Pressan - 16.12.1993, Blaðsíða 4
SLAGUR A NESINU
4 PRESSAN
Fimmtudagurinn 16. desember 1993
Hrósið fœr Guðmundur
Árni Stefánsson heilbrigð-
isráðherra fyrir að tuktn til
fégráðugn lækna svo kjós-
endur gleymi kannski öll-
um blnmmeringunum sem
hann hefurþurft að bakka
með hingað til.
BLOÐUGT
BÍLABÍÓ
„í auglýsingum íyrir mynd-
ina er þess sérstaldega getið
að þessi umdeildu bílaatriði
séu sýnd... Ég fæ ekki séð að
brýnni nauðsyn beri til að
sýna þessi atriði hér á landi
en í framleiðslulandinu.
Sömu rök hljóta að gilda um
áhrif þessa atriðis hér og
vestra og mér finnst sjónar-
mið Kvikmyndaeftirlitsins
vægast sagt mjög undarleg.
Auglýsingin er annaðhvort
ósvífin storkun gagnvart al-
menningi þar sem á purkun-
arlausan hátt er verið að
benda á atriði sem kostað
hafa unglinga lífið eða heið-
arleg tilraun kvikmyndahúss
til að vara almenning við
myndinni.“
Haraldur Blöndal, formaður
umferðamefndar, í Mbl. um
kvikmyndina TheProgram:
Magnús Gunnarsson,
rekstraraðili Laugarásbíós:
Haraldur byggir gagnrýni
sína á þeim forsendum að
„svona mynd“ geti eyðilagt
margra ára starf hvað um-
ferðarfræðslu varðar. Um-
rædd mynd er ekki
„kennslumynd í að kasta sér
fýrir bíla“ eins og Haraldur
kallar það, heldur er um að
ræða stutt atriði í mynd sem
Kvikmyndaeftirlit ríkisins
hefur samþykkt til sýningar
fyrir alla aldurshópa. Það er
heldur ekki rétt að fúllyrða
að ungt fólk í Bandaríkjun-
um hafi lagst á hraðbrautir
eingöngu eftir að þessi kvik-
mynd kom á markaðinn, því
það eru mýmörg dæmi um
dauðsföll og slys af þessu tagi
í gegnum tíðina. Við tókum
sérstaklega fram í auglýsing-
um að myndin innihéldi
umdeilt atriði og vissulega
var það gert til að fólk vissi
áður en það kæmi í bíóið
hvort það treysti sér til að sjá
myndina. Að storka almenn-
ingi hvarflaði.aldrei að okk-
ASSGOTI
HARÐAB!
„Tónninn í gagnrýninni er
orðinn hvassari, menn slá
um sig vegna þess að það eru
iUgjarnar, ögrandi og árásar-
gjarnar staðhæfingar sem
vekja mesta athygli. Hið nýja
hlutverk bókmenntanna er
þá að vera nauðsynlegt efhi
fýrir gagnrýnandann til að
geta slegið sér upp, sýnt sig
svo að almenningur geti
dáðst að honum og klappað
saman lófunum og klappað
gagnrýnandanum öllum ut-
an vegna þess að hann er svo
„assgoti harður“...“
Dagný Knstjánsdóttir, dósent í
íslensku, í Mbl
Kolbrún Bergþórsdóttir,
bókmenntagagnrýnandi
SAUMNAL
STUNGIÐ
VÍÐAH
„Á meðan skattyfirvöld fara
mikinn í eftirlitsátakinu, sem
fýrst og fremst hefúr falist í
saumnálarleit í bókhaldi hjá
þeim fýrirtækjum sem skila
hagnaði, fær raunverulegt
effirlit eða skattrannsóknir
litla athygli. Þannig er slælega
gengið fram í að kanna mál-
in hjá þeim sem sýna slæma
stöðu í bókhaldi eða skifa
seint eða helst aldrei ffamtöl-
um.“
Vilhjálmur Egilsson í Mbl.
Garðar Valdunarsson ríkis
skattstjóri:
„Þetta eftirlitsátak sem Vil-
hjálmur talar um er árlegt
eftirlit með ffamtölum í at-
vinnurekstri. Þá er tekið
ákveðið úrtak sem er skoðað
eftir á. Við fýlgjumst sérstak-
lega með þeim aðilum sem
skila ekki ffamtali en þar að
auki fara ffam fjölmargar eft-
irlitsaðgerðir sem beinast að
bókhaldi og skattskilum fýr-
irtækja í ýmsum greinum.
