Pressan - 24.02.1994, Side 4

Pressan - 24.02.1994, Side 4
tuggðar setningar nákvæmlega hér á þessum stað tekur sjálft borgarskipulagið á sig tilviljunarkennda og óvænta mynd eins og sjá má svo greinilega á þessari ljósmynd sem tekin er í leysingunum ekki alls fyrir löngu þó að tímasetningin komi hvergi fram samanborið við vissar teg- undir af ljósmyndavélum þar sem dagsetningin er uppljómuð í tölvustöf- um í einu horni nryndarinnar sem getur verið af hverju sem er en hér rík- Kringumstæðan HARALDUR JÓIMSSOINI ir óneitanlega visst tímaleysi því að ofan á vandhugsaðri hellulagningunni liggja núna og væntanlega um ókomna framtíð hvítir og alveg útí gráa punktar eða klessur eftir á hvaða aldri þær eru ef maður/kona kýs að sjá og kalla þetta hnitakerfi og samsetningu slíku nafni en í rauninni eru þetta ekkert annað en eldgamlar og nýlegar tyggjóklessur sem eru merki- legar fýrir ýmsar sakir og þá ekki síst staðsetningu þeirra hérna í blábeygj- unni á Skólavörðustíg og margförn- um og gengnum Laugaveginum sem er ein af mörgum aðalgötum sem liggja lúmskar líkt og útflattar slöngur af stærri gerðinni um alla höfuðborg- ina og sér ekki fýrir endann á nema þá úr lofti kannski eða hátt úr turni þessar krömdu klessur sem hafa kom-, ið sér þægilega fyrir þarna á og í horn- inu eru í senn margtuggðar setningar og örð sem hafa verið látin falla úr munni ónefndra borgarbúa og jafnvel nafnlausra útlendinga setningar sem erfitt er og verður að lesa í einfaldlega áf því að enn aðrir vegfarendur hafa gert sér lítið fyrir og gengið ákveðið yfir þær svo að upphaflega merking þeirra hefur kramist undir fótunum á gangandi fólkinu sennilega óvart samt eða of fljótt til að hægt sé að lesa sig í gegnum þær greina innihaldið innri og ytri tengsl þeirra nema að þetta séu samræður harðar og heitar um- ræður deilur um málefhi sem flestir eru búnir að gleyma í dag og komust ekki fjölmiðil fyrr en núna heldur ultu ósjálffátt fram af vörum mælend- anna og enginn fékk nokkuð við því gert í dag eru þessir punktar sam- setning sem geymir í sér leyndarmál og yfirlýsingar um daginn og veginn niðurstaða og þess vegna lausn á flóknum málum ffekar en að vera af- steypur af efra og neðra tanngarði ólíkra einstaklinga flóknar í forminu eftir velting í allar áttir í blautum munninum milli tanna og tungu en það sem gerir þetta punktakerfi merkilegra eru auðvitað reglulegar línur sem hellurnar undir mynda sín á milli þannig að heildarmyndin hefur yfir sér sannfærandi og skipulagt yfirbragð undir þessum ákveðna þrýstingi líka sem kemur greinilega fram í tröppunum ofarlega á myndinni brúnirnar á þrepunum vega salt eftir ósýnilegum þyngdarpunkti svo erfitt er að sjá hvað snýr upp og niður þannig að maður nemur undir eins staðar fer ósjálffátt að hugsa um eitthvað í ætt við kerfi stjörnuhverfi og hvemig þær ná að haldast á.lofti en detta ekki niður úr himninum ofan á jörðina og gera þar djúpar holur fyrir vísindamenn sem þeir skoða gaumgæfilega og endalaust til þess að sjá samhengið upphafið að endinum og skilja allt hitt ennþá betur „ekkert annað en eldgamlar og nýlegar tyggjóklessur sem eru merki- legar fyrir ýmsar sakir“ Hver er be< leiðin til að Rósa Guðbjartsdóttir, fréttamaður á Stöð 2 „Ástarsambönd eru svo margvísleg og aðferðirnar til að slíta þeim fara því eftir eðli þeirra. „Þetta er