Pressan - 11.11.1993, Qupperneq 11

Pressan - 11.11.1993, Qupperneq 11
Fimmtudagurinn 11. nóvember 1993 FEIMIN OG SKEIFAN PRESSAN I I HAGKAUP A haustmánuðum 1959 hófst undirbúningur að stofn- un nýrrar verslunar í Reykja- vík, sem átti að verða með nokkuð öðrum brag en tíðk- aðist. Var Pálmi Jónsson frumkvöðull og stofnandi fyr- irtækisins, en fyrirmynd að verslunarrekstrinum sótti Pálmi vestur um haf til Bandaríkjanna. Þar þrifust póstverslanir (mail orders) og afsláttarbúðir (discount stor- es) innan um virðuleg versl- unarhús, kjörmarkaði, hverf- isbúðir og sérverslanir, en markmið hinna fyrrnefndu var að selja vörur í miklu magni með sem minnstum tilkosmaði á lágu verði. Sam- keppni og val neytandans skáru svo úr um hver hefði betur í viðskiptunum. Slíkur hugsunarháttur þótti sjálf- sagður vestanhafs en hafði ekki rutt sér til rúms hér á ís- landi. Eftir langa umhugsun og leit að nafni við hæfi var ákveðið að hið nýja fyrirtæki skyldi heita HAGKAUP. Næsta áratuginn bætti Hag- kaup svo smátt og smátt við sig í rekstrinum þar til ákveðið var að taka á leigu vöru- skemmu í Skeifunni 15, þar sem til stóð að setja á laggirnar útsölumarkað um stundarsak- ir. Hugmyndin gekk svo vel upp að ákveðið var að opna þarna verslun til frambúðar og þar með var lagður grunn- urinn að miklum breytingum á allri verslun í landinu frá þeim tíma og til dagsins í dag, þar sem Hagkaup hefur ekki farið troðnar slóðir til að gera sem best við viðskiptavini sína. Þegar fyrirtækið opnaði verslun sína í Skeifunni í maí 1970 var þar um að ræða út- sölumarkað sem seldi einung- is sérvöru s.s. fatnað. Strax um haustið sama ár var verslun- inni hins vegar breytt í alhliða sem tekið hefur sér ból- festu í Skeifunni er Fönn hf. sem stofhað var í janú- ar 1960 og hóf rekstur í 70 fermetra húsnæði á Fjólu- götu 19b. í byrjun var að- eins stílað upp á skyrtu- þvott en með tímanum jukust viðskiptin og þvotturinn varð fjöl- breyttari. Fönn hefur í gegnum árin alltaf verið með afgreiðslu og út- keyrslu, en önnur þjón- usta hefur smám saman þróast og aukist, þannig að í dag er fyrirtækíð leið- andi á sviði þvottar og þvottameðferðar. Á síð- ustu árum hefur vélakost- ur Fannar verið endurnýj- aður í samræmi við reynslu fyrirtækisins síð- astliðin þrjátíu ár. Fyrir- tækið tekur allan almenn- an þvott inn til þvottar eða hreinsunar í gegnum afgreiðsluna í Skeifunni 11, en þjónustar einnig allar tegundir fyrirtækja og stofnana óháð stærð verslun sem hafði á boðstól- um ýmsa sérvöru og matvör- ur, sem höfðu ekki áður feng- ist. Húsnæðið var í upphafi einungis 600 fermetrar en var stækkað í 1.200 frn 1972.1 dag er verslunin 3.600 fm eftir aðra stækkun 1974. Óhræddir viö nýjungar Alveg frá því að þessi fýrsti stórmarkaður á íslandi var opnaður í Skeifunni hafa for- ráðamenn hans verið óhrædd- ir við að brydda á nýjungum af ýmsu tagi til að bæta þjón- ustu sína. Þessar nýjungar hafa oft vakið mikil viðbrögð, þá oftast nær í formi mót- mæla frá keppinautunum og hrósi frá almennningi. Margar þessara hugmynda hafa leitt af sér byltingarkenndar nýjungar í verslun á íslandi, en kannski fyrst og fremst þá hugmynd að opna stórmarkað af þessari stærðargráðu, sem fyrirfannst ekki hér á landi þegar verslun- in var opnuð. Það má segja að Hagkaup hafi á margan hátt svipað