Pressan - 05.05.1994, Blaðsíða 14
Hverjir eru bestu ocg verstu veitingastaðir á íslandi?
Er ódrekkandi kaffi á Grillinu á Sögu? Er
Holtið virkilega besti veitingastaður á íslandi? Er eini
almennilegi ítalski maturinn á La Primavera?
Ber A. Hansen enn fram ís með agúrku-
sneiðum? Er of mikið salt í pylsunum á Bæjarins bestu?
1
11
V f
PRESSAN bað fimmtán matháka að segja sér hvar væri best og hvar væri verst að borða á íslandi. Hér eru niðurstöðurnar.
Ráðgjafar (sælkerar) PRESSUNNAR:
Steingrímur Sigurgeirsson blaðamaður
Hra£nhildur Valbjömsdóttir verslunareigandi
Guðbjörg Gissurardóttir grafískur hönnuður
Ólafur Ingi Ólafsson á íslensku auglýsingastofunni
Stefán Karlsson ljósmyndari
EgUl Helgason blaðamaður
Rolf Johansen stórkaupmaður
Edda Helgason viðskiptafraeðingur
Hannes Hóhnsteinn Gissurarson dósent
Óskar Borg stórkaupmaður
Óskar Jónasson kvikmyndagerðarmaður
Helga Guðrún Johnson kynningarfulltrúi
Óli Bjöm Kárason ritstjóri
Sigurjón Skæringsson rokkari og sælkeri
Þorlákur Einarsson fésýslumaður
auk annarra sem enn em með í maganum.
Þeir bestu
HÓTEL HOLT ★★★★★★★
„Hótel Holt og Grillið á Sögu eru
staðir sem standa alveg upp úr.
Þetta eru staðir sem bregðast ekki.
Þeir eru stabílir ár eftir ár.“
„Þar hef ég setið við sama borð í
þrjátíu ár, þó ekki samfleytt!"
„Klassískur góður matur í listrænu
umhverfi.“
„Býður upp á ljúffengan mat, rólegt
og menningarlegt umhverfi og
óaðfinnanlega þjónustu."
„100 prósent staður með pottþétta
koníaksstofu.“
„Þar er maður 100 prósent örugg-
ur. Þjónustan þar er með því besta
sem gerist — uppfull af tilfinningu.
Þeir hljóta að hafa erlenda sérfræð-
inga á bak við sig.“
„Ég gef Holtinu ekki hærri einkunn
en þriðja sæti yfir góðu staðina.
Það er fyrsta flokks hvað varðar að-
stöðu, þjónustu og umhverfi en
mér finnst maturinn ekki nógu
góður — hann er bragðlaus fýrir
minn smekk.“
VIÐ TJÖRNINA ★★★★★★
„Rótgróinn staður með góða
reynslu.“
„Frábær matur og gott andrúms-
loff.“
„Frumlegir ferskir fiskréttir.“
„Sérlega góðir sjávarréttir, og þar er
alltaf notalegt að vera.“
„Fyrir utan matinn er þarna ákaf-
lega notalegur og þægilegur bar.
Fiskréttirnir gera staðinn.“
„Það er þetta bóhem-andrúmsloft.
Heildarsamsetning staðarins; borð-
búnaðurinn, matseðillinn, brauðið,
maturinn, húsgögnin. Þarna er allt
í stíl.“
CAFÉ ÓPERA ★★★★★★
„Bragðmikill og skemmtilegur
matur, góð þjónusta, vín í hæfileg-
um verðflokki og skemmtilegt um-
hverfi. Þetta er uppáhaldsveitinga-
staðurinn minn.“
„Ég mundi flokka hann undir góðu
staðina en þó verð ég að segja að
maturinn hefur versnað mikið
þarna að undanförnu.“
„Þar er pottþéttasti servis sem
maður fær. Maturinn er fínn og í
samræmi við þessa fínu þjónustu."
„Einn aðalkosturinn er hversu lengi
staðurinn er opinn, auk þess sem
maturinn er vel útilátinn og and-
rúmsloftið fjörugt."
„Enginn staður býr yfir jafn-
skemmtilegri stemmningu og svo
er þjónustan fýrirtak. Maturinn er
alltaf góður.“
„Klikkar ekki.“
GRILLIÐ Á SÖGU ★★★★
„Hótel Holt og Grillið á Sögu eru
staðir sem standa alveg upp úr.
Þetta eru staðir sem bregðast ekki.
