Pressan - 09.06.1994, Side 9

Pressan - 09.06.1994, Side 9
hennar næðu ekki fram að ganga. Þar sagði hún m.a.: „Á síðustu ár- um hafa komið ffam sérffamboð sem oft hafa fengið hljómgrunn fólksins og ógnað skynsemis- og tæknihyggju gömlu flokkanna. Hannihal, Vilmundur, Albert og Kvennalistinn hafa átt eitt sameig- inlegt: Framboð þeirra hefur snort- ið þjóðarsálina, hin stjórnmálalega tjáning hefur hlotið skilning fólks- ins. Það kall er ákall þjóðarinnar um að stjórnmálaflokkar hafi ekki einungis vitsmunalíf, heldur líka tilfinningalíf.“ Ofan á allt saman sagði Jóhanna á dögunum að Jón Baldvin hefði tilkynnt sér að ef hún færi fram gegn honum og tapaði yrði hún að RANNVEIG GUÐMUNDSDÓTTIR Hefur lýst yfir að hún verði ekki varaformaður áfram en er þó talin líklegust í það embætti áfram. segja af sér. Það verður því að telj- ast líklegt að einn ráðherrastóll losni eftir næstu helgi og jafnvel að ffekari eftirmálar verði af þessum átökum. Mynduðu saman glæsilega forystusveit 1984 Átakasaga þeirra Jóns Baldvins og Jóhönnu á sér langan aðdrag- anda. Þau tóku við forystu flokks- ins á eftirminnilegan hátt árið 1984. Þau voru ólík að upplagi en vógu hvort annað upp og voru sterkt tvíeyki á toppnum. Upphaf- lega gekk sambúðin vel eða allt til kosninganna 1987 og í samfelldri ríkisstjórnarþátttöku sem fylgdi í kjölfarið. Fyrstu árin gekk þetta snurðu- laust fyrir sig og Jón Baldvin fór að róa, m.a. með „100 funda herferð- inni“ sem hann réðst í strax eftir formannskjörið og fylgi flokksins jókst mikið. Eftir kosningarnar 1987 settist Aiþýðuflokkurinn í rík- isstjórn og bæði hafa þau verið ráð- herrar ffá þeim tíma, en samband þeirra hefur farið hríðversnandi. Jóhanna hefur sakað Jón um óheil- indi og óþolandi vinnubrögð, hann hlusti ekki á skoðanir varafor- mannsins og taki ákvarðanir í stefnumarkandi málum án nokk- urs samráðs við sig. Jón hefur hins vegar sakað Jóhönnu um „ffekju og yfirgang, tillitsleysi gagnvart sam- starfsaðilum og einsýni“. Inn í þetta spilar m.a. að í kosn- ingunum 1987 fékk Jón Baldvin Jón Sigurðsson til að leiða listann í Reykjavík og ffá þeim tíma var samband nafnanna mikið. Jóhanna varð hálfutangátta í flokknum, sem reiddi sig á þríeykið Jón Baldvin, Jón og síðar Sighvat Björgvinsson. Við ráðherradóminn og innkomu Jóns Sigurðssonar fóru átakalínur þeirra mjög að skýrast. Jón Baldvin hunsaði hana margítrekað í mikil- vægum málum og Jóhanna fór sín- ar eigin leiðir að settu marki. Að auki hefúr sérstaða hennar alla tíð verið skýr, hún hefur verið einörð í málflutningi og árekstrar hennar við þingflokkinn voru hafhir áður en Jón Baldvin kom til skjalanna. Persónuleg samskipti þeirra hafa óumdeilanlega verið erfið en Jón Baldvin hefur lengstum sagt að í raun væri ekki um neinn málefna- ágreining að ræða. Jóhanna hefúr hins vegar nefnt ótalmargt í því sambandi þar sem hún hafi staðið fýrir klassíska jafnaðarstefnu í vel- ferðar- og ríkisfjármálum gegn tækni- og markaðshyggju Jón Bald- vins. Má þar nefna einkavæðingu banka og Pósts og síma, hallamark- mið fjárlaga, skattastefnu, upptöku skólagjalda og þjónustugjalda í heilbrigðiskerfinu, tekjutengingu lífeyris, hækkun ellilífeyrisaldurs, félagslega húsnæðiskerfið, hús- bréfakerfið, fæðingarorlof og skerðingu vaxta- og barnabóta. Átakamikil flokksþing Jóhanna og Jón Baldvin hafa sí- fellt færst fjær hvort