Pressan - 18.08.1994, Side 25

Pressan - 18.08.1994, Side 25
„Námskeiðið byggir á kenn- ingum Drama Center ieik- listarskólans í London, sem er lang strangasti og metnaðar- fyllsti skóli sinnar tegund- ar þar á slóð- Örfá Lottó á RÚV, laugardag kl. 20:35. Nema til þess að fylgjast sérstaklega með því hvernig umsjónarmennirnir reyna að gera sem mest úr því að potturinn skuli vera tvær milljónir núna, þegar hann var átta milljónir síðast. Það er dæmt til að mistakast. Sá scm vinnur núna verður fúll yfir því að hafa misst af átta millunum. Fólkið í forsælu & Evening Shade á RÚV, sunnudag kl. 19:30. Mið- aldra, fyrrum kyntröU, Burt Reynolds, endar ferilinn með hallærislegi og ófyndinni sápu. SorglegL «t a Byron á RÚV, fimmtudag kl. 22:35. Við vitum ná- kvæmlega ekkert um þessa mynd sem er byggð á hiuta úr góðri sögu eftir Thomas Pynchon, Gravity’s Rainbow. Sem sagt þess virði að tékka á þessu. (Þeir sem hrífast ættu hins vegar ekki að ífeistast tU þess að lesa fleira eftir Pynchon, sérstaklega ekki skáldsöguna Vineland, sem kom út fyrir nokkrum árum og á heima á ösku- haugunum.) íþróttahomið á RÚV, laugardag kl. 17:30. Þeir sem misstu af Fjalari sportnagla á fimmtudagskvöldið fá annað tækifæri héma. Þetta er fynd- ið. r p Varíst: Dagskrá RÚV á föstudag. Þótt ekki væri nema vegna þess að með einni undantekningu er nákvæmlega sama dagskráin og var síðasta föstu- dagskvöld. Framhaldsþáttur, framhaldsþáttur og annar framhaldsþáttur. Og einn tU. Það eina sem er ekki ffamhaldsþáttur á RÚV á föstudaginn er finnsk heimildamynd um Eistland. Sýnd þegar venjulegt fólk er að borða kvöld- mat. Charlie Chaplin ★★★ á Stöð 2, laugardag kl. 20:55. Þessi mynd er engan veginn gallalaus og langt því ffá það besta sem Richard Atten- borough hefúr gert. En aðrar myndir eru ekki á boðstólum um meistara Chaplin gamla og það er öllum tíma vel varið í að reyna að skilja kallinn. Bob Roberts ★★★★ á RÚV, laugardag. kL 22:30. Tim Robbins teygir ameríska pólitík sundur og saman í háði og býr til atburðarás sem er absúrd en gæti þó ræst á morg- un. Gore Vidal er sérstaklega góður í aukahlutverki. Á laugardag ...Hótel Borg í eftirmiðdag- inn. Frábaer þjónusta, mat- urinn einsog best verður á kosið og súkkulaðikökumar engu síðri en hjá mömmu gömlu. Við mælum sérstak- lega með ferskum drykkjum að máltíð lokinni. ...Reiri börum í Perluna. Svona í það minnsta ef j þeir hafa hugsað sérað halda fleiri stórtón- leika þar einsog með Palla og Milljónamæringunum. aP Einhverra hluta vegna hefur það alltaf verið svo að ef haldið hefur verið námskeið í tengslum við kvikmyndir á Islandi hafa þau alltaf yfirfyllst. Fyrir utan einstaka aðsókn Islendinga í kvikmyndahús má merkja áhuga manna á kvik- myndum hvað best á öllum þeim fjölda manna sem lagt hafa leið sína til útlanda í nám. Dagana 22. til 31. ágúst ætíar Guðmundur Haraldsson, sem hefúr að baki menntun úr einum virtasta leiklist- arskóla á Bretlandi og aðeins tveir Islendingar hafa komist í gegnum, að miðla reynslu sinni, en hann lauk námi úr Drama Center í ; Lítil gullúri eldd fflott! London árið ’92. En þess má geta að kennarar og stofnendur skólans