Pressan - 05.05.1994, Blaðsíða 16
Ari Singh hjá fslensk-austurlenska eða Ari í OROBLU eins og
flestir þekkja hann sýnir okkur vínbarinn sinn þessa vikuna.
Barinn á myndinni er að vísu aðeins sýnishorn af því sem hann
á eða eins og hann segir sjálfur „bara það sem er mest notað, hitt er
inni í skáp". Að auki reyndist Ari eiga Heineken-bjór í ísskápnum. Ari
segist þó ekki vera neinn vínmaður í þeim skilningi en sér finnist þó
mjög gaman að víni og sérstaklega sjaldgæfu víni.
Hverju ertu að hella íglasið?
„Þetta er snafs sem heitir „Aguaradende" (þýðir sykureyr) og er
notaður til að búa til sérstakan brasilískan drykk sem er mjög frægur
þar — svona þjóðardrykkur — og heitir „Caiprnia". Þessi drykkur er al-
veg það besta sem ég hef smakkað." Fyrir þá sem langar til að fá sér
þjóðardrykk Brasilíumanna er uppskriftin 1/3 Aguaradende, 1/3 sykur og
1/3 sítrónusafi + ís, en því miður verður að spæla þá sömu með því að
Aguaradende fæst ekki í Ríkinu.
Hvað er þetta „Ron Montilla " fremst á myndinni?
„Þetta er brasilískt romm, sem er mjög gott." Það fæst heldur ekki í
Ríkinu.
Síðan áttu þarna eitthvert Tequjla sem ég kannastekkertvið!
„Þetta er Tequila frá Mexíkó sem heitir „Jose Cuervu",,. Það er
ekki til í Ríkinu.
Ég sé að þú átt „Southern Comfort" og „Grand Marnier". Ertu mikið
fyrir líkjöra?
„Nei ég er ekki mikið fyrir líkjöra sjálfur en ég á þá fyrir gesti. Ég fæ
mérfrekar „Jim Beam" (viskí)."
Áttu rauðvín og hvitvín?
„Jájá. Ég á yfirleitt rauðvín og hvítvín en þó aðallega rauðvín og þá
„Chateau-Neuf-du-Pape"."
En bjór?
„Já, ég á yfirleitt „Heineken"."
Það er eitthvað afsterku þarna hjá þér!
„Já, ég á „Eldur ís"-vodka og „Beefeater" (gin)."
Þetta er bara toppurinn á ísjakanum hjá Ara því skápurinn leyndar-
dómsfulli var ekki kannaður til hlítar. T.d. leyndist þar sjaldgæfur líkjör
framleiddur í Hollandi sem heitir „Paan" og er búinn til úr betelhnetu-
laufum sem Indverjar borða mikið. Ari segir að þennan líkjör sé mjög
erfitt að fá, líka í Hollandi, þar sem hann er framleiddur. Það er helst að
nálgast hann á Bretlandi fyrir þá sem vilja.
Fyrirmynd barnanna
Tvær kynslóðir voru að rök-
ræða um breytta tíma. Hin
yngri, velmenntuð kona,
sagðist hafa mun betri tekjur úti á
vinnumarkaðnum en eiginmaður-
inn. Eldri kynsióðin, karlmaður yf-
ir miðjum aldri með eigið fyrir-
tæki, sagðist vera það gamaldags að
hann vildi að konan sæi um börnin
svo þau myndu líta upp til hans.
Börnin tækju móðurina sem sjálf-
sagðan hlut en pabbinn væri fyrir-
myndin sem þau ættu að líta upp
til! Er þetta ekki einmitt kjarni þess
vandamáls, sem við glímum við í
dag og hefur sett heiminn á heljar-
þröm, þegar börriin hefja föður
sinn á guðastall? Ég spyr hvort föð-
urfyrirmyndin hjá börnum í Rú-
anda eða Bosníu-Hersegóvínu sé tii
fyrirmyndar. Líta þau ekki upp til
pabba sem er úti að myrða og ætla
að verða eins og hann þegar þau
eru orðin stór!
