Pressan - 19.11.1992, Blaðsíða 2
B 2
FIMMTUDAGUR PRBSSAN 16.JÚLf 1992
Þorvaldur
snýst í mörgu
Þofvaldur Þorsteinssonpyk-
ir meðal frumlegustu og efnileg-
ustu myndlistarmanna af yngri
kynslóð. En Þorvaldi er fleira til
lista lagt: hann hefur fengist við
auglýsingagerð, bókaskreytingar,
samið barnabók, stutt leikrit og
núna fyrir jólin gefur hann út
skáldverk. Þetta eru smásögur
sem hafa fengið yfirskriftina Engill
meðal áhorfenda, en Bjartur, ungt
og metnaðarfúllt forlag, gefúr út.
ÞEGAR HUGSANIR KOMAST
Á RINGULREIÐ
ÞÓRUNN VALDIMARSDÓTTIR
JÚLÍA
FORLAGIÐ1992
®
„There is less to this
than meets the eye,“
sagði bandaríska leik-
konan Tallulah Bankhead eftir
frumsýningu á leikriti sem höf-
undur hafði ætlað djúpa merk-
ingu. Einhver svipuð orð koma
upp í hugann eftir lestur á fyrstu
skáldsögu Þórunnar Valdimars-
dóttur. Þessi framtíðarsaga um
fólk með fortíðarþráhyggju er
yfirborðslegt verk sem þolir á
engan hátt nærskoðun.
Það verður ekki af Þórunni
haft að hún er hugmyndarík en
hér er líkt og hugmyndimar hafi
sótt að allar í einu. Þær hafa fang-
að skáldkonuna en hún ekki þær.
Þess vegna flækjast hugmyndim-
ar hver fyrir annarri um leið og
óbeisluð hugsun virðist helst að
því komin að þjóta með þær
samtímis í allar áttir. Af þessu
skapast sú skáldskaparlega ring-
ulreið sem einkennir verk þar
sem höfundur hefur ekki gætt
þess að aga hugsun sína. Reyndar
gengur Þórunn svo langt í ofsa-
fullu hugmynda- og orðflæði að
ekki hefði nægt að aga hugsunina
til að skapa frambærilegt verk,
skáldkonan hefði þurft að grípa
til valdbeitingar.
Örlaga- og spennusaga er þetta
ekki. Spennan er einfaldlega eng-
in. Stíllinn býður ekki upp á hana.
Persónusköpun er ekki fyrir
hendi og samtölin einkennast af
bóklegri tilgerð. Þegar Þórunn
segir á fremur klaufalegan hátt
um eina persónuna: „Júlía liggur í
fangi hans eins og bam á meðan
sagan vellur upp úr honum“ þá er
það lýsing á því sem gerist í hvert
skipti sem persónur tjá sig; þá
vellur upp úr þeim ótrúleg þvæla.
Bók Þórunnar um Snorra á
Húsafelli leið nokkuð fyrir óhefta
tilfmningasemi, en var þó mikil
og góð bóL Sól í Norðurmýri var
enn betra verk, býsna snjallt. Þær
bækur opinbemðu ótvfræða hæf-
leika Þórunnar en báru þó með
sér að hún gæti átt á hættu að
festast í tilgerðarlegum og tilfinn-
ingasömum háspennustíl. Þótt
Þórunn hafi sloppið fyrir horn
með stíl sinn í tveim fýimefnum
verkum þá verður hann henni nú
aðfalli:
„Yfirgengilegt, þanþolið mitt
er við að bresta, Seifúr býður mér
upp á alla víddina og hún er of
stór, of mikil, blossi í allar áttir,
skil hann er guð og því er svo
svakalegt þegar hann beinir sér til
mín, hví er það svo sárt?“...
„öskulaus jörð með eintóma
blíðu elur mikið af sér, en ekki
skáldskap og ekki æðstu vellíðan,
takmarkalausa skynjun háloft-
anna sem kemur, líkt og í sköp
okkar í sálina þegar við sköpum
meðhöfðinu..."
