Pressan


Pressan - 09.06.1994, Qupperneq 4

Pressan - 09.06.1994, Qupperneq 4
Svört skýrsla skoðunarmanns ársreikninga Kópavogs Eyða fyrir 500 milljónir umfra skatttekjur á á Skuldir Kópavogs hafa náð hættumörkum samk skilgreiningu ritsins Fjármál sveitarfélaga og rúní lega 100% betur. I athugasemdum tveggja kjör- inna skoðunarmanna ársreiknings Kópavogs kemur fram hörð gagn- rýni á marga liði í rekstri bæjarins og fjármálalega stöðu hans. Þetta eru skýrslur þeirra Loga Kristjáns- sonar og Haíldórs Jónssonar. Ekki verður annað séð en fjölmörg þess- ara atriða stangist á við fullyrðingar forráðamanna bæjarins um batn- andi stöðu bæjarsjóðs. Logi sendi frá sér nú 2. júní ítar- legar athugasemdir þar sem hann bendir á tjölmörg gagnrýnisatriði. Um Jón Baldvin og Jóhönnu? „Jón Baldvin bauð fram gegn sitjandi formanni, Kjartani Jó- hannssyni, og sigraði með glæsibrag. Ég er ekki viss um að hann vinni Jóhönnu með glæsibrag, enda hef ég mikið álit á henni. Jón Baldvin á að setja upp leikrit með Davíð Oddssyni og ferðast um landið og skemmta þjóðinni þar sem þeir geta logið og sagt ósatt eins og þeir hafa gert í þessari ríkisstjórn. Það veitir ekki af að skemmta þjóðinni eftir óstjórn þessara manna. Ég hef mikið álit á Jóhönnu, hún fylg- ir málum vel eftir og er föst fyrir þótt flest málin stoppi hjá Jóni. Ég vona að kvenþjóðin sigri með glæsibrag eins og Ingibjörg Sólrún gerði. Jó- hanna er góð kona og guðræk- in og ég álykta að hún vilji segja þjóðinni satt og rétt frá." Um skatttekjur segir hann að þær hafi verið 48 milljónum lægri en á árinu 1992 eða sem nemur 3,3%. Rekstrargjöldin hækka hins veg- ar um 109 milljónir í fýrra eða 7,5% á milli ára. Á sama tíma hækka rekstrargjöld (skattar og þjónustugjöld) um 86 milljónir eða 18,8%. Segir Logi í skýrslu sinni: „Breytingar milli áranna 1992 og 1993 benda til þess að almenns slaka sé farið að gæta varðandi að- hald í rekstri og af hækkunum á rekstrargjöldum og rekstrartekjum ætti að vera ljóst að samanburður við árið 1989 er óhagstæðari en var sl. ár.“ Breytingar á greiðslubyrði skammgóður vermir Greiðslubyrði lána nettó var 363 milljónir króna síðasta ár, eða 25% af skatttekjum, en var 38% árið 1992. Logi segir í skýrslu sinni: „Þessi lækkun á milli ára lítur já- kvætt út en er því miður aðeins skammgóður vermir vegna þess að á árinu 1995 til 1997 bendir flest til að greiðslubyrðin verði meira en 100 milljónum hærri á ári en nú er.“ Rekstur og nettó greiðslubyrði lána námu á árinu 1993 96% af skatttekjum. 4% skatttekna voru því til framkvæmda en framkvæmt var fýrir sem nemur 32% af skatt- LOGI KRISTJÁNSSON Telur að fara verði út í þriggja ára áætlun til að bjarga fjárhag Kópavogs. tekjum. Fjárfestingar ársins næmu 766 milljónum króna nettó ef sala á hlut í Hitaveitu Reykjavíkur fyrir 300 milljónir hefði ekki komið til. Logi segir: „I þessar miklu fjárfest- ingar er ráðist þrátt fyrir að fyrirsjá- anlegt hafi verið að lítið fé var til þessara framkvæmda nema lánsfé.“ Um 160 milljónir vantar til dæmis til að gatnagerðargjöld standi undir gatnaframkvæmdum. Logi tekur GUNNAR I. BIRGISSON OG SIGURÐUR GEIRDAL Hafa endurnýjað samstarfið þannig að þeir verða að bregðast við aukinni greiðslubyrði lána, sem má rekja til fyrra kjörtímabils þeirra. þó fram að hann telji að sala á hita- veituhlutnum hafi verið rétt vegna bágrar fjárhagsstöðu. Slæm afkoma fjórða árið í röð Þá bendir hann á að afkoma árs- ins sé neikvæð um 390 milljónir sem nemur 26% af skatttekjum. Logi: „Þetta er mjög slæm afkoma fjórða árið í röð og afleiðingar þess- arar fjármálastjórnar má lesa af nei- kvæðri peningalegri stöðu, sem þegar er komin í óefni. Á síðustu fjórum árum hefur tæpum tveimur milljörðum verið ráðstafað um- frarn skatttekjur eða sem nemur sameiginlegum tekjum ársins 1993 og þriðjungi betur.