá sé búið að meta
bókalager og annað hjá fyrir-
tækinu upp á mjög svo óraun-
hæfar upphæðir. Inn í rekst-
urinn sé búið að meta bækur
og eignir til verðs sem þær
geti aldrei selst á. Mikið af
þessum bókum séu metnar á
fullvirði en venjan er að af-
skrifa bókalager um
70—80% árið eftir að bókin
kemur út.
Menn hafa semsagt grun
um að hallinn sé miklu meiri
en ársreikningurinn sem
lagður var fram á síðasta að-
alfundi gefur til kynna. Þegar
nú á að fara að auka hlutafé
og selja Austurstræti 18, fer
ekki hjá því að menn gruni að
ástandið sé miklu verra en
það leit út fyrir að vera.
Flótti frá AB
Flótti er einnig frá fyrirtæk-
inu og munu Katrín Árna-
dóttir fjármálastjóri og
Tómas Tómasson mark-
aðsstjóri, ásamt fleirum,
vera búin að segja störfum
sínum lausum og vera á leið
út næstu daga.
Heyrst hefur að þegar hafi
tveir aðilar samþykkt að
leggja fram hlutafé til Al-
menna bókafélagsins en þeir
eru annars vegar Eimskip og
hins vegar Sjóvá/Almennar
sem ætla leggja fram 80 til
100 milljónir króna. En þess
má geta að Hörður Sigur-
gestsson, forstjóri Eim-
skipafélags fslands og Ingi-
mundur Sveinsson arki-
tekt, bróðir Einars Sveins-
sonar forstjóra Sjóva/Al-
mennra, eru í stjórn AB.
Aðspurður hvort Sjóvá/Al-
mennar ætluðu að leggja
fram hlutafé í AB sagði Einar
Sveinsson forstjóri hvorki af
né á. Hann vildi ekki svara
þeirri spurningu.
Einnig hefur komið til tals
að Reykjavíkurborg ætli að
bæta við sig húseign í mið-
bænum, Austurstræti 18.
Davíð Oddsson borgar-
stjóri situr í varastjórn AB.
Hann sagði hins vegar að það
hefði ekki komið til tals að
kaupa Austurstræti 18. ,,Ef
því væri að skipta þá standa
okkur til boða allar húseignir
sem eru til sölu í bænum,"
sagði Davíð Oddsson.
Hörður Sigurgestsson, forstjóri einnar
stærstu peningamaskínu íslands og
stjórnarmaður í AB, ætlar að dæla nokkr-
um tugum milljóna í Almenna bókaféiagið
ásamt Einari Sveinssyni hjá Sjóvá/AI-
mennum, sem er bróðir Ingimundar
Sveinssonar arkitekts og stjórnarmanns í
AB.
Morgunblaðið á einnig sína menn í stjórn AB en aðstoð-
arritstjórinn á þeim bæ, Björn Bjarnason, er formaður
stjórnar AB. Eyjólfur Konráð Jónsson fyrrum ritstjóri og
núrverandi þingmaður sjálfstæðismanna er einn af odda-
mönnum stjórnar AB.
Brynjólfur Bjarnason for-
stjóri er í stjórn AB.
Einnig Gylfi Þ. Gíslason
fyrrv. ráðherra.
að byggja verslunarhúsnæði
sem var svo selt þegar rétt
var búið að reisa grunninn.
Einnig var sett upp verslun í
Kringlunni, en margir vilja
meina að hið mikla tap sé
ekki síður á verslunarrekstr-
inum en af bókaútgáfunni
sem hefur gengið mjög erfið-
lega. Það er ljóst að þegar
þrengir að í bókaútgáfunni
almennt — þegar sala á bók-
um minnkar og titlum fjölgar
eins og gerðist á síðasta ári —
þá þola fyrirtæki sem eru bú-
in að vera í klemmu í mörg ár
ekki svo stórar sveiflur.
