Pressan - 24.02.1994, Side 17

Pressan - 24.02.1994, Side 17
Sjónvarp • Ólympíuleikamir í LiUe- hammer ★★★★★ á RÚV á fimmtudag frá morgni til kvölds. If jú kant bít þem — djojn þem. Fimmtu- dagurinn er ein allsherjar sjónvarpsveisla hjá RÚV. Tæpir fimm tímar frá Lillehaminer með atriðum á borð við stórsvig kvenna, skíðagöngu kvenna o.s.frv. Og inn á milli er skotið góðgæti eins og SPK, Fréttaskeytum, Viðburða- ríkinu, Syrpunni og Þingsjá. Maður verður að fara að minnka við sig vinnu ef RÚV heldur uppteknum hætti. • Coltrane og kádiljákurinn ★★★ Coltrane in a Cadillac á Stöð 2 á föstudagskvöld. Robbie Coltrane er góður gæi, feitur og flottur á fcrð um Bandaríkin. • Tveir á toppnum 3 ★★★ Lethal Weapon III á Stöð 2 á laugardags- kvöld. Hvað er hægt að segja? Vel gerð hasarmynd. Dagskrá RÚV um þessa helgi er óhemjuþunn. Það er ekkerl t gangi af viti og það sem meira er: Enginn Baldtir! • í furðulegum félagsskap © Slaves ofNew Yorká Stöð 2 á fimmtudagskvöld. Úr dagskrárkynningu: „Frumleg kvikmynd sem fjallar um listagengi New York-borgar, liðið sem er of töff til að fríka út og of fríkað til að vera töff.“ Ef einhver fær bom í þetta verður sá kjörinn heimspekingur PRESSUNNAR. Hér fer misheppnuð mynd byggð á sögum Tama Janowitz um líf listagengis í New York. • Á rúi og 'stúi © Disorganized Crimeá Stöð 2 á föstudagskvöld. Það hringir á öllum viðvörunarbjöllum þegar kvik- myndir skarta sjónvarpssápuleikurum. Corbin Bernsen í LA Law er mættur í glötuðum kómidíu- trylli. Ótrúlega lélegt handrit effir leikstjórann Kouf setn gerði Stakeout. • Á faraldsfæti © Longshot á Stöð 2 á föstudags- kvöld. íslenski titillinn vekur hjá manni vonir, ein- liver af þessum töff Road-movies. Gamanið kárnar með enska titlinum. Og þétt fer að slá í hlutina þeg- ar kemur í ljós að myndin fjallar um tvo átján ára vini, annar vill verða fótboltamaður, hinn vill fara í veðmál og þeir taka þátt í keppni í fótboltaspili til að korna sér af stað?! En dauðadómurinn felst í aðalhlutverkinu: Leif Garrett, misheppnaðí poppsöngvarinn sera söng píkulegri röddu: „I was made for dancing, a-a-a-all night long.“ • í klóm arnarins © © Shining Through á Stöð 2 á laugardagskvöld. Löng, leiðinleg, ósannfærandi og illa leikin kvikmynd stútfúU af heimsku- legum klisjum sem: „Segðu mér af stríðinu, hvenær vakti það fyrst áhuga þinn?“ „Ég vissi að við kvöddumst á föstudegi því næsti dagur var laugar- dagur.“ © Hjartsláttur © Hcarthcnt á Stöð 2 á sunnudagskvöld. John Ritter er svo leiðinlegur að hann gæti drepið fiL • Sing © á Stöð 2 á sunnudagskvöld. „Dominic er svalur náungi sem getur dansað betur en flestir aðrir en hefúr meiri áhuga á að stela og slást." Hvað er hatnt Jónas R. að gera í innkaupaferðuin stnum? Þvílíkt samansafn af rusli. Svei tnér ef þetta minnir ekki ú söguna af Kidda rót þegar hnnn var sendur út eftir sketnmtikrafti, eyddi nánast öllum pen- ingnum og hafði bara efni á dvergnum (setn lék R2T2 íStar Wars) ogdraphatm áflugveHinum. Dýrt spark í pung Sagan af Qiu Jiu Háskólabíói ★★★ Því var einhvern tíma haldið ffam í jafnréttisumræðu sem ég tók þátt í að ef konur sýndu kynfærum karlmanna jafh- opinskáan áhuga og þeir sýna þeirra, þá hefðu þær ólíkt meiri völd í heimi