Pressan - 24.03.1994, Page 13

Pressan - 24.03.1994, Page 13
• Handalausa líkið Unmtural Causes á RÚV á föstudagskvöld. Bresk saka- málamynd byggð á sögu P.D. James um Adam DaJgliesh lögregluforingja. Ein af þessum góðu plottríku. • Hörður Þórðarson ★★★★★ veðurfræðingur á RÚV. Ákaflega við- feUdinn en umfram allt mannJegur náungi eins og þeir geta vitnað um sem sáu hann við frumraun sína sem sjónvaipsveðurfræðingur. Hann kennir okkur þá einföldu lexíu, sem svo oft vill gleymast, að rétt er að halda sínu striki sama á hveiju gengur. • Skáldið Hedd Wyn ★★★★ Hedd Wyn — The Armagcddon Poet á RÚV á fimmtudagskvöld. Myndin er tilnefiid til Óskarsverðlauna sem besta erlenda myndin t ár og sú fyrsta frá Wales sem nær þeim áfanga. • Ingólfur Iíannesson © á RÚV. Það má hugsanlega fyr- irgefa honum smámælgina og ofnotkun á lausum greini; Hinn, i svarti..., hin 41 árs... o.s.frv. En það að | vilja vera taglhnýtingur Magnúsar Sche- ving er ekki bara ófyrirgefanlegt heldur | fúllkomlega óskiljanlegt. • Lognið á undan storminum © Baby, the Rain Must Fall á Stöð 2 á fimmtudagskvöld. Bandarísk bíómynd frá 1965 með þeim Lee Remick og Steve McQueen. Látið ekki stjörnurnar gabba ykkur til að horfa á þessa mynd, sem helst ber vitni grátlcgri sóun á hæfileikum. • Kaupmaðurinn © Tai-Pan á RÚV á laugardagskvöld. Bandarísk bíómynd frá 1986. Óáhugaverð mynd með ruglingslegri fléttu. • Hamslaus heift ★★★ Blind Fury á Stöð 2 á laugardagskvöld. Þetta er fjári góð B-mynd með Rutger Hauer skolli flottan sem bUndan sverða- meistara. • Sporðaköst ★★★★★ á Stöð 2 á sunnudag. Ann- ar þáttur. Umsjón hefur Eggert Skúlason, sérfræðingur í að tvínýta tíma sinn. I þetta skipti kemst hann í Laxá í Aðaldal. Og áfram heldur getraunin: Hvað gerir Helgi Bjarnason, formaður Húsavíkurdeildar Laxárfélagsins, dagsdaglega? • Fólkið I landinu © Líf mitt er línudans á RÚV á sunnudag. Áður á dagskrá 1992. Hinn vemmilegi Hans Kristján Árnason ræðir við Tómas Andra Tómasson. Það má sjálfsagt spjaUa um hamborgara fram og aftur í góðum fiUng eins og til dæmis um harðfiskffamleiðslu. En þó að Baldur geti gert það er ekki þar með sagt að allir geti það. Baldur! Baldur! Baldur! • Annir og appelsínur © á RÚV á sunnudag. Þessi hryllingur cr eins klénn og nafnið gefúr til kynna. Var á dagskrá fyrir nokkrum árum og hefur alveg ábyggilega ekki elst vel. Snautleg býtti fyrir Rokkana sem gátu ekki þagnað. Jón Egill Bergþórsson verður að bíta í það súra epU að vera ekki eins hipp og nafni hans Gústafsson. Morðingj ar hins opinbera PELÍKANASKJALIÐ SAMBÍÓIN ★★★ Pelíkanaskjalið er spennu- mynd sem virkar. Hér fara saman vönduð vinnubrögð í öUum defldum og bærUega vel uppbyggð spennusaga. Sagan er byggð á sögu eftir John Grisham sem einnig skrifaði „Fyr- irtækið", sem nýlega sló í gegn í bíó. Það er leikstjórinn Alan J. Pak- ula sem hér fæst við efni eldd óskylt því sem hann hefur skUað frá sér með hvað mestum sóma. Hann veldur heldur engum von- brigðum. Myndin fjallar um laganema (Juliu Roberts) sem heldur við prófessorinn sinn (Sam Shepard). Þegar tveir dómarar úr hæsta- rétti Bandaríkjanna eru myrtir fer hún að grúska og endar með því að skrifa ritgerð með fremur lang- sóttri skýringu á því hver gæti stað- ið á bak við morðin. Eða svo held- ur hinn drykkfelldi lagaprófessor sem hún heldur við. Hann lætur Bíó # Kryddlegin hjörtu ★★★★ Stór- skemmtileg mexíkósk kvikmynd og vel heppnaður óður til konunnar. Regnbogatium # Frú Doubtfire ★★★ Robin Williams er drepfyndinn í þessari mynd, basði sem kona og karl. Sambíóunum # Leið Cariitos ★★★ A1 Parino hefur á tjaldinu návist sem er mögnuð birting frumkrafta karldýrsins. Háskólabíói # Hús andanna ★★★★ Tilfinninga- þrungnustu atriðin sleppa við að vera væmin, þótt þau kalli á vasaldúL Sambíóunum # Banvæn móðir ★ Hún er uppfull af gömlum þriller-töktum og frekar slaldega leikin af annars ágætum leikurum. Laugarásbíói # í nafni föðurins ★★★★ Þessi skrípa- leikur er sönn saga. Hann er eitthvert mesta hneyksli sem riðið hefur breskum réttarfarshúsum frá því pyntingar og lim- lestingar voru stundaðar í Tower of Lond- on. Háskólabíói # Dómsdagur ® Og þegar hann er drepinn kemur það ekkert á óvart, því ffam að því hefiir blikkandi ör nánast bent á manninn með textanum „þessi verður drepinn“. Laugarásbíói # Á dauðaslóð # Ef einhver iðnaðar- ffamleiðsla á Vesturiöndum hefur mengað andrúmsloffið jafnmikið á jafnfáum dög- um og tökumar á þessari mynd væri mál til komið að vekja athygli á því. Að henda inn umhverfisvemdarboðskap í þessa mynd er eins og að bjóða upp á mörflot með rjómatertu. BíóhöUinni KVIKMYNDIR HALLUR HELGASOIXI „Þó að Júlía standi sig mjög vel þá er það samt Denzel Washington í hlut- verki rannsóknar- blaðamanns sem stelur senunni. “ þó vin sinn hjá FBI, bandarísku al- ríkislögreglunni, fá afrit af ritgerð- inni og sá leyfir nokkrum aðilum öðrum að sjá. Því miður haíði stúlkan hitt naglann á höfuðið og mjög öflugt batterí, sem ekki vill að þessar vangaveltur komi fyrir al- menningssjónir, setur allar sína leynivamir í gang. Segi ekki meira um söguþráðinn. Leikarahópurinn er vel saman- settur og þó að Júlía standi sig mjög vel þá er það samt Denzel / \fj í 1 * f 0 . ý y Washington í hlutverki rannsókn- arblaðamanns sem stelur senunni. Fyrir utan að vera mjög trúverðug- ur í alvarlegri hliðum blaðamanns- ins á Denzel allnokkrar hláturpillur sem hitta beint í mark. Ef eitthvað er, þá var Denzel of löngum stund- um í burtu af tjaldinu. Sam Shepard hefúr nánast und- antekningarlaust fallið mér vel í geð í þeim kvikmyndahlutverkum sem hann hefúr tekist á hendur. Leikritaskáldið beygir ekki af þeirri braut hér í hlutverki drykkfellda og þunglynda lagaprófessorsins. Þama em líka ágætir John Heard í hlutverld lögffæðingsins hjá FBI, Stanley Tucci sem aðalleigumorð- inginn, John Lithgow sem ritstjóri Granthams (Denzels Washington) og Robert Culp sem nördinn í for- setastólnum. Samsæriskenningar alls konar hafa verið mjög vinsælt umfjöllun- arefhi í Bandaríkjunum síðan JFK Olivers Stone var sýnd. Þó að þessi saga tengist ekld neinu sérstöku máli em þessi tengsl stórra iðju- hölda og eignamanna annars vegar og stjórnmálamanna hins vegar stöðugt í skoðun. Það fer því vel á því að gera vandaða spennumynd sem byggir á jafnáþreifanlegum gmnni. Frásögnin heppnast vel og mað- ur er alltaf að bíða eftir því hvað gerist næst. Myndin er á góðu tempói allan tímann, nema rétt undrr lokin, þegar tognar aðeins á lopanum. Myndatalcan og lýsingin em vel unnið verk sem ásamt leik- myndahönnuninni undirstrika stemmninguna, fas persónanna og trúverðugleika atburðanna. Það er að vísu eitt og eitt smáatriði sem mætti tína til og neita að sam- þykkja, eins og t.d. hundurinn sem