Pressan - 16.12.1993, Blaðsíða 15
Fimmtudagurinn 16. desember 1993
SKILABOÐ
PRESSAN
rœtast
Verð 3.490 hr.
~CJarnsskóniir voru úr sauðskinni, þeim sleit hann
suöur í Höfnum. Klœddur skinnstakki fór hann á
sjó og œtlaði að verða sjómaður. Hann var látinn
r
ganga menntaveginn og hóf lœknisnám. I miðju
læknisnámi kom áfallið mikla: hann veiktist af
berklum. Honum var ekki nóg að sigrast á eigin
veikindum, svo margirþurftu hjálp. Hagsmunir
sjúkra og öryrkja urðu honum óþrjótandi œvistarf.
Kraftur, hugmyndir, fórnfýsi, bjartsýni, áræði - ótal
einkunnarorð áttu við hann. Hann beitti sér víða og
mótaði brautina: Styðjum sjúka til sjálfsbjargar.
Drengurinn á sauðskinnsskónum varð síðar
r
aðalhvatamaður tölvuvœdds LOTTOS. Oddur
Olafsson var gæfusamur hugsjónamaður sem fékk
hugsjónir sínar til að rœtast. Það var gœfa
Islendinga að eiga slíkan mann.
Ævisaga afreksmanns
Isafold
Austurstrœti 10
Opið til 22 öll kvöld
Eimskip
FóUdð hjá
Bókin Milli sterkra stafna - fólkið hjá Emskip styður þau algildu sannindi að
þegar grannt er skoðað er fyrirtæki ekki skip, bókhaldsgögn eða húseignir,
heldur fólkið sem vinnur þar.
í bókinni segja sögu sína á lifandi og skemmtilegan hátt lólf manns úr mismunandi
starfsgreinum, meðal annarra bílstjóri, bókari, bryti, skipstjóri, verkstjóri og vélstjóri.
Tveir údendingar sem verið hafa í samstarfi við Eimskip áratugum saman segja
tæpitungulaust frá viðskiptum sínum við Islendinga og skoðun sína á landi og þjóð.
Fjallað er um ástina og gleðina, sorg og sigra. Sögusviðið er meðal annars
menningarpláss vestur á fjörðum á öndverðri öldinni, Esbjerg í Danmörku á tímum j
þýskrar hersetu og danskrar andspyrnuhreyfingar, London á stríðsárunum,
farþegaskipið Gullfoss og ævintýrin þar. Palestína meðan Suezdeilan stóð sem hæst.l
Kaupmannahöfn í stríði og friði og Reykjavík frá aldamótum til dagsins í dag.
Flestir sem segja sögu sína í þessari bók hafa' starfað með þremur forstjórum á
starfsævi sinni og þeir greina frá því hvernig persónuleiki þeirra hvers um sig
hafði og hefur enn áhrif á starfsemina og andann í þessu stóra fyrirtæki.
Afar skemmtileg og óvenjuleg viðtalsbók - prýdd fjölda ljósmynda.
3.65
ss
ALMENNA BÓKAFÉLAGIÐ H F
- góð bók um jólin
i