Pressan - 11.04.1991, Síða 27
andi gagnrýni á Halldór Ásgríms-
son, sem í öðrum kjördæmum er þó
talinn hugsa vel um
sína. Margir Reyð-
firðingar telja til
dæmis augijóst að
Halldóri sé fullkunn-
ugt um að til standi
að leggja niður verk-
smiðju Síldarverk-
smiðja ríkisins á Reyðarfirði, en því
mun liann hafa neitað algjörlega.
Halldór var með fund á Reyðarfirði
í síðustu viku, sem einungis var boð-
aður í þröngum hópi og því illa sótt-
ur. Andstæðingar hans segja að aug-
Ijóslega geri Halldór sér grein fyrir
hvernig landið liggur og vilji koma
sér hjá að svara óþægilegum spurn-
ingum Reyðfirðinga fyrir kosning-
ar . . .
JkM
■ ^■ýlega var boðin út meðal
lögfræðinga innheimtuþjónusta fyr-
ir Lánasjóð íslenskra námsmanna
en fram til þessa hefur Gestur
Jónsson lögfræðingur haft þennan
feita bita. Ekki hafa enn borist fréttir
af því hverjum verður úthlutað
þetta en það hefur hins vegar flogið
fyrir að rætt verði við Arnmund
Backman hæstaréttarlögmann
sem rekur lögfræðistofu á Klappar-
stíg . . .
Fjórmenningarnir á Stöð 2 eiga
nú í stríði við eignarhaldsfélag
Verzlunarbankans, jáeir Jóhann
Olafsson, Jón Ól-
afsson, Haraldur
Haraldsson og
Guðjón Oddsson.
Fram hefur komið
að fjórmenningarnir
geri kröfu um
hundruð milljóna
króna bætur vegna viðskipta sinna
við eignarhaldsfélagið. Öllum meg-
inkröfum þeirra hefur hins vegar
verið vísað á bug af hálfu Verzlunar-
bankamanna. Engu að síður er
Stöövar 2 málið afar erfitt fyrir eign-
arhaldsfélagið sem þarf að ganga
frá öllum lausum endum á þessu ári,
þar sem það verður leyst upp í loka-
hrinu samrunans í íslandsbanka . . .
^Ekki ber mönnum saman um
ástæður fyrir brotthvarfi Helga Pét-
urssonar frá Aðalstöðinni og nú
heyrist að Helga hafi
hreinlega verið sagt
upp störfum. Einsog
sagði í PRESSUNNI í
síðustu viku hefur
hann tekið að sér
sérstök verkefni fyr-
ir forsætisráðherra
og verður ekki ráðinn annar út-
varpsstjóri i bráð. Ólafur Þórdar-
son mun hins vegar halda utan um
dagskrána fyrst í stað, á meðan
breytingar eru í undirbúningi. Með-
al annars hefur komið til tals að
hverfa alfarið frá dagskrárstefnu
þeirri sem Helgi mótaði og breyta
Aðalstöðinni í popprás ...
í
i
' V
iO
%
'4
ii
&
1
"HAVA TYGUM ROYNT
OKKARA MOTORVEG MIUUM
ISIANDS OC EUROPA"?
... spyr Amoliel Knudsen, skipstjóri færeysku ferjunnar Norrænu.
Ef ekki, þá ættuð þið oð panta far með
Norrænu núna, því að með Norrænu
siglið þið hinn beina og breiða
"motorveg". Norræna getur í einni ferð
flutt 1050 farþega og 300 bíla.
Akið því á eigin bíl um borð,
þið komist þá fyrr af stað
þegar lagt er að á meginlandinu.
Um borð er öll aðstaða til fyrirmyndar.
Lúxusklefar með tvöföldu rúmi,
tveggjamanna klefar, fjögurramanna
klefar eða svefnpokapláss. Sérstakt
leikherbergi fyrir börnin, "sóldekk"
og fríhafnarverslanir með mikið úrval
af tollfrjálsum varningi.
Fyrsta flokks veitingastaður
þar sem ávallt eru í boði herlegar
kræsingar af veisluborði eða af
matseðli dagsins, einnig
fyrirmyndar skyndibitastaður.
Notaleg vínstúka og nætur-
klúbbur með lifandi tónlist fyrir
nátthrafnana. Hreint sjávarloftið gerir
sumarfríið létt og skemmtilegt. Verið
velkomin um borð og góða ferð.
Lougavegi 3-1011
NOR&ENA
FERÐASKRIFSTOFAN
■ Sími: (91) 626362 Fjorðargöíu 8,710 Seyðísfjörður. Sími:(97) 21111
Þú ifíiii' iiiiisiglii) og
átt von í vinning
Á næstu dögum áttu von á
nýstárlegum bæklingi inn um
lúguna. Þar gefst þér tækifæri
til að krossa við rétt svör í
skemmtilegri getraun. Það
eru 10 sólarlandaferðir fyrir
tvo í verðlaun.
Ferðagetraun í A-flokki