Pressan - 11.04.1991, Síða 10

Pressan - 11.04.1991, Síða 10
10 FIMMTUDAGUR PRESSAN 11.APRÍL1991 ffiffil i ÁSAKANIRlM FJÁRMÁIAÓREKIU EINS RÍKASDI FÉUGS LANRSINS Landsþing Náttúrulækningafélags Islands boðað í skyndingu vegna útkomu skýrslu frá Ríkisendurskoðun Ríkisendurskoðun mun fljótlega skila skýrslu um starf- semi eins ríkasta félags landsins, Náttúrulækningafélags íslands. Efni skýrslunnar lýtur fyrst og fremst að starf- semi heilsuhælis NLFÍ í Hveragerði. Einn stjórnarmanna í NLFÍ sendi ítarlegar athugasemdir um starfsemi hælis- ins til heilbrigðisráðuneytisins á miðju síðasta ári. Eftir að ráðuneytið hafði fengið ófullkomin svör frá rekstrar- stjórn hælisins var farið fram á rannsókn Ríkisendur- skoðunar. Ávæningur af innhaldi hennar hefur orðið mönnum tilefni til að ræða um „svarta skýrslu". Náttúrulækningafélagið er eitt ríkasta félag landsins en í því eru skráðir á milli 800 og 900 félags- menn. Félagið á miklar og skuld- lausar eignir og eru þær helstu auð- vitað í tengslum við hælið í Hvera- gerði. Einnig á félagið húseignir í Reykjavík og jarðir austur i Arnes- sýslu. Munu eignir félagsins vera metnar á milli 400 og 500 milljónir króna. RÁÐUNEYTIÐ ÁKVAÐ AÐ KALLA RÍKISENDURSKOÐUN TIL Á miðju síðasta ári sendi Jóhann- es Ágústsson, stjórnarmaður í stjórn NLFI, inn bréf til heilbrigðisráðu- neytisins þar sem hann lagði fram harðorða gagnrýni á starfsemi hæl- isins í Hveragerði. Beindist gagn- rýni hans að fjármálaóreiðu á hæl- inu. Að sögn Páls Sigurdssonar, ráðuneytisstjóra í heilbrigðisráðu- neytinu, þá íeitaði ráðuneytið skýr- inga, vegna athugasemda Jóhann- esar, hjá stjórn náttúrulækninga- hælisins. Einnig sagði Páll að þær skýringar sem fengust hefðu ekki þótt fullnægjandi og því hefði ráðu- neytið falið Ríkisendurskoðun að rannsaka starfsemi hælisins. Nátt- úrulækningahælið er sjálfseignar- stofnun sem fær greitt samkvæmt daggjaldakerfi. Þetta kerfi hefur meðal annars verið gagnrýnt vegna þess eftirlitsleysis sem í því felst. KOSTNAÐARHLUTDEILD SJÚKLINGA VAXIÐ UM 20% Starfsemi náttúrulækningafélags- ins í Hveragerði er orðin tæplega fjögurra áratuga gömul og hefur vaxið að umfangi með hverju árinu. Hefur á undanförnum árum orðið sífellt háværari gagnrýni um það að félagið sé að fjarlægjast þær hug- sjónir sem lágu til grundvallar því í' upphafi. Sem dæmi um umskiptin er nefnt til að greiðslur þær sem sjúklingarn- ir sjálfir inna af hendi hafa vaxið verulega á undanförnum árum. Hafi þær vaxið úr því að vera 15% af daggjaldakostnaðinum í það að vera um 35%. Starfsemi félagsins er orðin mjög umfangsmikil. Að sögn Eiríks Ragn- arssonar, forstjóra hælisins, þá koma 2400 sjúklingar þangað á hverju ári en má til samanburðar nefna að á Reykjalund koma um 900 manns á ári hverju. Síðan 1. mars síðastliðinn hefur ráðuneytið greitt 3247 krónur með hverjum sjúklingi á dag. Eiríkur sagði að það væri síðan mjög mis- munandi hve mikið sjúklingarnir sjálfir yrðu að greiða en sagði að það væri á bilinu 580 krónur á dag upp í 1320 krónur á dag. Hann sagði þó að nærri lagi væri að áætla brúttótekjur hælisins af hverjum sjúklingi um 4200 krónur á dag. Eiríkur sagðist vilja taka það fram að þetta