birtist óvænt í eltingaleiknum í bílageymslunni, sjokkerar og redd- ar málunum. En þegar heildin er þetta sterk sleppur svoleiðis. Pelíkanaskjalið er vönduð spennumynd sem óhætt er að mæla með. Hjúpur hinnar römmu taugar DREGGJAR DAGSINS STJÖRNU'BÍÓI ★★★t RNUBI f Hvemig á maður að koma orðum að listaverki sem snertir á jafnmörgum flöt- um og þetta? Ekki einasta eru Ant- hony Hopkins og Emma Thomp- son hér á sínum finustu nótum, heldur hafa þau með sér þvílíkan sannfæringarkraft kvikmyndagerð- armannanna, Ismaels Merchant og James Ivory, að maður er snortinn af upplifuninni. Félagamir tveir hafa á undan- förnum ámm getið sér gott orð fyrir framleiðslu á vönduðum fag- urkvikmyndum. Dreggjar dagsins verður að telj- ast langdregin kvikmynd fyrir fólk sem ekld getur sætt sig við annað en mekaníska framrás atburða. Myndin er hins vegar skemmtileg skoðun á samskiptum mannanna. Margir kannast eflaust við erfið- leikana sem geta fylgt því að brjót- ast úr viðjum vanans og leyfa ástríðunum að taka völdin. Túlkun Anthonys Hopkins og Emmu Thompson færir mann al- gjörlega inn í þá veröld forma og reglna sem „bötlerinn“ og ráðs- konan hrærast í. Loksins þegar þau tvö, sem öðlast ást hvors annars eftir langvarandi samstarf og skiln- ing undir þaki formfestunnar, ná saman, þá er það tuttugu árum of seint. Kannski er mest um að kenna rökfastri skyldurækni karls- ins, sem lætur engar tílfinningar trufla sinn gang, en les rámantískar ástarsögur í frítímanum til að ná fúllkomnara valdi á goðu ensku máli. Kaldhæðnin í myndinni er ekki síst fólgin í því að „lordinn“, sem einn fárra skilur ranglætið í upp- gjöri sigurvegaranna effir fyrri heimsstyrjöldina, er sakfelldur og rúinn æru vegna velvilja síns á ár- unum milli stríða í garð Þjóðverja, sem voru að kikna undan skaða- bótakröfúnum eftir stríðið. Dreggjar dagsins hefur ýmislegt að segja á milli línanna eins og al- gengt er um góðan texta. Það er nokkuð ljóst að í búningi mannúð-; ar vilja höfúndar þessarar myndar minna á það sem miður hefúr farið í samskiptum þjóða álfúnnar á þessari öld. Eflaust er þetta þörf áminning. Án þess að voga mér út í að túlka boðskap þessara sagnamanna verðor að benda á að sú um- ræða um samskipti þjóða, sem fram fer í myndinni, er ábend- ing til kjósenda í lýðræðisríkj- um Vestur-Evrópu um að sofna ekki verðinum um þau mál sem efst eru á baugi í álfúnni. Á persónulegri nótum má segja að Dreggjar dagsins hvetji meðaljóninn og -gunnuna til að láta eldd rútínuna skernma fyrfr sér hin fomu sannindi: Maður er manns gaman. Til reykvískra kj ósenda Ágætu reykvísku kjósendur. Skoðanakannanir em húmbúkk. Sá sem segir skoðun sína í könnun er óundirbúinn beðinn að taka af- stöðu fyrirvaralaust. Það er því hreinn vingulsháttur í pólitík að eltast við það sem fólk missir upp skólamálum, félagslegri þjónustu og annarri félagshyggju. Árni kallar þetta hörð mál því fólk vinnur við þetta og atvinnumálin em hörð. Það em semsagt engin mjúk mál til því fólk vinnur við allan and- skotann núorðið, þar liggur hund- OPIÐ BRÉF DAVÍÐ ÞÓR «IÓI\ISSOI\l úr sér í skoðanakönnunum. Þess vegna er það dæmigert að um leið og skoðanakannanir sýna að minnihlutaflokkarnir í borgar- stjóm geti með bellibrögðum sölsað undir sig völd Sjálfstæðis- flokksins skuli þeir fara að rotta sig saman xnn að slá ryki í augu al- mennings og fela sitt rétta