Pressan - 18.08.1994, Síða 22
4
s
10
KSjarni Þórarinsson um myndina af sjálfum sér:
„Teikna skák í túni, og brögö höfð uppi viö í tafli" gætu verið einkunnar-
orð ofangreindrar myndar - samfara glettingslegu yfirbragði er myndin tor-
ræð. Vart má á milli sjá hvor er meira gildandi „myndafsérsjáinn" eða „mynd-
ásigtakinn" en milli þeirra ríkir benda. Eitthvað magnþrungið liggur í loftinu.
„Myndafsérsjáinn" tekur nú að sér frekari skýringar: „Fyrirsetinn" þ.e.
„myndafsérgjafinn", X=ég og áhorfandinn þ.e. Y=þú, ganga nú að tafli.
Ég=Kokkur Kyrjan Kvæsir hef hvítt í skákinni en þú lesandi góður ert Dr. Ren-
us (dulnefni) og hefur svart, ávallt svart að eigin ósk einsog þú veist.
Dr. ísi + eða - einn, myndafsérsjáinn, skýrir skákina að sjálfsögðu. Skákin
hefst, Kyrjan leikur kóngspeðinu fram, kliður fer um salinn - Valur er á veið-
um! - Vargur er í véuml- Loft er lævi blandið! - Læsið af skornum skammti! og
lýsingin eftir því. Með því skilyrði að:
Kyrjan skrifi, tifi klukkan
Kiljanslitur á bók-
í byrjan lifi klifi lukkan
liljans þytur í brók-
Upp er komið alþekkt fyrirbrigði í skákinni Sikileyjarafbrigðið, Sikileyjar-
vörn heitir það víst á svörtu skákmáli - gegn svokölluðu Benzím - only afbrigði
á hvítt.
Kokkur Kyrjan Kvæsir teflir hér „blindskák" gegn andstæðingi sínum Dr.
Renus sem er ósýnilegur lesandi Pressunnar og ekki beinlínis árennilegur.
Svartur hefur nú hrókfært svo lítið beri á. Honum hefur hinsvegar yfirsést
nýjung sem hvítur lumar á. Það er hið flugbeitta „Billie, Billie, Billie boy af-
brigði", baneitrað í formi leikflækju og í beinu framhaldi fylgir svo „gír-affa-
roj-stigu riddara afbrigðið" með leikileiki „gaffaleringu." Þetta er stundum
kallað „galvanisseraða afbrigðið" og er svo til alveg óverjandi.
Hvítur biskup stendur í uppnámi en sér við hlið á hann eitrað peð. Mark-
mið og áætlun hvíts er að leiða svartan í „skákgildru" með óborganlegri „leik-
leysu" í miðtaflinu er kallast „biskupar stappa niður fótunum."
Skákin er farin í bið! Taflið er tvísýnt - getur eiginlega farið á hvorn veginn
sem er,- Þjóðarsómi er í húfi og ættarlaukur er á stúfil-
Þökk sé þeim sem á horfðu! Lifið heil.
Tveir ólíkir
etta legst mjög vel í mig og ég
hlakka mikið til að takast á
við starfið. Þetta er mjög lifandi
starf og það er kannski það sem
heillar,“ sagði Vilborg Gunnars-
dóttir nýráðinn framkvæmdastjóri
íslenska dansflokksins. En hún
mun taka við starfinu af Salvöru
Nordal. Alls voru átta sem sóttu
um stöðuna en Vilborg reyndist
hlutskörpust.
Hún lauk prófi í viðskiptafræði
af endurskoðunarsviði, viðskipta-
og hagfræðideildar Háskóla íslands
í júní 1992 en frá því í byrjun árs-
ins 1993 hefur hún starfað sem
viðskiptafræðingur hjá Skattstjór-
anum í Reykjavík.
Starf framkvæmdastjóra flokks-
ins felst í yfirumsjón með dagleg-
um rekstri s.s. kynningu á flokkn-
um, tengslum hans við almenning,
fjárhaldi og hvers lags skipulagn-
mgu.
„Það vilja sumir meina að þetta
séu tveir ólíkir heimar, það er við-
skiptaheimurinn harði og svo list-
in. Þessir tveir heimar þurfa að
tengjast og mitt hlutverk er
kannski þessi tenging þarna á
milli.“
Vilborg æfði ballet sjálf sem
barn og hefur allar götur síðan haft
mikinn áhuga á ballet og leikhúsi
almennt. Hún er gift Lárusi
Bjömssyni, ljósameistara Borgar-
leikhússins, og lengi vel hefur hún
verið með annan fótinn í leikhús-
unum. Á sínum tíma var hún í
Listdansskóla Þjóðleikhússins og
hún segir það sjálfsagt hafa haft
mikil áhrif hvað áhugann á starfi
flokksins varðar.
En standa einhverjar breytingar
til oghvað erframundan hjáflokkn-
um?
„Ég hef að sjálfsögðu ákveðnar
hugmyndir í sambandi við mark-
aðssetningu hópsins en ég hef ekki
hugsað mér að gera neinar stór-
breytingar enda er það einnig list-
dansstjóri sem mótar stefnuna og
okkar samstarf er mjög náið. Ég
vona að fólk komi meira á sýning-
ar en það hefur gert til þessa því ég
vil að það veiti þessum frábæru
dönsurum rneiri athygli. Næsta
verkefni okkar verður í Tjarnarbíó
um miðjan september en þar
munu þrír dansarar flokksins þau
Lára Stefánsdóttir, Hany Hadaya
og David Greenall sýna frum-
samda dansa. Þetta verða spenn-
andi danshöfúndakvöld,“ sagði
Vilborg að lokum en hún mun
taka formlega við störfum 1. sept-
ember.
22 PRESSAN FiMMTUDAGURINN 18. ÁGÚST 1994
heimar
Vilborg Gunnars-
dóttir nýráðinn
framkvæmdastjóri
íslenska dans-
flokksins.