Þeir eru stabílir ár eftir ár.“
„Maturinn er sjálfsagt misjafn en
maður kemst í þægilega væmna
stemmningu þegar maður horfir á
borgarljósin úr Grillinu á Hótel
Sögu.“
„Góður matur, góð þjónusta og
fagurt útsýni."
„Er alltaf í góðu gildi, þar er mjög
góð þjónusta."
SÍAM ★★★
„Maturinn er æðislega góður og
það er það sem fólk sækir í. Þessi
staður hefúr unnið á á góðum mat
og ekkert svo dýrum. Umhverfið er
að vísu óspennandi og þar fær
hann mínus. Þetta er nú kannski
ekki beint rómantískur staður.“
„Maturinn er mjög góður en það
mætti vera meira lagt í staðinn
sjálfan.“
„Þar er ákveðinn hnetusósuréttur
sem er ómótstæðilegur. Svo er líka
rosalega flottur tréfíll þar inni. Mig
hefúr off langað til að stela honum
en hann er eins og þriggja mánaða
filabarn og ég hugsa að ég mundi
ekki loffa honum.“
LA PRIMAVERA ★★★
„Djörf matseld. Þeir hófu ítalska
matargerð á æðra plan.“
„Óaðfinnanleg þjónusta og undan-
tekningarlaust frábær matur.“
„Mjög góður matur en mætti vera
aðeins vistlegra umhverfi, svolítill
stofnanabragur á því.“
ÓÐINSVÉ ★★★
„Það er alltaf gaman að koma
þangað. Þar er líka dálítið sniðugur
matseðill, góð fiskisúpa en þeir
mættu þó hressa upp á kjötið hjá
sér, ágætt verð á víninu og góð
þjónusta.“
„Besti lax í heimi. Besti hóprétta-
matseðill í bænum og gott verð.
Budduvænn staður.“
„Einfaldur en góður matseðill,
sanngjarnt verð og góð þjónusta."
SKÓLABRÚ ★★★
„Fær plús fýrir mat og frábært um-
hverfi en þjónustan þar er hörmu-
leg, sem gerir að verkun að hann er
ekki í hópi allra bestu staðanna.“
„Góður matur, skemmtilegt um-
hverfi."
„Hugmyndarík matargerð og nýj-
ungar sem heppnast vel. Húsið er
líka einstaklega fallegt."
HORNIÐ ★★
„Heimilislegt og kósí að koma
þangað. Mjög góð þjónusta og
þokkalegur matur.“
„Af því að staðurinn hefur ekki
breyst neitt í meira en fimmtán ár
og af því ég veit að það hefur kost-
að talsverða fýrirhöfn.“
HÓTEL VALHÖLL ★
„Ég get hugsað mér fátt betra en að
sitja um sumarkvöld í hornsalnum
á Hótel Valhöll á Þingvöllum og
snæða silung úr vatninu."
HÓTEL BÚÐIR ★
„Óþvinguð utan-höfuðborgar-
stemmning og algjör sælkeramat-
ur.“
HÓTEL LOFTLEIÐIR ★
„Hann hefur algjörlega tekið
stakkaskiptum að undanförnu til
hins betra en ég mundi ekki flokka
hann í hópi þeirra allra bestu vegna
þess að það er ekki komin nógu
mikfl reynsla á hann.“
VIÐEY ★
„Það er bara svo rómantískur stað-
ur á fallegu vorkvöldi. Maturinn er
þokkalegur en það er aðallega stað-
setningin sem gerir þennan stað
góðan.“
FRIKKI OG DÝRIÐ ★
„Fyrir frábært salat og góða þjón-
ustu.“
HARD ROCK CAFÉ ★
„Klikkar aldrei.“
BANTHAI ★
„Verulega notalegur staður og fínr
matur.“
ASKUR ★
„Þar er að öllu jöfnu alltaf góðu:
matur.“
STAÐARSKÁLI ★
„Ef þú ert orðinn þreyttur á keyrsl
unni er alltaf gott að stoppa í Stað
arskála. Þó ekki væri nema tfl að f;
sér pylsu.“
ARGENTÍNA ★
„Pottþéttar steikur þama, mjög góc
þjónusta og í alla staði ágætur stað-
ur. Að vísu eru nautshúðirnar sen
maður situr á orðnar dálítið þreytt-
ar, þær stinga mann.“
JÓNATAN L. MÁVUR ★
„Sallafín þjónusta og pottþéttui
matur.“
MARHABA ★
„Alveg sérlega skemmtflegur stað-
ur. Exótísk matargerðarlist oj
stemmningin í finu lagi.“
14B PRESSAN FIMMTUDAGURINN 5. MAÍ1994