Pressan - 05.05.1994, Síða 4
p
ívn-hnr\i rr'irvn
Það var ekkert vændi
Kiddi Bigfoot, einhver kunnasti
diskótekari landsins, hefur komið
viðar við en á Berlín, Casablanca
og Deja vu. Hann var skemmtana-
stjóri í Uppi og niðri þegar fjörið
þar var sem mest. Hann segist
hvorki meira né minna en hafa bú-
ið Pan- hópinn til. „Fyrsta sinn
sem Haukur var með undirfata-
sýningu opinberlega var það í Sig-
túni, sem Bjarni í Dominos rak, en
þá hét það bara undirfatasýning.
Pan-nafnið á hópinn var ekki
kornið til. Ég fór og kíkti á þetta og
leist vel á, talaði við hann og réð
hann í fýrstu í tvær helgar. Þetta
vakti það mikla lukku að Vilhjálm-
ur Svan samdi við hann um að
halda áfram, virka daga lika. Stað-
urinn var fullur svo að segja í hálft
ár. Fyrst var þetta öllum opið en
síðan buðum við upp á sérstök
konukvöld annars vegar og karla-
kvöld hins vegar. Það var lengi tal-
að um að það væri bara subbulið
sem horfði á þetta en það var alls
ekki svo, þarna var mikið um fint
jakkafatalið, allar týpur. Effir að
samstarfi Svan og Hauks lauk var
Haukur með sýningar eitthvað
áffarn uns þeir fengu á sig ákæru
vegna nafnsins á hópnum. Það var
trésmiðjan Pan á Akureyri sem átti
réttinn á nafhinu. Þannig lauk
þessu dæmi. I kjölfarið stóð hann
fýrir leðjuslagnum um tíma.“
Varðst þú var við vœndi?
„Það var ekkert vændi. Sögusagn-
irnar urðu til út frá saklausum
hlut. Bæði stelpurnar og strákarnir
voru leigð út í einkasamkvæmi.
Það voru alltaf tveir menn með
þeim, yfirleitt ég og Jói með snúna
skeggið. Annar okkar stóð fyrir ut-
an dyrnar á meðan á sýningunum
stóð. Ef það urðu læti áttum við að
fara inn, sem varð nú aldrei. Þetta
var bara sýning. Oft var boðið í
þær og annað slíkt, reyndar á
hverjum degi. Sagan sagði hins
g^vegar að hægt væri að kaupa þær,
fiaen það var ekki rétt.“
Afdríf Hauks og lfil-
hjálms
Haukur Haraldsson hefúr komið
nálægt margvíslegum rekstri í
gegnum tíðina. Eftir að Pan-hóp-
urinn lagði upp laupana sneri
hann sér að því að stofna nýjan
stjórnmálaflokk. Þegar það gekk
ekki ffelsaðist hann og hélt til Sví-
þjóðar og síðar til Póllands, þar
sem hann boðaði fagnaðarerindið
um skeið. Þegar þvi lauk blandað-
ist hann inn í ólöglegan innflutn-
ing á merkjavöru hingað til lands,
flutti meðal annars inn Boss- og
Lacoste-vörur sem saumaðar
höfðu verið í Austurlöndum.
Urðu dómsmál út af því og fór
Haukur um svipað leyti til Tæ-
lands, þar sem hann hefur hreiðr-
að um sig á Pattaya-ströndinni.
Þar hefur hann komið nálægt krá-
arrekstri og aðstoðað Islendinga
sem þangað leita.
Vilhjálmur Svan Jóhannsson hef-
ur víða komið við í veitingarelcstri.
Fyrir utan Uppi og niðri rak hann
Tunglið um skeið, Villta tryllta
Villa og D14. Síðastliðið sumar var
Vilhjálmur Svan Jóhannsson
ásamt Jóhanni Jónmundssyni
handteldnn í Leifsstöð þar sem
fannst á Jóhanni bæði hass og am-
fetamín. Þessi handtaka leiddi af
sér að upp komst um Ólaf Gunn-
arsson, meintan höfuðpaur stórs
fílcniefhahríngs. I rnars á síðasta
ári Vilhjálmur dæmdur í Hæsta-
rétti fyrir stórfelld fjársvik. Allt
sem hann hefur verið sakaður um
hefúr hann játað. Eftir helgi hefst
einmitt málflutningur í stóra
fíkniefnamálinu svonefnda.
BB
Hvemig var Is-
land árið 1986?
í upphafi árs voru meint skattsvik Ómars Kristjánssonar,
eiganda Þýzk-íslenska, mikið í umræðunni. Krákan, undir
sfjórn Sigfríðar Þórisdóttur, var frumlegasti matsölustaður
bæjarins. Gallabuxnamerkið Lee Cooper var auglýst á bún-
ingum frægra skíðakappa. Ingmar Bergman kom til ís-
lands. Heimsmynd var stofnuð. Kuklið fór utan. Egill Ólafs-
son var kjörinn kynþokkafyllsti karlmaður landsins. Gleði-
bankinn komst í Evróvisjón. Eróbikk varð vinsælt. Gerður í
Flónni og Sævar Karl voru aðaltískunúmerin. Hafskipsmál-
ið náði hápunkti. Albert Guðmundsson sagði af sér sem
fjármálaráðherra. Picasso- sýning var á Kjarvalsstöðum.
Þá var froða í hárið kölluð skúm. Tímaþjófur Steinunnar
Sigurðardóttur kom út. Guffi á Gauknum var aðalvertinn í
bænum. Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni var hafnað sem
heimspekiprófessor. Páll Magnússon var ráðinn frétta-
stjóri Stöðvar 2. Aids-umræðan var í algleymingi. Jón Sig-
urðsson Þjóðhagsstofustjóri fór í framboð. Kvöldklæðnað-
ur fékk uppreisn æru með uppakúltúrnum. Safarí var vin-
sæll skemmtistaður. Guðrún Kristjánsdóttir
INDVERSKAI
PRINSESSAN
LEONCIE^H
HIN GULLFALLEGA,
DJARFA, INDVERSK/
ISLENSKA PRINSESSA
VILL SKEMMTA
UM LAND ALLT.
HINN
ÓVIÐJAFNANLEGI
GEISLADISKUR
„STORY FROM
BROOKLYN“,
SEM INNIHELD
HEIT LÖG
EINS OG
„SAVING MÝ
BODY FORYl
OGALVÖRUS
„SAFE SEX, TAKEMEJ
ERNÚFÁANLEGUR
AÐEINS HJÁMONCIE
-42878
sami
4B PRESSAN FIMMTUDAGURINN 5. MAÍ 1994