Þama er Vilhjálmur bara að
ræða um einn ákveðinn þátt
í eftirlitsstörfúm skattyfir-
valda, sem eru náttúrlega
miklu víðtækari.“
PRESSUNNAR:
„Dagný talar um illgjamar,
ögrandi og árásargjamar
staðhæfingar. Ég kannast
ekki við slíkt úr dómum
mínum eða ungra kollega
minna, en ég rekst á allt þetta
í grein Dagnýjar. Ef hún vill
opinbera ffústrasjónir sínar
ffammi fýrir alþjóð þá er
henni það fullkomlega ffjálst.
Það kemur ekki par við
mig.“
Jón Hókon Magnússon, fréttamaður og kynningarfulltrúi til margra óra, hóði harða baróttu gegn sjónarmiðum bæjarstjórans
ó Seltjarnarnesi og fylgismanna hans vegna fyrirhugaðra byggingarframkvæmda ó vestursvæðinu svokallaða ó nesinu. Þrótt
fyrir að hafa dregið sig út úr starfi sjólfstæðisfélaganna ó Seltjarnarnesi stefnir hann ó öruggtsæli í næstu bæjarstjórn.
Var málaður út í horn
„Éólk vildi að einhver af
okkur í andófsliðinu gegn
hugmyndum Sigurgeirs Sig-
urðssonar bæjarstjóra um
umhverfismálin færi fram.
En þar sem þeir Guðmar
Magnússon og Magnús Er-
lendsson hafa báðir setið
lengi í bæjarstjórn Seltjamar-
ness og báðir verið forsetar
bæjarstjómar var ég málaður
út í hom.“
Er það til höfuðs bœjarstjór-
anum?
„Já og til að leita mótvægis.
En ég fer ekki gegn Sigurgeiri
sem slíkum. Alls ekki.“
Stendur þá ekki til að krcekja
í bœjarstjórastólinn?
„Nei.“
Hvert stefnir þú í prófkjör-
inu?
„Fyrst í stað í öruggt sæti.
Annars er ég ekkert farinn að
hugsa þetta að gagni. Ég tók
meira að segja ákvörðun að-
eins fáeinum tímum áður en
ffesturinn rann út. Ég var bú-
inn að vera að ákveða og
hætta við til skiptis fram á
síðustu stundu.“
/ bœjarstjórn Seltjarnarness
sitja fimm sjálfstœðisfidltrúar í
meirihluta, þar af œtla fjórir
fram aftur. Einn fulltrúanna
sem ætla fratn aftur er Erna
Nielsen, sem varð mjög um-
deild í kjölfar sameitiingarmál-
anna. Heyrst hefur að andófs-
hreyfingin sé ekki síst til höfuðs
henni.
„Ja, þú segir mér fréttir.
Það er öllum frjálst að spá.
Það vakir aðeins fýrir mér að
fá góðan stuðning til að geta
verið sá sterki aðili í bæjar-
stjórn sem stendur í þessum
umhverfismálum.“
Því var lengi haldið á loft að
til klofningsframboðs kæmi á
Seltjarnarnesi vegna einmitt
umhvetftsmálanna. Stóð til að
kljúfaflokkinn?
„Nei, það stóð aldrei til.
Við sögðum þó alltaf í deil-
unum um umhverfismálin
að ef flokkurinn næði ekki
samkomulagi myndi hann
klofna. I skoðanakönnun um
afstöðu fólks til bygginganna
á vestursvæði Seltjarnamess
kom hins vegar glögglega í
ljós að vilji íbúanna stóð til
þess að vemda svæðið. Mála-
miðlun var gerð, en hún var
sú að fallist var á að byggja fá-
ein hús. Síðan hefur verið
mikill þrýstingur af því liði
sem studdi okkur, sem að
stóðum, að einhver okkar
færi þá fram í bæjarstjómar-
kosningunum."
Finnst þér vera kominn tími
á bœjarstjórann, sem hefur í
hátt á þriðja tug ára haldið um
stjómartaumanna á Seltjam-
amesi?
„Mín skoðun er sú að
menn eigi ekki að vera svona
lengi í starfi sem þessu. Þeir
hafa gott af að færa sig á milli
og miðla þekkingu sinni.
Þetta á jafnt við um bæjar-
stjóra, alþingismenn og ráðu-
neytisStjóra. Þetta hefur þó
ekkert persónulega með Sig-
urgeir að gera, því það er gott
samstarf okkar á milli. Menn
misskilja þetta alltaf og halda
að ég hafi eitthvað persónu-
lega á móti Sigurgeiri!"