Einstæðum mæðrum fer ört
fjölgandi á Vesturlöndum. Börn
vaxa upp án föðurímyndar og
móðirin kemur alfarið í staðinn. Er
þetta aðferð náttúrunnar við að
skapa heim friðar og farsældar?
Það er jú alkunna að náttúran leit-
ast ætíð við að koma á jafrivægi í
sérhverju formi, huglægu eða hlut-
lægu, og eyða því sem raskar jafri-
væginu. Yang-krafturinn hefur
ráðið ríkjum í nokkuð margar
milljónir ára en hann fylgir einnig
lögmáli kúrfunnar eins og allt ann-
að: sveiflast frá hágildi til lággildis.
Út frá því lögmáli má hugsa sér að
yang- krafturinn sé á niðurleið í átt
til lággildis en jin- krafturinn aftur
á uppleið til hágildis. Að sjálf-
sögðu hljóta þessir andstæðu
kraftar að skarast á miðri leið
og spurningin er hve lengi sá
tími varir, hvort það er hið
1.000 ára himnaríki á jörð
sem boðað hefur verið!
En yfir í aðra sálma. Grill-
tíminn er í nánd. Ýmsir keba-
bréttir úr hakki eru sérlega
góðir til að þræða upp á spjót
með grænmetisbitum og
leggja á grillið. Nú eða að búa
til hamborgara heima með
því að krydda hakkið og
hnoða og fletja.
Heimaiagaður
kebabréttur
Hráefrii: 400 g kjöthakk
(nauta-/svína-/lamba-), 1
laukur smáttsaxaður, 1/2 poki
Chili con Carne-blanda
Pottagaldra, 1-2 tsk. Arabíu-
seiður Pottagaldra, 2-3 msk.
tómatpuré, 2-3 msk. krydd-
edik, salt og svartur grófmul-
inn pipar. Grænmeti: T.d.
Paprika, bufflaukur, eggaldin
skorin í stóra pita, heilir
sveppir o.fl. Blandið krydd-
blöndunum saman ásamt
pipamum og hnoðið vel inn í
kjötið ásamt tómatpuré og
ediki. Saltið eftir smekk.
Gjarnan má setja dálítið af
hveiti út í kjötið til að þétta
það. Mótið kjötið í böggla og
látið standa í a.m.k. 24 klst.
Bögglana má svo þræða upp á
spjót og pensla með olíu á
meðan grillað er eða leggja
AÐEIHSl STiniTflHm..,
LYST
w
Leyfishafi McDonald's
íslensktfyrirtaki
íslenskar lanabúnaðarafurðir
Big Mac meö
4 kjöthleifum!
m
gMcDonaids
Góöur matur
Góö kaup
SUÐURLANDSBRAUT 56
omm
iGeta orðSL
nauðgað?
A f öllum sólarmerkjum að dæma mætti
^Aætla að ný-femínistar hefðu bolað öll-
um áttunda áratugs-femínistunum í burtu.
í stað karlahataranna, eins og sumir
hafa viljað kalla þær, hafa nú hvað mest
áhrif ungar glæsipíur á borð við Naomi
Woolf og Katie Ropiphe; konur sem ganga
á háum hælum, eru með rauðan varalit,
græða peninga og elska kynlíf.
En þótt ný-femínisminn hafi vakið mikla athygli er hinn gamli
ekki alls kostar horfinn. Fyrir skömmu fékk hann aftur byr undir
báða vængi með skrifum Catherine MacKinnon, sem er prófessor
í lögum við Háskóla í Michigan í Bandaríkjunum.
Nú kunna margir aö spyrja: Hvað kemur það þessum fja...
kynlífsdálki við?