hafa kennt mönnum á borð við, Sean Connery, Al Pacino og Dust- in Hoffmann, leiklist og svo út- skrifaðist úr skólanum leikari að nafni Simon Callow, en hann fer m.a. á kostum í kvikmyndinni Fjögur brúðkaup og jaðarför, sem aðaldansfiflið í hópnum. En hann skrifaði einmitt bók um veru sína í Drama Center. En á hverju byggir Guðmundur námskeiðið? „Námskeiðið byggir á kenning- um Drama Center leiklistarskólans í London, sem er lang strangasti og metnaðarfyllsti sinnar tegundar þar á slóðum, eða á æfingum sem kallast hlutaæfingar sem felast í því að endurskapa atriði úr eigin lífi, en með þvi getur maður útskýrt svo margt sem maður þarf að hafa í huga þegar maður leikur. Ég fjalla einnig um grunnatriði leiklistar- innar og svo eru unnar stuttar tveggja manna senur sem verða kvikmyndaðar og klipptar og hver fær með sér heim.“ Nú hefur þú haldið þetta ndm- skeið einu sinni úður eru þetta leik- arar að bæta við sig eða úhugafólk? „Það er allavega fólk sem kom hingað síðast og allavega fólk þegar búið að skrá sig nú, bæði fólk með og án reynslu í leiklist." Eru ræmumar, sem fólk fær með sér að námskeiðinu loknu, eitthvað sem það getur nýtt sér sem veganesti út í leiklistarlífið? „Já, ég sé ekkert því til fyrir- stöðu.“ Gert er ráð fyrir að vinnandi fólk geti sótt námskeiðið, því er það haldið á kvöldin og um helgar. Enn eru örfá sæti laus. Þeirsem vilja skrá siggeta hafi samband við Guðmund ísíma 15518. Hún vinnur í Vero Moda, stundar nám á listasviði í I I Ikvöldskólanum í FB og ætlar sér að klára námið inn- an árs. Bryndís Björk Sigurjónsdóttir hefur mikinn Iáhuga á myndlist sem og tískustraum- um landans en hún Ihefur slaiTað í fata- verslunum um nokk- urt skeið. Hún vekur athygli fyrir ýmislegt en eitt af því merkilega við hana er Rolex úrið! „Ég keypti úrið af götu- ® sala í New york. I fyrstu ætl- aði ég að kaupa stórt kafara- tölvuúr en þetta varð ofaná. Ég fila stór og gróf úr, en hringar og úr er það sem ég tek mjög mikið eftir hjá fólki. Eg er nú samt ekki svo dómhörð að dæma fólk eftir úr- _ um en persónulega finnast mér lítil gullúr ekki flotL Ég á sennilega 5 ■ mismunandi úr en þetta úr nota ég við öll tækifæri. Mér finnst það | skipta öllu að vera með úr og ég þoli illa fólk sem spyr mig sífellt hvað j^^ikkan er hverju sinnL“ ___________________________________________I ...Svínin þagna sem sýnd er í Regnboganum um þessar mundir. ítalski háð- fuglinn Ezio Greggio er handritshöfundur myndar- innar og leikstýrir jafnframt. Myndin snýr útúr spennu- þrillemm á borð við „Silence of the Lambs" og „Basic Instinct" og minnir á myndir einsog „Airplane", „Hot Shots“ og „Loaded Wea- pon“. Lífið eftir vinn Hverjir voru hvar? Stjórn tattúklúbbsins var mætt í Rósenberg um helgina sem og starfsfólk Skífunnar sem var aö kveöja Rúnarthe one and only. Á miðvikudeginum var besta undergránd parti bæjarins haldiö þar sem allt Hárliöiö lék á alls oddi meö Ingvar Þórðar og Baltasar Kormák fremsta I flokki. Fastagestirnir þau Linda og Les létu sjá sig ásamt Jökli Tómas- syni og Svenna Ijósmyndara, meðlimir Vina vors og blóma skemmtu sér í Rósenberg um helg’ma sem og