öðru, Jóhanna verið í óopinberri stjórnarandstöðu flokksins og margsinnis hótað að segja af sér nái hún ekki tilteknum málum í gegn, einkum í tengslum við fjárlagagerð. Deilurnar þar snerust jafnan um hve miklu fé skyldi varið til velferðarmála og óánægju hennar við að standa frammi fýrir gerðum hlut Jónanna og síðar Sighvats. Flokksþingið í Hafnarfirði 1990 var sögulegt, en þá tókust þau harkalega á og í sjónvarpinu sáust þau rífast heiftarlega þegar þau voru hyllt sem leiðtogar flokksins. PRESSAN lét varalesara lesa orð Jó- hönnu sem voru m.a.: „Þú ert bú- inn að særa mig nóg“ og „Þetta sambúð sem ég hef verið í.“ Á því þingi gengu skotin á milli þeirra, ekki síst eftir að Jón Baldvin lét óþolinmæði sína berlega í ljós í ræðu sinni. Á því þingi voru það fýrst og ffemst almennir flokks- menn sem komu í veg fýrir upp- gjör en allir sáu hvert stefndi. Flokksþingið 1992 var afar erfitt fýrir Jón Baldvin og menn eru sam- mála um að Jóhanna hafi átt mesta möguleika gegn honum þá. Harð- ast var deilt um ályktun flokksins í velferðar- og ríkisfjármálum. Jó- hanna studdi hana en Jón Baldvin kom með breytingatillögu sem var kolfelld. Fundi var þá frestað og Jón Baldvin hótaði afsögn í sturtu- klefa eins og frægt er orðið ef ekki yrði komið til móts við hann — sagði að þá mætti hún eiga flokk- inn. Jóhanna gaf eftir og þau náðu samkomulagi um breytingatillögu. Jóhanna hefúr alltaf séð eftir að hafa ekki nýtt tækifærið á þessu flokksþingi til að fara gegn Jóni Baldvini. Það er líka athyglisvert að þótt enginn væri formlega í ffarn- boði gegn þeim fengu þau einungis 75% atkvæða í embætti sín. í for- mannskjörinu fékk Guðmundur Árni fimmtíu atkvæði eða 17,4% og Jóhanna ríflega tvö prósent. í varaformannskjörinu dreifðust at- kvæðin nokkuð, enginn fékk afger- andi stuðning utan Jóhanna en auðir og ógildir voru 12,2 prósent. Ráðherrahrókeringarnar gerðu útslagið Jóhanna guggnaði á uppgjöri við Jón á flokksþinginu 1992 en það leið ekki á löngu uns upp úr sauð endanlega. Þegar Jóhannes Nordal hætti sem Seðlabankastjóri sótti Jón Sigurðsson um stöðu hans og á sama tíma fór Eiður Guðnason út úr pólitík og varð sendiherra. Karl Steinar Guðnason þótti sjálfkjörinn ráðherra en ákveðið var að hann tæki við af Eggerti G. Þorsteinssyni sem forstjóri Tryggingastofnunar. Líklegustu ráðherraefnin voru því Rannveig Guðmundsdóttir, Guð- mundur Ámi Stefánsson og Össur Skarphéðinsson. Jóhönnu ofbauð meintur einleikur Jóns Baldvins í stöðunni og að hann hefði ekkert samráð við sig í svo mikilvægu máli. Á þingflokksfundi þar sem Jón Baldvin lagði ffam tillögu sína hafði Jóhanna ekki hugmynd um hvað hann legði ffam. Þegar ljóst var að kosið yrði á milli Össurar og Rannveigar, sem Össur sigraði 7-5, lagðist Jóhanna undir feld og ákvað síðan að segja af sér varafor- mennsku. Frá þeim tíma hafa menn talið einhvers konar uppgjör óumflýjanlegt og ffamboð Jó-' hönnu kom því í raun fæstum á óvart. Evrópumálin lykillinn Fyrir óbreytta er rétt að hafa auga með orðalagi í tillögu að ályktun í Evrópumálum. Drög að þessari ályktun hafa gengið manna á milli undanfarna daga og tekið töluverðum breytingum. Undir- tónninn mun þó vera að staða Is- lands í samfélagi þjóðanna sé ger- breytt ef hinar Norðurlandaþjóð- irnar samþykki að ganga í Evrópu- bandalagið. Varðandi hugsanlega umsókn íslands að ESB verður væntanlega lögð áhersla