Vísir Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Vísir Sunnudagsblað - 14.05.1939, Qupperneq 6

Vísir Sunnudagsblað - 14.05.1939, Qupperneq 6
6 VfSIR SUNNUDAGSBLAÐ yfirrráðum Tyrkja. Og á meöan hinn heimsfrægi félagi hennar, Lawrence Arabiu-ofursti barð- ist hverja orustuna á fætur ann- ari við fjandmannaliðið, stofn- aði Gertrude Bell lífi sínu á annan hátt í voða. Iivílík afrek liún hefir leyst af liendi í þágu ættjarðarinnar myndum við þá fyrst skilja til fullnustu, ef stjórnmálaleg og hernaðarleg leyndarskjöl Bretaveldis yrðu gerð heyrin kunn. Staðið í skugganum. Hin stöðuga dvöl meðal ara- hisku þjóðarinnar, liættulegar eyðimerkurferðir og óbrotið lif í Beduinatjöldum setti alt sinn svip á líf Gertrude Bell. Hún unni arabisku þjóðinni af lífi og sál og hún barðist eldheitri baráltu fyrir fullkomnu sjálf- stæði liennar. Ef til vill var það liinn gneistandi sannfæringar- kraftur hennar, sem varð þess valdandi, að hinir tortrygnu Arabahöfðingjar urðu vinir liennar og háru til hennar ó- takmarkað traust. Það álit, sem hún naut i heimkynnum sínum var einnig svo mikið, að hún var kvödd á friðarráðstefnuna í Versölum til að leggja á ráð- in um stjórnarfarsmál Araba. Þeklcing hennar á lifi þeirra, og aðstæðum öllum var lögð til grundvallar við stofnun hins mesopotamiska ríkis. Englendingar áttu mikið í liúfi. Það voru fyrst og fremst oliulindirnar í Mossul — hin dýrmæta lífæð hreska flotans í vesturhluta Austurlanda. í öðru Iagi varð að samræma liags- muni Englendinga við loforð þau, sem þeir höfðu gefið Ar- öbum, ef þeir brytust undan yf- irráðum . Tyrkja. I þessum til- gangi var hið sjálfstæða ríki Irak stofnað og Englandi falin umsjá með því. — Það þurfti að sigrast á mörgum og miklum erfiðleikum. í Sýrlandi og Mesopotamiu þurfti að bæla niður uppreist gegn hreskum og frönskum yfirráðum. Eng- lendingurinn Sir Percy Cox var sendur sem fulltrúi Breta aust- ur til Bagdad til að ráða mál- um þeirra þar. Að honum tókst það — og tókst það svo vel, sem raun har vitni um, átti hann fyrst og fremst sinni hægri hönd að þakka -— en það var Gertrude Bell. í þágu Feisals konungs. Á stúdentsárum sínum hafði Gertrude Bell einhverju sinni verið kynt arabiska furstanum Feisal. Það var í París. Úr þeim skjótu kynnum varð síð- ENN MARGIR MUNNAR, SEM FÆÐA ÞARF — Þrátt fyrir að borgarastyrjöldin á Spáni sé um garð gengin, er enn mikill fjöldi flóttamanna í Frakklandi — og meðal þeirra fjölda mörg hörn, sem liafa mist foreldra, vini og vandamenn, og eiga enga að. Myndin er tekin í einum landamærabænum, þar sem franskir hermenn ganga um beina fyrir munðarlaus, spænsk böra. ar lifstíðar vinátta. Gertrude Bell og Lawrence ofursti hörð- ust fyrir því af eldheitum á- kafa, að Feisal yrði gerður að konungi i Irak I stöðu sinni sem aðalritari austurlenskra mála á hresku stjórnarskrifstofunn i í Bagdad bauðst henni tækifæri til að undirbúa jarðveginn að þessum áhugamálum sínum. Stjórnarfarslegt öryggi Iraks og val Feisals til konungs var að langmestu leyti Gertrude Bell að þakka. Hún varð enn á ný að semja við arabiska höfð- ingja, snúa þeim til fylgis við sig, hæla niður tortrygni, eyða andúð og vekja ást til hins væntanlega konungs. Loks sá hún ávexti iðju sinnar. Feisal vinur hennar var krýndur til konungs. Vinátta þeirra hélst áfram, og hann hefir aldrei gleymt þeirri konu, sem stofn- aði lianda honum nýtt konUngs- ríki. Árum saman var Gertrude Bell áhrifamesta og voldugasta manneskjan í Mesopotamiu. Stjórnarvökl landsins veittu engum þeim áheyrn, sem voru i ónáð lijá henni, og þar var ekkert gert og ekkert fram- kvæmt nema með samþykki hennar. Meira að segja eftir lcrýningu Feissals hélt liún á- fram að vera hin ókrýnda drotning landsins. Hún réði öllu um byggingu konungshallar- inar, til liennar komu allir æðstu menn ríkisins og allir tiginbornir Norðurálfubúar, sem komu til Bagdad, og til hennar komu allar umkvartan- ir, óskir og beiðnir frá ibúun- um sjálfum. Hún var mann- eskja sem þeir virtu, treystu og elskuðu takmarkalaust. Þegar Gertrude Bell dó í júlí- mánuði 1926 slóð lífsstarf hennar þegar á föstum grunni. Draumur hennar um arabiskt konungsríki hafði ræst. Hún unni hinni irönsku þjóð, og svo heitt, að hún vildi heldur vera meðal hennar, en lieima á ætljörð sinni, með vin- um sínum og foreldrum þar. Síðustu æfiárin var hún heilsu- veil — erfið ferðalög við skort og allskonar þrautir inni í eyði- mörkum Jandsins skildu eftir spor sín í lifi þessarar konu, enda þótl bún liefði verið hraustlega bygð. Foreldrarnir óskuðu eftir henni lieim —- hún skrifaði þeim hjartnæm og ást- rík bréf — en sjálf fór hún ekki fet. Hún var byrjuð að leggja fornminjafræði fyrir sig að nýju, og nokkurum mánuðum áður en liún dó, stofnaði hún þjóðminjasafnið í Bagdad. Við andlát hennar var haldin minningarræða um hana í parlamentinu enska. Annars er það heiður sem jafnan er ekki veittur öðrum konum en drotn- ingum. En bréfin hennar sjálfr- ar, sem gefin liafa verið út, múnu samt reisa benni ódauð- legastan minnisvarða — þessarx sérstæðu og stórbrotnu konu, sem stofnaði konungsríki og setti vini sína til valda. ERIvIFJANDI GLÆPAMANNA Þetta er skopmynd af Edgar Hoover, sem er yfirmaður G- mannanna i Ameriku, en þeix-ra hlutverk er að hafa hendur í liári þeirra glæpamanna, sem smogið hsfa gegnum öll venju- leg „lögreglunet“. — G-menn- irnir hafa haft sig mjög í frammi upp á siðkastið og „lireinsað til“ í fjölda mörgum amerískum borguxxi.

x

Vísir Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.