hér. Qiu Jiu hefur af því nokkrar áhyggjur að eista mannsins hennar eigi ekld eftir að duga jafn vel í framtíðinni og það hefur gert hing- að til eftir að Wang, hreppstjórinn í þorpinu þeirra, sparkaði svona illa í klofið á bóndanum. Þeim hafði orðið sundurorða og í Kína, þar sem aðeins má eignast eitt barn og allir vilja strák, virðist samkvæmt þessari mynd eitthvað um það að talið sé til getuleysis karlmannsins að eignast stelpu. Hreppstjórinn, sem brotíð hefúr lög og eignast fjögur stúlkubörn í þeirri viðleitni sinni að reyna að fá strák, verður KVIKMYNDIR HALLUR HELGASOIXI Bíó • Kryddlegin hjörtu ★★★★ Stórskemmtileg mexíkósk kvik- mynd og vel heppnaður óður til ^ konunnar. Regnbogattum • Frú Doubtfire ★★★ Robin WOliams er drepfyndinn í þessari mynd, bæði sem kona og karl. Sambtóunum „ • Njósnararnir H Undercover ™ Blues Það er eitthvað að efnafræð- inni í henni sem gerir hana bjána- lega en ekki skemmtilega. Bíóhöllinni • Króginn ★★★ The Snapper Satt best að segja var ég að hugsa um að fara út eftir fyrstu tíu mín- úturnar. En svo kemur í ljós stór- skemmtileg mynd. Háskólabíói • Leið Carlitos ★★★ A1 Pacino hefur á tjaldinu návist sem er € mögnuð birting frumkrafta karl- dýrsins. ^ Háskólabíói • Hús andanna ★★★★ Til- finningaþrungnustu atriðin sleppa við að vera væmin, þótt þau kalli á vasaklút. ^ Sambíóunum æfareiður þegar eiginmaður Qiu Jiu hefur orð á því að hann sé í hænsnarækt. Á hvínandi steypinum drösla Qiu Jiu og óþreytandi mágkona hennar manninum á handvagni til læknis. En Qiu Jiu lætur ekki þar við sitja. Hún vill að réttlætínu sé fullnægt. Hreppstjórar geta ekki komist upp með að sparka í pung- inn á mönnum bara vegna þess að þeir eru hreppstjórar. Qiu Jiu vill að hreppstjórinn biðjist afsökunar. Hann er hins vegar of stoltur og þrjóskur til þess, hræddur um að tapa virðingu ef það myndi fréttast að hann væri að biðja fólk afsökun- ar. En þar hitti andskotinn ömmu sína hvað þrjósku varðar, því að Qiu Jiu lætur sig ekki fyrr en í fulla hnefana. Það þýðir ekki að henda í hana peningum, enda skipta þeir hana ekki öllu máli þótt fátæk sé. Hún vill að þau hjón verði beðin afsökunar og því réttlætí ætlar hún að fá fullnægt. Síðan rekur sagan ótrúlega stað- festu þessarar kínversku sveitakonu sem óþarfi er að rekja hér. Myndin er hins vegar í senn falleg og skemmtileg mannlífslýsing úr sveit í Kína. Sem slík fer hún með mann í alvöruferðalag. Einfaldleiki frá- sagnarinnar gerir hana svo trúverð- uga að manni finnst maður vera að horfa á raunverulega atburði en ekki leikrit á filmu. Maður sökkvir sér niður í líf þessara persóna og finnur til hluttekningar með þeim. Allt ber sveitafólkið vinalega um- hyggju hvað fyrir öðru og mitt í öll- um deilunum finnur maður ekki fyrir fjandskap á milli þeirra sem deila. Þetta kemur fallega í ljós þeg- ar Qiu Jiu missir mikið blóð þegar að barnsburði kemur og í tvísýnu stefnir með líf hennar, þá er það hreppstjórinn, Wang, sem reynist bjargvættur á raunastund og leiðir flokk manna í að hlaupa með hana á heimagerðum sjúkrabörum til næsta bæjar þar sem er spítali. Björgun sem gerir henni kleift að fæða heilbrigt barn sem er, nema hvað, strákur! Wang hreppstjóri segir æðrulaus við mennina, þar