á að tím- inn sé naumur til að gera það upp við sig og þannig myndaður þrýst- ingur á að flokkurinn taki afstöðu til málsins. Sjálfur hefúr Jón sagt að samningsferlið þyrfti ekki að taka nema eitt til tvö ár. Jóhanna hefur ekki aftekið aðild- arumsókn, en málflutningur henn- ar byggist á því að enginn sé undir það búinn að taka afstöðu til máls- ins án miklu meiri umræðu. Undir það geta eflaust margir flokksmenn tekið, en á hitt er að líta að enginn flokkur hefur eytt eins mildum tíma og orku í að ræða Evrópumál og verja aukin tengsl við Evrópu og Alþýðuflokkurinn. Að auki er Jón Baldvin öðrum rökfastari þegar kemur að þeirri umræðu og það getur riðið baggamuninn þegar „flokkssálin“ er að öðru óbreyttu hlynnt auknu samstarfi við Evrópu. Líklegt er talið að endanleg ályktun feli í sér mjög sterka áherslu í átt til umsóknar, án þess þó að hún verði afdráttarlaust samþykkt. Ef sú verður stemmningin á flokksþing- inu má um leið gera ráð fýrir að Jó- hanna Sigurðardóttir verði ekki formaður Alþýðuflokksins og flokkurinn verði einum ráðherra fátækari. PálmiJónasson sem ráðherra og varaformaður verður erfið sambúð, erfiðasta JÓN BALDVIN HANNIBALSSON Stuðningsmenn hans telja að hann eigi 60-70 prósenta stuðning vísan. Langflestir eru á því að hann sigri í kosningunum. lausn, margir að ganga til liðs við Alþýðuflokkinn en þá gengu Möðruvellingar með Ólaf Ragnar Grímsson innanborðs til liðs við Samtökin frá Framsóknarflokki. Það ár var Jón Baldvin í öðru sæti Samtakanna á Vestfjörðum á eftir Karvel Pálmasyni, sem einnig var ættaður úr Alþýðubandalaginu. Tveimur árum síðar gengur Jón Baldvin í Alþýðuflokksfélagið á ísa- firði. Árið 1978 bauð Karvel fram lista óháðra eftir hatrömm átök en Jón Baldvin var í öðru sæti hjá krötum, á eftir Sighvati Björgvins- syni, sem hafði sigrað í prófkjöri. Þótt Karvel kæmist ekki inn tók hann megnið af gamla Samtaka- fýlginu og Jón komst ekki inn. Það var ljóst að ekki gengi að hafa þrjá „kónga“ á Vestfjörðum. Staða Sighvats var sterk og naut hann þar ekki síst föður síns, Björg- vins Sighvatssonar, og Karvel átti sömuleiðis traust fylgi. Jón Baldvin var lengi orðaður við Norðurland vestra en Benedikt Gröndal og Vil- mundur Gylfason sáu efni í Jóni og svo fór að Vilmundur fékk hann til að koma suður 1979 og taka við ritstjórn Alþýðublaðsins. Það ár var hann áberandi í kosningabarátt- unni og sat í fjórða sæti listans á eftir Benedikt Gröndal, Vilmundi Gylfasyni og Jóhönnu Sigurðar- dóttur. öll voru þau sjálfkjörin í prófkjöri nema Benedikt, sem lagði Braga Jósepsson í slag um fýrsta sætið. Jón kom svo inn á þing 1982 eftir að Kjartan Jóhannsson felldi Benedikt í formannskjöri og Vil- mundur gekk út eftir að hafa tapað fýrir Magnúsi H. Magnússyni í varaformannskjöri. Þegar listanum var stillt upp fýrir kosningarnar 1983 varð Jón Baldvin í fýrsta sæti og Jóhanna í öðru. Jóhanna eðalkrati með verkalýðsbakgrunn Jóhanna Sigurðardóttir á nokk- uð annan bakgrunn innan flokks- ins og hefðbundnari. Amma henn- ar og nafna, Jóhanna Egilsdóttir, var formaður Verkakvennafélags- ins Framsóknar í fjörutíu ár, sat fýrir flokkinn í borgarstjórn og um tíma á Alþingi. Faðir Jóhönnu, Sig- urður Egill Ingimundarson, var þingmaður flokksins í tólf ár, var um tíma formaður BSRB og síðar forstjóri Tryggingastofnunar ríkis- ins. Jóhanna fæddist árið 1942 í Reykjavík og er