“ Þá segir Logi að peningaleg staða Kópavogs hafi verið neikvæð um 1.695 milljónir króna í árslok 1993 og versnað um 59 milljónir á árinu. Neikvæð peningaleg staða (nettó skuldir) hækkaði um 10% sem hlutfall af skatttekjum. Bendir Logi á breytingar sem hefðu getað gert úditið enn verra: „Ef ekki hefði komið tii flutnings á félagslegum íbúðum yfir á húsnæðisnefnd á ár- inu hefði peningaleg staða orðið 2.006 milljónir eða versnað á árinu um 370 milljónir.“ Þá hefur veltu- fjárhlutfall versnað úr 1.19 í 1.17. Um skuldir segir Logi: „Skuldir Kópavogs samtals voru í árslok 1993 2.952 milljónir, eða 172 þús- und á hvern íbúa, sem svarar 196% af skatttekjum ársins. Miðað við árslokaverðlag 1993 er um að ræða verulega skuldahækkun á árinu 1993. Nemur hækkunin 455 millj- ónum. Bendir Logi á að greiðslu- byrði lána verði hátt í 500 milljónir á ári út kjörtímabilið sem nú fer í hönd. Segir hann að Kópavogur ■hafi náð hættumörkum samkvæmt skilgreiningu ritsins Fjármál sveit- arfélaga og rúmlega 100% betur. í lokaorðum sínum bendir Logi á að ársreikningurinn lýsi vel erfiðri fjárhagsstöðu Kópavogs. Telur hann rétt að hrinda af stað þriggja ára áædun til að finna leið út úr fjárhagsvanda Kópavogs. Sigurður Már Jónsson YFIRHEYRSLA Þetta komst ekki upp í Þjóðarsálinni Hefur þctta gerst áðitr? „Nei, ekki man ég eftir því, að minnsta kosti ekki eftir að ég byrj- aði hérna fyrir tjórum árum.“ Hvernig n fólk nð getn treyst því að stmreiknirtgurÍHii sé réttur? „Vegna þess að þegar þessi bilun kom fram þá fór það ekkert á milli mála og við sáum það hérna hjá okkur að eitthvað var ekki alveg í lagi. Allir sem eru í stafræna kerf- inu geta auk þess bcðið um að fá sundurlíðaða reikninga og fylgst þannig sjálfir með notkun sinni.“ Er einhver tiygging til fyrir þvi? „Já, vegna þess að bilunin gerir ekki upp á milli fólks og leggst jafnt á alla. Þama höftim við dl dæmis grun um að þetta hafi gerst hjá öllum þeim sem töluðu út á land á ákveðnu tímabili." Komst ekki máliö ttpp vegna þess að viðskiptavinir höfdu frumkvœði, ekki afþvi að Póstur og sími upp- götvaði villuna? „Við fáum reglulcga kvartanir en þetta skar sig eitthvað úr. Við sáum að þarna voru stórar sveiflur hjá hundrað og eitthvað manns sem var greinilega óeðlilegt. Þetta komst ekki upp í „Þjóðarsálinni“ í fyrradag því fólk var strax fariö að kvarta upp úr mánaðamótum og þá var því fólki ráðlagt að borga ekki, hcldur bíða og síðar mundi það fá nýjan reikning. Það hafa fá- ir borgað, en þó einhverjir, og þeim ætíum við að endurgreiða." Hvað ef engitm hefði kvnrtnð? Ef þnð hefði barn skeikað eitt eða tvö þi'tsund krónwn, ekki tíu til tutt- ugu? „Ég get eiginlega ckki svarað því, þar sem það var ekki tilfellið. En svona villur finnum við ekki bara hjá fólkinu sem kvartar hcldur sjá- um við þær hjá öllum. Það er eng- in hætta á þvi, ef svona kæmi fyrir aftur, að við myndum ekki frétta af því, — fólk er það vakandi yfir reikningunum sínum.“ Hver var hagnaður Pósts og síma á síðasta ári? „1.550 milljónir vorum við með í bókfærðan rekstrarhagnaö og af því þurftum við að greiða 820 milljónir i ríkissjóð.“ Eitthvað að lokttm? „Við viljum biðjast velvirðingar á þessum mistökum sem átt hafa sér stað.“ Fjöldi símnotenda í Reykjavík, um 200 manns, fékk of háan símreikning um siðustu mánaðamót. Hér er einungis um að ræða hluta þeirra símanúmera sem byrja á þremur og var blaðafulltrúi Pósts og síma, Hrefna Ingólfsdóttir, fengin í yfirheyrslu að þessu sinni. 4 PRESSAN FIMMTUDAGURINN 9. JÚNÍ 1994

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.