væru mun lægri greiðslur en til dæmis færu upp á Reykjalund en þar er daggjaldagreiðsla vegna hvers sjúklings 7036 krónur. Eiríkur tók einnig fram að greiðslur sjúkl- inga hefðu ekki hækkað síðan 1. október 1989 en hækkun þeirra varð eigi að síður mikil á tímabilinu frá 1986 til október 1989. Þeir sem gagnrýnt hafa þessa hækkun á greiðslukostnaði sjúkl- inga hafa einnig haldið því fram að aukin innkomá hafi ekki nýst félag- inu sem skyldi. Hafi til dæmis upp- bygging við hælið í Hveragerði ekki réttlætt þessa hækkun. Þvert á móti hafi þetta farið í aukna yfirbyggingu félagsins og er tekið sem dæmi um það að stjórn hælisins er nú launuð eins og stjórnir annarra opinberra stofnana. Um gagnrýni á fjármálstjórn sína sagðist Eiríkur ekkert vilja tjá sig — menn yrðu einfaldlega að bíða skýrslu Ríkisendurskoðunar. UPPSAGNIR MEÐAL LÆKNA En óánægja með fjármálastjórn hælisins er ekki eina deiluefnið inn- an þess. Einnig hefur verið deilt um eðli þeirrar læknisfræðistarfsemi sem þar hefur farið fram. Snýst sú deila meðal annars um ábyrgð læknanna við meðferð sjúkling- anna. Er það sérstaklega megrunar- meðferðin sem þar er deilt um en hún er auðvitað stór þáttur í starf- semi hælisins. PRESSUNNI er kunnugt um að allavega einn læknir hefur sagt upp vegna þeirrar deilu sem hefur verið á milli læknanna annars vegar og hjúkrunarfræðinga, forstjóra og stjórnar hælisins hins vegar. Þessi deila hefur meðal annars borist inn á borð landlæknis. Reyndar er rétt að taka það fram að deilur um starfsemi NLFÍ og heilsuhælið eru ekki nýjar og hafa orðið blaðaskrif um þær með reglu- legu millibili. Gagnrýnin á fjármála- þáttinn í starfseminni hefur hins vegar aldrei verið eins ítarleg og þetta er í fyrsta skipti sem Ríkisend- urskoðun hefur afskipti af starfsem- inni. JÓHANNES ÚTILOKAÐUR FRÁ STJÓRNARFUNDUM Deila Jóhannesar við stjórnina hefur tekið á sig ýmsar myndir því á tímabili taldi hann að sér hefði ekki verið kleift að sækja stjórnarfundi í NLFÍ. Þurfti ráðuneytið að hafa af- skipti af því máli. Landsþing NLFÍ hefur verið boð- að vegna útkomu skýrslu Ríkisend- urskoðunar. Var fyrirhugað að landsþingið yrði um næstu helgi en að sögn Jónasar Bjarnasonar, for- seta NLFÍ, hefur verið ákveðið að fresta fundinum til 27. apríl til þess að skýrslan væri örugglega komin út. Jónas sagðist sjá í þessari deilu ásælni ríkisvaldsins inn í einkastofn- un en hann tók fram að aldrei hefði komið annað til greina en að hleypa Ríkisendurskoðun í reikninga fé- lagsins. Jónas taldi að lagalega hefði þeim ekki borið að gera það. ,,Við teljum að það hafi aldrei ver- ið fótur fyrir neinu af því sem Jó- hannes hefur verið að segja. Það var aðeins eitt atriði sem var eftir, sem við gátum ekki fullreynt, og Ríkis- endurskoðun hefur nú farið ofan í. Okkur hefur verið tjáð það munn- lega frá Ríkisendurskoðun að það sé ekki fótur fyrir því atriði," sagði Jón- as. Samkvæmt upplýsingum frá Sig- urdi Þórdarsyni, vararíkissaksókn- ara, þá er embættið enn að vinna að skýrslunni og sagðist hann gera ráð fyrir að hún lægi fyrir innan fáeinna daga. Sigurður Már Jónsson ásamt Gunnari Smára Egilssyni

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.