því þremur árum yngri en Jón Baldvin. Hún lauk verslunarprófi frá Verslunarskólan- um 1960, var flugffeyja frá 1962-1971 og síðan skrifstofumað- ur í Kassagerð Reykjavíkur til 1978. Hún tók virkan þátt í verkalýðsbar- áttunni og var formaður Flug- ffeyjufélags íslands 1966-1969. Hún var einnig formaður Svölunn- ar um tíma og sat í stjórn Verslun- armannafélags Reykjavíkur. Jóhanna starfaði lítið í Alþýðu- flokknum ffaman af en var reyndar í tvígang á lista flokksins við borg- arstjórnarkosningar. Hún tók hins vegar þátt í prófkjörinu fýrir kosn- ingarnar 1978, lenti í þriðja sæti á effir Benedikt Gröndal og Vil- mundi Gylfasyni og varð þingmað- ur í „Vilmundarbylgjunni.“ f próf- kjörinu naut hún ættartengsla og verkalýðsbakgrunns síns. Sjálf hef- ur hún sagt að flugffeyjurnar hafi komið sér á þing, það hafi verið konur úr verkakvennafélaginu Framsókn sem hvöttu hana í próf- kjör og flugffeyjurnar hafi stutt hana dyggilega. Það sem skiptir þó mestu í því sambandi er að Vil- mundur Gylfason fór í slag við Eggert G. Þorsteinsson, en báðir buðu þeir sig ffam í annað sætið. Eggert naut stuðnings verkalýðs- armsins, ekki síst kvennanna í Framsókn. Menn sáu ffam á að Vilmundur myndi leggja Eggert og hugsanlegan klofning í ffamhaldi af því. Af þeim sökum var Jóhanna fengin í prófkjör sem fulltrúi verka- lýðsarmsins. Sonardóttir Jóhönnu Egilsdóttur í Framsókn þótti mjög fýsilegur kostur og treysta stöðu flokksins. Það má því segja að hún hafi að nokkru fengið þingsætið í arf úr föðurfjölskyldunni. Sterkt tvíeyki til forystu Jón Baldvin hafði einungis verið þingmaður í tvö ár þegar hann bauð sig ffam sem formaður og felldi forvera sinn, Kjartan Jó- hannsson. Flokkurinn hafði verið í mikilli lægð og mældist allt niður í 3,6 prósent í skoðanakönnun mán- uði fýrir uppgjörið. Flestir alþýðu- flokksmenn töldu nauðsynlegt að kjósa nýjan formann og unnu m.a. Sighvatur Björgvinsson og Ámi Gunnarsson ötullega að því. Jón Baldvin tímasetti ffamboð sitt vel og það vakti því athygli þegar Sig- hvatur stóð upp og lýsti yfir stuðn- ingi við Kjartan, „blóðugur upp fýrir haus“, eins og það var orðað. Enn var ekki gróið um heilt milli þeirra Jóns eftir átökin og klögu- málin fýrir vestan. Jón taldi tíma til kominn að skipta um karlinn í brúnni þar sem ekkert fiskaðist og Jóhanna tók við varaformennsku af Magnúsi Magnússyni. Tveimur ár- um áður hafði Kjartan fellt Bene- dikt Gröndal sem formann og Vil- mundur Gylfason tapað effir- minnilega í kosningu gegn Magn- úsi Magnússyni og sagt skilið við flokkinn. Þótt Jóhanna og Jón Baldvin kæmu fram á sama tíma voru þau óháð hvort öðru og buðu ekki ffam sameiginlega. Þau þóttu þó vega hvort annað vel upp og voru óneit- anlega mun vænlegra tvíeyki en Benedikt og Magnús. Leiðir þeirra Jóhönnu og Jóns lágu fýrst saman þegar Jón Baldvin settist á þing 1982 en ári síðar leiddi Jón Baldvin lista flokksins í Reykjavík og Jó- hanna varð í öðru sæti. Samvinna þeirra gekk vel til að byrja með og flokkurinn stórjók fýlgi sitt. Vanda- málin hófust fýrst eftir kosningarn- ar 1987 og ríkisstjórnarþátttöku ffá þeim tíma, eins og rakið er annars staðar á opnunni. Pálmi Jónasson FIMMTUDAGURINN 9. JÚNÍ 1994 PRESSAN 9 UPPHAF ÓGÆFUNNAR — RÁÐHERRAR FLOKKSINS ÁRIÐ 1987 Jónarnir stjórnuðu ferðinni án mikils samráðs við Jóhönnu.

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.