Vísir Sunnudagsblað - 05.12.1937, Page 4

Vísir Sunnudagsblað - 05.12.1937, Page 4
4 VÍSIR SUNNUDAGSBLAÐ Fátækasti þjóðhöfð- ingi heimsins. Eftir Lindon Laing. Haile Selassie, fyrrverandi keisari í Abessiníu, er enn skráður keisari, í síinabókinni í Batli á Englandi, þar seni hann á heima. En hann er svo fátækur, að hann liefir orðið að selja gimsteina sína og skartgripi, og hefir ekki efni á að liita upp húsið, sem hann keypti. Haile Selassie — fyrrum konungur konunganna — ljónið af Judah, skelfur af kulda, er hann gengur um húsið, sem liann leigir í Bath. Það er 16 herbergja hús, sem kostaði 5500 sterlingspund, en liann hefir ekki efni á að liita það upp í vetrarkuldanum. Eg heimsótti Haile Selassie nýlega. Hann var virðulegur sem æ fyrrum, og þótt liann viðurkendi fátækt sína, varð i engu séð, að liann hefði bugast látið á nokkurn liátt. Á liverju kvöldi gengur liann til herbergis nokkurs í liúsinu, sem liefir verið útbúið sem kapella. Þang- að fer liann til þess að biðjast fyrir — fyrir þjóð sinni og landi. Er eg spurði liann hvort hann kviði ekki framtiðinni, þar sem lerfiðleikar hans væri svo mikl- ir, sem hann liafði viðurkent, svaraði hann: „Keisari Abessiníu hefir enn traust á Guði. Það er brynja hans, sem ekkert vopn fær grandað.“ Mér er sagt, að Haile Selassie hafi greitt 4.500 sterlingspund fyrir hús sitt. Þar býr hann með fjölskyldu sinni, lifvörðum og þjónaliði. Alls um 30 manns. Áður en Haile Selassie flutti í húsið lét bann gera við það og nam kostnaðurinn 1000 sterl- I ingspundum. Talsvert miklu fé hlýtur að hafa verið varið til þess að gera húsið rambyggi- legra, því að Haile Selassie á óvini, sem liann óttast. Hann er enn verndaður af vopnuðum mönnum, eins og þegar veldi hans var mest. Fyrir húsið greiddi Haile Se- lassie með silfri, sem hann flutti með sér frá Abessiníu. KEISARINN FYRRVER- ANDI VILL SELJA HÚS SITT OG EINKABÍL. Einn af starfsmönnum keis- arans sagði við mig: „Keisarinn vill selja húsið eins fljótt og liægt er. Hann býst ekki við að bagnast á söl- unni — og hugsar ekki um það. Hann vill líka selja stóra, þýska bílinn sinn. Þetta stafar af því, að keis- arinn verður að hafa minna um sig. Hann verður að gæta sparnaðar í hvívetna. Ef hann flytti í minna hús, mundi hann verða að leigja húsnæði og kaupa fæði handa sumum starfsmanna sinna, en kostn- aðurinn af því mundi verða minni.“ Við ræddum saman i setustof- unni. Hún var ekki ríkmannlega búin liúsgögnum og það var ekki lagt í ofninn. 1 herherginu voru nokkurir stólar með háum bökum, fornlegir, málaðir rauð- um og gullnum litum — lélegar eftirlíkingar liinna skrautlegu húsgagna, sem voru i keisara- höllinni í Addis Abeba. Mér var sagt, að ekki væri lagt i nema við liátíðleg tæki- færi. Það er engin miðstöð í húsinu. í að eins einu herbergi er lagt í ofn daglega — barna- herberginu. þar sem fimm börn eru að námi og leikum. Vana- lega er yljað upp í lesstofu keis- arans. „Þvi miður er það svo,“ sagði fulltrúi keisarans, sem eg talaði við, „að við verðum að gæta hins ítrasta sparnaðar í liví- vetna — jafnvel svo, að við get- um ekki hitað liúsið upp svo sem vera ætti.“ Hann benti á, að þessi vand- ræði hefði lagst allþungt á keis- arann, en er eg spurði hann um liversu miklu fé keisarinn hefði nú yfir að ráða, vitnaði liann til yfirlýsingar frá keisaranum, þess efnis, að hann hefði að eins flutt með sér silfur það, sem var einkaeign hans, og nægði til húskaupanna og brýnustu þarfa. Nú hefði keisarinn engar tekjur. „Keisaranum berast stöðugt hjiálparbeiðnir frá abessinskum KEISARAFJÖLSKYLDAN. viðhafnarklæddur. á vigvellinum. flóttamönnum — og hann tekur það sárt, að hann gelur ekki veitt þeim neina úrlausn. Þegn- ar hans gera sér ekki ljóst hversu alt er breytt. Þegar einkafulltrúi hans fer til Lon- don fer hann ávalt í þriðja flokks járnbrautarvagni. 1 sparnaðar skyni fer nú keisar- innoft einn síns liðs til London. Hann lifir einföldu lífi. Gengur mikið sér til hressingar og les sér til dægrastyttingar. Hann liefir aldrei viðhafnarboð inni — en nokkurum vinum er boð- ið endruin og eins.“ Ibúarnir í Bath vita, að stöðugt kreppir meira að keisaranum. Fyrir nokkurum dögum bauð einn af skart- gripasölum borgarinnar til sölu gulldisk settan demönt- um. Það var einn hinna fáu dýrmætu borðbúnaðargripa, sem keisarinn hafði á brott með sér frá Addis Abeba. Náfrændi keisarans og kona lians búa í skúr í garðinum — bílskúr, sem var breytt í íveru- liús. I Bath eiga margir við rauna- leg örlög að búa — það er borg, liar scm mörg harmsaga hefir gerst —- og er að gerast. En allir finna lil með keisaranum frá Abessiníu í erfiðleikum bans og fátækt — og ekki er neina sorg- legri sögu að segja frá Bath en söguna af Haile Selassie — og liversu nú er komið fyrir lion- um. Og þó er sá ljómi yfir henni, að trúartraust hans hefir aldrei verið meira en nú.

x

Vísir Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.