Ætla margirfram úr stuðn-
ingshópi ykkar?
„Ég veit ekki hver afstaða
hinna er, ég vona bara að hún
sé rétt! Ég ætla ekkert að gefá
eftir.“
Þú hefur væntanlega fleiri
áhersluren í umhverfismálutn.
„Ég hef í hyggju að halda í
það sem þegar hefur verið
unnið á Seltjamarnesi, ehda
hefúr þar verið unnið mjög
gott starf. Seltjarnarnes er
góður bær. Allri uppbygg-
ingu er að verða lokið og tími
til kominn að hugsa um um-
hverfið; útlitið og mengunar-
mál, td. að klára þetta skolp-
ræsaverkefni sem nokkur
bæjarfélög standa að. Svo vil
ég vil gjaman sjá betri skóla
og aukna menningarstarf-
semi.“
Verður kosningabaráttan
hörð í vor?
„Hún verður það. Sjálf-
stæðismenn líða fyrir óvin-
sæla ríkisstjórn. Svo veit ég
ekki hvemig andstaðan verð-
ur; hvort hún býður fram
sameiginlega eða flokkarnir
hver í sínu lagi. Það er ekki
fyrr en maður sér það að
maður áttar sig á því hvemig
baráttan verður. Hún verður
að minnsta kosti hörð, en
hversu hörð er spurningin.
Þetta em ágætismenn þama í
stjórnarandstöðunni, þótt ég
sé ekki alltaf sammála þeim.
En ég er heldur ekki alltaf
sammála sjálfstæðismönnun-
Guörún Kristjánsdóttir
debet__________ Ólafur Þ. Þórðarson kredit
„Að mínum dómi er hann að mörgu leyti
mjög glöggur maður, stundum er hann snjall
og er fljótur að skilja hluti. Hann hefur vítt
sjónarsvið og er vel lesinn," segir Matthías
Bjarnason, þingmaður Vestfirðinga. „Hann
er duglegur að böðlast áfram og vill vinna vel
fyrir umbjóðendur sína. Hann er líka
skemmtilegur ræðumaður og fer oft í forn-
sögumar þegar hann þarf að ieita raka,“ seg-
ir Jón Alfreðsson, kaupfélagsstjóri á
Hólmavík. „Ólafúr er flugmælskur og fýlg-
inn sér, taki hann málstað að sér. Býr að
langri reynslu sem er honum drjúg til
ákvarðanatöku og vinnslu mála,“ segir Pétur
Bjamason, fræðslustjóri á ísafirði, en hann
keppti við Ólaf um fyrsta sætið á lista
Framsóknarflokksins. „Mér fannst helstu
kostir hans að hann var hreinskilinn, þannig
að maður fékk hann yfirleitt ekki í bakið.
Mér fannst ágætt að vinna með Ólafi,“ segir
Karvel Pálmason, fyrrum alþingismaður.
Flugmælskur ogglöggur—
eða kreddufullur sérvitringur?
Ólafur Þ. Þórdarson, þingmadur Framsóknar-
flokksins. Agnes Bragadóttir segir ab þingmenn
botni hvorki upp né niöur í honum.
„Hann er sérvitur í meira lagi og á stund-
um til að koma með skoðanir sem falla
flestum öðrum ekki í geð, en það telst til al-
gerrar undantekningar," segir Matthías
Bjarnason, þingmaður Vestfirðinga. „Hann
setur sig ekki alltaf mikið inn í smáatriði
og er ekki mikill nostrari þegar kemur að
bókhaldi og þvíumlíku," segir Jón Alfreðs-
son, kaupfélagsstjóri á Hólmavík. „Ólafi
lætur lítt að auglýsa fyrir Vestfirðingum
það sem hann gerir fýrir kjördæmið, sést of
lítið í kjördæminu. Stöku sinnum fær hann
hugmyndir sem vekja litla hrifningu en
þeim hampa fjölmiðlar mest,“ segir Pétur
Bjarnason, ffæðslustjóri á ísafirði. „Hann er
kreddufullur, mér fannst hann hafa nánast
gjörsamlega fastmótaðar skoðanir án þess
að þeim væri breytt, þó að ég þykist vita að
oft á tíðum hafi hann sjálfur séð eftir á að
þær væru ekki réttar. Eg held að hann sé
ekki þess sinnis að viðurkenna mikið af því
sem miður fer, þó að hann sannfærist sjálf-
ur um það seinna meir,“ segir Karvel
Pálmason, fýrrum alþingismaður.