til Bónusverslananna, eins og við þekkjum þær í dag, á þessum upphafsárum. Allur þurrmatur var t.d. fýrst í stað seldur af brettum eins og Bón- us gerir nú. Þá voru Hag- kaupsmenn einna fremstir í því að krefjast þess að mjólk- ursala yrði gefin frjáls, en eins og menn muna var mjólk ein- göngu seld í sérstökum mjólk- urbúðum á vegum samsöl- unnar alveg frá því í byrjun áttunda áratugarins, þegar Hagkaup krafðist þess að fá að selja mjólkurvörur. Hagkaup var einnig fýrsta verslunin sem setti á laggirnar sérstakt ávaxtatorg í verslun sinni, árið 1984, þar sem kúnninn af- greiddi sig sjálfur með magn og tegundir, en slíkt hafði áð- ur verið selt í stöðluðu magni. Sérstakt kjötborð kom 1986, eða staðsetningu. Sölu- menn koma einfaldlega á staðinn og meta aðstæður með tilliti til þess hve mikill þvotturinn er og hversu oft þarf að þjón- usta staðinn. Síðan er sest niður með viðskiptavin- inum og allir þættir þjón- ustunnar ræddir og kostnaðaráætlun gerð. Fönn býður öllum fyrir- tækjum á Stór-Reykjavík- ursvæðinu að reyna þjón- ustu sína í viku, endur- gjaldslaust, á þann hátt að þvotturinn er sóttur, þveginn og síðan skilað aftur viku seinna fullfrá- gengnum. Auk alls almenns þvott- ar leggur Fönn mikla áherslu á umhverfisvæna þjónustu og býður m.a. upp á handklæðakassa á salerni, þar sem einfald- lega er skipt um rúllur í kössunum og þær þvegn- ar og þannig sparað ómælt magn af pappír sem margar stofhanir og fyrirtæki nota og hefur í för með sér mikið magn en allar kjötvörur höfðu áður verið seldar beint upp úr kæli- kistum í versluninni. Eins var sett á laggirnar eigið bakarí í húsnæðinu um svipað leyti. Þá fékk IKEA inni í verslun Hagkaups í Skeifunni þegar fýrirtækið opnaði verslun hér á landi 1980 og var þar til 1985, þegar það flutti í stærra húsnæði í Kringlunni. Jafnffamt vaxandi áherslu á mikið úrval af góðri og ferskri matvöru í gegnum árin hefur einnig verið lögð mikil áhersla á að geta boðið upp á allar heimilisvörur og fatnað, þar sem markmiðið hefur verið að kaupa allar vörur milliliða- laust og á sem hagstæðustu verði. Gott dæmi um þetta eru hinir margfrægu Kínaskór, sem þegar best lét seldust í yfir 100 þúsund pörum á ári. Á ár- unum 1972-1975 rak verslun- in eigin saumastofu í kjallara hússins, en sú starfsemi var síðan flutt upp á Höfðabakka og seld 1987. Um miðjan síð- asta áratug hóf Hagkaup inn- flutning á lesgleraugum, sem olli miklum úlfaþyt meðal annarra söluaðila, þar sem Hagkaup bauð þau á miklu lægra verði en hafði áður þekkst á markaðinum. í dag fæst þessi vara í flestum versl- unum á landinu á mjög við- ráðanlegu verði. Vinnubrögð sem þessi má segja að séu lýs- andi fýrir stefnu og starfsemi fýrirtækisins í gegnum árin. Hagsmunir viðskiptavinarins eru hafðir í öndvegi og allt gert til að bjóða góða vöru á sem ódýrastan hátt, þó svo að það gangi gegn hagsmunum þeirra sem hafa áður haft af því tekjur að selja sömu vöru með mikilli álagningu. Dæmi um þetta má finna í þeirri ákvörðun Hagkaups skömmu fýrir jólin 1980 að opna bóka- deild í Skeifunni og selja þar bækur á 10% lægra verði en aðrir bóksalar. Hver sá sem af sorpi. Einnig er boðið upp á iðnaðarklúta og rylonottur fyrir fyrirtæki. Þá hafa margir aðilar í veitingarekstri séð sér hag í að leigja dúka, svuntur, servíettur, þurrkur og