Þannig er nú mál með vexti að nýlega sendi lagaprófessorinn
frá sér ritið Only Words eða Aðeins orð, sem olli miklum úlfaþyt í
Bandaríkjunum, einkanlega fullyrðing hennar um að óvelkomið tal
um kynlíf væri ekkert annað en óvelkomið kynlíf. Að hennar dómi
er skyldleiki á milli kláms og nauðgunar. „Að segja það er að gera
það og að gera það er að segja það." Hún viðurkennir ekki að
klámtal sé bara orð, hvað þá klámmyndir af beru fólki. Orð fljóta
að hennar dómi ekki ómeðvitað úr hugum manna, þótt þetta sé
ekki þannig að klám sem slíkt ráðist hvar sem er á konur. Fræði-
lega geti konur gengið óáreittar í yfirhöfnum sínum þar framhjá
sem klámmyndir eru á hverju horni. Það sé í raun ekki málið held-
ur hvað búi að baki framleiðslu þessa kláms. Klám er að dómi
MacKinnon undirrót alls ills í henni veröld. Máli sínu til stuðnings
tók hún dæmi um serbneska hermenn sem handtóku múslimskar
og króatískar konur og nauðguðu þeim áður en þeir drápu þær.
Það segir hún tilkomið af engu öðru en klámiðnaðinum.
Viðbrögð við skrifum hennar hafa verið á marga vegu. Meðal
annars svaraði henni fullum hálsi Carlin nokkur Romano, gesta-
kennari við Harvard-háskóla. Svargrein hans hófst á þessum orð-
um: „Gerum ráð fyrir að ég tæki þá ákvörðun að nauðga Catherine
MacKinnon áður en ég skoðaði bókina hennar. Af því ég er ekki
viss um hvort hún skynjar muninn á því að vera nauðgað og að
taka þátt í klámi liggur fyrir að yfirlýsingar hennar þarfnast rann-
sóknar áður en gagnrýni er sett fram, í þeim tilgangi að skoða
hvort hægt sé að leggja að jöfnu klám og nauðgun."
Fleiri lögðust á sveif með Romano og skrifuðu gagnrýnisgrein-
ar um skrif MacKinnon. Á endanum gerði blaðið Village Voice
samantekt um málið undir fyrirsögninni „The Puplic Rape of Cat-
herine MacKinnon".
En það voru ekki bara karlmenn sem svöruðu MacKinnon
heldur kvenfólk einnig. Þar á meðal dálkahöfundurinn Beatrix
Campbell, sem er þekkt kvenréttindakona. Hún segir MacKinnon
líta afar neikvætt á kvenfólk; þær séu í hennar augum allar fórnar-
lömb. Álit hennar á karlmönnum helgist einnig af bölhyggju; þeir
séu í raun allir mögulegir nauðgarar.
beint á grillið.
Grænmetið
einnig leggja í olíu-
lög með Chili con
Carne og Arabíu-
seið og láta liggja
leginum
n o k k r a r
klukkustundir
og grilla það
svo með kjöt-
inu.
Bökuð smálúða
með
villijurtum
Hráefni:
500 g smá- ;
1 ú ð u f 1 ö k, \
Villijurtir frá '
Pottagöldrum,
grófmulinn
hvítur pipar og
birkisalt. Skerið
smálúðuflökin í
hæfilega bita
sem henta
einm mann-
eskju. Roðið
þarf ekki að
fjarlægja nema fólk
vilji. Leggið flökin
hvert fyrir sig í ál-
pappír, stráið örlitlu af
Villijurtablöndunni
yfir ásamt pipar og
birkisalti. Lokið vel
með álpappírnum og
leggið á grill eða bakið í
ofni í 10—15 mín. Legg-
ið hvern böggul á disk
og berið ffam í álpapp-
írnum til að safinn úr
fiskinum glatist ekki.
Krydduð hrísgrjón
Til tilbreytingar með
hvaða rétti sem er má
gjarnan krydda hrísgrjón-
in í suðu eða steikja þau
fyrst í smáolíu og kryddi
og sjóða síðan. Margar
kíyddblöndur og krydd-
jurtategundir koma til
greina, t.d. Villijurta-,
Lamb Islandia- og Fiski-
kryddblöndurnar, Arabíu-
seiðurinn, birkisalt, Garam
masala og hvers konar karrí-
blöndur.
16B PRESSAN FIMMTUDAGURINN 5. MAÍ 1994