Pressan - 16.12.1993, Blaðsíða 16

Pressan - 16.12.1993, Blaðsíða 16
ENGLASOGUR 16 PRESSAN Fimmtudagurinn 16. desember 1993 í flokki með Michael Jordan og Elizabeth Taylor „Hún dansar eins og guð- inn Pan, urrar eins og púki og freistar eins og snákurinn í Eden þegar hún grætur og hvíslar til himna eins og hún tilheyri öðrum heimi.“ Nokkurn veginn svona hefst lýsingin á Björk Guðmunds- dóttur sem er í hópi fjögurra stórstirna sem falla undir skilgreininguna „Englar árs- ins“ í hinu virta bandaríska tímariti Interview. Aðrir sem tilheyra þessum hópi eru engir aðrir en leikkonan El- izabeth Taylor, körfuknatt- leikshetjan Michael Jordan og Tony Kushner rithöfund- ur, sá er samndi leikritið Engla í Ameríku sem Borgar- leikhúsið sýnir um þessar mundir. Hann fær engla- stimpilinn fyrir að hafa fært AIDS-umræðuna niður til almennings. Eiginleikar Bjarkar eru sagðir felast í yfirnáttúruleg- um hæfileikum sem hún geti brætt með köldustu hjörtu; með söng sínum flytji hún áheyrendur á æðra plan. Ástæða þess að Michael Jordan er í þessum hópi er sú að hann lagði boltann á hill- una í kjölfar þess að faðir hans og besti vinur, James Jordan, var myrtur. „Þegar hjarta hans gat ekki lengur afborið missinn megnaði körfuboltinn ekki lengur að lyfta upp anda hans.“ Elizabeth Talyor er þarna hins vegar vegna þess að hún var orðin baráttukona núm- er eitt í eyðnimálum löngu áður en Hollívúdd þorði að horfast í augu við það og svo af því að hún er svo góð við vin sinn Michael Jackson. Hún er sögð hafa hjarta úr gulli- BJÖRK GUÐMUNDSDÓTTIR. Kemur áheyrendum í snertingu viö æöri máttarvöld. Björk ein af englunum í Amer- íku að dómi Interview Vill mælum með ... Hanastéli. Ekki þessu þama ölvunarkennda, held- ur þjóðvegagrillstaðnum í hj arta Kópavogs. Þar er : hægt að fá orginal kótilettur a la amma og hefðbundinn hamborgara, að ógleymd- um bjómum, sem er eina nýmælið — ef gömlu góðu þjóðvegasjoppurnar eru hafðar í huga. ... rómantík um jólin að fólk sleppi sér og gefi hvað öðm dýrar jólagjafir í ár. í það minnsta ógleyman- legar. ... greiðslukorta- viðskiptiun þá þarf maður ekki að hafa áhyggjur af jólunum fyrr en í febrúar. JÓHANN ARI LÁRUSSON. Einsöngvarinn ungi sem fer á flug meö snjókarlinum er í eina drengjakór landsins; Drengjakór Laugarneskirkju. Drengurinn með engla- röddina á stórtónleikum með Sinfóníunni „Þetta er eiginlega saga sem fjallar um strák sem býr til snjókall. Svo gerast ævintýri. Snjókallinn lifnar við og hann og drengurinn fara að fljúga saman. Þar kemur söngurinn,“ segir Jóhann Ari Lárusson, tólf ára einsöngv- ari, sem syngur í fyrsta sinn með Sinfóníuhljómsveit ís- lands á fjölskyldutónleikum á laugardag. Þá verður frum- flutt á íslandi verkið Snjókall- inn eftir breska tónsmiðinn Howard Blake. Aðeins eitt lag er sungið í öllu verkinu og kemur það í hlut Jóhanns, sem kunnugir segja að syngi eins og engill. Tónlistin segir að öðru leyti söguna ásamt sögumanni, sem er Sverrir Guðjónsson. Þess má geta að vinsæl teiknimynd hefúr ver- ið gerð eftir þessari sögu auk þess sem verkið verður flutt af hátt í þrjúhundruð hljóm- sveitum víða á Bretlandi um jólin, þar á meðal í Barbican Center í Lundúnum. Jóhann segir þetta fjórða ár sitt í Drengjakór Laugarnes- kirkju, sem stjórnað er af Ronald Turner. í drengja- kórnum hefur hann fengið alla sína söngmenntun. Hefurðu oftsungið einsöng? „Já, með kórnum sérstak- lega. Svo hef sungið einsöng í Bústaðakirkju. En þetta er í fýrsta sinn sem ég kem ffam með Sinfóníunni." Hvernig finnst þér að eiga að fara að syngja einsöng með þessari stóru hljómsveit? „Það leggst bara mjög vel í mig.“ Byrjaðirþú ungur í tónlist? „Já, ég byrjaði í forskóla í Nýja tónlistarskólanum, en það er svo langt síðan að ég man ekki hvað ég var gamall. Og svo er ég búinn að vera í píanónámi í fjögur ár.“ Byrjaðir semsagt kornungur. „Það má eiginlega segja það.