Vísir Sunnudagsblað - 05.06.1938, Side 6

Vísir Sunnudagsblað - 05.06.1938, Side 6
6 VlSIR SUNNUDAGSBLAÐ Sira W. HJIIiflt. þektur enskur útvarpsræðumaður, myndi gefa syni sínum þetta ráð; Konan á að veia vinur þinn áðui en þú giftist henni. Milli föður og sonar er oft ekki íullur skilningur í þeim efnum, sem þýðingarmest eru, og faðirinn veigrar sér oft og tíðum við að segja syni sínum sannleikann einmitt í þessum málum. Oft fer það svo, að úr þ>ví að einu sinni er farið að draga þetta, þá kemst það al- drei í framkvæmd, og svo naga menn sig síðar i handarbökin fyrir að hafa ekki útskýrt hlut- ina í tíma, svo sem skyldi ver- ið liafa. Það getur að vissu leyti ver- ið erfilt að ræða við son sinn um ástamál og hjúskaparmál, því að margt getur horið í milli og hinn gullni meðalvegur er yandrataður. Þessi skylda föðursins liefst löngu áður en sonurinn er það stálpaður, að hann fer að líta i kringum sig og augu hans að opnast fyrir kvenlegri fegurð. Faðirinn á að segja syni sin- um, þegar Iiann er í æsku og gengur enn í barnaskóla, frá „grundvallaratriðum lífsins“, og útskýra þau þannig, að hann skilji þau til lilítar, en þurfi ekki að undrast það, sem fyrir augun ber, eða verða að geta i þær eyður, sem hann hefir ekki fengið fullar skýr- ingar á. Það þarf að opna augu sonarins fyrir fegurð lífs- ins og dásemd, cn varast að láta bernskudraumana fölna síðar og dreifast í grádumb- ung veruleikans vegna þessar- ar vanrækslusyndar. Lífið er dásamlegt og vissu- lega þess vert, að augum barn- anna sé beint að fegurð þess og gæðum, því að guð er lífið. Það eru mennirnir, sem i lieimsku sinni afskræma lífið og lineikslast eða lilæja flóns- lega, ef þeir heyra eitthvert tvírætt glens í leikhúsum eða manna í milli. Við eigum einnig okkar sök á því, að gera lífið erfiðara með því að geyma í þrálátri þögn þann fróðleik, sem get- ur leiðbeint hinu fróðleiks- þyrsta og fráfróða barni, sem blygðast sín fyrir að spyrja um það, sem það hefir fengið ein- hvern pata af, en heldur að menn hneykslist á. En nokkr- ar ráðleggingar og leiðhein- ingar um það, hvað sé hreint og heilbrigt líf, getur bjargað barninu frá margskonar böli, sem vanþekkingin hefir oft og einatt í för með sér. Alt þetta langar mig til að segja, þar sein eg er prestur, og hefi fylgst með þeim písl- um, er hertaka hjörtu margra æskumanna, sem eru að kom- ast á þroskaskeiðið, og leiða oft til takmarkalausra þján- inga og ótta. Hjá þessu er auðveldlega hægt að komast, ef feðurnir gercf sér fulla grein fyrir skyld- um sínum í þessu efni, en eg býst við að fæstir feður liafi sint þessu svo sem vera skyldi. Sannleikurinn er sá, að hugsunin um hjónabandið þró- ast ósjálfrátt hjá hverju barni, en þar á ég ekki við að börn- in geri sér grein fyrir því eða hugsi um slíkt að staðaldri. Því fer fjarri, en hjúskapurinn er eitt atriði í lífi barnsins, eins og það hugsar sér það frá upp- hafi. Það er ekkert óeðlilegt við það, að drengur og telpa verði góðir vinir og hænist livort að öðru i skólanum, og það er engin hjálp fyrir börnin, að gert sé gys að þeim vegna slíkr- ar vináttu. Með því að gera gys að þeim vekjum við ástæðu- lausa blygðunartilfinningu hjá þeim, vegna þeirrar saklausu vináttu, sem allra góðra gjalda er verð, og komum því ef til vill til leiðar, að börnin upp- ræta þann vísi að vináttu, sem þegar er tekinn að gróa. Eg vorkenni liverjum þeim unglingi, sem er liræddur og feiminn við að tala við kven- fólk, af því að hann hefir al- drei átt vinkonu. Ef hann verð- ur síðar ástfanginn, kann hann ekki með það að fara og ger- ir sig. sekan í allskonar glappa- skotum. Hvernig getur liann gert að slíku, ef hann þekkir ekki liugsunarhátt og tilfinn- ingar kvenþjóðarinnar? For- eldrar ættu