handklæði hjá Fönn, enda er kostnaður við þjónustu sem innifelur leigu, þvott og lagfæringar það lágur að fjöldi veitingahúsa sér hag í að þiggja þá þjón- ustu. Þá býður fyrirtækið einnig upp á nýja og full- komna þjónustu við hreinsun og frágang á gluggatjöldum. Glugga- tjöldin eru bæði sótt og send og tekin niður og sett upp að lokinni hreinsun. Þegar fyrirtækið hóf rekstur fyrir rúmum þrjá- tíu árum voru starfsmenn fyrirtækisins þrír. Um þessar mundir eru starfs- mennirnir hins vegar orðnir fimmtíu í stóru og björtu húsnæði í Skeif- unni 11. vill selja bækur hér á landi verður að hafa til þess bók- söluleyfi og það veita bóksalar og bókaútgefendur. Hagkaup sótti um leyfi til að selja bæk- ur, en fékk þvert nei. Með harðfýlgi tókst þó að fá stóran hluta af jólabókunum til sölu og auglýsa þær á 10% lægra verði en annars staðar. Eftir hátíðimar vildi Hagkaup ekki una því að frjáls álagning á bókum væri lögbrot, Félag bókaú.tgefenda gæti í skjóli undanþágu frá gildandi lög- um um einokun haft eitt verð á bókum í gildi um landið allt og hvergi mætti hvika frá því. Hagkaup sótti málið til dóm- stóla og þar var einokunin staðfest. Hagkaupsmenn vildu ekki una slíkum afarkostum og fór málið fýrir Hæstarétt en tapaðist. Árið 1984 hóf verslunin að selja nýjar íslenskar kartöflur á u.þ.b. 14% lægra verði en al- mennt þekktist. Nýbreytnin var að Hagkaup keypti kart- öflurnar beint af bændum, eins og tíðkaðist með flest annað grænmeti, en ekki í gegnum þann millilið sem Grænmetisverslunin var á þessum tíma. Niðurstaðan varð sú að sölufýrirkomulag- inu á kartöflum var breytt og Hagkaup hafði sitt fram og tókst þannig að lækka verðið á þessari tilteknu vöru til fram- búðar. Staðan í dag í dag hefur verslunin á boð- stólum gífurlegt úrval af mat og sérvörum. Fyrirtækið býð- ur u.þ.b. 10-12.000 vöruteg- undir í matvörudeildinni, þar sem markmiðið er að bjóða ferskar vörur af öllu tagi og eiga alltaf nóg til af öllu, þann- ig að fólk þurfi ekki að leita annað með matarinnkaup. Einnig er lögð rík áhersla á gott úrval af fatnaði og skóm. Fyrir jólin verður boðið upp á mikið úrval af jólaskrauti, leikföngum og heimilisvörum af öllu tagi. Þá eru einungis örfá ár síðan sérstök snyrti- vörudeild var opnuð í versl- uninni og sérdeildirnar því orðnar fjölmargar, þar sem sérhæft fólk starfar innan hverrar deildar. Skemmtileg nýbreytni í október síðastliðnum var opnaður Leirmarkaður í Skeifunni og á Akureyri þar sem selt var eftir vigt eða frá 399 krónum kílóið. Hér voru á ferðinni bolla- og matarstell, eldföst mót, stórar og litlar skálar, blómapottar og svo mætti lengi telja. Leirinn var mjög fallegur og litríkur, en stór hluti hans var handmál- aður og einnig var liturinn brenndur í leirinn. Eingöngu var um að ræða takmarkað magn sem selja átti á meðan birgðir entust. Skemmst er frá því að segja að þessi nýbreytni heppnaðist framar vonum. Leirvaran rauk út eins og heitar lummur á aðeins tveimur dögum. Á tímabili var örtröðin svo mikil að starfsfólk komst varla að til að fýlla upp í hillurnar. Vegna þessa var tekin sú ákvörðun að girða sölusvæðið af og hleypa fólki inn á það í hópum. Þá var síðastliðinn föstudag haldið blómauppboð þar sem seld voru stærri blóm sem kosta út úr blómabúð um og yfir 10 þúsund krónur en voru seld á rétt