sem þeir slappa af yfir núðluskál eftir barnsnauðarhlaupið, að Qiujiu sé velkomið að sækja sig tíl saka eins og hún bara vilji. Á sama hátt kemur það illa við Qiujiu þegar kemur í ljós að á end- anum á Wang að fara í fangelsi að hann hafi tekið meira en helm- ing myndarinnar í felum svo fólkið uppgötvaði ekki að verið væri að taka. Þetta hefur örugglega allt að segja um það hvað myndin er trú- verðug. Á hinn bóginn er ljóst að aðalleikararnir hafa ekki farið á mis við góðan leikstjóra. Hæst ber leik eiginkonu Zhang, Gong Li. Gong Li er ein af fallegustu konurn ver- aldarinnar þótt ekki sé það undir- strikað á ytra byrðinu í þessari mynd. Hún er líka frábær leikkona og ber þessa mynd uppi með mik- illi reisn. Gervið og líkamsburðirnir sem óléttan kalla á eru aldrei fyrir manni, þvert á móti skín einlægni og sannfæring úr hverri hreyfingu Qiu Jiu. Kvikmyndagerðarmönnum eins „GongLi er ein affallegustu konum veraldarinnar þótt ekki sé það undir- strikað á ytra byrðinu í þessari mynd. Hún er líka frábær leikkona og ber þessa mynd með mikilli reisn. “ vegna málaferlanna sem hún hefur staðið fyrir. Það var alls ekki það sem hún vildi, hún vildi bara að hann bæðist afsökunar. Sagan af Qiujiu er fyndin og húmanísk. Hún er ekki fyndin í þeim skilningi að hún sé uppfull af bröndurum, heldur er hún uppfúll af gegnheilum persónum með til- burði og meiningar sem maður getur ekki annað en brosað yfir þótt maður beri fulla virðingu fyrir þessu sama fólki. Leikstjóri myndarinnar, Zhang Yimou, sem eitt sinn seldi úr sér blóðið tU að safna fyrir fyrstu myndavélinni, er ffábær sögumað- ur. Hann hefúr áður hlotið mfltíð lof fyrir samspil mynda og sögu- efnis og í þessari mynd hefúr hon- um ekki fatast flugið. Hann er að fást við realisma og hefur upplýst og rithöfundum er mislagið að skapa sögupersónur sem maður finnur að eru raunverulega af holdi og blóði en ekki bara klipptar út úr kartonpappír. I sögunni af Qiuju (þetta nafn er aldrei skrifað eins) sér maður sögu og fólk sem er jafn- auðvelt að trúa á og ef maður væri að horfa á beina útsendingu ffá kínversku sveitaþorpi. Hún er fyndin og einlæg og ættu kvik- myndasælkerar, ferðaáhugafólk og aðrir sem láta sig fagurkvikmyndir einhverju skipta ekki að láta þessa framhjá sér fara. Að sitja undir henni er eins og að ferðast til Kína en sitja samt á sama stað. Það er rétt að benda öðrum kvikmynda- áhugamönnum á að það eru engar þyrlur og vélbyssur í þessari mynd. HEITT • KAVALERAR sem gefa blóm og demanta. • KREPPAN það er að segja fái hún fólk til að ferðast meira en að byggja. Það skyldi þó ekki vera að menn kæmu víðsýnni und- an kreppunni. • DJASS svona nostalgíudjass líkt og er að gerast með rokkið, pönkið, diskóið og allt það. Sjá- ið bara Sólon, Fógetann og fleiri staði sem leggja meira upp úr sveiflunni en nokkru sinni og í flestum tilfellum þeirri mel- ódísku. • KJÚKLINGARÉTTIR í kjölfar kjúklingaútsölunnar. Kjúklingar eru eitthvert skemmtilegsta hrá- efni sem hægt er að hugsa sér. ímyndunaraflið, tötsið og krydd- ið er allt sem þarf. • FIR og allt það sem snýr að aldri og tíma. Hverjum kemur við aldur manns og hvað skiptir máli hvað klukkan er? • BARNSLEGT UTLIT það er í raun ekki heitasta