Pressan - 24.02.1994, Blaðsíða 8
( LÍFIÐ EFTIR VIINIIMU )
Tequilavor
Leikhús
• Gauragangur. ★★1/2 Mér er
óskiljanlegt hvers vegna verkiö
var ekki bara látið gerast um 1970,
þaö hefði verið mun trúverðugra,
enda eiga klisjurnar sem vaða
uppi í því uppruna sinn á þeim
tíma. (FB)
Þjóðleikhúsinu sun. kl. 20.
lfild' ég væri
Affriku
Balchliðin
• Blóðbrullaup. ★★★ Ef þeim
Ingvari og Steinunni Ólínu tækist
að kveikja eldinn á milli sín væri
ég til í að sjá þessa sýningu aftur
og aftur og aftur. (FB)
Þjóðleikhúsinu, Smíðaverkstæði,
fim. og fös. kl. 20.
• Seiður skugganna. ★★★★
Það er ekkert falið, engin fjarlægð
frá ömurleikanum, þú gengur inn í
verkið og engist í klóm þessarar
fjölskyldu, sem að meira eða
minna leyti er fjölskylda okkar
allra.(FB)
Þjóðleikhúsinu, Litla sviðinu, lau.
kl. 20.
• Mávurinn. ★★★ Sýning sem
óhætt er að hvetja alla til að sjá,
ekki síst þá sem standa í þeirri
meiningu að Tsjekhov sé svo
óskaplega þungur höfundur. (FB)
Þjóðleikhúsinu, lau. kl. 20.
• Allir synir mínir. ★★★ í þessu
merka verki Millers er reynt að
takast á við hugmyndir hans um
glæp, ábyrgð, fjölskyldutengsl og
fleira, og allt sem þau mál snertir
er prýðilega vel túlkað. (MR)
Þjóðleikhúsinu fös. kl. 20.
• Skilaboðaskjóðan. Nýtt íslenskt
barnaleikrit eftir Þorvald Þor-
steinsson.
Þjóðleikhúsinu lau. og sun. kl. 14.
• íslenski dansflokkurinn. Ball-
ettar eftir Auði Bjarnadóttur, Mar-
íu Gísladóttur, Lambros Lambrou
og Stephen Mills.
Þjóðleikhúsinu fim. kl. 20 (frums.)
og lau. kl. 14.
• Eva Luna. ★★★★ Kjartan
Ragnarsson leikstjóri sannar hér
svo ekki verður um villst hæfni
sína sem leikhúsmanns. Hvert
smáatriði í sýningunni er úthugs-
að og fágað, hún rennur hratt og
áreynslulaust í rúma þrjá tíma, lif-
andi og gjöful og aldrei dauður
punktur. (FB)
Borgarleikhúsinu fim., fös., lau. og
sun. kl. 20..
• Elín Helena. ★ Fyrir utan nokkr-
ar vel samdar og vel leiknar senur
fannst mér Elín Helena alls ekki
sérstakt leikrit. Án þess að lýsa
atburðarásinni leyfi ég mér aö
segja að sagan sjálf sé langt frá
því að vera merkileg og uppbygg-
ing hennar bæði fyrirsjáanleg og
langdregin. (MR)
Borgarleikhúsinu, Litla sviðinu,
fös. og lau. kl. 20. Síðasta sýning
• Góðverkin kalla! — átakasaga.
Nýr íslenskur gamanleikur eftir
þrjá Þingeyinga sérstaklega sam-
inn fyrir leikara LA.
Samkomuhúsi Akureyrar fim., fös.
og lau. kl. 20.30.
• Bar-par. eftir Jim Cartwright.
Leikstjóri: Hávar Sigurjónsson.
Leikarar: Sunna Borg og Þráinn
Karlsson.
Leikfélag Akureyrar, SýntíÞorp-
inu fös. og lau. kl. 20.30.
Halldór Bragason, blúskóngur
íslands, er að spila á fullu með
hljómsveitinni Vinum Dóra urn
land allt. Þeir verða á Laugarvatni á
fimmtudagskvöld, Sauðárkróki á
föstudagskvöld og Hvammstanga á
laugardagskvöld. Það er því í nógu
að snúast hjá Dóra en PRESSAN
greip hann í bakhliðina.
Hvert er eftirlætisfarartœkið?
„Það er náttúrulega golfbíll. Ég
stefni að því að verða atvinnumað-
ur í golfi og spila með Michael
Jordan.“
Ertu hlynnturfjölkvæni?
„Nei, það er ég ekki. Það fer að
vísu eftir því hvar maður býr.“
Hefurðu verið í skátunum?
„Ég fór á einn ylfingafund og
fannst svo leiðinlegt að mér datt
aldrei í hug að fara affur."
Hverskonar gæludýr vœrir þú
helst til í að halda?
„Ég er nettur gæludýrahatari, en
kannski blettatígur. Þeir voru
gæludýr konunga forðum.“
Hvaðferðu oft í bíó í viku?
„Ég fer lítið í bíó, frekar á mynd-
bandaleiguna. Kannski 1/4, þ.e.
einu sinni í mánuði.“
Finnst þér Markús Örn Antons-
son sjarmerandi týpa?