Bjarki kíkúmó piercing Lippari. Ungfrú Noröurland sýndi sig og sá aðra, Súsanna smink var aö venju mætt í kjallarann og einnig sást til Gumma Jóns, Dóru Takefusa, Guörúnar Eyj- ólfsdóttur og Juniors i Dos pilas. Starfsfólk Deja Vú sótti staðinn heim eitt kvöldið og hélt partí langt fram á nótt. í hínu árlega stórafmæli Gurríar Haralds sem haldið var áheimili hennar, á Hringbraut, á föstudagskvöld undir yfirskriftinni, „36 og enn jafnfersk og Anna Mjöll" mættu ekki færri en 50 manns. Þeirra á meðal Megas og unga sæta kærastan hans. Þau gerðu sérfar um að mæta í ár éftir að hafa skrópað í fyrra. En þess má geta að einu samkipti Megasar og Gurriar eru einmitt þann 12.ágúst ár hvert. Þarna voru líka nafntogaðar konur eins Herdís Hallvarðs- dóttir fyrrum Grýla og Anna Ólafsdóttir Björnsson þingkona Kvennalistans, auk fjölda annarra sem bæði hafa áhuga á veraldlegum og andlegum hliðum mannlífsins. i Þjóðleikhúskjallaranum á laugardagskvöld var víst allt vitlaust að sögn þeirra sem þarna áttu leið um. Meðal gesta voru Ester og Kalli í Pelsinum, Gulli og Guffa á Gauknum, Gísli Felix og hin nýbakaða frú hans. Hann mætti i kjól og hvitu í kjallarann í tilefni af brúð- kaupi sinu fyrr um daginn. Þarna var lika Reynir ex- Tangó að kynna nýju kærustuna sina sem heimildarmanni PRESSUNNAR var fyrirmunað að muna nafnið á, Halla Margrét Árnadóttir gekk þar um hægt og hljótt eins og venjulega með Kristjóni eiginmanni sínum og hestatamn- ingamanni, Dóri Larsen fyrr- um Kók, Jóhanna og Gisli Gíslasson lögfræðingur, Sig- urður Helgason yngri (yngstij og frú, Baldur Sæm á Sögu og margir fleiri. Meðal gesta á Ara í Ögri á Laugardag var leikkonan og jólasveinsdóttirin Sóley Eliasdóttir að ná sér niður eftir eftirminnilegt föstudagskvöld. Bennni skófríkill og Eyja- farí með meiru var þar staddur án betri helmingsins og á Kofa Tómasar frænda á sunnudag var allt Valsliðið saman komið eftir leikinn. Þar voru þeir Davíð Garðars og Steinar Adolfs duglegir að styrkja barinn enda um að gera að styrkja vini síni og það sama gerðu þeir Sævar liðs- og sendibílsstjóri og Geir Sveinsson hand- boltakappi, sem hefur verið heldur duglegur að sækja staðinn. Á Kaffibarinn mættiein ofsalegasta klíka bæjarins en hún hefur að geyma.menn ein- sog Gunna Páls yfirklíkumann, Þóri Bergs og Steina Bach Kommi, Keli kaldi og Óskar Jón- asson létu sig ekki vanta á staðinn en þangað mættu einnig þær Berta María Waagfjörð og Bryndis Bjarnadóttir. Innan um fyrirsætuflóðið var að sjá Villa á Núllinu, Húbert Nóa mynd- listarmann og Einar Kárason ásamt konu. Golli rótari og Óli Hélm í Ný danskri fóru hamförum á Glaumbar á föstudagskvöldinu en þar voru einnig meðal gesta Elin Reynisdóttir, Eff-Emm gengið, tvibbinn af Skaganum, Bjarki Gunnlaugsson, og Debbie eróbikkdama og kraftakona mikil. Framarar þerruðu saman tárin sín eftir tapleik gegn Val á sunnudagskvöldið en fyrr um daginn höfðu United rauðu djöflarnir fjöl- mennt og tekið til starfa á ný þegar opnunarleikur breska boltans var sýndur i beinni á Glaumbar. sæti laus FIMMTUDAGURINN 18. ÁGÚST 1994 PRESSAN 25

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.