Þetta er ekki mælska, þetta er
vaðall, þetta er verkið í hnot-
skum.
Verkið er áhugaverðast sem
heimild um ímyndunarafl skáld-
konunnar en af því virðist hún
hafa gnótt. Vænlegast sýnist mér
að líta á þetta verk sem hvert ann-
„Reyndar gengur
Þórunn svo langt
í ofsafullu hug-
mynda- ogorð-
flœði að ekki
hefði nægt að
aga hugsunina
til að skapa
frambœrilegt
verk, skáldkon,
hefði þurft að
grípa til
valdbeitingt
að víxlspor sem auðveldlega má
bæta fyrir í náinni framtíð. En um
leið verð ég að fúrða mig á því að
útgáfustjórn Forlagsins, venju-
lega þefriæm á góðar bókmennt-
ir, skuli hafa gert skáldkonuni
þann óleik að taka verkið til út-
gáfú.
En svo einhverjum sé hrósað
þá ber að geta þess að kápan er
örugglega með þeim fallegri í ár.
Mestan heiður af henni á Hier-
onymus Bosch (d. 1517) en af
þeim aðilum sem hér hafa verið
nefndir þarf hann líklega einna
síst á hrósi mínu að halda.
Kolbrún Bergþórsdóttir
Bókumjólin
Nýútkomnar
plötur
önnur plata KK-Band er komin út og heit-
ir „Bein leið“. Það verður gaman að vita
hvort þessi plata á jafngreiða leið að eymm
íslendinga og fyrri KK-platan, „Lucky
one“, sem kom út fyrir síðustu jól. Japis
dreifir „Bernni leið“.
„Hókus Pókus“ nefnist önnur bama-
plata „Stóru bamanna“ en sá hópur, með
Þorvald Þorvaldsson úr Todmobile í
broddi fýlkingar, átti góða daga fyrir síð-
ustu jól með plötunni „Stóm bömin leika
sér.“ Steinar gefa út.
c,
VANDAÐAR
IpANDBÆKUR
UMTÖLVUROG
HUGBUNAÐ,
NYJARBÆKUR
í ÖIRÚLEGU
ÚRVAU
Hringbraut, Reykjavík síml 91-61 59 61
Bókabúb Keflavikur, Sólvallagötu 2, Keflavík, sími 92-111 02
Tölvutæki, FumvöUum 5, Akureyri, simi 96-2 61 00
„Minningar 2“ nefnist „sérrT-safiiplata
frá Skífúnni. Á þeirri plötu syngja valin-
kunnir hálsar — Sigríður Beinteinsdóttir,
Bergþór Pálsson, María Björk Sverrisdótt-
ir, Eyjólfúr Kristjánsson og Ema Gunnars-
dóttir — gamaíkunnug lög. Pétur Hjalte-
sted sér um upptökur og útsetningar. Plat-
an er samvinnuverkefrii Skífúnnar, Eim-
skips, Hljóðsmiðjunnar og Rauða kross-
ins. Allur ágóði rennur í hjálparsjóð Rauða
krossins.
QfáUA-
ÍP í /• u
Hljómsveitin Orgill hefúr starfað í ein
þrjú ár og nú er loks komfri út fyrsta
platan. Hún heitir einfaldlega „Orgill“, er
ellefú laga og var tekin upp af Sigurði Bjólu
nú í sumar. Orgill spilar vel hrærða popp-
tónlist og þau gefa plötuna út sjálf en Japis
dreifa.
Steinar hf. em duglegir við endurútgáf-
una. Nýlega vom þessir titlar endurút-
gefhir; Samnefnd plata Mána frá 1972,
„Undir áhrifúm" með Trúbroti frá 1970,
„Plágan“ með Bubba, fyrsta plata
Hljóma frá 1967, „í gegnum tíðina“
með Mannakomi, og safiíplatan „Blóm
og friður", sem eins og nafnið bendir til
er ætlað að seðja áhuga manna á hippa-
tímanum. Flytjendur em Óðmenn, Flo-
wers, Roof Tops, Tatarar, Hljómar,
Tilvera o.fl.