Pressan - 18.08.1994, Page 7

Pressan - 18.08.1994, Page 7
Rannsókn málsins hefur beinst að einum eiganda fyrirtækisins Margeiri P. Jóhannssyni og Jóhanni Pétri syni hans en þeir sáu um bókhald fyrirtækisins og eru uppi grunsemdir um meint skjala- og bókhaldsfals auk fjársvika. Eílir að innanhúsrannsókn benti til 50 milljóna króna íjárdráttar (og er þá miðað við framreikn- aða upphæð með dráttarvöxtum) var ákveðið að leita til RLR og var málið kært þangað í október í fyrra. Eftir að innanhúsramisókn benti til 50 milljóna króna íjárdráttar (og er þá miðað við framreiknaða upphæð með dráttai’vöxtum) var ákveðið að leita til RLR og var málið kært þangað í október í fyrra. Frá því í október í fyrra hefur Rannsóknarlögregla ríkisins haft með höndum umfangs- mikið fjársvikamál hjá rótgrónu innflutningsfyrirtæki í bygginga- iðnaði hér á landi, íselco sf í Skeif- unni. Rannsókn málsins hefur beinst að einum eiganda fyrirtækis- ins Margeiri P. Jóhannssyni og Jó- hanni Pétri syni hans en þeir sáu um bókhald fyrirtækisins og eru uppi grunsemdir um meint skjala- og bókhaldsfals auk fjársvika. Rannsóknin nær allt aftur til árs- ins 1982 en beinist fyrst og fremst að starfsemi þeirra á árunum 1987 til 1992 en þá var Jóhann látinn fara en Margeir hélt starfi sínu fram á mitt sumar 1993. Fyrirtækið var stofnað árið 1969 af þeim Ragnari Jónssyni og Gísla Ólafs þá undir nafninu ísel en síð- an var leitað til Margeirs sem hafði starfað með þeim í fyrirtækinu G. Þorsteinsson og Johnson, um að sjá um bókhald og fjárreiður fyrir- tækisins. Um leið varð hann með- eigandi. Velta fyrirtækisins, sem er um- boðs- og heildverslun í bygginga- iðnaði, var á annað hundrað millj- ónir en hinn meinti fjárdráttur sem hér um ræðir er talinn nema um 50 milljónum króna, framreiknuð- um til dagsins í dag og með vöxt- um, eða svo hljóða heimildir blaðs- ins. Þeir Margeir og Jóhann sáu al- farið um bókhald fyrirtældsins með þeim hætti að faðirinn var fjármálalegur framlcvæmdastjóri þess og sonurinn gjaldkeri og bók- ari. Var á Flórída þegar málið komst upp Upp um málið komst þegar við- skiptabanki fyrirtældsins hafði samband við eigendur þess vorið 1992 þegar yfirdráttarreikningur þess var kominn 14 milljónum ffam úr heimild. Þá var Jóhann Pétur staddur á Flórída að festa sér kaup á íbúð og var þess vegna haft samband við hina eigendurna sem komu af fjöllum yfir þessari stöðu en ekid var annað vitað en rekstur- inn væri í eðlilegum farvegi. Vöknuðu grunsemdir um að eitthvað misjafrit væri í gangi og fóru hinir tveir eigendurnir að skoða bókhaldið. Kom þá í ljós ótölulegur fjöldi reikninga sem engin leið var að botna f. Má sem dæmi taka að rekstrarreikningar biffeiða fyrirtækisins höfðu hældc- að um milljón á milli ára án sýni- legra ástæðna. Einnig kom þá fram að Jóhann hafði í raun rekið umfangsmikil bílaviðskipti nánast inn í bókhaldi fyrirtældsins þar sem lítill sem eng- inn greinarmunur var gerður á fyr- irtækjum. Við leit fundust víxlar og skuldabréf af bílum óháðum fyrir- tækinu sem það þó hafði verið látið borga af. Þar er um að ræða stórar upphæðir en rannsóknir benda til þess að fyrirtækið hafi verið látið borga háar upphæðir í vaxta og lántökukostnað, alls óskilt starf- semi þess. í byrjun viðurkenndi sonurinn nokkra misbresti og samþykkti að greiða til baka þrjár milljónir króna og héldu menn að þar með væri ásættanleg niðurstaða fengin. Fað- irinn neitaði allri þátttöku á þessu stigi og var sæst á að Jóhann yrði látin fara frá fyrirtækinu án þess að kæra yrði lögð fram. Greiddi Jó- hann þá þær fjárhæðir sem hann hafði þá viðurkennt að hafa dregið að sér. Alvarlegar grunsemdir voru hins vegar vaknaðar og hinir eigendurn- ir fóru nú að gefa sig meira að bók- haldi og leita skýringa á ýmsum víxlum og skuldabréfúm óviðkom- andi fyrirtækinu. Fyrst í stað virtust feðgarnir hafa skýringar á öllu sem upp komst en ljóst var að skýringar fengust ekki við öllu sem beðið var um og hitnaði meira og meira undir föðurnum. Að endingu sagði Margeir sig úr félaginu og krafðist þess að hann yrði borgaður út úr því tafarlaust elia