“ Aðspurður um hvert hann sæki tónlistargáfuna segir hann til móður sinnar, sefn sé í Snæfellingakórnum í Reykjavík. Ætlarðu að verða söngvari þegarþú verður stór? „Ég veit það ekki, ég er ekld búinn að ákveða það ennþá. En ég ætla að halda áffam að syngja." Auk Snjókarlsins verður fluttur forleikurinn að Töfra- flautunni eftir Mozart, Söng- ur Dimmulimm eftir Atla Heimi Sveinsson, Panis Ang- elicus eftir César Franck og jólasálmar og jólaguðspjallið. ... kvennasmokknurn hann er sagður stórkost- legur, miklu betri en karla- smokkurinn. inni Maður þorir varla að segja það. En... það eru snöggklippt skapahár. Það er semsé komið það sem kallast tíska í þeim efnum. Vissulega hafa snyrtilegar konur ætíð hugsað um þennan vel hærða og merki- - lega part líkamans. Hingað til hefur þó tískukóngunum ekki verið hleypt inn fyrir nærbuxumar, en það hlaut að koma að því. Ekki veit maður hvort einhver klipp- aranna í bænum sérhæfir sig í kantskurði og því verða konumar að sjá um þennan verknað sjálfar. Því var spáð að hárið eða jafnvel heilinn yrði mest kynæsandi partur líkamans á þessum áratug. Það er þó ekki svo, því það em skapahárin, - vel snyrt °g snöggklippt. ON Á Kaffi List á föstudags- kvöld sátu Hörður Torfa trúbador, Helga Möller söngkona, Árni fagur- rauðhærði þjónn og B j ö g g i , Berglind Jónsdóttir' módel, Ari' Alexander meistari, Guðjón Bjamason arkitekt, Ási í Gramminu, Þór Eldon moli og margir fleiri. N æ s t a I kvöld á sama bar voru Stebbi Karls ljósmyndari, Inga Sólveig ljós- myndari, Goggi í Júpíters og Erla Þórarins, Kata dansari, Kuregej-bræðurnir Ari Alex- ander og Jónsi, Elísabet Jök- ulsdóttir rithöfundur og Sonný myndlistar- kona. Á föstudagskvöld sást til nærri allra meðlima hljómsveit- arinnar Bubblefli- es í Rósenberg- kjallaranum, þar voru og Jón Kaldal blaðamaður og Ragna Sæm sál- ffæðinemi. Á sunnu- dagsmorgun mættust i morgunkaffi á Café París þeir Gunnar Smári Egilsson, ritstjóri Eintaks, og Björn Blöndal, gítarleikari í Ham. Mál menning efndi eins og sv mörg fyr-1 irtæki til' jólaglöggs' ^ á föstudags-' kvöld. Þeir h ö fð u það þó umffam flesta að Vig- dís Finn- bogadótt- k ir, forseti , íslands, sótti boð- I ið. Þar 1 var einnig rSjón ný- kominn úr r skáldaleyfi á Bretlandi, Sig- urður Pálsson ljóðskáld, Kristín Jóhannes- dóttir kvikmyndagerðarmað- , Sindri Freysson rit- höfundur og blaða- maður á Mogganum, Einar Már Guð- mundsson rithöf- undur, Halldór Guðmundsson, framkvæmdastjóri MM, Jóhann Páll Valdi- marsson hjá For- laginu og margir fleiri. Á Sólon ís- landus á i föstudags-1 kvöld vorul þau mæðginj jóhanna' Kristjónsdóttir' blaðamaður og' Illugi Jökulsson' rithöfundur. Á laugar- dagskvöldið voru þar hins vegar Kristján Karlsson graf- ískur hönnuður og Lilja dans- ari, Gunnar Smári Egilsson, Baltasar Kormákur, Bergur Rósinkranz hagfræðinemi, Reynir í Tangó, Bryndís í landbúnaðarmafíunni og fleiri. Sama kvöld á kaffibar Frikka og dýrsins var Krist- ján Þorvaldsson úrvarpsmað- ur í leit að barflugum fyrir rás 2 og Jón Atli umbi Bubba Morthens. í Casablanca á laugar- dagskvöld í jólakakói voru m.a. Magnús Scheving, Helgi Bjöms- son sól, Ólöf Rún Skúla- dóttir Dagsljóssdula, Leif- ur Dagfinnsson, Frank Pitt, Andri Már Ingólfsson Veraldarvafstrari og allir þeir sem vilja kenna sig við fagrar meyjar, enda Módel 79 með teiti. Jólin eru hátíð Ijóss og fríðar en þó fyrst og fremst áfengis. Alls staðar eru jóla- glögg, starfs mannapartí, skólar að klárast, jóla- boð, útlending- ar að koma heim með tollinn og allir virðast eiga nóg af pen- ingum; annaðhvort er það þrettándi mánuðurínn greiddur eða vísakortið. Og það er ekkert landasull í gangi, það eiga allir dýríndis koníak í brjóstvasanum eða bjór og vísakort á lager. Gleðileg og áfeng jól.“ Að gefa karlmönnum bindi í jólagjöf. Karlmenn eiga nóg af bindum. Þeir mega ekki við einu til við- bótar. Því meira sem þreng- ir að hálsi karlmanna því hættara er þeim við súr- efnisskorti til heil- ans. Krakkar! Ekki enn eitt bindið! Viljið þið eiga á hættu að faðir ykkar látist fyrir aldur fr am? Það hefur líka sýnt sig og sannað að karlmenn sem ganga ekki að staðaldri með bindi eru mun óheftari. Þeir hafa frjáls- legri skoðanir. Þeim tekst að skapa. Kjörorðið er bindið burt og bóheminn fram.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.