rúmlega 2.000 krónur. Þessar nýjungar stendur til að endurtaka og í fJamtíðinni er gert ráð fýrir að hafa blómatorg að staðaldri í versluninni. Það fer ekki á milli mála að Hagkaup í Skeifunni hefur haft forystu um að gera þetta mikla verslunarhverfi að því sem það er í dag. Þeir voru fýrstir á staðinn og hófu fýrir- tækið til þeirrar virðingar sem það nýtur í dag. Verslanirnar eru nú orðnar níu talsins, sjö í Reykjavík, ein á Akureyri og önnur í Njarðvík. Fyrirtækið hefur fært nýjar hugmyndir inn í verslun á íslandi sem hafa fest í sessi og breiðst út. Hagkaup bauð fýrst allra upp á barnagæslu og kaffihorn fýr- ir viðskiptavini sína. Þeir voru fyrstir með sérstök bílastæði fyrir fatlaða og fjölskyldur með ungböm og einnig buðu þeir fýrstir upp á reiknivélar á innkaupakörfur sínar, við- skiptavinunum til hægðar- auka. Á undanförnum mánuðum hefur Ian MacDougalI starfað með Hagkaup að eflingu fýrir- tækisins og tekur m.a. fyrir stefhumótun þess. Hann hef- ur um langt árabil unnið við ráðgjöf og rekur sitt eigið fýr- irtæki, Corporate Lifecycle Inc. Að sögn Ians ræðst fram- tíð allra fýrirtækja af nokkrum grundvallarþáttum. 1 fyrsta lagi viðskiptavininum, en með því er átt við að þeir verði að vera nafli alheimsins í huga fyrirtækisins. í öðru lagi hversu vel fýrirtækið tileinkar sér nýjungar og sýnir frum- kvæði, þ.e. að við verðum að hafa forystu í að kynna það sem er nýtt og öðruvísi. Síðast en ekki síst verður það að hafa skýra framtíðarsýn, sem er lykillinn að árangri. Ástæðan fyrir mikilvægi þess að hafa skýra framtíðarsýn ætti að vera augljós. Hún er einfald- lega sú að við munum öll eyða því sem eftir er ævi okkar í framtíðinni og þ.a.l. er ekki óeðlilegt að við kynnum okk- ur þetta nýja umhverfi áður en við flytjum inn! Þetta eru allt atriði sem Hagkaup hefur haft að leiðar- ljósi frá upphafi og hyggst geia. áfram, til að geta áfram boðið gæðavöru á sem lægstu verði. FLEIRA GIRNILEGT Á BOÐSTÖLUM Hér hefur verið stiklað á stóru um breytingarnar sem orðið hafa á allri að- stöðu til verslunar og þjónustu í Skeif- unni og Fenjunum og eins um þær breyt- ingar sem uppgangur verslunar í þessu hverfi hefur haft á viðskipti við verslanir staðsettar í gamla miðbænum og víðar í borginni. Breyttir tímar kalla á breyttar aðstæður. Borgin hefur stækkað og fólki fjölgað og sú aðstaða sem er til staðar í gamla mið- bænum nær ekki að sinna því hlutverki sem áður var, að sjá borgarbúum fyrir allri vöru og þjónustu. Gamli miðbærinn hefúr því verið leystur af hólmi af þeim nýja, sem er Skeifan, Fenin og Kringlan. Þangað er styttra að sækja fyrir flesta, bílastæði eru næg og viðskiptavinum að kostnaðarlausu og öll aðstaða almennt betri en gerist í þrengslunum niðri í bæ. Það sem um er að ræða er einfaldlega hagræðing á markaðinum. Margar versl- anir sem voru farnar að ganga illa hafa fært sig um set úr gamla miðbænum í þann nýja en aðrar halda velli og verða um kyrrt. Þannig minnkar álagið sem var niðri í miðbæ og færist austar í borgina, — nær nýju hverfunum. Þær verslanir sem hér hafa verið nefnd- ar eru einungis brot af þjónustunni sem í boði er á svæðinu, en þarna má ljúka ölÞ"" um sínum erindum á fljótlegan og að- gengilegan máta. æðanna vegna. MAX • YINNUFATAGERÐ ISUNDS

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.