„Alveg rosalega. Ég væri alveg til
í að fara í útilegu með honum.“
Hvaða skónúmer notarðu?
Hefur þig dreymt furðulega
drauma umfrægtfólk?
„Mig dreymdi einu sinni að
Jimmy Page (gítarleikari Led Zep-
pelin) væri garðyrkjumaður hjá
mér. Hann var að klippa limgerð-
ið. Þetta fannst mér mjög eðlilegur
draumur og Jimmy örugglega góð-
ur garðyrkjumaður svona í vak-
anda lífi.“
Hver er þinn eftirlætismeðlimur í
Ríó-tríóinu?
„Það hlýtur að vera Ágúst Atla-
son. Hann er skemmtilega búttuð
týpa og klikkar aldrei á bítinu eða
að vera með nýja strengi í gítarn-
um sínum. Hann er langflottast-
ur.“
Daðrarþú í vinnunni?
„Já, já, djobbið gengur út á það.“
Hver er uppáhaldsbókin?
„Það er breytilegt. Ég held nú
samt ef maður ætti að taka eina
bók með sér þá yrði það bókin
„Hjá vondu fólki“ eftir Þórberg.“
Hvor fmnst þér fyndnari: Geir
Haarde eða Margeir Pétursson?
„Ef það eru 10 fynd í einu spaugi
þá fengi Geir svona sirka 11/2 fynd
(sem telst falleinkunn) en Margeir
fær 3 fynd fýrir viðleitni. Hann
nær einu spaugi á þrentur árum.“
Hver er leiðinlegasta íslenska bíó-
tnynd sem þú hefurséð?
„Ingaló. Það gerðist ekkert.“
Hvaða dýr vildirðu helst vera?
„Ég mundi vilja vera fíll í Am-
buseli-þjóðgarðinum í
Afríku. Þá gæti enginn
traðkað á manni.“
Hvað telurðu þig hafa
fengið helst í vöggugjöf frá
móður þinni annars vegar
og frá föður þínum hitis
vegar?
„Ég held- að ég hafi
fengið mína léttu lund ífá
mömmu og fullkomnunaráráttu Stundarðu einhverja líkatnsrœkt?
ffá pabba.“ „Já. Ég lyfti kaffibollum — oft.“
Áttu fræga forfeður?
»Já.“
Hvað varstu gatnall þegar þú dast
fyrst í það?
„Ég held ég hafi verið 13 eða 14.
Þá var keyptur einn ákavítiskrypp-
lingur og drukkið einhvers staðar
bak við strætóskýli. Frekar leiðin-
legt fyllerí.“
Hvert ferðu þegar þú vilt láta þig
hverfa?
„A Billann. Úps! Þá er það bú-
ið.“
Hvort mundirðu heldur vilja vera
Bubbi eða Tolli Morthens?
„Ég rnundi miklu ffekar vilja
vera Tolli. Þá þyrfti maður ekki að
vera Bubbi Morthens.“
Hver er uppáhaldslíkamspartur-
inn þinn?
„Heilinn.“
Hvaða persónu sögunnar líturðu
helst upp til?
„Alberts Schweitzer, læknis í
Affíku.“
vm
■
I W
W®1
blí- Wm ' -• '
Þriðji bekkur Leiklistarskóla íslands sýnir um þessar mundir sittfyrsta opinbera verkefni. Það er leikrit sem hópurinn sjálfur hefur samið
ásamtÁrna Pétri Guðjónssyni, sem jafnframt er leíkstjóri. Verkið heitir Hljómsveitin og fjallar um krakka sem eru í bílskúrsbandi og ætla
að „meika" það. Halldóra Geirharðsdóttir alías Dóra Wonder, ein þeirra fimm sem eru á þriðja ári, segir að leitast sé við að ná þeirri
stemmningu sem myndast á rokkkonsert þ.e. dúndrandi „power". Það ætti ekki að vefjast fyrir Dóru, sem var meðlimur Risaeðlunnar. Öll spila
þau á hljóðfæri og mynda hljómsveitina sem leikritið dregur nafn sitt af. „Þetta er hrikalega fjölhæfur bekkur," segir Dóra, „við semjum alla
tónlistina sjálf og spilum." Sem sannir hljómsveitartöffarar fara karakterarnir að stoppa í nefið á sér með „spítti" og það hefur áhrif á fram-
vindu mála. Dóra vill að það komi skýrtfram að leikritið, sem varð til í spunavinnu, er ekki í predikunartón. „Hljómsveitin" tekur klukkutíma í
flutningi og var frumsýnd á laugardaginn. Næstu sýningar eru 4., 5. og 6. mars í Tónabæ. Einnig geta félagasamtök pantað sýninguna hjá Leik-
listarskólanum. Nemendur þriðja bekkjar eru: Halldóra Geirharðsdóttir, Sveinn Þórir Geirsson, Bergur Þór Ingólfsson, Pálína Jónsdóttir og
Kjartan Guðjónsson, sem einmitt er bróðir Árna Péturs.
I
8B PRESSAN FIMMTUDAGURINN 24. FEBRÚAR 1994