lúkkið eins og haldið hefur verið fram. Þroskinn er 44 verða hinu barnslega yfirsterkara. • ÞRÖNGAR BUXUR sem sker- ast upp í rassinn á manni. Þær eru óþægilegar og aðeins örfá- ir sem bera þær. Sumartískan, með víðum, þægilegum og þunnum mjaðmabuxum, er tímabær. • ÓPERSÓNULEIKI hvort sem viðkemur fatastíl, hönnun, veit- ingastaðnum sem þú borðar á eða bílnum sem þú ekur — sem er t.d. með sögu hafi hann smá- beyglu. Skipulagt kaos á það að vera. i : 1 T víf mmmm mmmm Sm ■ Sm V Tvífarar vikunnar sanna svo ekki verður um villst að það er til eitthvað sem heitir „Star quality" (stjörnueigind?) og ákveðið stjörnuútlit. Divine og Vala Matt eru báðar (bæði?) flassí týpur, hvers manns hugljúfi og lygilega líkar. Divine er ívið glannalegriá máíningu og hárgreiðslu en stíllinn og smekkurinn er sá sami: Takið t.d. eftir eyrnalokkunum. Þá má ekki gleyma hinni guðdóm- legu útgeislun, sem er sú sama. Þreytt móðir Banvæn móðir Laugarásbíói ★ Banvæn móðir er óffumlegur og flatneskjulegur tryllir. Hún fjallar unr móður sem hafði látið sig hverfa einhverjum árum áður og vill nú fá að koma heim til eiginmanns og tveggja sona á ný. Þegar eiginmaðurinn hafnar þeirri beiðni, enda kominn með nýja, tekur hún til sinna ráða. Það er svosem allt í lagi að taka gömul trikk og nota upp á nýtt, það er líka í lagi að segja gamlar sögur affur og aftur. En þegar það er gert, þá verður að gera það þannig að bragð sé að. Banvæn móðir er ekkert sérlega bragðsterk. Hún er uppfull af gömlum þrill- er-töktum. Hún er frekar slaklega leikin af annars ágætum leikurum. T.d. finnst mér Peter Gallagher vera hér í hlutverki sem eiginlega bauð ekki upp á neitt og alls ekki neitt fyrir hann. Jamie Lee Curtis er kannski í besta sætínu í sínu hlut- verki og sleppur svosem vel ffá því. Það sem er að þessari mynd í heild er hvað hún er mikið inn-um-ann- að-út-um-hitt-dæmi. Leikstjórinn skilar þokkalega út- lítandi verki, enda fyrrverandi tökumaður, en samt er það svo að myndataka og klipping ná því stundum að draga athyglina algjör- lega að sér og ffá söguefninu, sem er ferleg gryfja að lenda í nema þar sem slíkt er hluti af frásögninni, en svo er ekki hér. Þessu má líkja viö - að maður gleymdi sér við lestur skáldsögu og vaknaði upp við það að vera farinn að spá í leturgerðina sem hún væri prentuð með. Á einhverjum forsendum virkar hún þó. Hún heldur manni við efnið frá upphafi til enda og sjokk- trikkin gömlu virka. Fyrir þetta má spá henni ffamhaldslífi sem sunnu- dagsleigumynd fyrir fólk sem hefúr ekkert betra að gera í þynnkunni. Fyrir unglinga sem nýlega eru farnir að stunda bíósýningar fyrir fullorðna, og hafa þarafleiðandi ekki séð allt áður, má gera ráð fyrir að þessi mynd sé ágæt afþreying. Fín ástæða fyrir fjórtán ára stelpur að kreista hendurnar á stráknum sem þær fóru með í bíó, eða þrýsí3^“ andlitinu á sér í hálsakotið á hon- um þegar sjokkin koma. Þetta segi ég með fullri virðingu fyrir fjórtán ára kvikmyndahúsgestum. Málið er bara að þeir sem eru búnir að stunda bíó í fimm til tíu ár, eða þaðan af meira, þurfa ekki fleiri svona, nema þær séu þeim mun betur gerðar. FIMMTUDAGURINN 24. FEBRÚAR 1994 PRESSAN 17B

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.