andlit í sameiginlegu framboði. Svo klaufskir em þeir samt við það að ef maður vissi ekki betur mætti halda að þeir væm eldd einu sinni að reyna að fela sig. Hið fúrðulega er að þetta virðist ætla að takast samkvæmt skoð- anakönnunum. Ætlið þið virkilega að kjósa yfir ykk- ur sameinuð öfl glundroða og simdmngar? Þið vitið alltaf hvar þið hafið Sjálf- stæðisflokkinn. Þar ríldr festa og öryggi án íhalds- semi og kreddna, sem sést best á því að nú hafa Reykvíkingar notið þriggja borgarstjóra á einu kjör- tímabili. Sjálfstæðisflokkurinn brást strax við því að þið viljið hann í mun minna mæli en áður í borgar- stjóm. Fylgishmnið lýsir nefnilega hvorki óánægju með stefnu flokks- ins né forystu hans, eins og ffammámenn hans hafa hamrað á. Þið emð bara farin að vilja breyt- ingar breytinganna vegna og þess vegna hefúr Sjálfstæðisflokkurinn breyst breytinganna vegna. Það lýsir best lýðræðislegum vinnu- brögðum flokksins að hann skuli bregðast með þessum hætti við vilja kjósenda eins og hann kemur fram í skoðanakönnunum. Með ungu mönnunum, Áma Sigfússyni og Júlíusi Kemp, era komnar nýjar áherslur hjá Sjálf- stæðisfloklóium, án þess að nokk- uð hafi verið athugavert við þær gömlu. Sjálfstæðisflokkurinn er Jiinn sami og ævinlega, Sjálfstæðis- flokkurinn er enn flokkurinn á bak við Ráðhúsbygginguna og einka- væðingu almenningsvagna, þó nú séu áherslumar á dagvistar- og urinn grafinn. Ámi segir ennffem- ur í viðtölum að það sé betra að karlmaður standi í þessu en kona, því karlar séu harðir en konur mjúkar. Þetta veit hann, fjöl- skyldumaðurinn. Hlutverk kvenna I stjómmálum á því að vera í mjúkum málum. Ég skal játa það á mig að hafa ekki fylgst mjög nauið með Áma þau átta ár sem hann hefúr setið í borgar- stjóm, en hann hefur einmitt verið mest í hörðu málun- um, einkum dagvistar- og skólamálum. Ástandið í dag er ábyggilega hon- um að þakka, en böm hjónafólks þurfa ekki að bíða nema hálft annað ár effir dagvistarplássi ef engin börn sem njóta forgangs sækja um í milli- tíðinni. Enginn sem séð hefúr Veggfóður þarf heldur að efast um greind og getu Júlíusar. Sú mynd segir meira en þúsund orð um heilindi Júlíusar gagnvart fjöl- skyldustefnu Sjálfstæðisflokksins. Verst þykir mér að Steinn Armann Magnússon stórleikari sem í þeirri mynd fór á kostum í hlutverki Sveppa, hins síharða manns, skuli vera fjarri góðu gamni. Hann er búsettur í Hafnarfirði, illu heilli fyrir Reykvíkinga (þ.e. Steinn, ekki Sveppi. Fyrirmyndin að Sveppa er búsett í Reykjavík). Ef Ámi er sá sem hann gefúr sig út fyrir að vera má áreiðanlega finna harðorðar greinar eftir hann í gömlum Moggum þar sem Ráð- húsbyggingin er gagnrýnd og bent á að fjármununum sé betur varið til dagvistar- og skólamála. En Ámi er ekki að fela sitt rétta andlit og slá ryki í augu almennings eins og sumir. Ámi er nefnilega heil- indamaður, maður sem ælir ekki nema það sé flensa í Mogganum. Reykvísku kjósendur, þið hljótið þá stjómendur sem þið verðskuld- ið. Davíð Þór Jónsson „Með ungu mönn- unum, Árna Sigfus- syni og Júlíusi Kemp, eru komnar nýjar áherslur hjá Sjálfstœðisflokkn- um.“ SILFURSKEMMAN Silfurskartgripir frá Chile og Mexíkó Tilvalið til fermingagjafa! pið dagl. frá kl. 15-18, laugard. frá kl. 10-12 eða eftir samkomulagi. Sími 91-628112 FIMMTUDAGURINN 24. MARS 1994 PRESSAN 13B

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.