að gleðjast yfir slíkri vináttu og gera sitt til að efla liana og viðurkenna með því að leyfa börnunum að umgangast heima fyrir, eins og ekkert væri eðlilegra. Ef hörnin hera fult traust til foreldra sinna, leyfa þau for- eldrunum að leiðbeina sér í vinavali, þótt þeirra sé völin og kvölin, er þau vitkast og stækka. Foreldrar mega ekki fæla vini barnsins frá heimil- inu með einskonar afbrýðis- semi, sem getur eyðilagt líf barnanna, eins og mörg dæmi eru til. Ef við getum ekki skilið „hvað liann sér í henni“, verð- um við að liafa það liugfast, að hann sér með sínum augum, en ekki með olckar. Ef við telj- um liana ekki samhoðna hon- um, þá verðum við að gera okkur grein fyrir hvort ást okkar hefir ekki sín áhrif á niðurstöðuna. Ef þessa er gætt á heimil- inu, þá munu börnin líta á hjónabandið sem eðlilegan og örlagaríkan viðburð. Þau munu skilja það, að það er al- drei auðvelt eða ábyrgðarlaust að tengja lif við líf, jafnvel þótt um ást á hæsta stigi sé að ræða. Skilyrði fyrir affarasælu hjónabandi er óeigingirni, um- burðarlyndi, þolinmæði og gagnkvæm ást og umhyggja. Ef um sanna ást er að ræða, kemur þetta af sjálfu sér, því að ástin leitast altaf við að gefa frekar en að taka. En vanda- málið er hinsvegar hitt, að hjónaefnin hafa ímyndað sér hvort annað gallalaust og þeim gengur því erfiðlega að sætta sig við þá staðreynd, að eng- inn maður er ókostalaus. Með tíð og tíma venjast þau þó þessu og með umburðar- lyndi vekja þessir smáárekslr- ar hreinni skilning og dýpri ást. Menn kynnast nánar ár frá ári með umgengni og sam- starfi og hið sama gild- ir í lífi manns og konu, sem gengið hafa i hjúskap. Eg ef- ast unx að þau skilji nokkurn tíma livort annað til fulls, en þá er það umburðarlyndið eitt, sem vekur haustið og ástina. Ef ástin væri ekki fyrir hendi, væri hfið autt og gleði- snautt. Ævintýri, sem á sér elcki djúpar rætur, en á upp- haf sitt að reltja til fagurs and- lits og einskis annars, varir al- drei lengi. Andlitið glatar feg- urð sinni með tímanum í aug- um allra annara en þess, sem elskar það og snoppufegurð er fátækleg fæða fyrir Iiungraða sál. Mér er kunnugt um mörg lijónabönd, þar sem slíkir erf- iðleikar koma eklci til greina, með þvi að bæði hjónin dá livort annað vegna umburðar- lyndis og þolinmæði,. trygðar og skapfestu, en hin hreina og djúpa ást vex best í þeim jarð- vegi. Göfuglyndið og umburð- arlyndið eitt getur borið þær byrðar, sem á menn lxlaðast með árunum. Fæðing harns getur stundum verið fyrsti dag- renningarvotturinn í myrku lífi hjónanna, og ef unga fólk- ið gerir sér það ljóst, áður en það gengur út í lijónabandið, að ástin þróast á heimilinu sjálfu, og að betra er að eiga bú en bifreið, þá bygg ég að líkindi séu til að það verði heppið í ástum. Hjúskapurinn getur verið æfintýri, en það á aldrei að vera áhættuleikur. Ekkert okkar hefir leyfi til að eyða annars lífi sér sjálf- um til afþreyingar og skemt- unar. Grundvöllurinn verður að vera traustari, vilji menn eignast heimili, sem heimili getur kallast. Heimili, sem ekki er heimili, er fangelsi. Þetta tel eg að faðir ætti að segja syni sínum, — ekki einu sinni í lauslegu viðtali, heldur oft á ári í alvarlegum viðræð- um. Milli þeirra á að ríkja gagnkvæmt traust og trúnað- ur, — annars hvílir þetta alt í þögninni. Þegar sonurinn hefir fengið þessar leiðbeiningar, lærir hann sjálfur miklu meira, er liann athugar sitt eigið heim- ili. Að hafa alist upp við far- sælt heimilislíf er fyrsta skil- yrði þess að menn eignist sjálf- ir hið sama. Alvarlegasta spurning for- eldranna er ekki þetta; „Hvað eigum við að segja sgni olck- ar?“, heldur hin: „Hvaða for- dæmi höfum við gefið hon- um ?“

x

Vísir Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.