Vísir Sunnudagsblað - 05.06.1938, Side 4

Vísir Sunnudagsblað - 05.06.1938, Side 4
4 VlSIR SUNNUDAGSBLAÐ oéi&yMulatL oGzmg. Æskan er Ellin „Er þetta alt og sumt. Leyfðu mér að sjá hin bréfin, Margrét“. ,,Þau eru bæði til ungfrú Betty, frú“. Því til sönnunar rétti stiilkan henni bréfin, þar sem liún lá í rúmi sínu, stóru og skrautlegu. Frú Hall Davis snéri 'bréfun- um á alla kanta og athugaði þau gaumgæfilega, eins og hún byggist við að bréfin myndu opnast af sjálfu sér og afhjúpa leyndardóma sína. „Eg get ekki skilið þetta, Mar- grét. Botnar þú í þessu?“ Hún hélt á bréfi, sem upp- runalega liafði verið vélritað utan á „Ellaine — Box 331 — Vikuritið“. Þessi utanáskrift hafði verið strilcuð út, en í stað þess liafði verið skrifað „Ung- frú Elisabetb Hall-Davies 1119 Parke-Ave“. Stúlkan ypti öxl- um og leit undan. Þegar sest var að morgun- verði tveimur stundum síðar byrjaði móðirin að leita hóf- anna méð bægð hjá Elisabeth, en hún virtist vera eins og út á þekju og svaraði fáu. „Ef þú ert að þessu bak- tjaldamakki, Betty, og þarft ekki minna ráða með, þá þú um það, en þú getur að minsta kosti sagt mér hvert þú ætlar að fara á eftir.“ „Eg ætla að fara í heimsókn til hinna og þessara kunningja minna“. „Þú ættir nú að vera hrein- skilin við mig. Þér er það óhætt, Betty, að sýna mér fylsta traust sem góðum vini“. „Góðir vinir virða þögn hvors annars, og þeir hlutir eru til, sem ekki er unt að skýra frá, eða best er að séu geymdir í þögn“. Undir og niðri í varð móðir hennar óð og uppvæg, þótt hún léti ekki á því bera. Til þess var hún of lifsreynd og hyggin og hún vissi að æskan vildi fara sínar eigin brautir. Þegar dóttir hennar var farin út hringdi hún til blaðasala og hað hann um að senda sér Vikuritið, en ef liún hefði farið inn á skrifstofu mannsins síns, hefði hún getað sparað sér það ómak, þvi að þar lá ritið í hrúgum. Frú Hall Davies gat hinsvegar ekki skil- ið það, að menn gæfu sér tíma til að lesa bækur og hún sá gálaus — er-------------? vandlega um það að hurðin að bókasafninu væri höfð liarð- lokuð, og hún þoldi ekki lykt- ina af þessum gömlu og ryk- föllnu bókum. Þess vegna fór hún í mesta lagi einu sinni á ári inn í bókasafnið. Maðurinn liennar eyddi hinsvegar öllum kvöldum við lestur og hélt sig inni í bókaherberginu, en þetta tvent þurfti ekki að standa i neinu sambandi livort við ann- að. Á næst öftustu siðu í viku- ritinu fann frú Hall Davies það sem hún hafði óttast mest, und- ir fyrirsögninni „Vinátta og lijúskapur“. Þar var auglýsing svohljóðandi: „Einmana stúlka, sem leið- ist lífið vegna leiðinlegra ungra manna, óskar eftir að kynnast mentuðum og skemtilegum manni. Áður en viðkynning hefst vill hún fá að sjá hann og ákveða sig því næst. Tilboð sendist Ella- ine Box 331“. Þegar Betty kom heim aftur um sexleytið, köld og róleg eins og ekkert hefði komið fyrir, greip móðir hennar hana í faðm sinn og sagði‘ „Kæra harn, segðu mér nú allan sannleikann. Hvað hefir komið fyrir? Eg skal reyna að skilja þig og setja mig í þín fót- spor“. „Það hefir ekkert skeð. Eg fór hara í