Pressan - 05.05.1994, Blaðsíða 7

Pressan - 05.05.1994, Blaðsíða 7
tt < s u»: Z mm i _x _rJ j _r^J J sJS0H Hjörtur Howser tónlistarmaður um myndina af sjálfum sér: „Shit. Þetta er eins og sjórekið lík. Sjómaður sem var svona rosalega harður að hann var alltaf á krepskyrtunni úti á dekki með bindi. Hann hefur látið sér fátt fyrir brjósti brenna. Nei, hann er líklega með lífi og þá er spurning: Er þessi maður að kíkja neðanfrá og upp eða ofanfrá og niður? Og erum við þá undir vatninu? Ég geri mér ekki alveg grein fyrir því. Það má þó greina í augunum djúpan skilning á mannlegu eðli. Mér virðist sem hann hafi verið að gráta mikið og þá gæti allt þetta vatn verið einn táradalur. Hann gæti ver- ið að gráta örlög heimsins, stríðið í Bosn- íu og það allt eða hann er að gráta eigin örlög. Maður merkir það ekki af þessu portretti en það er annað tveggja: Þessi vitund alheims, táradalurinn holdi klædd- ur, eða þessi innhverfi maður sem er að gráta eigið hlutskipti. Þetta er greinilega ekki maður sem tranar sér mikið fram. Það merki ég á þessu djúpa augnaráði. Hann vill vinna bak við tjöldin og gleðst meira yfir árangri verka sinna. En af hverju er hann svona sorgmæddur? Hvað veldur þessu brostna hjarta? Kannski tekst honum ekki að vinna hjarta sinnar heittelskuðu. Þessi maður er snyrtimenni. Það má merkja á skyrtunni og bindinu og hvernig hárið og skeggið er klippt: Tiltölu- lega villt en þó svo að hófs er gætt í hví- vetna. Þessi maður er ástfanginn, hann heldur sér til. Hann vill líta vel út — þetta er enginn skíthaugur. Skeggið er hvergi skorið nema í kringum munninn sem ertil að gera hann kyssilegri. Hann er síðróm- antískur í sér. Hvað heitir hann aftur? Ekki don Juan heldur hinn, hérna ... — Já, fyrirgefðu, er þetta ekki vettvangur til að reyna við píur? Jæja, hann er annað- hvort heimspekingur eða tækifærissinni. Hann starfar sem ráðgjafi ríkisstjórnar- innar í efnahagsmálum, það leynir sér ekki. Þú horfir á þennan mann og sérð það á fimm sekúndum. Hann er doktor í þjóðhagfræði og hefur atvinnu af að ráð- leggja, ekki bara ríkisstjórn íslands held- ur hinna ýmsu Evrópuríkja, ja, alls hins vestræna heims. Þessa vegna er hann svona sorgmæddur. Það er allt á hverf- anda hveli og hann sér það fyrir. Þetta er óvenjusterkur svipur og maður gleymir þessu andliti ekki svo glatt. Ég kannast við manninn — hef séð honum bregða fyrir. Ég hugsa að hann búi yfir mjög djúpri visku og þekkingu en hann er jafn- framt innhverfur og þetta er ekki maður sem maður sér fyrir sér í fjölmiðlahlut- verki, hann er ekki fréttamaður, ekki út- varpsmaður hvað þá poppari. Maður sér það bara á húðinni, sem er mjög fín, að hann neytir hvorki víns né reykir tóbak. Allt hans atgerfi er þannig... ég meina, þessar breiðu og miklu axlir... Þetta er greinilega maður sem axlar ábyrgð í þjóðfélaginu." Astarvíóla aða „Viola d’am- ore“ er dálítið sérstakt hljóðfæri en mjög fallegt. Hún er með útskorið kvenmanns- höfuð á endanum þar sem er yfir- leitt snigill á fiðlum. Yfirleitt er konan annaðhvort með lokuð aug- un eða bundið fyrir þau til að und- irstrika að ástin er blind. Stundum er þó Amor, ástarguðinn, í staðinn fyrir konuna,“ segir Svava Bern- harðsdóttir lágfiðluleikari, en hún leikur á þetta sérstaka hljóðfæri á tónleikum í Norræna húsinu fimmtudaginn 26. maí. Þetta er í fyrsta sinn sem haldnir eru opin- berir tónleikar á ástarvíólu hér á landi. Svava lærði á ástarvíóluna í Basel í Sviss í sérstökum skóla sem kenn- ir á gömul hljóðfæri. „Það er kom- in ný stefna innan klassísku tónlist- arinnar að spila á hljóðfæri eins og þau voru á tímum tónskáldanna. Þetta er orðin heilmikil tíska og stúdía. Það er líka verið að endur- uppbyggja gömul hljóðfæri sem féOu svo úr tísku, því það voru ekki öll hljóðfæri sem þoldu nýja teg- und af tónlist. Fiðlan gat alltaf þró- ast með en önnur hljóðfæri duttu út. Ástarvíólan er ein af þeim hljóðfærum sem var hætt að spila á um leið og barroktímabilinu lauk. Hún var svona drottning og voða fin á 18. öld og féll svo alveg úr tísku.“ Hvernig er ástarvíólan frábrugðin venjulegri víólu? „Ástarvíólan er svipuð að stærð og víóla en í staðinn fyrir að hafa fjóra strengi eins og víólan hefur hún sjö strengi og líka aðra sjö samklingjandi. Þetta gefur henni alveg sérstakan hljóm, sem þótti líklegast rómantískur og þess vegna hefur hún verið kölluð ástarvíóla. Ástarvíólan er æðisleg þegar maður spilar hljóma því það er hægt að spila á svo marga strengi í einu. En það er ástæðulaust að nota hana nema fyrir tónlist sem er samin fýrir hana.“ Hvemig liggja þessir sjö sam- klingjandi? „Þeir liggja neðar en hinir. Mað- ur ýtir ekki á þá. Þeir bara klingja með.“ Þarf maður að stilla þá líka? „Jájá, þeir verða að vera alveg hreinir og finir. Það hefur einmitt verið mikið gert grín að því að vegna fjölda strengjanna yrði mað- ur að stilla hljóðfærið strax eftir morgunmatinn ef tónleikar ættu að vera um kvöldið. Hins vegar er annað tónbil á henni en venjulegri víólu þannig að maður þarf að hugsa allt upp á nýtt. I stað fimm nótna milli strengja, þannig að maður notar alltaf sömu fingra- setningu, þá eru stundum fjórar og stundum þrjár og þær heita sitt á hvað eftir því hvaða lag maður er að spila. Maður stillir eftir lagi.“ Þetta ergreinilega ekkertfyrir við- vaninga að lœra á? „Nei. Maður lærir hægt, því það þarf að setja sig alveg inn í nýjan hlut.“ Þess má geta að Matej Sarc, óbóleikari og maðurinn hennar Svövu, spilar með henni í tveimur verkanna á tónleikunum. Matej þessi er frá Slóveníu og spilar einn- ig á tónleikum næstkomandi sunnudag í Listasafni Sigurjóns Ól- afssonar. Þar mun hann frumflytja verkið „Dúó“ eftir Þorkel Sigur- bjömsson tónskáld, en Þorkell samdi verkið sérstaklega fýrir Matej. Bergdís Sigurðardóttlr „Ástarvíólan er æðisleg þegar maður spilar hljóma því það er hægt að spila á svo marga strengi í einu.“ FIMMTUDAGURINN 5. MAÍ1994 PRESSAN 7B

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.