Davíð Ólafsson, fyrrv.
seðlabankastjóri og Geir
Zoéga framkvæmdastjóri
er varamaður.
sameinaðrar Hraðfrysti-
stöðvar og Granda hf.,
Gylfi Þ. Gíslason fyrrv.
ráðherra, Hörður Sigur-
gestsson, forstjóri Eim-
skips, og Ingimundur
Sveinsson arkitekt, bróðir
Einars í Sjóvá. Til vara eru
sjálfur borgarstjórinn Davíð
Oddsson, Kristján Lofts-
son, og Geir Zoéga fram-
kvæmdastjóri.
Skondið úrvalslið
Það er svolítið skondið að
sumir þessara úrvals stjórnar-
manna í Almenna bókafélag-
inu starfa í afar fjársterkum
fyrirtækjum — í peninga-
maskínum þar sem útgjöldin
eru venjuiega mun lægri en
innkoman. Og það er spurn-
ing hvort þeir hafi ekki stjórn-
að Almenna bókafélaginu á
svipuðum forsendum og ef
um hefði verið að ræða fjár-
sterkt stórfyrirtæki. Nema
hvað AB er engin peninga-
maskína né bókaútgáfur yfir-
leitt.
Margir sem til þekkja segja
að innan AB hafi engin
stefnumörkun verið. Menn
hafa stundað viðskiptin á
þann hátt að gefa þessa bók
út fyrir þennan og hina bók-
ina fyrir hinn. Auk þess hafi
þeir farið út í mjög óskyn-
samlegar fjárfestingar, t.d. i
Mjóddinni þar sem AB hóf
„Lýðræðisöflin í
landinu“
Á síðasta aðalfundi fékk fé-
lagið leyfi til að auka hlutafé
um 90 milljónir en það virðist
ekki duga og ætla því stjórn-
endur AB að efna til aukaaö-
alfundar félagsins þann 9. ág-
úst og fá leyfi til að auka
hlutafé enn meira og um leið
að fá leyfi til að selja húsnæð-
ið í Austurstræti 18, þar sem
bókaverslunin Eymundsson
er.
Þeir hafa einnig nýlega
sent frá sér bréf til allra sem
eiga fé inni hjá AB þar sem
sagt er aö endurskipulagning
fyrirtækisins standi yfir. Þeir
hafa tilkynnt að hlutafé verði
stóraukið og vilyröi séu kom-
in fyrir nýju hlutafé meö
ákveðnum skilyrðum sem
séu meðal annars þau að
samningar við lánardrottna
takist.
Almenna bókafélagið var
upphaflega stofnað af ,,lýð-
ræðisöflunum" gegn forlagi
,,kommanna“ í Máli og
menningu. Markmið félags-
ins var að gefa út bækur lýð-
ræðissinnaðra höfunda í
landlnu, enda hefur forlagið
verið iðið við að gefa út bæk-
ur Matthíasar Johannes-
sen, ritstjóra Morgun-
blaðsins, Hrafns Gunn-
laugssonar kvikmynda-
gerðarmanns og fleiri sem
ekki teljast beint á vinstri
kantinum.
Mörgum finnst þó skrýtið
að menn skuli enn af pólitísk-
um ástæðum vera tilbúnir til
að leggja fram tugi milljóna
Davíð Oddsson er vara-
maður í stjórn AB og eins
og fiestir vita oddviti eins
stærsta fyrirtækis á land-
inu, Reykjavíkurborgar.
Þegar kunnugt varð að Almenna bókafélagið þyrfti að
losa sig við Austurstræti 18 og auka hlutafé enn meir,
varð mönnum Ijóst að vandi AB er miklu meiri en þá hafði
nokkurn tímann sjálfa grunað. Davíð Oddsson borgar-
stjóri segir það ekki hafa komið til tals að festa kaup á
húsnæðinu. Ef Reykjavíkurborg héldi áfram að festa kaup
á húsnæði í miðborginni ætti hún mestalla miðborgina
um aldamótin.