nokkrar húðir“. „Fáðu jiér sæti“, sagði frú Hall-Davies alvarlega. „Þessi leynd keyrir fram úr öllu hófi. Eins og þú veist tek eg hlutina yfirleitt ekki alvarlega, en eg hlaut að taka eftir hinni ein- kennilegu utanáskrift á bréfinu, sem kom til þín í morgun. Eg krefst þess, að fá að vita hvað stóð í því. Móðirin á lika nokk- urn rétt á því að láta börnin sín ekki fara á bak við sig“. Hún hafði dregið fram ritið meðan að hún talaði og benti með miklum hátiðleik á aug- lýsinguna. „Þótt mér þyki leitt, móðir mín, þá verð eg að minna þig á það, sem þú hefir altaf sagt sjálf, að bréfin eru altaf einlca- inál þess, sem í hlut á“. Frú Hall-Davies reiddist, — grátbændi og skammaðist en alt kom fyrir ekki. Að lokum sagði liún: „Jæja, þá verð eg að snúa mér til lians föður þíns. Þótt hann dragi alt- af þinn taum, þá er það víst að þetta mun hann laka föstum tökum. Það er eg viss um“. I þessu kom Hall-Davies sjálf- ur inn. „Er innanrikisófriður hjá val- kyrjunum ?“ spurði hann góð- látlega. „John! Hún Betty fékk hréf frá einhverjum dóna, og eg liefi krafist þess áð- hún sýni það öðru hvoru okkar, en hún neit- ar að sýna mér það“. „Jæja, eg skal lesa það fyrir ykkur báðum“, sagði Betty. „Þið skuluð vera við öllu búin“. Hún opnaði skrautgripaskrin sitt og dró fram bréfið. „Hérna hafið þið það. Það er svoliljóðandi“: „Kæra Ellaine! Lancelot er að verða gam- all og er orðinn leiður á þessu yfirhorðs siðferði í Galahad. Ef hann gæti með góðu móti vildi hann gjarnan komast frá kastalamollunni og í hreinna andrúmsloft. Kl. 5 e. h. á föstudag skuluð þér spyr ja yfirþjóninn að Margu- ery-hótelinu eftir þvi, hvar horð Lancelots sé. Eg skal ekki líta upp, og þér getið farið aftur án frek- ari aðgerða, ef yður líst ekki á mig álengdar séð“. „Það er ekki fyr en á morg- un“, hrópaði frú Hall Davies. „Guði sé lof!“ „Já, móðir þín hefir á réttu að standa, Betty“, sagði faðir hennar með nokkurri geðshrær- ingu. „Við skulum tala um l>etta inni á skrifstofunni, Bettv. Þú hýður liér á meðan“, sagði hann við konu sína. Kona hans andvarpaði og kinkaði kolli til samþykkis. Þegar þykka eikarhurðin var fallin að stöfum nuddaði John Hall Davies liökuna vandræða- lega. „Móðir þín fer yfirleitt lítið að mínum óskum, sér þú til. Hvað segir þú um það, að við látum þetta niður falla — við skulum segja — á báðar hlið- ar“. „Eg fór í margar búðir i dag» pahbi, af því að eg vildi gjam- an að Lancelot litist vel á mig.“ „Lancelot — fari hann norð- ur og niður — gerir þú þig ekki ánægða með 200 dollara?“ „Gætir þú ekki liaft það 300 dollara, —■ konur gera tölu- verðar kröfur nú á dögum og það er dýrt að fá sér föt, pabbi minn“. Þau skiftust á bréfum -— hún félck tékkávísun, en hann bréf- ið. Það var kveikt á eldspýtu og bréfið fuðraði upp að þeim áhorfandi. „Sér þú til, vina mín“, sagði John Hall-Davies. „Það getur verið að eg hafi skrifað dýr- ari hréf en þetta á mínum ungu árum, en vitlausara bréf liefi eg aldrei skrifað“. MÚSSÓLlNI hýður Hitler velkominn til Rómaborgar.

x

Vísir Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.