skyldi hann leita skaðabóta sökum „tómlætis“ hinna eigenda. Þá var leitað til lögmanns og eftir fundarhöld með öllum aðilum málsins samþykkti Margeir að end- urgreiða þær upphæðir sem sonur hans kynni að hafa dregið að sér og ekld höfðu áður komið fram. Þá var endurskoðendum fýrirtældsins falið að sannreyna þær kröfur og ásakanir sem lagðar höfðu verið fram og um leið var skipt um læs- ingar og skrár í fýrirtækinu. Var Margeiri einungis heimilt að koma á vinnutíma til að yfirfara gögn og þá undir eftirliti. Þegar á reyndi töldu eigendurnir, sem eftir sátu, siðferðislega rétt að skipta um end- .urskoðendur og fá til liðs við sig óháða aðila. Eftir að innanhúsrannsókn benti til 50 milljóna króna fjárdráttar (og er þá miðað við ffamreiknaða upp- hæð með dráttarvöxtum) var ákveðið að leita til RLR og var mál- ið kært þangað í október í fýrra. Kærugögnin beinast enn sem kom- ið er fyrst og ffemst að Jóhanni. Um leið var höfðað einkamál fýrir Héraðsdómi Reykjavíkur og hefur feðgunum verið stefnt þar sitt í hvoru lagi. Málskjölin eru um 1500 og fjölgar stöðugt. Einnig hafa eig- endurnir reynt að höfða kyrrsetn- ingarmál f eigur Jóhanns og um leið reynt að fá hann tekinn til gjaldþrotaskipta. Var það gert vegna þess að eigendurnir töldu að þeir feðgar væru farnir að vinna skipulega að því að koma eignum undan með því til dæmis að veð- setja hús Jóhanns fýrir 8 milljónir króna. Skuldabréfið bak við þá veðsetningu er í eigu for- eldra hans. Kyrrsetningin tókst ekki vegna mistaka við málatilbúnað Isleco. Keypti fyrsta dags umslög Fyrstu rannsólcnir benda til fjölbreyttra og kerfisbund- inna aðferða við að hafa fé af fyrirtækinu. Má sem dæmi taka að frímerkjakaup fýrir- tækisins voru á tilteknum tíma mjög há miðað við veltu þess. Eðlileg ffímerkjakaup Iselco eru um 300.000 krón- ur á ári en í tíð feðganna fór frímerkjakaupareikningur fýrirtækisins í allt að tvær milljónir króna miðað við núverandi burðargjöld. Við eftirgrennslan kom í ljós að Jóhann Pétur hafði keypt fýrsta dags um- slög fýrir háar fjárhæðir, að því er virðist í þeim tilgangi að geta fénýtt sér það. Einnig voru kvittanir fýrir póstburðargjöldum notaðar í sama tilgangi en grunsemdir eru uppi um að póstburðarnótur hafi verið falsaðar. Sömuleiðis eru uppi grun- semdir um að feðgarnir hafi tví- greitt sér bögglapóstburðargjöld með því að gjaldfæra virðisauka- skattskvittanir sem póstburðar- gjöld. Þegar aðalreikningur fýrirtækis- ins var skoðaður, til að rekja greiðslur, kom í Ijós að hann var lítið sem ekkert notaður. Við leit fundust hins vegar fjölmargir einkareikningar sem veltu miklum fjárhæðum. Má nefna einn reikn- ing hjá SPRON sem sonurinn not- aði og velti í á annað hundrað milljónir á ári. Þá hafa rannsóknir leitt í ljós að ýrnsir reikningar fýrirtækisins voru hreint ekki afstemdir, einungis voru þeir reikningar afstemdir sem endurskoðendur fyrirtækisins fóru fram á og telja þeir, sem skoðað hafa reikningana síðan, að ýmislegt sé við þá að athuga. Þar sé í raun um meintar falsanir að ræða. Einn- ig eru uppi grunsemdir um falsanir á nótum. Sömuleiðis hefur komið í ljós að birgðatölur voru færðar efir þörf- um af Margeiri þannig að í raun hefur aldrei legið fyrir hver birgða- staða fyrirtækisins hefur verið. Um leið eru uppi grunsemdir um „svarta" og nótulausa sölu út úr lager fyrirtækisins. Einnig liggja fýrir grunsemdir um að þeir feðgar hafi dregið sér fé í gegnum erlend vörukaup þar sem fýlgiskjöl virðast vanta fýrir vissum upphæðum. Fyrirtekt á einkamálunum er ætluð nú 2. september fýrir Hér- aðsdómi Reykjavíkur. Jóhann Pétur neitaði að tjá sig urn málið við PRESSUNA og vísaði á lögfræðing sinn Ólaf Ragnars- son, hæstaréttarlögmann, og grein- argerðir hans. Ekki tókst að hafa upp á honum. I Er bruna-eða slysagat j á fötunum þínrnn? j Láttu okkur sjá um viðgerðina og gatið týnist. Vönduð handunnin viðgerð. Opiðfrá 13 - 18 alla virka daga FATAKÚNST ! .* . Guðrún SigríðurÁmundadóttir ] Geymið auglýsinguna sími 21074 - eftir lokun 611174 FIMMTUDAGURINN 18. ÁGÚST 1994 PRESSAN 7

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.