Ekki er langt síðan fyrrver-
andi framkvæmdastjóri fyrir-
tækisins Kristján Jóhann-
esson sagði upp störfum og
við tók Óli Björn Kárason.
Mönnum er enn í fersku
minni flóttinn frá AB 1988
þegar fyrrum framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins í 17 ár,
Einar Óskarsson sagði upp
störfum ásamt fleirum vegna
óánægju með skipulagsmál
hjá fyrirtækinu.
Formaður stjórnar AB nú
er Björn Bjarnason aðstoð-
arritstjóri Morgunblaðs-
ins. Aðrir í stjórn eru: Eyjólf-
ur Konráð Jónsson, þing-
maður Sjálfstæðisflokks-
ins, Davíð Ólafsson, fyrrv.
seðlabankastjóri, Brynj-
ólfur Bjarnason, forstjóri
af fé sem þeir geta ekki reikn-
að með að ávaxti sig. Óljóst
sé hvernig þeir geti réttlætt
það gagnvart hluthöfum.
Pjónar engum til-
gangi lengur
Aðspurður sagði aðili sem
þekkir vel til að Almenna
bókafélagið yrði aldrei látið
fara á hausinn. Það yrði slíkt
áfall fyrir Vesturbæjarí-
haldið að það myndi aldrei
láta slíkt viðgangast. Allt yrði
gert til að koma í veg fyrir
það.
Það þykir nokkuð ljóst að
stórfyrirtækin Eimskip og
Sjóvá/Almennar og jafnvel
Reykjavíkurborg eru tilbúin
til að leggja sitt af mörkum til
hjálpar þessari bágstöddu
bókaútgáfu og ef til vill munu
fleiri aðilar úr sama hópi
styrkja það, sem sumir segja
að sé tímaskekkja — þ.e. að
halda úti hægri og vinstri út-
gáfustarfsemi.
Annar aðili sem þekkir til
sagði að ef hér væri um að
ræða venjulegt fyrirtæki,
sem ekki hefði í stjórn alla
þessa stórpólitísku menn
peningaaflanna í landinu,
væri það farið á hausinn fyrir
mörgum mánuðum. „Þeir
eru í miklum vanda,“ sagði sá
sami. „Þess vegna eru þeir að
tala um að selja húsnæði og
fá inn ókeypis peninga frá
stórum vinveittum fyrirtækj-
um. Það er alveg svakalegt
að aörir útgefendur skuli
vera í samkeppni við aðila
þar sem peningum er mokað
inn af skipafélögum og trygg-
ingafélögum í pólitískri björg-
unarstarfsemi. Þetta fyrir-
tæki virðist hafa sokkið sífellt
lengra niður án þess að nokk-
ur hafi vaknað."
Sami aðili sagði, að þó ver-
ið væri að losa sig við fólk hjá
fyrirtækinu væri það engin
lausn því áfram yrði sama
stjórnin sem hefði greinilega
ekki tekið mark á þeim hug-
myndum eða ábendingum,
sem hún hefði fengið. Áfram
hefði þessi stjórn a.m.k. gefið
út vonlausar bækur og haldið
áfram að fara út í vonlausar
fjárfestingar.
„Kjaftæði“ og stað-
festingar
„Þetta er kjaftæði," sagði
Óli Björn Kárason fram-
kvæmdastjóri Almenna
bókafélagsins um það að
eignir væru ofmetnar í árs-
reikningum fyrirtækisins, en
vildi ekkert um það segja
hvort Eimskip og Sjóvá/AI-
mennar ætluðu að leggja
fram hlutafé til AB. Hann
staðfesti hins vegar að staða
fyrirtækisins væri lakari en
búist heföi verið við og að
verið væri að fækka starfs-
fólki hjá fyrirtækinu og hefði
svo verið um hríð.