ekkert persónulegt, ég er bara ekki tilbúin að binda mig"-fras- inn virkar ágætlega. Ef slíta á ástarsambandi sem logar af ástríðu en þarf vegna utanaðkomandi aðstæðna að binda enda á getur málið orðið erfitt. Yfirleitt verður að varpa sprengju." Ari Gísli Bragason skáld „Með því að senda rós, ekki rauða, því hún táknar líf- ið, heldur bleika, sem merkir dauðann. Bleik rós á að segja viðkomandi að þú viljir slíta sambandinu." Ingvar Þórðarson, staðarhald- ari á Hótel Búðum „Maður bara röltir út og finnur nýja." Megas tónlistarmaður „Það hefur ekki komið til að ég hafi þurft að slíta ástarsambandi. Maður slítur ekki ástarsam- bandi." Gunnar Þorsteinsson, for- stöðumaður Krossins „Ef það er ástarsamband þá 'slítur rbaður því ekki en ef það er fyrrverandi ástarsamband þá er best að koma heiðarlega fram og segja bara farir sínar ekki sléttar. Þetta snýst um heiðarleika og einlægni. Það er ekkert sem vinnur sterkar í þessum málum en það." Ragnhildur Vigfúsdóttir, önnur ritstýra Veru „Samkvæmt ráðleggingu Völu, samstarfskonu minnar, er best að hlusta á lagið 50 ways to leave yourlover með Paul Simon. Þar er örugglega að finna eitthvert nothæft ráð." Guðbergur Bergsson rithöf- undur „Konur notuðu þá aðferð hér áður fyrr að senda karl- manni svartan tvinna og klippa hann í sundur til að slíta ástarsambandi. Karl- menn skildu það. Þá voru konur jafnt sem karlmenn siðaðir í hugsun. Ég held að fólk sé ekki svona fínt í hugsun lengur. Ég held að það þurfi að nota handaflið til að slíta ástarsambandi í dag. Fólki hefur farið mjög mikið aftur vegna þess að ástin er nú miklu fremur lík- amleg en andleg. Áður var hún sambland af líkamlegri og andlegri ást en þó var hún meira andleg." Elín Edda Árnadóttir, myndlistarmaður, leik- IjipiipF ef þú þarft að gera það hvort sem þér líkar það betur eða verr getur það tekið óralangan tíma hafi ástarsambandið verið raunverulegt. Það þarf heldur ekki að vera nein lausn. Þetta fer líka oft eftir forsendum hverju sinni. Elísabet Jökulsdóttir Ijóðskáld „Klæða”sig í sexí undirföt, elda uppá haldsmatinn hans, tjá allar tilfinningar með tilþrifum. Fara svo saman í sund og bíó og gefa skýrslu um hvaða tilfinningar koma upp, fara svo til sálfræðings og halda áfram að tala um tilfinningar og um- fram allt að hlusta á hinn aðilann, fara saman í þriggja vikna sólarlandaferð, lesa allar skilnaðarbókmenntir og vera stöðugt á varðbergi hvernig manni líður. ANNARS að drekka sig blindfullan og segja: Þetta gengur ekki lengur." Hafi þetta t.d. verið hjónaband og börn í spilinu eru kringumstæð- urnar allt aðrar. Ég held að það sé afar erfitt að höndla slíkt nema fólk sé yfirmáta skynsamt, því undir slíkum kringumstæðum geta komið upp ýmsar tilfinningar sem viðkomandi kannast ekki við. Oft ansi Ijótar. En tilfinningasambönd eru misþroskuð. Ég hef líka séð fólk slíta ástarsamböndum án nokkurra afleiðinga og oft orðið undr- andi. Ég held að prófsteinninn á hvort það hafi verið ástarsamband ekki sé einmitt hvernig til°hefur tekist. Sem tilfinningavera held ég að maður slíti aldrei ástarsambandi. Maður hefur svosem átt í ást- ^arsamböndum um ævina — ekki mörgum að vísu. Hafi þau verið raunveruleg slitnar taugin aldrei. En tilfinningarnar eru missterkar." 4B PRESSAN FIMMTUDAGURINN 24. FEBRÚAR 1994

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.