Pressan - 02.08.1990, Blaðsíða 14
14
Fimmtudagur 2. ágúst 1990
PRESSU
Vr endipunktur varð í lífi og
starfi byggingarfulltrúans Olafs
Guðmundssonar um síðustu ára-
mót þegar sumarbústaðir urðu fleiri
en íbúðir í umdæmi hans í Borgar-
firdi. Ólafur hefur umsjón með 18
sveitum, en það er öll Mýrasýslan,
4 hreppar í Borgarfjarðarsýslu,
allt sunnanvert Snæfellsnes og
tveir hreppar á norðanverðu Snæ-
fellsnesi. Um 900 heimili eru skráð á
þessu svæði og fer fækkandi, en
sumarbústöðum fjölgar mikið og
komust þeir yfir þúsund um áramót-
in. Borgarfjörður hefur þó ekki
vinninginn hvað sumarbústaði
varðar, en almestur fjöldi sumarbú-
staða er í Grímsnesinu. . .
I^Éorrænt þing lögfræðinga
sem haldið verður dagana 22.-24.
ágúst er stærsta þing sem skipulagt
hefur verið á íslandi. 1100 erlendir
þátttakendur og 200 íslendingar
munu sækja þingið. í undirbúnings-
nefnd ráðstefnunnar eru Ármann
Snævar, fyrrverandi hæstarétt-
arlögmaður, Erla Jónsdóttir,
Benedikt Blöndal og Guðrún Er-
lendsdóttir hæstaréttarlögmað-
ur. Þingið stendur yfir í þrjá daga og
hefurFerðaskrifstofa Islands veg
og vanda af umgjörð ráðstefnunn-
ar. . .
I mola í síðustu Pressu þar sem
fjallað var um álit erlendra ferða-
manna á íslenskri menningu og
háttalagi, var gefið tilefni til mis-
skilnings sem bitnaði á starfsfólki í
Hveradölum og biðst blaðið vel-
virðingar á því. Af klausunni mátti
draga þær ályktanir að þjónar í
Hveradölum sem klæðast vík-
ingabúningi, væru fullir. Sagt var
að útlendingar hefðu gaman af því
að virða fyrir sér innfædda sem
augafulla víkinga og léttúðardrósir
á íslenskum búningum. Þetta átti
við þann orðróm sem íslendingar
eiga að hafa á sér erlendis fyrir
mikla drykkju.
A
mÉP f marka má fréttir Tímans af
erlendum vettvangi mætti ætla að
hin mesta gúrkutíð ríkti um gervalla
heimsbyggðina. Þó er svo að sjá í
fréttum annarstaðar að ýmislegt sé
að gerast í heiminum, til dæmis ef
litið er til Trinidad og Tobago, Ge-
orgíu eða Líberíu, svo eitthvað sé
nefnt. En Tíminn er öðruvísi í frétta-
vali. Á síðustu dögum hefur hann
fært okkur fréttir af örvhentu fólki,
sem oftar er samkynhneigt en ann-
að fólk. Blaðið hefur sagt frá 10 ára
gömlum dreng í Bandaríkjunum
sem kærður var fyrir nauðgun og í
gær var í fyrirferðarmikilli frétt
greint frá rakvélablaðaskorti á
Kúbu. . .
I^íýtt tímarit hefur litið dagsins
ljós á Islandi og kallast það 2000.
Forráðamenn þess hafa fest kaup á
ljósmyndasafni Helgarpóstsins
sáluga, sem var í eigu Róberls
Árna Hreiðarssonar lögfræðings.
Langflestar myndirnar í safninu tók
Jim Smart, sem nú starfar við
Þjóðviljann, og telur bæði hann og
Blaðamannafélag íslands að Jim
eigi birtingarrétt allra myndanna.
Það er því hugsanlegt að nýja tíma-
ritið geti ekki notað þessa „eign”
sína nema ljósmyndarinn fái
greiðslu í hvert sinn sem einhver
myndanna birtist í blaðinu. . .
íslensk kvikmynd verður
frumsýnd í Háskólabíói þann 11.
ágúst næstkomandi. Það er mynd
framleidd af Hrifum hf. um Papp-
írs-Pésa, en hún er gerð eftir sögu
Herdísar Egilsdóttur.
Spennandi bíll á spennandi verði
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöfða 2
sími 91-674000
LÉTT0STAR
þrjár nýjar tegundir á léttu nótunum
MUNDU EFTIR 0STINUM